Morgunblaðið - 27.08.1998, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 1998 29
LISTIR
Ungt og efnilegt tónlistarfólk
Morgunblaðið. Húsavík.
ÞRJÁR ungar stúlkur á aldrin-
um 16-20 ára, héldu sína fyrstu
sjálfstæðu tónleika á Húsavík
fyrir skönimu, fyrir fullu húsi
og við mjög góðar undirtektir
áheyrenda. Stúlkurnar eru
Lára Sóley Jóhannsdóttir og
Gunnarsdæturnar Jóhanna og
Sigurveig.
Lára Sóley leikur á fiðlu og
hefur leikið með Sinfóníuhljóm-
sveit æskunnar og Sinfóníu-
hljómsveit Norðurlands. Syst-
urnar sáu um söng og leik á pí-
anó og gítar. Þess má geta að
Jóhanna hlaut þriðju verðlaun í
söngvakeppni framhaldsskól-
anna á síðastliðnum vetri.
Á fyrri hluta tónleikanna
voru m.a. verk eftir Chopin,
S.L. Weiss og Wieniawski.
Einnig frumfluttu þær Sónötu
fyrir fiðlu eftir Helga Péturs-
son, en þær nutu allar kennslu
hans þá hann var kennari við
Tónlistarskólann á Húsavík.
Var því verki og flutningi
sérstaklega fagnað. Einnig
frumfluttu þær klassískt verk
eftir ungan mann, Svein Rúnar
Sigurðsson, sem eflaust á eftir
að heyrast meira frá þá tímar
líða.
Auk þeirra stallsystra kom
fram fleira ungt listafólk sem
myndaði með þeim litla hljóm-
sveit. Það eru þau Kristín Þóra
Haraldsdóttir, fiðla, Sveinn Rún-
ar Sigurðsson, píanó, Kristinn
Haukur Guðnason, bassi, og
Magnús Halldórsson, trommur.
Berglind Dagný Steinsdóttir las
frumort ljóð.
Þetta var mjög íjölbreytt efn-
isskrá, ljóð, klássísk tónlist og
dægurlög, svo allir fengu eitt-
hvað við sitt hæfi. Lagaval og
flutningur var hinu unga æsku-
fólki til sóma og sýndi það að
auk skyldunáms í skóla eyðir
það tómstundum sínum til
frekara náms og flutnings góðra
lista, því til sóma og öðru fólki
til eftirbreytni.
Morgunblaðið/Silli
JÓHANNA við pfanóið, Sóley á fiðlu og Sigurveig með gítarinn efndu
til sinna fyrstu opinberu tónleika á Húsavík.
Hallgr ímskir kj a
Marteinn H.
Friðriksson
leikur á
hádegistón-
leikum
MARTEINN H. Friðriksson
dómorganisti í Reykjavikí leikur á
orgel Hallgrímskirkju í hádeginu í
dag, fimmtudag.
Tónleikarnir hefjast klukkan tólf
og á efnisskrá eru verk eftir
Mendelssohn, Jón Nordal og
Hjálmar H. Ragnarsson. Mar-
teinn H. Friðriksson gegnt stöðu
dómorganista í Reykjavík frá 1978.
Hann hefur kennt við Tónlistarskól-
ann í Reykjavík í mörg ár, frumflutt
mörg orgelverk hér á landi og hald-
ið tónleika víða um Evrópu auk þess
sem hann hefur oft leikið í útvarpi.
I hádeginu laugardaginn 29. sept-
ember leikur Neithard Bethke
dómorganisti í Ratzeburg í Þýska-
landi í Hallgrímskirkju. I kynningu
segir m,a., að hann hafi komið opin-
berlega fyrst fram sem orgelleikari
11 ára gamall og síðan verið af-
kastamikill á öllum sviðum kirkju-
tónlistar, einnig sem tónskáld og
stjórnandi.
-----------------
Nýjar bækur
• Grunnatriði safnastarfs er í þýð-
ingu Helga M. Sigurðssonar. Höf-
undar bókarinnar eru Timothy
Ambrose og Crispin Paine. Bók
þessi var fyrst gefín út af Alþjóða
safnaráðinu (ICOM) í samstarfi við
Routledge-forlagið árið 1993. Þetta
er fyrra hefti bókarinnar og fjallar
það um þjónustu, sýningar og safn-
gripi. I kynningu segir: „Grunnat-
riði safnastarfs markaði allmikil
þáttaskil í starfa ICOM. En ís-
lenska útgáfan er ekki síður merki-
leg því að um er að ræða fýrstu bók
um safnafræði sem út er gefin hér-
lendis, ef undan eru skildir minni
bæklingar um sértæk efni.“
Útgefandi er Árbæjarsafn og
Ljósmyndasafn Reykjavíkur. Bókin
er 187 blaðsíður og kostar kr. 2.800.
-------♦-♦-♦----
Sýningum lýkur
Listasafn Árnesinga
SÝNINGUM Þorbjargar Höskulds-
dóttur, Detel Aurand og Luigino
Valentin á efri hæð í Listasafns Ár-
nesinga lýkur sunnudaginn 30.
ágúst.
Hildur Hákonardóttir verður í
safninu á sunnudaginn kl. 16. og
leiðir fólk um sali, talar um mynd-
irnar og útskýrir þessi sjónarmið.
Á neðri hæð safnsins stendur yfir
samsýning sjö listamanna, tengd
Dulrænum dögum Sálarrannsókna-
félags Suðurlands.
Dulrænum dögum lýkur einnig
sunnudaginn 30. ágúst. Safnið er
opið frá kl. 14 til 17.