Morgunblaðið - 27.08.1998, Qupperneq 42
* 42 FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 1998
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
+
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma,
RAGNHEIÐUR KRISTJÁNSDÓTTIR,
Goðatúni 7,
Garðabæ,
verður jarðsungin frá Garðakirkju föstudaginn
28. ágúst kl. 13.30.
Halldóra Gunnarsdóttir,
Grettir Gunnarsson,
Rakel Eva Gunnarsdóttir,
tengdabörn og barnabörn.
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
JÓRUNN BACHMANN,
Dvalarheimili aldraðra, Borgarnesi,
áður Egilsgötu 15,
Borgarnesi,
verður jarðsungin frá Borgarneskirkju laugar-
daginn 29. ágúst kl. 14.00.
Sigríður Bachmann,
Haukur Bachmann, Kristín Einarsdóttir,
Guðmundur Bachmann, Gerða Arnleif Sigursteinsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Jarðarför ástkærrar móður okkar, tengda-
móður, ömmu og langömmu,
HLÍFAR ÞÓRARINSDÓTTUR,
Naustahlein 6,
Garðabæ,
fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn
28. ágúst kl. 13.30.
Þórarinn Ólafsson, Marta Bjarnadóttir,
Geir Ólafsson, Ingibjörg Bjarnardóttir,
Ragnar Ólafsson, Matta Rósa Rögnvaldsdóttir,
og fjölskyldur.
+
Þökkum auðsýnda samúð og vináttu við fráfall eiginmanns míns, föður
okkar og afa,
KARLSSTRAND
fyrrv. yfirlæknis
á geðdeild Borgarspítalans.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Margrét Strand,
Viðar Strand,
Titti Strand,
Hildur Strand,
Una, Æsa, Charles og Johan Strand.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð, hlýhug og vináttu við andlát og
útför ástkærs föður okkar, tengdaföður og afa,
BRAGA HALLDÓRSSONAR,
Vallargötu 18,
Keflavík.
Fjóla Bragadóttir,
Baldur Bragason
og fjölskyldur.
+
Innilegt þakklæti fyrir samúðarkveðjur og hlý-
hug vegna fráfalls og útfarar sonar okkar og
bróður,
HALLGRÍMS HELGASONAR.
Svava Vigfúsdóttir, Helgi Hallgrímsson,
Rut Helgadóttir og fjölskylda.
Lokað
Lokað verður í dag, fimmtudaginn 27. ágúst, vegna útfarar
ÓLAFAR P. SVEINSDÓTTUR.
Goddi ehf., Smiðjuvegi 30.
EINAR HEIMISSON
syni á þann hátt að okkur fannst við
þekkja hann persónulega. Afi átti
gríðarstóran hnött. Við Einar sner-
um honum og stoppuðum með putt-
anum einhvers staðar og afi sagði
okkur frá því landi sem hnötturinn
stoppaði á. Amma sagði okkur ferða-
sögur frá Englandi og síðan sagði
hún okkur frá því þegar þau afi hitt-
ust í fyrsta sinn á Alþingishátíðinni
1930 á Þingvöllum. Stundum spilaði
amma á píanóið. Uppáhaldstónskáld-
ið hennar var Motzart.
Heimir og Steinanna voru einstak-
ir foreldrar og bjuggu börnum sínum
ástríkt heimili, sannkallað menning-
arheimili, þar sem bókmenntir,
stjórnmál, sagnfræði og tónlist eru í
hávegum höfð. Þar ríkir umburðar-
lyndi, jafnrétti, virðing og friður.
Þau hafa alltaf gefið sér tíma til að
vera með börnunum sínum, fræða
þau og mennta. Enda hefur verið
eftirtektarvert hvað börnin þeirra
hafa verið vel lesin.
Við Einar uxum upp og eignuð-
umst yngri systkini og frændsystk-
ini. Þessi frændsystkinahópur hefur
verið samheldinn. Á hátíðum og í
fjölskylduboðum voru haldnar her-
legar leiksýningar. Þá var nú mikið
um dýrðir. Kristrún spilaði á píanóið
og Einar á fiðlu. Búningarnir komu
flestir úr skápunum hennar Stein-
önnu frænku. Frændsystkinin gengu
menntaveginn. Eftir stúdent var
haldið í Háskólanám víða um heim.
Einar var afbragðsnámsmaður og
framúrskarandi í hveiju því sem að
hann tók sér fyrir hendur. Hann var
semidúx úr MR og fór síðan til
Þýskalands að læra. Það var alltaf
gaman að koma heim á sumrin og þá
hittumst við öll.
Á háskólaárunum leigði ég íbúð
við Laufásveg. Þangað kom Einar
oft að heilsa upp á frænku sína.
