Morgunblaðið - 27.08.1998, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 1998 23
Morðið
á King
rannsakað
betur
JANET Reno, dómsmálaráð-
herra Bandaríkjanna, hefur
heimilað nýja rannsókn á
morðinu á blökkumannaleið-
toganum Martin Luther King,
að ósk fjölskyldu hans. Nýjar
vísbendingar hafa komið fi-am
sem benda til þess að James
Earl Ray, sem fundinn var sek-
ur um morðið á King, hafi ekki
verið einn að verki í Memphis í
Tennessee í apríl 1968. Rann-
sóknin verður takmörkuð, en
fjölskylda Kings hafði farið
fram á að stofnsett yrði rann-
sóknarnefnd til að fara í
saumana á því sem gerðist.
Ray lést í apríl, en hann hafði
dregið til baka upphaflega
játningu sína og reynt að fá
málið tekið upp að nýju.
Ný tegund
gervilims
SKOTINN Campbell Aird hef-
ur íyrstur manna fengið að
reyna nýja tegund rafeinda-
gerviarms, sem læknar í Edin-
borg hafa framleitt. „Hann
lætur fullkomlega að stjórn,“
sagði Aird og horfði hróðugur
á hinn nýja hægri handlegg
sem hann mátaði í fyrsta sinn í
gær.
Scháuble segir Kohl geta
hætt fyrir lok kjörtímabils
Bonn. Reuters.
VERA kann að Helmut Kohl, kanzl-
ari Þýzkalands, muni ekki sitja út
allt næsta kjörtímabil, nái hann
endurkjöri í kosningunum til Sam-
bandsþingsins eftir mánuð. Þetta
sagði Wolfgang Scháuble, þing-
flokksformaður Kristilegra
demókrata (CDU), flokks kanzlar-
ans, í viðtali sem útdráttur var birt-
ur úr í gær.
Schauble, sem Kohl hefur lýst yf-
ir að hann kysi helzt að sjá sem arf-
taka sinn, tjáði vikublaðinu Die
Woche að kanzlarinn byði sig fram
til endurkjörs í heilt kjörtímabil, en
ekki væri hægt að útiloka að hann
léti völdin af hendi fyrir lok þess ár-
ið 2002.
„Kohl hefur
sagt að hann
bjóði sig fram til
fjögurra ára, en
þegar allt kemur
til alls hefur
hann líka skilið
eftir svigrúm
varðandi það
sem gæti gerzt á
þessum fjórum
árum,“ er haft
eftir Scháuble í viðtalinu.
Kohl lýsti því yfir í fyrra að hann
kysi helzt að Scháuble tæki við af
sér, en hefur fram að þessu hafnað
því að nefna nokkuð um hvenær
rétti tíminn væri til að „skipta um
karlinn í brúnni". Samkvæmt út-
drætti úr viðtalinu, sem Die Woche
birti áður en blaðið kom út, hélt
Scháuble, sem er bundinn við hjóla-
stól eftir að honum var sýnt morð-
tilræði árið 1990, því opnu hvort og
hvenær hann myndi taka við af
Kohl.
Skoðanakannanir enn
misvísandi
Flestar skoðanakannanir benda
til að munurinn á fylgi Jafnaðar-
mannaflokksins SPD og CDU sé
um þrjú til fimm prósentustig, SPD
og kanzlaraefni hans, Gerhard
Schröder, í hag.
Niðurstöður nýjustu kannananna,
sem birtar voru í gær, voru nokkuð
misvísandi. Samkvæmt könnun Al-
lensbach-stofnunarinnar hafði CDU
tekizt að saxa lítið eitt á forskot
SPD - sem túlkað var sem merki
um að þau merki efnahagsbata sem
gert hafa vart við sig skilaði sér í
auknu fylgi kanzlaraflokksins. En
samkvæmt könnun Forsa-stofnun-
arinnar jókst forskot SPD úr fimm í
sex prósentustig - SPD með 43% og
CDU með 37%.
Það sem gerir öllum skoðana-
kannanastofnunum þó erfitt fyrir að
spá fyrir um úrslitin, er að enn er að
minnsta kosti þriðjungur þýzkra
kjósenda ekki búinn að gera upp
hug sinn.
Wolfgang
Schauble
Ofrj ósemisaðgerðir
framkvæmdar á
þroskaheftum
Sydney. The Daiiy Telegraph.
