Morgunblaðið - 05.06.1996, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 05.06.1996, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ 36Ö.I ÍMÚl .5 íiUOA(J'J)D'/<Ii./ 8É ^'mÍÐvTkUDÁgUáT JÚNÍ1996 30 FRÉTTIR Greiningar- og ráð- gjafastöð ríkisins V ornám- skeið um einhverfa GREININGAR- og ráðgjafastöð ríkisins stendur fyrir vornámskeiði um einhverfu og heilkenni Asper- .ger fötlunar í Háskólabíói á milli kl. 9 og 16.15 dagana 6. og 7. júní nk. Ástrós Sverrisdóttir, for- maður Umsjónarmfélags ein- hverfra, verður fundarstjóri fyrri daginn og Helgi Seljan, félags- málafulltrúi Öryrkjabandalagsins, stýrir fundi seinni daginn. Fimmt- án fyrirlestrar verða á ráðstefn- unni. Á vornámskeiðinu verður m.a. íjailað um orsakir og greiningu einhverfra, einhverfu og tengdar fatlanir, meðferðarþætti og ævifer- il einstaklingsins. Foreldrar ein- hverfa verða með í umræðum und- ir yfirskriftinni „Að lifa með ein- hverfu - frá sjónarhóli aðstand- enda“. Einhverfa er talin meðfædd og kemur oftast í ljós fyrir 3 ára ald- ur. Rannsóknir á orsökum ein- hverfu benda til truflunar á starf- semi heilans þannig að úrvinnsla skynjana verður ekki með eðlileg- um hætti. Hún hindrar börnin m.a. í að mynda tilfinninga- og félags- leg tengsl við annað fólk. í kring- um 60 einstaklingar hafa verið greindir með einhverfu hér á landi frá árinu 1970. Að því er fram kemur í fréttatil- kynningu eru einhverfa og heil- kenni Asperger þær fatlanir sem lítið er fjallað um opinberlega þótt mikil þörf sá á því að auka skiln- ing almennings og félags- og heil- brigðisyfirvalda á þessum vanda sem leggist þungt á nánustu ætt- ingja einhverfra einstaklinga. Kynning á sumarstarfi Gjábakka FÉLAG eldri borgara í Kópavogi, Frístundahópurinn Hana-nú og Gjábakki kynna miðvikudaginn 5. júní sumarstarfsemi sína. Kynning- in hefst í Gjábakka, Fannborg 8 kl. 14. Vakin er athygli á að allir sem náð hafa 50 ára aldri geta orðið félagar í Hana-nú og í Félagi eldri borgara er aldurstakmarkið 60 ára. Einhver skemmtiatriði verða, m.a. les Bókmenntaklúbbur Hana-nú ljóð eftir Þuríði Guðmunsdóttur. Þá fer einnig fram formleg afhending á útskornu listaverki sem prýða mun ræðustól Gjábakka. Kynningin er öllum opin meðan húsrúm leyfir. Framtíðar- skipulag ferða- þjónustu FJÓRÐI fundur í níu funda röð ferðamálahóps Framsóknarflokks- ins, Framsókn í ferðamálum, verður haldinn fimmtudaginn 6. júní nk. á Hótel Sögu í A-sal á 2. hæð og hefst kl. 20. Fundurinn ber yfir- skriftina Framtíðarskipulag ferða- þjónustunnar og er fundarstjóri Stefán Jón Hafstein. Frummælendur eru tveir, þeir Olafur Örn Haraldsson alþingis- maður og Pétur J. Eiríksson, fram- kvæmdastjóri markaðssviðs Flug- leiða. Að loknum framsöguerindum verða pallborðsumræður með þátt- töku Ómars Benediktssonar, ís- landsflugi og íslandsferðum, Tryggva Árnasonar, Jöklaferðum Höfn, og Magnúsar Oddssonar, framkvæmdastjóra Ferðamálaráðs. NÝÚTSKRIFAÐIR leiðsögumenn frá Leiðsöguskóla íslands ásamt Margréti Friðriksdóttur, skóla- meistara MK, og Birnu G. Bjarnleifsdóttur, umsjónarmanni Ieiðsögunámsins. 