Hann var orðinn svo fjallmyndalegur
og svo mikill heimsmaður. Þar var
mikið spjallað. Eitt sinn spurði hann
mig hvort ég vildi ekki halda fyrir
hann velkominn heim partí. Það var
nú alveg sjálfsagt. Buðum við þang-
að öllum mínum vinum og hans vin-
um. Það var mikið fjör. Eg var svo
stolt af fallega, klára frænda mínum.
Einar sagði okkur frá lífinu í
Freiburg af mikilli innlifun. Hann
var svo fullur af hugsjónum og
áhuga á öllu sem hrærðist. Hann
hlakkaði til að geta skoðað íslenska
sögu út frá nýjum sjónarhomum
með aðferðum sem hann lærði í
Þýskalandi. Hann talaði um þörfina
fyrir gagngrýna sagnfræði. Þetta
var alveg nýtt fyrir okkur og okkur
þótti afar áhugavert það sem hann
var að segja. Hann var svo uppfullur
af áhuga og eldmóði að það geislaði
af honum. Þá var hann orðinn þekkt-
ur rithöfundur svona kornungur.
Það var stórkostlegt að fylgjast
með Einari og Kristrúnu hvað þau
voru dugleg, þolinmóð og góð við
ömmu okkar þegar hún var orðin há-
öldruð kona. Einar gat setið með
henni tímunum saman og rætt við
hana um fortíðina og alla heima og
geima. Á meðal annars um skáldið
Jónas sem amma hafði einstakt dá-
læti á. Þótt minnið færi að verða
gloppótt hjá gömlu konunni mundi
hún utan að öll ljóð Jónasar. Þau
voru alltaf boðin og búin að hjálpa
henni og gerðu það af einstakri nær-
gætni og skilningi og eiga þakkir
skildar fyrir það.
Einar fór að læra við Kvikmynda-
akademíuna í Munchen. Hann taldi
kvikmyndir vera góða leið til að
koma hugmyndum sínum á framfæri
og dreymdi um að gera sögulegar
myndir með leikrænu ívafi. Það er
mikið tjón fyrir kvikmyndagerð á ís-
landi að missa Einar Heimisson
svona ungan. Hann var uppfullur af
hugmyndum og átti svo margt eftir
ógert. Margir fá fjölda góðra hug-
mynda án þess að gera annað en að
tala um þær. En Einar kom þeim í
framkvæmd.
Elsku Steinanna, Heimir og
Kristrún. Guð blessi ykkur öll, styrki
og styðji í þessari miklu sorg. Maður
skilur kannski ekki á þessari stundu
að maður geti nokkum tímann litið
glaðan dag eftir þetta en saman
verðum við að halda áfram að lifa og
styrkja hvert annað og styðja. Við
eigum þó dýrmætan fjársjóð sem er
samheldin, stór og sterk fjölskylda
og trúin á eilíft líf. Við getum þó ver-
ið viss um að það hefur verið tekið
vel á móti Einari hinum megin. Þar
hafa verið fremst í flokki afi og
amma. Verkin hans Einars munu
líka lifa og hans mun verða minnst
sem eins af stórmennum þessarar
aldar.
Fyrir hönd allra ástvinanna finnst
mér vel við hæfi erindi úr Ijóði
Jónasar Hallgrímssonar sem mér
þykir um margt minna á Einar
Heimisson. Skilaboðin eru: Við sjá-
umst öll aftur!
Háa skilur hnettí
himingeimur,
blað skilur bakka og egg;
en anda, sem unnast,
fær aldregi
eilífð að skilið.
Anna Margrét Bjamadóttir.
Sumarið hefur verið okkur hér á
suðvesturhorninu örlátt á birtu og yl
og bægt frá okkur sorg og angri. Á
einum slíkum degi hringdi vinur
okkar Einar Heimisson hingað á
Túngötuna til að kveðja mig og
mína. I bili. Sagðist ætla að skreppa
utan og ganga frá undirbúningi að
næstu mynd sinni. Spjall okkar end-
aði eins og svo oft áður á vinsamlegri
áminningu um að hann reyndi nú að
vera ekki alveg eins og ungi Werther
en horfa þess í stað í sólskinið þó að
honum fyndist ýmislegt vera sér
andstætt í lífi og starfi. Hann tók
áminningunni vel og lofaði að brosa.
Svo var hann farinn og sólin hélt
áfram að skína og ekkert okkar óraði
fyrir að við hefðum kvatt þennan vin
okkar í síðasta sinn.
Ekki fyrr en faðir hans flutti okk-
ur skelfilega frétt af andláti hans og
sorgin lagðist eins og niðdimm þoka
yfir allt. Þessi ungi og glæsilegi
di-engur hafði orðið bráðkvaddur
ytra. Eins og hendi væri veifað var
hann ekki lengur meðal okkar. Við
vissum öll að lífsblómið hans var
ekki meðal harðgerðustu jurta, en
enginn átti von á að hann gæti verið
á fórum þangað sem við náum ekki
til hans.
