Morgunblaðið - 27.08.1998, Page 22
22 FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 1998
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Búist við
Bonnie
Wilmington í Norður-Karólínu. Reuters.
MILLJÓNIR íbúa við og nærri
strönd Norður- og Suður-Karólínu
í Bandaríkjunum bjuggu sig undir
það versta í gær er fellibylurinn
Bonnie stefndi hraðbyri á land,
eftir að hafa dregið nokkuð úr
ferðinni í fyrrinótt. Vindhraði í
bylnum síðdegis í gær var um 185
km á klukkustund.
Bonnie er fyrsti fellibylurinn
sem kemur af Átlantshafí á þessu
sumri og verulega kveður að.
Hjálparsveitir gerðu fólki að yfir-
gefa hús á strandeyjum og svæð-
um er liggja lágt. í dögun í gær að
staðartíma, eða skömmu fyrir há-
degi að íslenskum tíma, var vindur
kominn í fellibylshraða á Cape Fe-
ar, sem er skammt suður af bæn-
um Wilmington í Norður-Karólínu.
Slökkviliðsmenn fóru um með
sírenur vælandi á bílum sínum og
reyndu að fá fólk til að yfirgefa
eyjarnar austur af Wilmington, en
"þær eru vinsælir ferðamannastað-
ir. Þær urðu illa úti er fellibyljirnir
Bertha og Fran gengu yfir 1996.
Rúmlega hálf milljón manna
hafði þurft að yfirgefa heimili sín í
gær og tugir þúsunda streymdu til
þeirra 85 neyðarskýla er höfðu
Óbilandi
CLAIBORNE Pell, fyrrverandi
öldungadeildarþingmaður í
Bandaríkjunum, var á ferð hér á
landi í síðustu viku, en Banda-
ríkjaforseti útnefndi hann ný-
verið varafulltrúa Bandaríkj-
anna á 53. allsherjarþingi Sa-
meinuðu þjóðanna, sem kemur
saman í næsta mánuði og situr
fram í desember. Pell sat stofn-
ráðstefnu SÞ í San Francisco og
tók m.a. þátt í ritun sáttinála
samtakanna, þó „á mjög lítil-
vægan hátt“, að því er hann seg-
ir.
Síðan þá hefur Pell ætíð geng-
ið með eintak af sáttmálanum
upp á vasann og kveðst hafa
óbiiandi trú á Sameinuðu þjóð-
unuln. „Við ættum að borgar
skuldir okkar,“ segir hann og
skírskotar til þess að Bandaríkin
hafa ekki greitt framlag sitt til
rekstrarkostnaðar SÞ um langa
hríð. Nemur skuld þeirra nú 1,3
milljörðum dala, eða 94 milljörð-
um króna.
Þeir sem ekki vilji að skuldin
verði greidd beri fyrir sig
knappan fjárhag, en Peil kveðst
sannfærður um að einnig ráði
miklu að ýmsir séu andvígir SÞ
á hugmyndafræðilegum for-
sendum. Nefnir Pell þar öld-
verið opnuð í strandhéruðum Kar-
ólínuríkjanna. Þegar ljóst varð að
Bonnie myndi ekki ganga á land
þar sem fyrst hafði verið reiknað
með, heldur mun sunnar á strönd
Norður-Karólínu, gerðu hjálpar-
sveitir ráðstafanir til að fjölga
skýlum þar.
„Fólk vill ekki yfirgefa heimili
sín fyrr en vind herðir og byrjar að
rigna, og þá koma allir í einu,“
sagði Cecil Logan, skipuleggjandi
hjálparstarfs í Brunswick-sýslu,
þar sem um 2.000 manns þurftu að
flýja heimili sín.
Áð baki Bonnie bíður annar
fellibylur átekta, það er Danielle,
sem er fjórði fellibylurinn sem
hlýtur nafn á þessari fellibyljatíð.
Veðurfræðingar sögðu í gær Dani-
elle vera í flokki tvö er veðurhæð
varðaði og stadda um 1.200 km
austnorðaustur af Leeward-eyj-
um, sem eru austur af Puerto
Rico.
Danielle fer hratt yfir, að sögn
haffræðings hjá bandarísku felli-
byljamiðstöðinni í Miami, en er
mun minni að umfangi en Bonnie.
Engu að síður telja veðurfræðing-
ar rétt að hafa auga með Danielle.
Morgunblaðið/Þorkell
trú á SÞ
ungadeildarþingmanninn Jesse
Helms. Helms tók við af Pell
sem formaður utanríkismála-
nefndar þingsins og er Pell vel
kunnugur Helms og segir að sér
líki vel við hann. „Eg er alger-
lega ósammála honum. En hann
er hlýr og vænn drengur. Þess
vegna kann ég vel við hann.“
Gagnrýni óréttmæt
Pell segir að sú gagnrýni sem
komið hefur fram um að SÞ sé
skrifræðisbákn og virki ekki
sem skyldi sé óréttmæt. Hann
segir það gilda um SÞ sem eigi
við allar ríkisstjórnir að þar
þurfi mikla skriffinnsku til.
Framkvæmdastjóraskiptin telur
hann hafa verið af hinu góða,
og segir að koma Kofis Annans
í framkvæmdastjórastólinn
muni verða samtökunum lyfti-
stöng.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem
Pell kemur til Islands, en á ár-
um heimsstyijaldarinnar seinni
var hann í bandarísku strand-
gæslunni, sem þá heyrði undir
flotann, og var m.a. við störf hér
á landi. Pell segist hafa orðið
hrifinn af landinu þá og allar
götur siðan hafi sig langað að
koma hingað í heimsókn.
