Morgunblaðið - 05.06.1996, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 05.06.1996, Blaðsíða 20
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ 20 MIÐVIKUDAGUR 5. JÚNÍ 1996 Tveir Islendingar í Scala Rödd Kristins kröftug og fögur Guðjón náði sér vel á strik Nýjar bækur Verk- fræðin- gatal VERKFRÆÐINGATAL, það fjórða í röðinni, er komið út. Verk- fræðingatal kom fyrst út árið 1956 og innihélt þá 270 æviskrár, en útgáfa sú sem nú birtist telur hins vegar 1.977 æviskrár, sem er ríf- lega sjöföldun á 40 árum. Forseti íslands, frú Vigdís Finn- bogadóttir, veitti viðtöku nýju verkfræðingatali við hátíðlega at- höfn í Verkfræðingahúsinu á föstudag, en faðir Vigdísar, Finn- bogi Rútur Þorvaldsson, var fyrsti prófessor við verkfræðideild Há- skóla íslands, árið 1945. Pétur Stefánsson formaður Verkfræðingafélags íslands segir að þáverandi stjóm VFÍ undir for- mennsku Haraldrar Ásgeirssonar hafi á fundi sínum 11. ágúst 1993 skipað nefnd til undirbúnings nýrrar útgáfu verkfræðingatals. í kjölfarið hafí verið gerður samn- ingur við bókaútgáfuna Þjóðsögu ehf. um útgáfu verksins og hafí fyrirtækið ráðið Þorstein Jónsson ættfræðing til að ritstýra talinu. Eykur sögulegt gildi „Útgáfa þessi eru í tveimur bindum og er verkið að okkar mati og fleiri sem það hafa skoð- að, allt hið vandaðasta að gerð. Meðal annars má geta þess að á skilblöðum verksins voru tekin upp þau nýmæli að rita stuttar greinar um þróun verkfræðinnar á Islandi sem gefur því tvímælalaust aukið sögulegt gildi,“ segir Pétur. SÝNING á málverkum Jóhannes- ar Jóhannessonar stendur nú yfir í Listhúsinu Fold, en Jóhannes varð 75 ára annan hvítasunnudag. Umsögn Braga Ageirssonar um sýningu Jóhannesar birtist í Morg- • GENGIÐ hefur verið frá samning- um um að Vaka-Helgafell taki við útgáfurétti á bókum dr. Haildórs Halldórssonar, fyrrverandi prófess- ors við Háskóla íslands. Meðal verka Halldórs er íslenskt orðtakasafn og Stafsetningarorðabók og eftir hann liggja íjölmargar bækur aðrar og greinar í blöðum og tímaritum. Kunnastur er Halldór líklega fyrir rannsóknir sínar á orðtökum is- lenskrar tungu en hann hefur einnig samið fjölmörg nýyrði, þ.á.m. „hjartavemd", „framleiðni", „fjöl- miðill", vistfræði" og „fernur“. í tilefni af því að Vaka-Helgafell hefur tekið við útgáfurétti á bókum Halldórs og að í ár fagnar hann 85 ára afmæli hyggst bókaforlagið efna til málþings nú í haust þar sem fjall- KRISTINN Sigmundsson, baríton- söngvari og Guðjón Oskarsson, bassasöngvari, fengu jákvæða um- sögn gagnrýnanda ítalska dagblaðs- ins Corríere della sera fyrir söng sinn í Rínargulli Wagners í Scala- óperuhúsinu síðastliðið fimmtudags- kvöld, þar sem Kristinn söng hlut- verk Regins og Guðjón hlutverk Fáfnis. Gagnrýnandinn, Paolo Isotta, fór raunar ekki mörgum orð- um um íslendingana, en lýsti rödd Kristins sem fallegri, kröftugri og hljómmikilli og sagði Guðjón hafa náð sér vel á strik í veigalitlu hlut- verki. Var Rínargullið, sem er fyrsti hluti Niflungarhrings Richards unblaðinu í gær með fyrirsögn- inni: Skeifur í rými, og átti með- fylgjandi mynd af málverkinu Endurminning frá Búðum að birtst þar með. Sýningu Jóhann- esar lýkur 9. júní. að verður um fræðastörf Halldórs Halldórssonar. Halldór Halldórsson fæddist á ísafirði 13. júlí 1911. Hann iauk magistersprófi í íslenskum fræðum með málfræði sem aðalgrein við Háskóla íslands