Morgunblaðið - 05.06.1996, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 05.06.1996, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. JÚNÍ 1996 23 MENNTUIM Hjallaskóli í Kópavogi Skólasýn- ing hluti námsmats NEMENDUR og kennarar í Hjallaskóla í Kópavogi brutu upp skólastarfið í vor með því að helga sig verkefnum um menn- ingu víkingaaldar. Lauk vinnunni með allsherjar sýningu, sem fram fór bæði innan- og utanhúss. Mátti þar meðal annars sjá full- klæddar kvenhetjur, líkan af Mið- garði og Ásgarði og innan seiling- ar voru Óðinn, Þór og Sleipnir. Sýnt var leikrit um Vínlandsferð sem Birgir Svan Simonarson, ís- lenskukennari við skólann, byggði á Grænlendingasögu. Utandyra höfðu verið hlaðnar nokkurs konar búðir, sem munu standa áfram, enda búið að útbúa ágætis grillstæði, sem nútíma- maðurinn getur notað líkt og gert var á víkingatímanum. Einkunnagjöf í dagslok 011 vinna nemenda var notuð til námsmats, enda lá mikil vinna að baki verkefninu. Héldu nem- endur til dæmis dagbók alla vík- ingadagana, þar sem fram kom markmið með hverju verkefni fyrir sig, hvað dagurinn hafi bor- ið í skauti sér o.s.frv. „I lok hvers dags fóru nemendur yfir verkefn- in og gáfu sjálfum sér einkunn. Á sama hátt skráðu kennarar ein- kunnagjöf sína í bók nemenda," sagði Stella Guðmundsdóttir skólastjóri. í rúma viku lá hefðbundið skólastarf niðri meðan nemendur lásu sér til um víkingatimann, öfluðu upplýsinga með þvi að fara meðal annars á Þjóðminja- safnið og fá fyrirlesara í heim- sókn. Til dæmis sagði Hrafn Gunnlaugsson leikstjóri frá ýms- um atburðum tengdum kvik- Morgunblaðið/Ásdís BÖRNIN virða fyrir sér vinnu nemenda við Miðgarð, þar sem Áskur Yggdrasils gnæfir yfir. myndum sínum úr íslendingasög- um, Þorsteinn Einarsson, fyrr- verandi íþróttafulltrúi ríkisins, sagði yngstu börnunum frá íþróttum og leikjum til forna og Hrafn Jónsson, kennari við Þing- holtsskóla, sagði frá víkingaferð- um til Evrópu. „Yngstu bömunum þótti mikið til koma að heyra um leiki bai’na til forna og heyra mátti saumnál detta þegar Þorsteinn flutti mál sitt,“ sagði Meyvant Þór- ólfsson aðstoðarskólasljóri. Skólaþreyta hijáir fólk Meyvant og Stella lögðu áherslu á að kennurum og nem- endum væri nauðsynlegt að brjóta upp hefðbundið skólastarf með einhverju móti þegar líða færi að vori, því þá væru allir orðnir lúnir. Meyvant tók einnig fram, að maimánuður hafi oft nýst illa til kennslu af þessum sökum. Hann vakti athygli á því að til dæmis á Norðurlöndum væri skólastarfið brotið upp í fleiri einingar með styttri fríum á milli eins og til dæmis vetr- arfríi. Hann sagði að einn mesti ávinningur af þessu starfi væri sá að nemendur lærðu að vinna með öðrum. „Ég hef einnig heyrt á kennurum að þeim finnst sam- starf á milli aldurshópa vera Bandarískir kvikmyndatökumenn væntanlegir til Islands Islensk nátt- úra notuð tíl kennslu eyja, um Miðjarðarhafið, Flórída og víðar til að viða að sér efni,“ sagði Páll Marvin Jónsson, forstöðumaður Rannsóknaseturs Háskóla íslands í Vestmannaeyjum, sem jafnframt er tengiliður hópsins í Vestmanna- eyjum. Dr. Ballard er væntanlegur til íslands 18. júní ásamt samstarfs- mönnum sínum til að mynda lunda- varp, lífríki í hrauni og fleira sem ekki er hægt að mynda á þeim árs- tíma sem beina. útsendingin fer fram. Einnig verður farið á Vatna- jökul og Mývatn, meðal annars á slóðir Neils Armstrong tunglfara og víðar. Beinu útsendingarnar fara síðan fram í gegnum gervihnött og þá geta nemendur ákveðinna skóla verið beinir þátttakendur í verkefn- inu. „Til dæmis er hægt að vera með neðansjávarmyndavél hér í höfninni, sem nemendur geta stýrt frá skólastofu sinni í Bandaríkjun- um,“ sagði Páll. Hann bætti einnig við að heimanemendum eða gest- gjöfum gæfist tækifæri til að taka beinan þátt í verkefninu. „Væntan- lega munu því einhveijir íslenskir skólar geta fylgst með útsending- unni og tekið beinan þátt í henni alveg eins og bandarísk börn.