Fullorðið fólk á vísast að hafa
þroska til að taka því sem að hönd-
um ber. En við slík tíðindi taka til-
finningarnar ráðin af skýrri hugsun.
Hugurinn sveiflast milli harms og
reiði, milli heiftar í garð þess sem
öllu stjórnar ef einhver er og óbæri-
legrar tilhugsunar um það sem for-
eldrar Einars og systir þurfa nú að
takast á við. Enn einu sinni leitar
spurningin um réttlæti á hugann og
enn verður fátt um svör.
En þegar þokan eftir fyrstu við-
brögð tekur að greiðast í sundur
hættum við að spyrja spurninga sem
engin svör fást við. Tilgangslaus
heiftin víkur fyrir sorginni vegna
ótímabærs andláts vinar sem sjálfur
þekkti hana kannski betur en við. Af
hverju það var reyndist okkur erfitt
að skilja á stundum. Og við eigum
enga kosti aðra en að fara að ráðum
sem svo auðvelt var að gefa og horfa
á ný í sólskinið. Og brosa. Eins og
við gerðum móðir hans og ég á sam-
eiginlegum vinnustað okkar foreldra
hans í Menntaskólanum í Reykjavík
þegar hún sagði mér frá væntanlegri
komu hans í þennan heim.
Og fallegu barni var fagnað og síð-
ar systur og allt gert sem góðir for-
eldrar megna að gera best fyrir
börnin sín. Flest var þessu barni gef-
ið, gáfur og glæsileiki, sem blómstr-
uðu á yndislegu æskuheimili í sam-
neyti við góða foreldra og systur.
Skólaganga var leikur einn og áður
en við vissum af sáum við á eftir
bömunum okkar út í lífið að afloknu
stúdentsprófi. Við horfðum kannski
ofurlítið áhyggjufull á eftir þessum
glaðbeitta hópi sem hélt að hann ætti
heiminn, en vonuðum að hann yrði
þeim góður.
Og víst var hann það oftar en ekki.
Hugur Einars hneigðist snemma að
skáldskap og tónlist, en mannrétt-
indi og heimspeki sóttu einnig á hug
hans. Hann kaus sér sagnfræði sem
fræðigrein og lauk doktorsprófi á fá-
um árum, en eygði óhefðbundna leið
fyrir hugðarefni sín og hóf nám í
leikstjóm og handritsgerð við kvik-
myndaháskóla. Hann skrifaði tvær
skáldsögur, sem ég las fyrir hann í
handriti, og hann tók því jafnan vel
þó að komið væri við kviku. Hann
vissi af henni sjálfur, þekkti ofsa til-
finninga sinna fyrir því sem honum
var kært og það var kannski meira
en hann gat borið. Kærleikur hans
og umhyggja fyrir öllum kúguðum
og þjáðum, Iífs og liðnum, var óend-
anlegur og næstum yfirþyrmandi.
Þessa bera verk hans merki. Hann
átti stóra drauma og kom ótrúlega
miklu í verk þann stutta tíma sem
honum var gefinn. Verk sín skilur
hann okkur eftir og þau ber að
þakka.
En ofar öllu beinist þakklæti okk-
ar að honum sjálfum, þeim manni
sem hann var. Við kveðjum þennan
góða dreng með miklum söknuði og
minnumst margra fallegra brosa.
Þökkum fyrir að hann var hér og vit-
um að það er langt þangað til hann
fer frá okkur fyrir fullt og allt. Þá
ósk á ég eina foreldrum og systur til
handa að sú sorg sem nú sýnist lítt
bærileg breytist í tærar minningar
um bróður og son, sem endurgalt ást
þeirra af heitu hjarta. Stór hópur
vina og kunningja kveður Einar
Heimisson með sorg og söknuði, en
þeir sem báðu hann að horfa inn í
sólskinið og brosa, verða nú að fara
að eigin ráðum. En erfitt er það.
Guðrún Helgadóttir.
• Fleiri minnitigargreiiuir um
Einar Heimisson bíða birtingar og
munu birtast í blaðinu næstu daga.
+
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu
okkur samúð og vináttu við andlát og útför
OLGU HARÐARDÓTTUR.
Sérstakar þakkir til starfsfólks krabbameins-
deilda Landspítalans fyrir umönnun og
stuðning í veikindum hennar.
Alexander Serna Marchán,
Róbert Alexander Alexandersson,
Sigrún L. Sigurðardóttir.
+
Þökkum innilega auðsýnda samúð við fráfall
og útför móður okkar,
GUÐNÝJAR SVANHVÍTAR
GUÐMUNDSDÓTTUR
frá Þórshamri.
Guðrún Jónsdóttir,
ÁsmundurJónsson,
Kári Jónsson,
Guðný Jónsdóttir,
Sigurjón Hjálmarsson,
Heimir Hjálmarsson.