árið 1938 og dokt- orsprófi frá sama skóla árið 1954. Hann dór varð dósent við Háskóla íslands árið 1951 og prófessor þar frá 1957 til 1979. Hann var gistifyr- irlesari við Háskólann í Lundi 1959- 1960m, gistiprófessor við University College í Lundúnum haustið 1967, gistiprófessor við University of North Corolina af Chapel Hill vor- misserið 1970 og við háskólann í Odense 1975, auk þess að halda fyrirlestra við ýmsa aðra háskóla austan hafs og vestan. Wagner, í tónleikauppfærslu og var þetta frumraun Kristins og Guðjóns á sviði Scala-óperuhússins í Mílanó. Hljómsveitarstjórinn Riccardo Muti fékk afar góða dóma í blaðinu og voru tónleikarnir sagðir vera stórsigur fyrir hann, honum hefði tekist að halda uppi stórkostlegum tónleikum í tvær og hálfa klukku- stund. Að mati gagnrýnanda unnu Monte Pederson og Kim Begley söngsigra kvöldsins. í heild fékk þessi tónleikaupp- færsla frábæra dóma og þótti gagn- rýnanda mest um vert að stjórnand- inn Riccardo Muti skyldi geta laðað fram svo áhrifamikinn flutning á TONLIST Laugarncskirkja KÓRTÓNLEIKAR Utanfarartónleikar Drengjakórs Laugameskirlgu. Gunnar Gunnars- son, píanó. Stjómandi: Friðrik S. Kristinsson. Laugameskirkju, mánu- daginn 3. júni kl. 20:30. ÍSLAND getur aðeins teflt fram einum drengjakór. Það er skaði - líka hvað uppeldismál almennt varðar. Því þó að íþróttum sé ætl- að að bjarga öllu, þegar ungviðið er annars vegar, þá sér þess fá dæmi, að fótboltinn komi iðkend- um og áhorfendum til að „hegða sér eins og herrar“ - og þaðan af síður að „syngja eins og engl- ar“, líkt og segir í kjörorði Drengjakórs Laugarneskirkju, er fyllti heimastöðvar sínar áheyr- endum á mánudaginn var. Hinn 6 ára gamli drengjakór er á förum til Norðurlanda og mun m.a. syngja á „Grasflötinni“ í Tív- olí og í Liseberg Nöjespark í Gautaborg. Af því tilefni voru áð- umefndir tónleikar haldnir, og voru íslenzku lögin fyrst til með- ferðar: Gefðu að móðurmálið mitt, Ljósið kemur, Góð börn og vond, Krummavísur, Island ögrum skor- ið, Eg bið að heilsa (við píanóund- irleik), Máríuvers Páls ísólfssonar, Heyr himnasmiður Þorkels og Maístjarna Jóns Ásgeirssonar, þar sem „forskóladeild" kórsins bætt- ist við. Drengirnir sungu allt með ágætum, þó að maður saknaði fáeinna þátta sem skerpt geta túlkun, eins og meiri styrkvíddar - lítið varð t.d. úr styrkhniginu (decrescendóinu) í lok Krumma- vísna - og styttl (staccató) virtist, óperu Wagners án þess að hafa hið leikræna form óperunnar sér til stuðnings. Tónleikar með Rínargulli Wagners verða í Scala til 13. júní næstkomandi. Laugardaginn 8. júní kl. 19.40 verð- ur bein útsending á Óperukvöldi Útvarpsins á Rás eitt frá Scala á Rínargulli Wagners. Flytjendur ásamt þeim Kristni og Guðjóni eru Monte Pedersson í hlutverki Óðins, Claudio Otelli í hlutverki Þórs, Berry Ryan í hlutverki Freys, Kim Begley í hlutverki Loka, Franz Joseph Kap- ellmann í hlutverki Andvara, Violetta Urmana í hlutverki Friggjar og Sus- an Anthony i hlutverki Freyju. enn sem komið er, ekki meðal strengja þessarar hörpu. En það voru smámunir. Tónn drengjanna var fallegur, texta- framburður allskýr og hefur kór- inn flesta burði til að verða meiri- háttar nellika í hnappagati þjóðar- innar um leið og stjórnandanum tekst að vinna bug á meginvanda- málinu, sem er ákveðin sigtil- hneiging, einkum í lok hendinga. Það er ljóst, að strákarnir hafa