Morgunblaðið - 27.08.1998, Síða 8
8 FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
S-E-bankinn bíður
svars íslenskra
stjórnvalda
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
„VIÐ vorum ánægðir með þær við-
ræður sem við áttum við íslenska
ráðamenn,“ segir Lars Gustafsson
aðstoðarbankastjóri S-E-bankans
sænska, „og bíðum nú eftir að
heyra frekar frá þeim.“
Hann segir sænska bankann
eftir sem áður mjög áhugasaman
um kaup á hluta í Landsbankan-
um, en hins vegar skipist veður
skjótt í lofti og erfitt sé að spá fyr-
ir um hvernig málin þróist al-
mennt. Frumkvæðið liggi nú hjá
íslensku stjórninni, en ekki sé
raunsætt að tala um tímafrest.
Umbyltingar í bankaheiminum
geri það ókleift.
Gustafsson segist ánægður með
þá mynd, sem fengist hafí af stöðu
Landsbankans. „Við erum tilbún-
ir,“ segir hann og bætir við að hann
hafi nýlokið samræðum við óháðan
sérfræðing í bankamálum, sem hafí
dregið upp skýra mynd af þeim
miklu breytingum, sem verði í
bankaheiminum frá mánuði til
mánaðar. „Grundvallarspurningin,
sem íslenska stjórnin verður að
spyrja sig nú, er hvort íslensku
bankarnir eigi að taka þátt í þeim
breytingum, sem eru að verða í
Evrópu og Bandaríkjunum. Ég hef
trú á því að það kæmi íslensku
DUFLIÐ í fjörunni í Trékyllisvík.
bönkunum vel að vera með í þessu
breytingaferli. Breytingamar ger-
ast hvort sem er og því kannski
eins gott að vera með.“
Kaup á Landsbankanum
góður kostur
Gustafsson segir að eins og mál-
um sé nú háttað sé hann sannfærð-
ur um að kaup á hlut í Landsbank-
anum séu góður kostur. I ljósi þess
hve hlutirnir gerist hratt geti auð-
vitað komið að því að málin horfi
öðruvísi við, en með öllu sé útilokað
að setja einhvem tímafrest. „Það
mætti kannski halda að svona stór-
atburði sé hægt að búa sig undir
með löngum fyrirvara og af mikilli
yfirvegun, en það er því miður ekki
svo. Allt í einu gefst tækifæri og þá
er að hrökkva eða stökkva. Það er
ekki víst að tækifærið bíði,“ segir
Gustafsson. Um leið leggur hann
áherslu á að orð hans eigi ekki að
skilja sem þrýsting á einn eða ann-
an hátt, heldur séu þau aðeins
greining hans á því umbreytingaá-
standi, sem ríki í bankaheiminum
„Og það er ekkert, sem S-E-bank-
inn hefur fundið upp,“ bætir hann
við. „Við eram aðeins hluti af þess-
um síbreytilega heimi sem banka-
heimurinn er.“
Morgunblaðið/Jón G.Guðjónsson
Sérkennilegt
dufl rekur á
land á
Ströndum
Árneslireppi. Morgunblaðið.
UM 20. júlí rak dufl upp undir
Ávíkina austanverða í Trékyllis-
vík og var Landhelgisgæslu til-
kynnt um það og kom varðskip
fljótlega að skoða duflið en gat
Iítið athafnað sig vegna þess
hve slæmt var í sjóinn. Varð-
skipsmenn töldu samt að þetta
væri viðlegudufl fyrir skip úti á
fjörðum.
Nú fyrir stuttu rak duflið upp
í fjöru og fór fréttaritari að
skoða það og mynda.
Það liggur núna næstum því á
hliðinni. Má segja það líti út sem
stórt steypusíló en tvö hólf eru í
sitthvorri hlið full af sjó, lítið
gat í miðju og vítt til veggja inni
í tunnunni og sést þar út um
hinn endann sem á að snúa nið-
ur.
Ofan á því er hlemmur ca. 40
cm í þvermál sem er sennilega
hólf fyrir rafgeyma því þaðan
kemur kapall í litla gatið í miðj-
unni þar sem sennilega vantar
ljósastæði og þar myndast flaut
þegar sjór byrjar að falla inn og
eða vindur er og jafnvel er eins
og duflið gefi frá sér andvörp
við vissar aðstæður, en talið er
öruggt að hér sé ekkert hættu-
legt dufl á ferð, þó ekki sé vitað
með vissu hverslags dufl þetta
er nákvæmlega.
Samband íslenskra sveitarfélaga
Málefni grunn-
skólans eru helsta
forgangsverkefnið
ÞESSA dagana stend-
ur yfir sextánda
landsþing Sambands
íslenskra sveitarfélaga í
íþróttahöllinni á Akureyri.
011 sveitarfélög landsins
eiga aðild að sambandinu
en þau eru nú 124 talsins.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálms-
son er formaður Sambands
íslenskra sveitarfélaga.
,Á- þessu þingi ræðum
við ýmis mál en hæst ber
þó umfjöllun um reynslu af
yfirtöku grunnskólans og
hvernig menn sjá fyrir sér
landslagið í þeim málum á
næstu árum. Málefni
grannskólans eru eitt
helsta forgangsverkefni
sveitarfélaganna.
Þá verður fjallað um fyr-
irhugaða yfirtöku sveitar-
félaga á málefnum fatl-
aðra.“
Vilhjálmur segir að ýmis önnur
mikilvæg mál verði á dagskrá
eins og nýstofnaður lífeyrissjóður
starfsmanna sveitarfélaga, starf-
semi launanefndar sveitarfélaga
og sameining sveitarfélaga en
þar hefur verið gert mikið átak á
síðustu árum og heimamenn haft
forystu. Þá verða umhverfismál
og byggðamál til umræðu svo og
pallborðsumræður um sveitarfé-
lögin á tímamótum, framtíðarsýn.
