Morgunblaðið - 05.06.1996, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 05.06.1996, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ ________________________________________MIÐVIKUDAGUR 5. JÚNÍ1996 25 AÐSEIMDAR GREINAR Utvarp og sjónvarp allra landsmanna UNDANFARIN tvö ár hafa komið út þijár opinberar álitsgerðir, sem varða Ríkisútvarp- ið. Hér á ég í fyrsta lagi við frumvarp til útvarpslaga, sem birtist vorið 1994. í annan stað nefndi ég niður- stöður Ríkisendurskoð- unar, er litu dagsins ljós haustið 1995 undiryfír- skriftinni „Stjómsýslu- endurskoðun hjá Ríkis- útvarpinu“. í þriðja lagi er að geta „Skýrslu starfshóps um endur- skoðun á útvarpslög- um“, en hún kom fyrir almennings sjónir nú í vor og hefur nokkuð verið til um- ræðu að undanförnu. Allar eru þessar greinargerðir afar umfangsmiklar og taka hver með Kostnaður við íslenzkt efni var, segir Heimir Steinsson, 62% af heildarkostnaði sjón- varpsins árið 1994. sínum hætti á fjölda sundurleitra viðfangsefna, er varða Ríkisútvarpið og enda að miklu leyti íslenska ljós- vakamiðla almennt talað. Allar hafa þær og sætt verulegum tíðindum og kallað fram ólík viðbrögð og andsvör úr ýmsum áttum. Af þessu hafa sprottið veruleg almenn skoðana- skipti um Ríkisútvarpið í bráð og lengd. Eitt vekur öðru fremur athygli, þegar litið er yfír þann umræðu- grundvöll, sem opnast hefur með ofangreindum hætti. Útvarpslaga- nefndin frá 1994, Ríkisendurskoðun og starfshópurinn nýi eru á einu máli um það sem mestu skiptir. í öllum tilvikum kemur fram eindreg- inn stuðningur við Ríkisútvarpið. Hóparnir fara ýmsar leiðir að þessu marki. En niðurstaðan er hvarvetna hin sama: Vöxtur og viðgangur Rík- isútvarpsins skal tryggður um ókom- in ár. Þessi niðurstaða er í góðu sam- ræmi við það sem best er vitað um hug almennings til Ríkisútvarpsins. Áhorfs- og hlustendakannanir stað- festa það ítrekað, að drjúgur hluti landsmanna fylgist með Ríkisútvarp- inu, Rás 1, Rás 2 og Sjónvarpinu, að ógleymdum svæðisútvarpsstöðv- unum á Akureýri, Isafírði og Egils- stöðum. Könnun á viðhorfi manna til hinna ýmsu fjölmiðla leiðir í ljós, að hlustendur og áhorfendur bera upp til hópa meira traust til frétta- stofa Ríkisútvarpsins en til annarra fréttamiðla. Tölur þessu til staðfest- ingar væri auðvelt að tilgreina. Þær tala ljóslega um jákvæða afstöðu fólks til Ríkisútvarpsins. Ekkert af þessu kemur á óvart. Ríkisútvarpið hefur um áratugi verið snar þáttur í sjálfsmynd íslendinga, sameiningarafl og uppistaða þjóð- menningar, þar sem ívafið var líf fólksins í landinu í öllum sínum margslungnu tilbrigðum. Samstaða um Ríkisútvarpið er því næsta sjálf- sagður hlutur. Hinu má þó ekki gleyma, að þær skoðanir eiga sér einnig nokkurn hljómgrunn á stöku stað í landinu hin síðari ár, að fjölmiðlarekstur á vegum ríkisins sé úrelt fyrirbæri og ætti að víkja fyrir meiri eða minni einkavæðingu á þessu sviði. Sú grundvallarafstaða, sem birtist í álitsgerðunum þremur, er hér voru nefndar í upphafi máls, er þannig engan veginn einboðin eða sjálfsögð. Vert er þar af leiðandi að veita því sérstaka athygli, þegar mismun- andi starfshópar kom- ast að sömu niðurstöðu hver á fætur öðrum, eins og orðið hefur í þeim