24 nýir leiðsögumenn útskrifast NÝLEGA útskrifuðust 24 nýir leiðsögumenn frá Leiðsöguskóla Isiands. Leiðsögunámið stendur yfir í tvær samfelldar annir og fer kennslan fram í Menntaskól- anum í Kópavogi sem er kjarna- skóli fyrir ferðamálakennslu. Leiðsögunemar verða að hafa náð 21 árs aldri þegar námið hefst og hafa lokið stúdéntsprófi eða sambærilegri menntun. Leið- sögunámið er bæði bóklegt og verklegt og vinna nemendur raunhæf verkefni þar sem þeir æfa sig í að flytja fyrirlestra frá eigin bijósti um jarðfræði, fugla, gróðurvernd, skógrækt, sögu, atvinnulíf, bókmenntir og listir. Nauðsynlegt er að nemendur hafi góða tungumálakunnáttu og fara æfingarnar fram á erlend- um tungumálum. Einnig eru söfn og aðrir ferðamannastaðir heim- sóttir og lýkur náminu með hringferð um landið. Innritun nýrra nemenda fer fram í byrjun ágústmánaðar. Shellstöðvar fá viður- kenningu SHELLSTÖÐVARNAR í Reykja- vík hafa fengið viðurkenningu Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur- borgar um að þær uppfylli ákvæði reglugerðar sem nýlega hefur tekið gildi um fyrirtæki sem annast framleiðslu og dreif- ingu matvæla. Kröfur nýju reglugerðarinnar lúta að meðferð matvæla, gæðum hráefna og geymslu svo og hrein- læti, vinnufatnaði og tóbaksreyk- ingum. Húsakynni og athafna- svæði þurfa að standast kröfur um aðskilnað frá mengandi starf- semi og kröfur eru gerðar um starfsmannaaðstöðu, loftræst- ingu og frárennslismál. SHELLSTÖÐVARNAR í Reykjavík eru fyrstu bensínstöðvarnar í landinu sem fá viðurkenningu fyrir að uppfylla kröfur nýrrar reglugerðar um meðferð matvæla. Margrét Guðmundsdóttir for- stöðumaður á Markaðssviði Skeljungs hf. tekur við viðurkenningu frá Ágústi Thorstensen heilbrigðisfulltrúa Reylqavíkur. Morgunblaðið/Ásdís GRETA Kaldalóns, skólastjóri Miðskólans, flytur ávarp við skóla- slit í Fríkirkjunni. Miðskólinn kveður Miðbæj arskólann FJÓRÐA starfsári Miðskólans lauk við skólaslit í Fríkirkjunni mið- vikudaginn 29. maí sl. Skólinn hef- ur hingað til haft aðsetur í gamla Miðbæjarskólanum, en Skólamið- stöð Reykjavíkur mun flytja í það húsnæði í haust. Allt bendir því til þess að siðustu nemendurnir hafi kvatt hið gamla skólahús, en þar tók Bamaskóli Reykjavíkur til starfa árið 1898. Skólastjóri Miðskólans er Greta Kaldalóns. í ræðu sinni við skóla- slitin greindi hún frá því að skólinn tæki að öllum likindum til starfa i nýju húsnæði að Skógarhlíð 10 í haust. Um er að ræða efri hæð hússins, og telur Greta það henta vel undir starfsemi skólans. Skóla- málaráð samþykkti þann 20. mai s.I. að ganga til samninga um Ieigu á umræddu húsnæði og var málinu vísað til afgreiðslu borgarráðs. I Miðskólanum voru 65 nemend- ur sl. veturog þar störfuðu átta kennarar. Öllum kennumm var sagt upp í maí vegna óvissu um framtíð skólans, en þegar endan- lega hefur verið gengið frá hús- næðismálum skólans verður hafist handa við endurskipulagningu skólastarfsins. Breytt fundaað- staða hjá Fjalla- hj ólaklúbbnum ÍSLENSKI fjallahjólaklúbburinn hefur flutt fundaaðstöðu sína úr Þróttheimum að Austurbugt 3. Félagsfundir verða haldnir fyrsta og þriðja hvern fimmtudag hvers mánaðar kl. 20. Fundirnir eru opn- ir öllu áhugafólki um hjólreiðar, félagsbundnu jafnt sem ófélags- bundnu. Fimmtudaginn 6. júní nk. verður haldið námskeið í undirbúningi ferðalaga á reiðhjóli. Þar verður farið í þætti er varða reiðhjólið, fatnað, matarræði og almennan viðlegubúnað. Síðar verða haldin námkeið eins og viðgerðanámskeið og undirbúning vetrarhjólreiða. I fréttatilkynningu segir: „Klúbburinn stendur fyrir léttum lautarferðum fyrir byijendur og erfiðari ferðum fyrir þá sem lengra eru komnir. Öll starfsemi klúbbsins er unnin í sjálfboðavinnu svo að yfirleitt kostar ekkert að taka þátt í starfseminni fyrir utan beinan kostnað s.s. skálagjöld, tjald- svæðagjöld, ferju- og rútuferðir. Almenningur er hvattur til að kynna sér starfsemina í atburða- almanaki klúbbsins sem fáanlegt er í öllum hjólreiðaverslunum í Reykjavík og Kópavogi.