Morgunblaðið - 05.06.1996, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 05.06.1996, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. JÚNÍ 1996 7 FRÉTTIR Sérkenni- legt par Frumvarp til breytinga á lögum um stjórn fiskveiða á lokastigi Samkomulag um heild- arafla smábáta staðfest Línutvöföldun veröur afnumin í haust ÞÓTT ekki sé hjónasvipnum fyr- ir að fara hníga flest rök að því að korpöndin og æðarkollan hafi parast. Kristinn Skarphéðinsson, líffræðingur hjá Náttúrufræði- stofniin, segir að korpendur flækist stundum af leið og einn til tveir fuglar sjáist hér við land á ári. Yfirleitt staldra þeir ekki lengi við. Þessi korpandarstegg- ur hefur hins vegar sést þrisvar til fjórum sinnum í Akureyjum á Breiðafirði. Hann hefur væntan- lega tileinkað sér lífshætti hins fjarskylda ættingja, æðarkoll- unnar, og parast við hana. Ekki eru miklar líkur á því að lifandi ungi komi úr eggjunum enda er skyldleiki fuglanna ekki nægi- lega mikill. Pörun tegundanna er þekkt en óalgeng. Korpönd sást fyrst hér á landi í æðarvarpi í Engey um 1930. SVONEFND línutvöföldun í fisk- veiðum verður afnumin samkvæmt frumvarpi um breytingar á stjórn fískveiða, sem Alþingi afgreiddi í gær til 3. og síðustu umræðu. Lagabreytingin tekur gildi 1. sept- ember verði frumvarpið að lögum. Sjávarútvegsráðherra flutti frumvarpið upphaflega til að stað- festa samkomulag sem sjávarút- vegsráðuneytið gerði við Lands- samband smábátaeigenda. Sam- komulagið snérist einkum um það, að krókabátar fái úthlutað 13,9% af heildarafla þorsks. Meirihluti sjávarútvegsnefndar lagði síðan fram breytingartillögur við frumvarpið vegna óska frá sjávarútvegsráðuneytinu um að fella brott línutvöföldun. í línutvö- földun hefur falist að línuafli sem veiðist í nóvember til febrúar hefur aðeins talist að hálfu til aflamarks þar til sameiginlegur línuafli ýsu og þorks hefur náð 34 þúsund lest- um miðað við óslægðan fisk. Breytingartillögurnar , gerðu einnig ráð fyrir bráðabirgðaákvæði til að koma til móts við skip sem hafa stundað þessar veiðar á síð- ustu þremur fiskveiðiárum. Þannig fá skip viðbótaraflahlutdeild á grundvelli veiðireynslu síðustu þriggja fiskveiðiára, sem nemur 60% af þeim afla sem þau hafa veitt á grundvelli ákvæða um lín- utvöföldun. Hinum 40% af aflanum verður úthlutað til flotans í heild. Tilfærsla á milljörðum króna Þessar tillögur voru gagnrýndar af ýmsum þingmönnum en á nokk- uð mismunandi forsendum. Svan- fríður Jónasdóttir, Þjóðvaka, sagði að um væri að ræða 17 þúsund tonn af þorski og ýsu og ljóst að verðmætin skiptu nokkrum millj- örðum króna. Aður hefði úthlutun úr þessum sameiginlega potti verið bundin því að menn veiddu á ákveðnum tíma með ákveðnu veið- arfæri en nú væri pottinum úthlut- að án skilyrða sem hlutdeild í heild- arþorskaflanum. Þetta yrði því framseljanlegur kvóti frá þeim degi sem lögin tækju gildi. Svanfríður sagði það ótækt að Alþingi tæki æ ofan í æ ákvarðan- ir sem þessar um tilfærslu á millj- örðum króna og hún greiddi at- kvæði gegn breytingartillögunni ásamt öðrum þingmönnum Þjóð- vaka, þingmönnum Alþýðubanda- lags og Kristínu Halldórsdóttur, Kvennalista. Kristján Pálsson, Sjálfstæðis- flokki, sagði hins vegar að verið væri að greiða atkvæði um svo- nefndan línutvöföldunai’pott, sem hefði verið helsti hvati þess að menn hefðu aukið línuveiðar sínar á undanförnum árum. Með breyt- ingunni sagðist Kristján telja, að verið væri að ganga af línuveiðun- um dauðum og við það gæti hann ekki sætt sig. Hann sat hjá í at- kvæðagreiðslu um ákvæðið ásamt Guðjóni Guðmundssyni, Sjálfstæð- isflokki, Guðnýju Guðbjörnsdóttur og Kristínu Ástgeirsdóttur, Kvennalista. Aflaheimildir afhentar með lögum Frumvarpið var einnig gagnrýnt af öðrum ástæðum. Tómas Ingi Olrich og Árni Johnsen, Sjálfstæð- isflokki, lögðu fram breytingartil- lögu við ákvæðið sem fól í sér sam- komulag sjávarútvegsráðherra og smábátaeigenda og gekk það út á, að krókabátar, sem hafa aukið afla sinn umfram það sem löggjaf- inn gerði ráð fyrir á meðan afla- mark skipa var skorið niður, fengju fyrst fullan hlut í aukningu heildar- þorskafla þegar aflaheimildir hefðu náð 250 þúsund lestum. Þessi tillaga var felld gegn atkvæð- um Tómasar Inga, Áma og Lúð- víks Bergvinssonar, Alþýðuflokki. Þeir þrír greiddu síðan atkvæði gegn frumvarpsgreininni en þing- menn Kvennalistans sátu hjá. Guðný Guðbjörnsdóttir, Kvenna- lista, sagði að þótt þingmenn flokksins væm hlynntir því að krókaveiðibátar fengju sama hlut- fall af auknum aflaheimildum sem aðrir, gætu þær ekki sætt sig við að ákveðnum hópi manna væru afhent með lögum 13,9% aflaheim- ilda sem þjóðin ætti. Látum skóna ganga aftur í Tadsjiki Rauði kross íslands í samvinnu við Steinar Waage og Sorpu tekur á móti skóm á öllum gámastöðvum Sorpu á höfuðborgarsvæðinu á næstunni. Jafnframt taka deildir Rauða kross íslands um allt land á móti skóm í söfnunina. Skórnir verða sendir til íbúanna í Pamir fjöllum í Tadsjikistan. Allar nánari upplýsingar eru veittar hjá Rauða krossi íslands í síma 562 6722 og hjá deildum hans. JL RAUÐI KROSS ÍSLANDS

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.