tilvikum, er hér um ræðir. Fyrir fáum dögum birtist í Morgunblaðinu grein, þar sem fram komu efasemdir um einurð Ríkisútvarpsins sjónvarps við það að setja saman og senda út íslenskt efni. Slíkar efasemdir eru ekki eins- dæmi. Þær skjóta af og til upp kollinum. I mars í vetur andæfði ég þessu sjónarmiði í blaðagrein. Það skal aftur gert nú, þótt hér við kunni að gæta endur- tekninga. Bersýnilegt er, að í þessu efni hæfir að vitna til hins forn- kveðna: Sjaldan er góð vísa of oft kveðin. Sannleikurinn er sá, að dijúgur hluti af framleiðslufé Sjónvarpsins fer til að standa undir íslensku efni. Vitaskuld mætti hér gott bæta og það til mikilla muna. Heildarráðstöf- unarfé Sjónvarpsins er allt of lítið, enda hafa stjómvöld ekki heimilað afnotagjaldahækkun ámm saman. En Sjónvarpið ver sínu takmarkaða rekstrarfé í ríkum mæli til innlendrár dagskrárgerðar. Þeir, sem halda öðru fram, fara villir vega. Áður nefnd „Stjórnsýsluendur- skoðun hjá Ríkisútvarpinu“ er náma hvers konar upplýsinga um Ríkisút- varpið, bæði Sjónvarpið og það sem við að jafnaði nefnum „Útvarpið", þ.e.a.s. Ríkisútvarpið hljóðvarp. Á bls. 64 í Stjómsýsluendurskoðuninni er fjallað um kostnað við ýmiss kon- ar dagskrárgerð. Þar segir m.a., að heildarframleiðslukostnaður Sjón- varpsins við dagskrárgerð og það sem henni tengist næmi 1.228 millj- ónum króna árið 1994. Síðan er gerð grein fyrir skiptingu þessa kostnað- ar. Af skiptingunni verður það ráðið, að 756 milljónum króna hafi á árinu 1994 verið varið til að taka saman og senda út islenskt efni í Sjónvarp- inu. Kostnaður við íslenskt efni var þannig 62% af heildarframleiðslu- kostnaði Sjónvarpsins árið 1994, — sextíu og tvö prósent. Það er allra manna mál, að höf- uðskylda Sjónvarpsins sé sú að efna til íslenskrar dagskrár af öllu tagi. Um þetta er alls enginn ágreiningur. Enda kappkostar Sjónvarpið af öllum mætti að framkvæma þetta stefnum- ið. Sextíu og tvö prósent af heildar- framleiðslukostnaði sýna svo ekki verður um villst, hver niðurstaðan varð fyrir tveimur árum. Hliðstæð hlutföll eru óbreytt í dag. I „Skýrslu starfshóps um endur- skoðun á útvarpslögum" segir m.a.: „Við breyttar aðstæður og vegna harðnandi erlendrar samkeppni á öldum ljósvakans er mikilvægi Rík- isútvarpsins e.t.v. meira en nokkru sinni fyrr.“ Þetta á vissulega við um Ríkisútvarpið hljóðvarp. En sjálfsagt ber enn frekar að lesa umrædd orð með Ríkisútvarpið sjónvarp í huga. Um þessar mundir er ný íslensk sjálf- stæðisbarátta að hefjast. Hún birtist m.a. sem viðnám gegn aðsókn er- lendra sjónvarpsrása, er nú steypast yfir landsmenn. Það viðnám verður öllu öðru fremur í því fólgið að senda út íslenskt sjónvarpsefni handa ís- lendingum. Hér er hlutverk Ríkisút- varpsins ótvírætt. Sérstáða Ríkisút- varpsins mun á komandi árum í vax- andi mæli birtast í aukinni íslenskri dagskrárgerð í Sjónvarpinu. Þá verð- ur sjálfsagðara en nokkru sinni fyrr, að menn fylki liði um útvarp og sjón- varp allra landsmanna. Höfundur er útvarpsstjóri. Heimir Steinsson Konur, komið og sjáið! í FJÓRÐA kafla Jó- hannesarguðspjalls er að finna gullvæga frá- sögn af því þegar Jesús mætir konu í daglegu amstri hennar. Sú kona átti sér enga glæsta for- tíð, og varla framtíð