STJÓRNVÖLD í Ástralíu viður-
kenndu á mánudag að ófrjósem-
isaðgerðir, sem ekki hafði fengist
leyfi fyrir, hefðu verið fram-
kvæmdar á yfir 200 þroskaheft-
um stúlkum á árunum 1992 -97.
Talsmaður Michaels Woold-
ridges, heilbrigðisráðherra
Ástralíu, vísaði á bug sem „al-
gjöru bulli“ vangaveltum um að
góðkynjunarsjónarmið hefðu Ieg-
ið að baki aðgerðunum. Hann
neitaði jafnframt fullyrðingum
um að óheimilar aðgerðir hefðu
verið allt að fimm sinnum fleiri,
eða um eitt þúsund, á þessu tíma-
bili. Enn eru slikar aðgerðir
framkvæmdar, oft að ósk for-
eldra eða aðstandenda, án þess
að nauðsynlegur dómsúrskurður
þar að lútandi liggi fyrir, sam-
kvæmt upplýsingum frá ástr-
alska heilbrigðisráðuneytinu. I
yfirlýsingu frá ráðuneytinu var
tekið fram að margir læknar
hefðu ekki vitneskju um núgild-
andi lög þess efnis.
John Yu, barnalæknir og fyrr-
verandi yfirmaður New
Children’s Hospital í Sydney,
sagði að málið vekti ýmsar sið-
ferðilegar spurningar og væri
„afar flókið". Hann sagðist telja
að dómstólar ættu ekki að skera
úr um hvort þroskaheftar stúlk-
ur skyldu gangast undir ófijó-
semisaðgerð.
„Til eru stúlkur sem eru svo
fatlaðar að þær eru ekki færar
um að gera sér grein fyrir
afleiðingunum. Jafnframt því
að gæta réttar þeirra er nauð-
synlegt að leiða hugann að rétti
barnanna sem kunna að koma í
heiminn", sagði Yu. „Sumar
stúlknanna eiga líka í miklum
erfiðleikum með tíðablæðingar,
og ef þær eru einnig líkamlega
fatlaðar getur ófrjósemisað-
gerð auðveldað líf þeirra, sem
og aðstandenda, mjög mikið.
Ég tel að dómstólar geti ekki
skorið úr um slík tilvik á skyn-
samlegan hátt.“
Utanríkisráðherra Póllands um
ESB-aðildarundirbúning
Pólverjar til-
búnir árið 2002
PÓLVERJAR hyggjast vera búnir
undir aðild að Evrópusambandinu
fyrir árslok 2002. Þetta sagði utan-
ríkisráðherra Póllands, Bronislaw
Geremek, á blaðamannafundi í Alp-
bach í Austurríki.
Austurríska dagblaðið Der St-
andard hefur eftir Geremek, að
stjóm- og efnahagskerfi Póllands
geti verið að hans mati búin að upp-
fylla öll sett skilyrði fyrir ESB-að-
ildinni fyrir þennan tíma.
Stærstu vandamálin sem eigi eft-
ir að leysa á þessum tíma liggi á
sviði landbúnaðarmála. Nú hafi yfir
fjórðungur pólsks vinnuafls atvinnu
af landbúnaði, í landinu séu rekin
tvær og hálf milljón býla. Þessi
fjöldi verði að minnka niður í um
700.000 og nútimalegur matvæla-
iðnaður efldur að sama skapi. Ger-
emek sagði ennfremur, að leggja
þyrfti áherzlu á að efla þjónustu-
geirann. Hann tók hins vegar fram,
að hvort tveggja Grikkland og
Portúgal hefðu verið í sambærilegri
aðstöðu þegar þau fengu aðild að
ESB.
Auk þess sagði Geremek að mikið
lægi við að félagslegar umbætur
skiluðu árangri. Þær nýungar sem
þingið hefði nú þegar samþykkt í
lífeyris- og heilbrigðismálum yrðu
að komast til framkvæmda. Við-
skiptalífið, stjórnkerfið og samfé-
lagið í heild sinni stæði líka frammi
fyrir áframhaldandi umfangsmikl-
um almennar umbótum og nútíma-
væðingu. Einnig þyrfti að grípa til
aukinna ráðstafana til að sporna við
atvinnuleysi, sem nú væri orðið 9-
10% í landinu.
fyrir alla muni
enqin uondfœdi
med heimanámid