hæð, og það fallega, en stundum hefði kannski mátt „kýla“ ögn meira á stökkin upp á við. Yngstu hnokkamir bættust einnig í hópinn í fyrsta lagi eftir hlé, hinu þjóðlega Senn kemur vor eftir Kabalevsky, er sungið var með píanóundirleik. Eftir það sungu eldri strákarnir einir; fyrst Hljóðnar nú haustblær (úkraínskt þjóðl.), Spring-time („balet“ eftir Morley (með fa-la viðlag), er vakti mikla lukku) og Ave veram eftir Fauré, þar sem drengjunum virtist hafa aukizt sjálfstraust um helm- ing eftir hagstæðar viðtökur end- urreisnarlagsins, og kom sér vel, því lagið var nokkuð kröfuhart fyrir ungar raddir. Hve klukkur blítt klingja (= Das klinget so herrlich, söngur knap- anna þriggja í Töfraflautu Moz- arts) hljómaði næst við fyrirmynd- argóðan píanóundirleik Gunnars Gunnarssonar, og í lokin komu tvær perlur úr þeldökkum guð- spjallasöng, Poor man Laz’ras og Ah’m goin’ up a-younder, sem drengirnir höfðu augljóslega gam- an af að syngja, og skal engan undra, enda féll söngur þeirra i fijóan jarðveg hjá áheyrendum. Var þá bravóað óspart, og verður vonandi einnig næstu daga meðal frændþjóðanna syðra. Ríkarður Ö. Pálsson Listhátíð í Reykjavík 1996 Miðvikudagur 5. júní Yuuko Shiokawa fiðla og András Schiff píanó. ís- lenska óperan kl. 20. „Híf opp“ Tríó Björns Thoroddsen og Egill Oiafs- son. Loftkastalinn kl. 21. Klúbbur Listahátíðar: Loftkastalinn. Opið frá kl. 17. Tímarit • TÍUNDA tölublað Óperu- bluðsins er komið út og er það að þessu sinni helgað óperunni Galdra Lofti eftir Jón As- geirsson, sem frumsýnd verð- ur í íslensku óperunni 1. júní næstkomandi. Meðal efnis í blaðinu er grein eftir Jón Viðar Jónsson um leikrit Jóhanns Sigurjónsson- ar, Galdra Loft. Björn Bjarnason menntamálaráð- herra lýsir skoðun sinni á óperustarfsemi og rekstri óperu innan hugsanlegs tónlistar- húss. Þrír óperuunnendur velja söngvara í aðalhluverkin í II trovatore, ÓlafurB. Thors velur eftirlætisóperuna sína og sagt er frá óperuferð til New York um páskana ogtónlistar- hátíðum í Evrópu í sumar. Arnesinga- kórinn á tón- leikum í Róm ÁRNESINGAKÓRINN _ í Reykjavík fer í söngferð til ítal- íu þann 7. júní. Tónleikar verða í þremur borgum, Róm, Perug- ia og Massa. Kórinn varð þess heiðurs aðnjótandi að vera val- inn úr hópi fjölda kóra og ann- arra listamanna til að halda tónleika í Pantheonhofinu í Róm. Efnisskrá kórsins saman- stendur að mestu leyti af kirkjulegri og þjóðlegri tónlist íslenskri og erlendri. Einsöngvari í ferðinni verður sópransöngkonan Signý Sæ- mundsdóttir, en einnig eru ein- söngvarar úr röðum kórsins en það eru þeir Árni Sighvatsson bariton, Ingvar Kristinsson ba- riton, Smári Vífilsson tenór og Þorsteinn Þorsteinsson bassi. Píanóleikari og organisti í ferðinni verður Bjarni Jóna- tansson en stjórnandi kórsins er Sigurður Bragason. Híf opp í kastalanum TRÍÓ Björns Thoroddsen ásamt Agli Ólafssyni leikur á tónleikum í Loftkastalanum í kvöld kl. 21. Yfirskrift tónleikanna er „Híf opp“ og tónlistin sem flutt verður er blanda af sígildum jasslögum og efni eftir Björn og Egil. Tónleikarnir eru á dagskrá Listahátíðar. Séð og heyrt Morgunblaðið/Einar Falur Hver Listahátíðaratburðurinn rekur nú annan og fólk drífur að til að sjá og heyra. Og svo stinga menn saman nefjum svona til að bera saman bækur sínar. Endurminning frá Búðum Herrar og englar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.