heldur, því á ýmsu hafði gengið í samskiptum hennar við hitt kynið og hún var beygð af þeim sökum. En þegar hún mætti Jesú á venjuleg- um degi við sín venju- legu störf breyttist allt. Orð Jesú hittu konuna beint í hjartastað, þau réttu hana við og veittu henni nýja sjálfsmynd, nýjan kjark. Kannski voru það ekki síst orðin um lofgjörðina, sem veittu sam- versku konunni löngun til að eiga fullvissu um, að einnig hún væri í hópi þeirra, sem Guð elskar: „En sú stund kemur, já, hún er nú komin, er hinir sönnu tilbiðjendur munu til- biðja Föðurinn í anda og sannleika. Faðirinn leitar slíkra, er þannig tilb- iðja hann,“ sagði Jesús við hana (Jóh. 4.23). Og nærvera Drottins gaf kon- unni við brunninn þessa fullvissu og meira til, löngun að fara og segja öðrum frá Honum, sem hún hafði mætt á vegi sínum. „Komið og sjá- ið...“ sagði hún við fólkið í þorpinu sínu. Og fólkið kom og sá, og tók trú. Að þora að segja frá Hvítasunnuhátíðin, sem nú er ný- liðin, er haldin vegna þess að þá fengu vinir hins upprisna Drottins Jesú kraft og kjark til að gera ein- mitt þetta, að fara og segja öðrum frá. Sá kraftur er Heilagur andi, nærvera Drottins sjálfs í þessum heimi. Kraftur Guðs kemur fram á ýmsa lund, bæði í tungutali, eins og lýst er í Postulasögunni, sem og öðr- um náðargjöfum frá Guði. Það er skylda kristinnar manneskju að segja frá því sem hann eða hún hefur séð og heyrt fyrir snertingu Drottins í Orði hans og bæninni. Nærvera Guðs í Heilögum anda gefur kjark og kraft til þess. Jesús Kristur snerti við konunni við brunninm forðum. Og á sama hátt mætir Drottinn Jesús konum og körlum enn þann dag í dag, venju- legu fólki við sín venjulegu störf. Þetta sama fólk fær um leið köllun til að fara og segja öðrum frá snert- ingu Drottins. Einn farvegur þeirrar köllunar, sem starfar sérstaklega á meðal kvenna, kallast Aglow. Heitið Aglow merkir glóandi eða brennandi og vísar í tólfta kafla Rómveijabréfsins, ellefta vers, þar sem segir: „Verið ekki hálfvolgir í áhuganum, verið brennandi í and- anum. Þjónið Drottni." Einmitt þetta er tilgangur Aglow, að kalla konur til að vaxa í trú og þjónustu, eins og segir í trúaijátningu Aglow: „Við trúum... að ávöxtur Heilags anda eigi sífellt að verða meira áberandi í lífi hinna kristnu." Aglow, sem er upprunnið í Banda- ríkjunum seint á sjöunda áratugnum, hefur verið starfandi á íslandi frá 1987. Auk Aglow í Reykjavík hittast hópar reglulega á nokkrum stöðum á landinu. Samtökin eru alþjóðleg og gera engan greinarmun á kirkju- deildum. Konurnar, sem koma saman í Aglow í Reykjavík, búa við mismun- andi kjör og eru á öllum aldri, eins og á Aglow fundum hvarvetna í heiminum. Ungar konur og eldri konur, konur úr þjóðkirkjunni, Vegin- um, Hvítasunnukirkj- unni og víðar að sækja fundi Aglow. Við erum bæði einstæðar og gift- ar, í námi, heimavinn- andi eða úti á vinnu- markaðnum. Allar kon- ur geta fundið sig heima í Aglow, því að þar er miðlað því sem við þráum allar, kærleika, fyrirgefningu, skilningi, viðmótshlýju og lífstil- gangi. Og allt þetta á uppsprettu sína í okkar himneska Föður. Lofgjörð og lækning í trúaijátningu Aglow segir enn- fremur: • Við trúum því, að í endurlausn- arverki Jesú Krists felist