“ Gengið um Suð- urnes að Gróttu HAFNARGÖNGUHÓPURINN heldur áfram göngu sinni um strönd Reykjavíkurborgar og Seltjarhar- nesþæjar. Á miðvikudagskvöld verður farið frá Miðbakkatjaldinu kl. 20, síðan með SVR út að Lambastöðum. Þar hefst gönguleiðin kl. 20.30. Farið verður út á Suðurnes og norðurund- ir Gróttu. Val um að ganga til baka eða taka SVR. Litið verður á her- minjar í leiðinni. Tríó Con Brio á Kringlukránni TRÍÓ Con Brio leikur á Kringlu- kránni í kvöld, miðvikudagskvöldið 5. júní, og hefst dagskráin kl. 22. Tríóið skipa þeir Birgir Braga- son, bassaleikari, Reynir Sigurðs- son, harmonikuleikari og Þórður Árnason, gítarleikari. Efnisskráin inniheldur aðallega norræn alþýðu- lög eftir höfunda eins og Evert Traube, Bellerman, Jón Múla o.fl. Stórstúkuþing STÓRSTÚKUÞING verður haldið dagana 6.-8. júní nk. i Templara- höllinni í Reykjavík og hefst með Unglingaregluþingi fímmtudaginn 6. júní kl. 10.1 tengslum við þingið verður opinn fundur í Vinabæ, Skip- holti 33, fimmtudaginn 6. júní kl. 20. Frummælendur verða Ómar Smári Ármannsson, aðstoðaryfir- lögregluþjónn í Reykjavík, Ásta B. Sigurðardóttir hjúkrunarfræðingur, Akureyri, og Hilmar Jónsson rithöf- undur, Keflavík. Á fundinum sitja fyrir svörum heilbrigðis-, mennta-, dóms- og kirkjumálaráðherra eða staðgenglar þeirra. Rætt verður víðtækt og stórt átak í forvarnar- starfí og vímuefnavömum. Athugasemd MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi athugasemd frá Krist- ínu Arnalds, skólameistara FB og Kristínu Blöndal, deildarstjóra FB: „í tilefni greinar Sölva Sveins- sonar, skólameistara Fjölbrauta- skólans við Ármúla, í Morgunblað- inu 30. maí sl. um sögu sjúkraliða- menntunar á íslandi finnst okkur nauðsynlegt að gera eftirtaldar athugasemdir: Fjölbrautaskólinn í Breiðholti tók til starfa 4. október 1975 og frá upphafí var sjúkraliðamenntun liður í starfsemi skólans undir styrkri stjórn Solveigar Jóhanns- dóttur. Teljum við af þessu aug- ljóst að FB hafi verið brautryðj- andi í kennslu sjúkraliðanema í almennum framhaldsskóla á ís- Iandi. Margir ijölbrautaskólar um allt land hafa fylgt námsskipulagi sjúkraliðabrautar FB. Fyrstu sjúkraliðarnir útskrifuð- ust frá FB í desember 1977 og frá upphafí hafa 337 sjúkraliðar út- skrifast frá skólanum. Skólinn hefur haldið mörg endurmenntunarnámskeið fyrir starfandi sjúkraliða og hefur þátt- takan verið það mikil að ekki hefur reynst unnt að anna eftirspum.“ ■ BJÖRGVIN R. Leifsson heldur fyrirlestur um rannsóknarverkefni sitt til meistarprófs í líffræði mið- vikudaginn 5. júní kl. 16.15 í stofu G-6 á Grensásvegi 12. Öllum er heimill aðgangur að fyrirlestrinum meðan húsrúm leyfir. Rannsakaðar voru lífsferlar, tímgunartími og lóð- rétt dreifing þanglúsartegundanna Idotea granulosa og I. pelagica við Óttarsstaði vestan Straumsvíkur og við Bakkahöfn norðan Húsavíkur (I. granulosa) og austan Straums- víkur við Háanef (I. pelagica) í tvö ár. Umsjónarmenn með verkefninu voru dr. Agnar Ingólfsson pró- fessor og dr. Jörundur Svavars- son prófessor.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.