Pristina, Brussel. Reuters.
FJÖLDI flóttafólks í Kosovo-hér-
aði kemur í veg fyrir að friðarum-
ræður geti hafist, að sögn vest-
rænna stjómarerindreka. Peter
Ricketts, háttsettur embættismað-
ur í breska utanríkisráðuneytinu,
og Gerhard Jandl, sem fer fyrir
vinnuhópi Evrópusambandsins
(ESB) um ástandið á Balkanskaga,
hittu Ibrahim Rugova leiðtoga
Kosovo-Albana að máli í gær. Um
200 þúsund manns hefur verið
stökkt á flótta í Kosovo vegna
átakanna á milli Frelsishers
Kosovo og júgóslavnesl;a stjómar-
hersins sem staðið hafa í hálft ár.
Cong á írlandi. Reutors.
TONY Blair, forsætisráðhema
Bretlands, hitti Bertie Ahem, írsk-
an starfsfélaga sinn, í smábænum
Cong á vestanverðu írlandi í gær
og ræddu þeir um nýja löggjöf
gegn hryðjuverkahópum sem send
verður fyrir írska og breska þingið
í næstu viku. Er löggjöfinni fyrst
og fremst beint gegn meðlimum
„hins sanna IRA“, klofningshóps
úr Irska lýðveldishemum (IRÁ),
sem stóð fyrir sprengjutilræðinu í
Omagh fyrir tæpum tveimur vikum
þar sem 28 fómst.
Sögðust Ahem og Blair þess full-
vissir að hægt yrði að búa svo um
hnútana að nýtt n-írskt þing, sem
kemur saman í Belfast í næsta mán-
uði, hefji störf tiltölulega snurðu-
„Við erum enn þeirrar skoðunar
að deilan verði ekki leyst með her-
valdi heldur þurfi að hefja samn-
ingaviðræður eins fljótt og auðið
er,“ sagði Ricketts að loknum fund-
inum með Rugova. „Það er algjört
forgangsmál Evrópusambandsins
og Rugova forseta að bregðast við
neyð almennings í héraðinu og
gera fólki kleift að snúa til síns
heima,“ sagði Jandl fulltrúi ESB.
Leiðtogar Kosovo-Albana hafa
sagt opinberlega að tímabært sé
að samræma hina pólitísku og
hernaðarlegu baráttu gegn yfir-
völdum í Belgrad, að því er kemur
laust. „Ég trúi því að hver sá sem
verið hefur á Norður-írlandi undan-
fama daga hafi orðið áþreifanlega
var við hversu mjög allur almenn-
ingur vill ekki að friðarferlið fari út
um þúfur nú, eftir það sem á undan
er gengið," sagði Blair við frétta-
menn.
Ahern kvaðst vona að „hið
sanna IRA“ tilkynnti brátt varan-
legt og endanlegt vopnahlé en
fregnir herma að leiðtogar sam-
takanna hafi hist í fyrrakvöld í
Clare-sýslu á írlandi til skrafs og
ráðagerða. Munu vera afar skiptar
skoðanir innan samtakanna, í kjöl-
far blóðbaðsins í Omagh og harðra
viðbragða stjórnvalda og almenn-
ings.
fram í blaðagreinum í dagblaðinu
Bujku.
Hemaðaríhlutun
án umboðs SÞ?
Volker Ruehe, vamarmálaráð-
herra Þýskalands, segir stjómir á
Vesturlöndum nú íhuga hvort um-
boð Sameinuðu þjóðanna sé nauð-
synlegt verði ákveðið að skakka
leikinn í Kosovo-héraði. Þetta kom
fram í grein í þýska dagblaðinu
Frankfurter Rundschau í gær.
Ráðherrann telur sjálfur hemaðar-
íhlutun Vesturlanda réttlætanlega
án umboðs frá SÞ.
3.000 hafa
látið iífið
í Kína
Peking. Reuters.
FLÓÐ hafa orðið rúmlega
3.000 manns að bana í Kína
það sem af er árinu og valdið
fjárhagstjóni er nemur rúm-
lega 166 milljörðum júan, eða
um 1.400 milljörðum króna,
að því er kínverska fréttastof-
an Xinhua greindi frá í gær.
Tuttugu og ein milljón
hektara lands hefur horfið
undir vatn, en alls hafa rúm-
lega 223 milljónir manna orð-
ið fyrir barðinu á flóðunum.
Fimm milljónir heimila hafa
eyðilagst að sögn Xinhua.
Flóðin era orðin þau verstu
síðan 1954. Kínverskir emb-
ættismenn segja að búast
megi við að það versta eigi
enn eftir að dynja yfir. Óttast
var að frekari flóð dyndu yfir
í Hubei-sýslu í gær.
Reuters
FELLIBYLURINN Bonnie geysist upp að strönd Bandaríkjanna á gervitunglamynd frá Bandaríska geimvís-
indastofnuninni, NÁSA. Er umfang Bonnie sagt vera sambærilegt við flatarmál Texas-ríkis.
Flóttafólk frá Kosovo
geti snúið heim
BJair og Ahern ræða lög gegn hryðjuverkum
Segja almenn-
ing vilja frið