Morgunblaðið - 22.01.2000, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 22.01.2000, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. JANÚAR 2000 11 FRÉTTIR Blendin viðbrögð við gagnrýni utanríkisráðherra á fjármálastofnanir Fjármálamarkaðurinn þjón- ustugrein í harðri samkeppni FORSVARSMENN fjármálastofn- ana bregðast misjafnlega við þeirri hörðu gagmýni á útlánastefnu þeirra sem Halldór Ásgrímsson, utanrflds- ráðheiTa og formaður Framsóknar- flokksins, lét falla á opnum stjórn- málafundi Framsóknarfélags Reykjavíkur sl. fimmtudagskvöld. Halldór vék þar að hættu á vaxandi verðbólgu og sagði m.a.: „Og það skiptir öllu máli hvemig við hegðum okkur sem einstaklingar, að við látum ekki ginnast af gylliboðum fjármála- markaðarins, sem nú er aðallega að bjóða fólki lán og reyna að koma lán- um inn á hvem einasta Islending, al- veg niður í skólakrakka. Ég verð ekki mikið var við að þessar miklu fjármálastofnanir séu að predika sparnað en ég verð hins vegar mikið var við að þær em að auglýsa og koma út lánum við öll möguleg og ómöguleg tækifæri. Auðvitað bera þessir aðilar einhverja ábyrgð." Samkeppnin farið út í öfgar Halldór J. Kristjánsson, banka- stjóri Landsbanka Islands, segir að ekki sé hægt að gera ágreining við sumt í máli ráðherra, en er þó þeirrar skoðunar að gagnrýni hans sé of eins- leit; fjármálastofnanir hafi t.d. lagt mikla áherslu á margvísleg spamað- arform fyrir viðskiptavini sína og þær auglýsingar hafi verið mun meira áberandi en auglýsingar um útlán. „Það hefur verið innleidd sam- keppni á fjármálamarkaði og af henni leiðir að aðilar á markaðnum auglýsa nú þjónustu sína í auknum mæli. Að mínu mati hafa komið upp tilvik þar sem samkeppnin hefur gengið út í öfgar og á síðasta ári hvarflaði að mér að auglýsingaherferðir um ný form útlána og nýjar tegundir greiðslu- korta væri ekki beinlínis sú mynd samkeppninnar sem ákjósanlegust væri. Að því leyti get ég tekið undir orð ráðherra, en því fer fjarri að Landsbankinn hafi hvatt einstaklinga til óeðlilegrar lántöku,“ segh’ Halldór. Að hans mati hefur Landsbankinn þvert á móti sýnt mjög aðgætna út- lánastarfsemi, einkum á seinni helm- ingi síðasta árs. „Þar má segja að við höfum stigið á bremsuna og t.d. varð engin aukning í útlánum okkar síð- asta ársfjórðunginn. Með þessu tel ég að við höfum sýnt mikla aðgæslu og fulla ábyrgð.“ Halldór segir að fjármálastofnanir hafi hvatt mjög til sparnaðar á síðasta ári og í Landsbankanum hafi slíkt m.a. verið gert með eilítið meiri vaxtahækkun á innlánum en útlán- um, en þó aðallega með bættu fram- boði sjóðalausna, svo sem Fortuna- sjóðunum. Hins vegar viðurkennir hann að sér hafi fundist einstaka fjár- málastofnanir ganga fulllangt í sam- keppninni, ekki síst þar sem stjórn- völd og Seðlabankinn hafi hvatt mjög til aðgæslu í útlánum í ljósi ríkjandi árferðis. „Því er ekki að leyna að Sparisjóð- h-nir hafa verið mjög áberandi í auglýsingum, ekki síst í tengslum við nýjar tegundir korta og breytt form og kjör útlána. í Landsbankanum hefur sú stefna hins vegar verið mót- uð að höfuðáhersla sé lögð á lang- tímasamskipti við viðskiptamenn bankans og þeim sé þannig veitt heildarfjármálaþjónusta. í þeim sam- skiptum höfum við lagt mikla áherslu á reglubundinn spamað fólks og al- menna íyrh'hyggju í fjármálum. Það er hvorki erfiðara né auðveldara að fá lán í Landsbankanum nú en áður, reglurnar hafa ekkert breyst,“ sagði Halldór. Þjónustugrein í harðri samkeppni Guðmundur Hauksson, sparisjóðs- stjóri Sparisjóðs Reykjavflau- og ná- grennis, segir að gagnrýni Halldórs Asgrímssonar sé