Morgunblaðið - 06.10.1995, Side 24

Morgunblaðið - 06.10.1995, Side 24
24 FÖSTUDAGUR 6. OKTÓBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ FJÖLMIÐLUIM Minni hlutur fjöl- skyldu Murdochs í News Corp Á nú 30,89% í fyrirtækinu Sydney. Reuter. HLUTUR fjölskyldu Ruperts Murdoehs í Qölmiðlafyrirtækjnu News Corp hefur minnkað á sama tíma og reynt hefur verið að bæta eiginfjárstöðu fyrirtækisins og hefur aldrei verið minni en nú. Hlutur Murdochs í News Corp hefur minnkað í 30,89% úr 32,63% sam- kvæmt tilkynningu til áströlsku káuphallar- innar frá eignarhalds- fyrirtæki Murdochs, Kayarem Pty Ltd. Síðan 1989 hefur hlutur fjölskyldunnar í News Corp minnkað úr 45,9%, en Murdoch hefur haldið völdum sínum í fyrirtækinu, sem hann erfði eftir föður sinn, Sir Keith, 1952. Sérfræðingar segja dvínandi hlut Murdochs stafa af ört vaxandi umsvifum News Corp og bættri eiginfjárstöðu síðan 1991 þegar fyrirtækið var að sligast und- an skuldum að upphæð 10 milljarð- ar Ástralíudalar. Síðan News Corp kom á tengslum við bandaríska símafélagið MCI Communications Corp í mai til að auka umsvif á sviði margmiðlunar hefur dregið úr vægi hlutabréfa í News Corp að sÖgn sérfræðinga. Murdoch virðist hins vegar ráðinn í að halda stórum hlut í News Corp, sem er metið á 23 milljarða Ástral- íudala, og arfleiða börn sín að eign- um sínum. Samkvæmt kauphallartilkynn- ingunni minnkaði hlutur Murdoch- fjölskyldunnar um 1,74% frá apríl 1994 til apríl 1995. Samkvæmt síð- ustu tilkynningu Murdochs til kauphall- arinnar í nóvember 1993 hafði hlutur fjöl- skyldunnar minnkað í 32,63% úr 34,1%. Seldi fyrir 61 millj. dala Fjölskyldufyrirtæki Murdochs, Crúden In- vestments Pty Ltd, seldi hlutabréf í News Corp að verðmæti 61.7 milljónir Ástralíudalar frá apríl 1994 til apríl 1995. Á móti komu kaup á hlutabréfum í News Corp að verð- mæti 26.8 milljónir Ástralíudaiar. MCI hagnast mest ef Cruden sel- ur fleiri hlutabréf í News Corp vegna forkaupsréttar að hlutabréf- um, sem fjölskyldufyrirtæki Murdochs selur. News Corp á STAR TV í Asíu og BSkyB í Bretlandi, kvikmynda- verið 20th Century Fox og Fox TV Network í Bandaríkjunum auk tuga dagblaða víða úm heim, meðal ann- ars í Bretlandi, Ástralíu og Banda- ríkjunum. Ruperts Murdochs \ Sprangað um vefinn Alnetið, eða intemetið, hlaut strax góðar viðtökur vestur í Kalifomíu. í febrúar síðastliðnum var því haldið fram að tíunda hluta allra nettengdra væri að finna í einu svæðisnúmeri í San Fransisco. Það er því ekki ólík- legt að Kaliforníumenn hafi fund- ið upp á því að kalla flakk um vefinn „surfing". Það er sama orð og notað er um brimbrettareið sem mikið er stunduð þar vestra. Ef til vill nær fyrir okkur ís- iendinga að tala um að skíða, skauta eða spranga um vefinn. Þegar rápað er um netheima rekast menn á ótrúlegustu hluti. Ailar ábendingar um áhugaverð- ar vefsíður em vel þegnar og má senda þær til gudni@m bl.is. í haust var opnað frægðarset- ur rokks og róls, Rock and Roll Hall of Fame, vestur í Cleveland í Ameríku. Jafnframt var sett upp skrautleg heimasíða sem hlotið hefur mikið lof. Slóðin þangað er (http://www.rock- hall.com/). Annað áhugavert safn á vefn- um er sjónvarps- og útvarpssafn- ið í New York. Það safnar dag- skrám útvarps- og sjónvarps- stöðva. Heimasíða safnsins er: (http://www.mtr.org/). Hámenningarsinnuðu fólki má benda á heildarverk Williams Shakespeare, bæði ljóðmæli og leikrit, á slóðinni (http://the-tec- h.mit.edu/Shakespeare- /works.html). Nú er páfinn á ferð um Banda- ríkin og þeir sem viija fræðast um ferðir hans heilagleika geta flett upp á sérstakri heimasíðu New York Times um páfaheim- sóknina. (http://www.nyti- mes.com/pope/). Þá erkomin sænsk heimasíða sem veitirýms- ar upplýsingar um Nóbelsverð- launin. Slóðin þangað er: (http://www.algonet.se/ nikos.swedish.html) Útsendingar Stöðvar 3 eiga að hefjast í nóvember Morgunblaðið/Þorkell ÞÓRARINN Ágústsson, tæknisljóri Stöðvar 3, við útsendingarstjórnborð stöðvarinnar. DAGSKRÁIN SKÝRIST A NÆSTU DOGUM NÝRÁÐINN _ sjónvarpsstjóri