“ Fyrir þá sem vilja kynna sér Ja- son-verkefnin er netfangið: http: //seawifs.gsfc.nasa.gov/JAS- ON/HTML/EXPEDITIONS— JASON—6—EDUCATIONAL- —FRAMEWORKS.html EKKI er um alvöru upp- gröft að ræða. mjög þroskandi fyrir nemendur, ekki síst þá eldri sem hafa yngri nemendur hjá sér og þurfa að taka tillit til þeirra,“ sagði hann. Við lítum einnig svo á að með því að vinna að svo viðamiklu verkefni sé verið að uppfylla mörg meginmarkmið náms sam- kvæmt Aðalnámskrá grunnskóla. Verkefnin efla þekkingu, skilning og tilfinningu nemenda fyrir þess- ari menningararfleifð okkar.“ FUGLALÍF og jarðfræði í Vest- mannaeyjum, afleiðingar Vest- mannaeyjagoss á mannlífið, eld- virkni í Kverkfjöllum og Lakagíg- um, kísiliðja og fuglalíf á Mývatni og hitaveita og gróðursetning ung- menna á Nesjavöllum verða meðal kennsluefnis bandarískra og breskra nemenda í beinni útsend- ingu á vegum Jason-menntastofn- unar í Bandaríkjunum (Jason Fo- undation for Education) í apríl 1997. Um er að ræða fimm klukku- stunda efni á dag í tvær vikur, en auk myndefnis frá íslandi verður sjónvarpað frá Yellowstone-garðin- um í Bandaríkjunum. Jason-stofn- unin sendir út kennsluefni í skóla einu sinni á ári í tengslum við ýmiss konar rannsóknarverkefni víðs veg- ar um heim. Markmiðið með útsend- ingunum er að kynna börnum rann- sóknarstarfsemi og vekja áhuga þeirra á ýmsum fyrirbærum náttúr- unnar. Fann Titanic Stofnandi Jason er dr. Ballard, sá sem fann flakið af Titanic. „Hann tók mikið magn mynda af flakinu á sínum tíma. Hann fékk í kjölfarið fjöldann allan af fyrirspurnum frá krökkum um allan heim. Hann fékk þá hugmynd í kringum 1989 að í staðinn fyrir að fá nemendur til sín kæmi hann með rannsóknarverk- efni til þeirra. Hann ferðast því ásamt starfshópi sínum á hina og þessa staði eins og til Galapagos- Samningur um nám iðjuþjálfa milli Háskóla tslands og háskóla í Flórída Stunda fjamám til MS-prófs IÐJUÞJÁLFARNIR fylgjast með háskólafyrirlestri. F.v. Gunn- hildur Gísladóttir, Elín Ebba Ásmundsdóttir, Valerie Harris, Ingibjörg S. Ásgeirsdóttir, Margrét Sigurðardóttir, Kristjana Fenger og Sigrún Garðarsdóttir. SJÖ íslenskir iðjuþjálfar stunda nú fjarnám til meistaraprófs við Al- þjóðaháskólann í Flórída (Florida International University) samkvæmt sérstökum samningi og er stefnt að námslokum næsta sumar. Meistara- námið er hluti af undirbúningi vegna grunnnáms í iðjuþjálfun, sem vænt- anlega hefst haustið 1997 í Háskóla íslands. Guðrún Pálmadóttir, sem á sæti í skólanefnd Iðjuþjálfafélags íslands, segir að allt frá árinu 1989 hafi ver- ið unnið markvisst að því að fá iðju- þjálfun sem námsgrein innan HÍ. „Vorið 1995 fékk bandarískur pró- fessor í iðjuþjálfun, dr. Gail Hills Maguire, Fulbrightstyrk til að dvelja við Háskóla íslands í þrjá mánuði og heija skipulagningu náms í iðju- þjálfun. Það var hennar hugmynd að koma á þessu sérskipulagða mast- ersnámi sem einum lið í undirbúningi fyrir væntanlega námsbraut. Nú þegar eru sex iðjuþjálfar með mast- ersgráðu, þannig að þegar þessir sjö bætast við höfum við á að skipa vei menntuðu fólki sem getur tekið að sér kennslu,“ sagði Guðnín. Hún benti á að ekki einungis þyrfti vel menntað fólk til að kenna iðju- þjálfun í háskólanum heldur yrði það einnig að vera á vinnumarkaðnum, þar sem námið fari að hluta til fram á vinnustöðum. Útskrifast ytra Meistaranám iðjuþjálfanna sjö byggist á opnum samningi um nem- endaskipti