hörð, en hún sé jafn- framt á mjög röngum grunni byggð. „Islenskar fjármálastofnanir hafa verið að laga sig að því umhverfi sem erlendis hefui' tíðkast undanfai'in ár. Stutt er síðan við fengum að vinna í sama umhverfi og þar gefst og að bjóða sambærilega þjónustu og á sama hátt og þar gerist,“ segir hann. Fjármálamarkaðurinn hér á landi er þjónustugrein í harðri samkeppni, að sögn Guðmundar. „Því er eðlilegt að hún sé boðin viðskiptavinum, rétt eins og í hverri annarri atvinnugrein. í þessum efnum, eins og öðrum, verð- ur fyrst og fremst að höfða til ábyrgð- ar einstaklingsins á sjálfum sér og eigin neysluvenjum. Þeir sem telja að einstaklingum sé ekki treystandi í þessum efnum eru að tala fyrir þjóð- félagsformi sem er liðið undir lok.“ Guðmundur bætir því við að sér finnist mikið skorta á að unnið sé í að byggja upp þekkingu einstaklingsins á fjármálamarkaðnum, t.d. gegnum menntakerfið. „Ég tel að hver einasti unglingur ætti að fá fræðslu í fjármál- um, því þau eru orðinn svo ríkur þátt- ur í daglegu lífi fólks,“ segir hann. Aðspurður um gagnrýni ráðherra á gylliboð um útlán í stað spamaðar, segir Guðmundur að staðreyndin sé sú að stjómvöld hafi beint spamaði fólks annað en til innlánsstofnana. „Stjórnvöld hafa gert öðram spamaðarformum hærra undir höfði, t.d. lífeyrissparnaði og hlutabréfa- kaupum. Á sama tíma er innláns- stofnunum gert erfitt fyrir með bind- ingu á innlánum í Seðlabanka á lágum vöxtum og erfiðum lausafjáiTeglum,“ sagði Guðmundur. Á ekki við um Búnaðarbanka Stefán Pálsson, bankastjóri Bún- aðarbankans, segist ekki geta tekið gagnrýni Halldórs til sín eða Búnað- arbankans. „Við höfum alls ekki hvatt til útlána í auglýsingum okkar. Ég hef litið yfir auglýsingar okkar frá maí á síðasta ári og i þeim höfum við alls ekki hvatt til almenning til lántöku. Við höfum auglýst nokkuð fasteignalífeyri, sem er þjónusta okkar við eldri borgara, og eins rýmkuðum við reglur um sjálfskuldarábyrgð á yfirdráttarlán- um í Heimilislínunni, rétt eins og stjórnvöld höfðu hvatt til,“ sagði hann. Valur Valsson, bankastjóri Is- landsbanka, baðst undan því að ræða ummæli utanríkisráðherra. Tillaga um mislæg gatnamót Vísað til um- fjöllunar við endurskoðun aðalskipulags MEIRIHLUTI borgarstjórnar samþykkti á fundi sínum í fyrra- kvöld að vísa tillögu borgarfulltrúa sjálfstæðismanna um mislæg gatnamót Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar til umfjöllunar við endurskoðun aðalskipulags Reykja- víkur sem nú stendur yfir og ráð- gert er að ljúka á þessu ári. Sjálf- stæðismenn létu bóka að þeir teldu ljóst af afgreiðslu málsins að R-list- inn treysti sér ekki til að bregðast þegar við því erfiða umferðar- vandamáli sem skapast hefði á gatnamótunum. Sjálfstæðismenn segja úrlausn vandans ekki þola hik en fulltrúar R-listans benda hins vegar á að um- ferðarskipulag borgarinnar verði tekið heildstætt til skoðunar við endurskoðun aðalskipulags Reykja- víkur sem fram fer á þessu ári og það væru ábyrgðarlaus vinnubrögð að taka ein tiltekin gatnamót út úr þeirri heildarskoðun. Fram kom í máli Kjartans Magnússonar, borg- arfulltrúa Sjálfstæðisflokks, að Miklabraut er tjónamesta gata landsins. Sjóvá-Almennar hafa gert skýrslu um tjón á Miklubraut á ár- unum 1994 til 1999. Af niðurstöðum skýrslunnar má áætla að á þessu tímabili hafi um 750 manns slasast og tæplega 5.200 bílar skemmst eða eyðilagst í 2.500 tjónum á götunni. Kjartan sagði að talið væri að mislæg gatnamót myndu fækka slysum og óhöppum um 50 til 60%. : . ■ ■ ■ ■ ■ ' sím! 4613000*
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.