Stöðvar 3, Úlfar Steindórsson, segir að sem fyrr sé áætlað að hefja útsendingar nú í nóvember. Hann vísar því jafnframt alfarið á bug að stöðin eigi í einhveijum vandræðum með að útvega dag- skrárefni. Framkvæmdir í hús- næði stöðvarinnar í Húsi verslun- arinnar standa nú yfir og er þessa dagana verið að ganga frá tækjabúnaði í útsendingar- stjórn stöðvarinnar. Mikill slagur um dagskrárefni Eins og fram hefur komið hyggst íslenska sjónvarp- ið endurvarpa a.m.k. þremur erlendum gervihnatta- stöðvum um útsendingarkerfi sitt auk þess að senda út eigin dagskrá á Stöð 3. Úlfar ségir það ekki tíma- bært að greina frá því um hvaða stöðvar þar verði að ræða né heldur hvaða efni verði á dagskrá Stöðv- ar 3. Það muni hins vegar skýrast á næstu dögum þegar allir samningar þess efnis verði í höfn. „í öllum þessum slag sem er farinn af stað, og það liggur al- veg ijóst fyrir að það er komin hörkubarátta inn á þennan markað, þá hef ég það á tilfinningunni að menn séu bara að skaða sjálfa sig með yfirboðum," segir Úlfar. Eins og Morgunblaðið greindi frá náði Stöð 2 fyrir skömmu samningum um endurdreifingu á gervi- hnattastöðinni NBC Super Channel. Úlf- ar neitar því ekki að íslenska sjónvarpið hafi rennt hýru auga til þessarar stöðv- ar en segir þó að nægir möguleikar séu enn opnir hvað gervihnattastöðvar varði, þ.m.t. flestar aðrar stöðvar sem Fjöl- varpið endurvarpi nú. „Þessar stöðvar taka ákveðið gjald fyrir hvem notanda og því fleíri aðilar sem dreifa fyrir þá, þeim mun meiri tekjur auk þess sem þeir kunna að tvö- falda tekjur af einhveijum notendum ef þeir em áskrifendur að hvomtveggja. Því eru þeir ekki að binda sig við aðeins einn aðila. Það er hins vegar mikill mis- skilningur hjá Stöðvar 2-mönnum ef þeir halda að stríðið muni vinnast á þessum vettvangi. Það sem málið snýst fyrst og fremst um er sú dagskrá sem við munum bjóða upp á hjá Stöð ,3,“ segir Úlfar. Engar innlendar fréttir Mikil áhersla var lögð á starf- rækslu fréttastofu þegar Stöð 2 fór í loftið haustið 1986 og var hún talin vera lykilatriði í möguleikum stöðvarinnar til að ná árangri. Úlf- ar segir aðstæður hins vegar vera allt aðrar nú. „Það sem hefur gerst síðan Stöð 2 hóf útsendingar sínar er að það eru fréttir á öllum útvarps- stöðvum allan daginn og á kvöldin taka við fréttir á Stöð 2 og Ríkissjónvarpinu. Við teljum að við værum að hrúga inn meiru af sama hlutnum með því að vera líka með fréttir. Ég held að það sé ekki það sem væntanlegir áhorfendur okkar vilji kaupa.“ Úlfar segir að markmiðið sé að Stöð 3 verði fyrst og fremst afþreyingarsjónvarp. Ekki sé áformað að vera þar með neinar innlendar fréttir en áherslan sé þess í stað lögð á framhaldsþætti af ýmsu tagi, barna- efni, íþróttir og bíómyndir. Hann segir að allt efni verði textað og barnaefnið verði talsett. Þá sé einnig stefnt að því að bjóða upp á innlent dagskrárefni. íslenska sjónvarpið muni hins vegar ekki standa í neinni dagskrárgerð heldur verði hún falin verktökum. Dreifikerfið verður stækkað Að sögn Úlfars er það stefna íslenska sjónvarpsins að útsendingar þess muni með timanum ná hringinn í kringum landið. „í upphafi mun dreifingarsvæði okkar ná frá Ákra- nesi til Keflavíkur. Þar verða að vísu ákveðin skuggasvæði en við munum hins vegar ná til u.þ.b. 70% íbúa á þessu svæði á fyrsta degi.“ Hann segir það hins veg- ar ekki tímabært að nefna neinar dag- setningar hvað varðar frekari stækkun drejfikerfisins. Áskrifendur Stöðvar 3 munu fá aðgang að loftneti og afruglara sér að kostnaðar- lausu þegar þeir he§a áskrift að stöðinni. Aðspurður hvort ætlunin sé að undirbjóða Stöð 2 í verði áskriftar, segir Úlfar að ekki hafi verið ákveðið endanlega hvert áskriftargjald Stöðvar 3 verði, en það sé hins vegar ljóst að þar ætli menn sér að vera samkeppnishæfir. Úlfar Steindórsson Hva5 er klukkan? 1. október 1995 - þrlggja stafa þjónustunúmer Pósts og síma tekin í notkun tll samræmis við önnur lönd Evrópu. 04 breytist í 155. POSTUR OG S!MI

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.