„A þinginu verður mörkuð stefna
sveitaifélaga í helstu hagsmuna-
málum inn í nýja öld.“
- Hvernig er reynshm af yfir-
töku grunnskóla?
„Það er óhætt að fullyrða að
yfirfærslan á rekstri grunnskól-
ans til sveitarfélaganna hafi tek-
ist mjög vel og einnig starfsemi
grunnskóla þessi rúmlega tvö ár
sem liðin era frá yfirfærslunni.
Það er greinilegt að víða má sjá
þess merki í starfí grannskóla að
margt jákvætt hefur átt sér stað í
skólastarfi bæði hvað varðar
innra starf og einsetningu. Sam-
kvæmt grannskólalögum og
áformum sveitarfélaga verða allir
grannskólar í landinu, sem eru
um 200, einsetnir fyi-ir árið 2002.
Þegar sveitarfélögin tóku við
rekstri grannskólans var staðan
sú að 130 skólar voru einsetnir en
rúmlega 70 sern ekki voru það.
Sú tala hefur breyst verulega frá
þeim tíma er sveitarfélögin tóku
við m.a. á höfuðborgarsvæðinu
þar sem margir skólar hafa um
langan tíma verið tvísetnir."
Vilhjálmur segir að nú verði
aðaláherslan lögð á einsetningu
og uppbyggingu innra starfs.
„Það er ljóst að mörg sveitarfé-
lög hafa sinnt þessu verkefni
langt umfram lögboðn-
ar skyldur og veitt
fjármunum til grann-
skólans umfram þær
tekjur sem þau fengu í
tengslum við yfirfærsl-
una. Þetta ásamt öðru “““““““““
sýnir hversu mikla áherslu sveit-
arstjómarmenn leggja á gott
skólastarf. Einnig gerðu sveitar-
félögin samninga um launahækk-
anir til grannskólakennara sem
vora hærri en önnur stéttarfélög
sömdu um.“
- Hvernig miðíir yfírtöku á
málefnum fatlaðra yfír til sveitar-
félaga?
„Það hefur verið unnin veruleg
undirbúningsvinna vegna fyrir-
hugaðs flutnings málefna fatlaðra
til sveitarfélaga. Áformað var að
flutningur færi fram 1. janúar ár-
ið 1999 en síðan var ákveðið að
fresta honum ótímabundið þar
sem talið var að þyrfti að fara
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson
►Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson er
fæddur í Reykjavík árið 1946.
Hann lauk lögfræðiprófi frá HI
árið 1974 og var framkvæmda-
stjóri fulltrúaráðs sjálfstæðisfé-
laganna í Reykjavik frá
1974-1978. Vilhjálmur var
framkvæmdastjóri SÁÁ frá
1978-1984. Hann var kosinn
borgarfulltrúi árið 1982 og hef-
ur setið í borgarráði frá árinu
1986. Vilhjálmur hefur verið í
stjórn Sambands íslenskra sveit-
arfélaga frá 1986 og verið for-
maður frá árinu 1990.
Uppbygging
innra starfs
og einsetning
skóla
betur í saumana á umfangi þessa
málaflokks." Vilhjálmur bendir á
að úttekt hafi verið gerð á stöðu
mála og samkvæmt niðurstöðu-
skýrslu sem hefur verið kynnt
verkefnisstjórn yfírfærslunnar
kemur fram að það era um það
bil 3.500 fatlaðir í landinu. Einnig
kemur fram að um eitt þúsund
einstaklingar á þessum lista
sækjast ekki eftir annan-i þjón-
ustu en ráðgjöf og styrkjum.
„Færsla á málefnum faltaðra til
sveitarfélaga er vandasamt verk-
efni og mikilævgt að náist sam-
staða milli sveitarfélaga, rílds,
starfsmanna og félagasamtaka
sem hafa þýðingarmiklu hlut-
verki að gegna á sviði málefna
fatlaðra. Vð þurfum að huga að
réttindagæslu fatlaðra, skipu-
lags- og stjórnunarformi og að
sjálfsögðu viðunandi viðbótar-
tekjustofnum til sveitarfélaga svo
hægt sé að sinna þessum mála-
flokki með sóma. Mestu máli
skiptir þó varðandi fyrirhugaða
yfirfærslu málefna fatlaðra frá
ríki til sveitarfélaga að það verði
tryggt að hinir fötluðu
njóti af hálfu sveitarfé-
laga þeirrar þjónustu
sem unnt er að vænta í
nútíma samfélagi og
jafnréttis á við aðra
.... þegna þjóðfélagsins.“
- Er fjárhagsstaða margra
sveitarfélaga ekki bágborin?
„Það er mikill hugur í
sveitasstjórnarmönnum um land
allt þrátt fyrir að víða sé fjár-
hagsstaðan erfið. Sveitarfélögin
era að sinna þeim verkefnum
sem þau eiga að sinna samkvæmt
lögum og mér sýnist þegar horft
er yfir landið að það sé gert
markvisst. Verkefnin era marg-
breytileg en áhugaverð og óþrjót-
andi. Það er líka mikilvægt ef við
ætlum að ná árangri í málefnum
grunnskólans, fatlaðra, sameingu
sveitarfélaga eða byggðarmálum
að samstaða sé um þessi mál og
þannig hefur það verið.“