lækning fyrir anda okkar, sálu og líkama. • Við trúum því, að við eigum að hlýða boði Jesú um að boða öllum heiminum fagnaðarerindið. • Við trúum því, að söfnuðurinn sé líkami Krists og hvetjum konur til að tilheyra og vera virkir þátttakend- ur í starfi heimasafnaðar þeirra. Markmið Aglow er, sem fyrr seg- ir, að hvetja kristnar konur til að vera brennandi í andanum með því að tilbiðja Guð, lofa hann og segja frá því, sem þær hafa reynt. En til- gangur Aglow er einnig og ekki síð- Næsti fundur Aglow í Reykjavík er fimmtu- daginn 6. júní nk. María Agústsdóttur hvetur konur til að koma og kynna sér starfsemina ur að kalla konur til trúar, konur, sem ekki þekkja snertingu Drottins af eigin raun. Aglow er þjónusta kvenna til kvenna, farvegur lækning- ar Drottins í gegn um lofgjörð og bæn. I Aglow gefst þér kostur á að fínna og sjá, að Drottinn er góður, eins og segir í Davíðssálmi 34.9. Því eitt eigum við Aglow konur sameiginlegt, þó bakgrunnur okkar, aldur og aðstæður sé ólíkur: Við eig- um sömu þrá eftir að tilbiðja Föður- inn í anda og sannleika og þjóna hver annarri og náunganum í kær- leika. Og Drottinn Jesús notar fundi Aglow til að rétta okkur við og gefa okkur nýjan kjark, kjark til að lifa í trú og segja frá því sem við höfum heyrt og séð. Fundir Aglow í Reykjavík eru haldnir í Kristniboðssalnum við Háa- leitisbraut 58-60 fyrsta fimmtudag hvers mánaðar, nema í júlí og ágúst. Næsti fundur er fimmtudagskvöldið 6. júní kl. 20. Komdu og sjáðu. Höfundur er dómkirkjuprestur. Portúgalið með sólskinsbrosi í tilefni af Grínhátíð í Hafnarfirði 1 flbO< ** brant,arasæti ^\Portú9a, 19júní Hafnfiröingar! Takið fram portúgallann (skýluna, sundbolinn, sólgleraugun og sandalana) og pantið áður en brandarinn er búinn. Takmörkuð sæti (aðeins stólbökin (ha! ha! ha!)). Verð aðeins 34.365 kr.* staðgreitt á mann m.v. 2 fullorðna og 2 börn (2ja-11 ára) á Rodrimar t 2 vikur. 48.700 kr.* á manninn m.v. 2 fullorðna á Rodrimar í hálfan mánuð. Tilboðið gildir aðeins fyrir löggilta Hafnfirðinga. Krafist verður persónuskilnkja til sönnunar hafnfirskum uppruna þegar pöntun er bökuð. Áskiljum okkur rétt til að skilja þá Hafnfirðinga eftir í Portúgal sem þykja ekki nógu skemmtilegir. Hafið strax samband við söluskrifstofu Urvals-Utsýnar Bæjarhrauni 8. Sími 565 2366. KS) 'lnnífalið: Flug, gísting, íslensk fararstjórn, ferðir til og frá flugvelli. skattar, 2453 brandarar, 8569 hlátrar og 10738 bros. 4 ^ , , ^URVAL-UTSYN María Ágústsdóttir. Sportís ehf. sem er umbodsadili fyrir L.A. GEAR á íslandi vill koma eftirfarandi á framfæri: Komió hefur í Ijós aó íslenskt fyrirtæki lét framleióa og seldi í verslanir íþróttaskó, sem voru merktir meó vörumerki L.A. GEAR, eins og fram kemur hér að neóan. Þessi notkun á vörumerkinu var algerlega án leyfis L.A. GEAR. Þar sem aó umræddir skór voru mjög lélegir er ástæða til að upplýsa neytendur um ofangreint. L.A. GEAR hafa nú gengió úr skugga um að skór þessir hafa nú verió fjarlægðir úr verslunum. L.A. GEAR sem, framleiðir skó í hæsta gæðaflokki og kappkostar að koma tíl móts við þarfir markaðarins, vill meó þessari auglýsingu útiloka hugsanlegan misskilning.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.