milli HÍ og Florida Inter- national University (FIU). Hófst námið með því að dr. Maguire kenndi fyrstu sex einingarnar vorið 1995 og í vetur tóku nemarnir sex eining- ar í tölfræði við HÍ sem var að hluta sérskipulagt fyrir þá. Að öðru leyti stunda þeir nám sitt við FIU, þar sem þeir eru innritaðir og munu út- skrifast. Inntökuskilyrði þeirra voru öll þau sömu og fyrir aðra meistara- prófsnemendur. í vetur fengu nemarnir sendar myndbandsupptökur af kennslu- stundum í námskeiðum, sem kennd eru við FIU. „Þeir horfa á spólurnar hér heima og póstsenda síðan öll verkefni til skólans, en tengsl við kennarana fara að mestu fram í gegnum tölvupóst. í byijun maí l'óru nemarnir til Flórída þar sem þeir munu dveljast næstu tvo mánuðina og taka ýmis sumarnámskeið við FIU ásamt öðrum mastersnemum," sagði Guðrún. Rannsóknarverkefni Hún bætti einnig við að í þessari ferð verði lagður grunnur að rann- sóknarverkefnum hvers nema fyrir sig. Fyrir utan rannsóknarvinnu muni nemarnir taka námskeið áfram með fjarnámi næsta vetur, halda síð- an utan aftur næsta sumar og ljúka náminu þar. Aðspurð hvernig til hefði tekist fram að þessu sagði Guðrún að ár- angurinn hefði verið góður. Hún tók þó fram að námið væri erfitt að því leyti að það væri ekki eins skipulagt og hefðbundið meistaraprófsnám. „Nemendur vita ekki nákvæmlega núna hvaða námskeið þeir taka á næsta ári, þannig að því fylgir tölu- verð óvissa. Námið var einnig skipu- lagt með þáð fyrir augum að nemam- ir gætu unnið með því og það er auðvitað erfitt, þar sem sinna þarf fleiri viðfangsefnum í einu,“ sagði Guðrún. Hún taldi kostinn við námið ótvírætt vera þann, að kostnaður yrði aldrei eins mikill né röskun á fjöskylduhögum eins og væri námið stundað erlendis. Fram til þessa hafa allir íslenskir iðjuþjálfar verið menntaðir erlendis hvort sem um grunn- eða framhalds- nám var að ræða, en nýlega lagði háskólaráð Háskóla íslands til að iðjuþjálfun til BS-prófs verði tekin upp við skólann haustið 1997. Gert er ráð fyrir að framhaldsnámi verði þó fyrst um sinn að ljúka erlendis, því saminingur HÍ og FIU gildir ein- ungis fyrir þennan hóp iðjuþjálfa. Vantar 200 iðjuþjálfa Starfandi iðjuþjálfar eru 65 að sögn Guðrúnar, en alls eru um 80 iðjuþjálfar á Islandi. Hún kveðst binda miklar vonir við að stjórnvöld leggi fram fjármagn til þess að nám- ið verði að veruleika haustið 1997 innan Háskóla íslands. „Það er mik- ill skortur á iðjuþjálfum og við teljum að þörf sé á um 200 til viðbótar í framtíðinni. Þetta er kvennastétt þar sem fólk er í hlutastörfum og ekki eru allir vinnandi við fagið í einu,“ sagði hún. Leikskóla- kennara- nám á há- skólastigi LEIKSKÓLAKENNARANÁM á háskólastigi verður í fyrsta sinn tekið upp í Háskólanum á Akureyri næsta haust. Um- sóknarfrestur rann út sl. mánudag og sóttu 40-50 manns um inngöngu. Hægt verður að taka inn 30 nemend- ur. Námið er þriggja ára og lýkur með B.Ed-prófi. Námið hefur ekki verið skilgreint frá ráðuneytinu, en Guðmundur Heiðar Frímannsson, forstöðu- maður kennaradeildar HA, sagði að um leið og skólinn fékk leyfisbréf frá ráðuneytinu hafi verið sett á laggirnar inn- anhúsnefnd sem útbjó skipu- lag fyrir fyrsta árið og drög að skipulagi næstu tveggja ára. „Að vísu á eftir að vinna töluverða vinnu en við reiknum með að henni verði lokið um næstu árarnót." Inntökuskilyrði í HA verður stúdentspróf en einnig verður fólki með reynslu boðið að sækja nám við skólann. „Við ætlum að prófa okkur áfram með það,“ sagði Guðmundur Heiðar. Nú í vor útskrifast 24 kenn- arar frá HA með B.Ed-gráðu eftir þriggja ára nám. Er það fyrsta útskrift HA úr kennara- deild.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.