Morgunblaðið - 06.10.1995, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 06.10.1995, Blaðsíða 22
. ?0t> f ffjitflOT)tO .?) flUD/'MUTgO'l 22 FðSTUDAGUR 6. OKTÓRER 1995' Reuter BOUTROS Boutros-Ghali, framkvæmdasljóri Sameinuðu þjóðanna, tekur á móti Jóhannesi Páli páfa í höfuðstöðvum samtakanna. Jóhannes Páll páfi ávarpar þing SÞ Væntir upphafs að „nýju vori mannsandans“ New York. Reuter. JÓHANNES Páll II páfi ávarpaði allsheijarþing Saméinuðu þjóðanna í gær í tilefni af 50 ára afmæli alþjóðasamtakanna. Páfi hvatti Sameinuðu þjóðimar til að hefja sig upp yfir kalda skriffinnsku og verða að sannri „fjölskyldu þjóð- anna“ sem gæti orðið upphaf að „nýju vori mannsandans". Páfi sagði að þörfín fyrir Sam- einuðu þjóðirnar væri jafnvel enn augljósari nú en þegar þær voru stofnaðar eftir lok síðari heims- styijaldarinnar fyrir hálfri öld. „Sameinuðu þjóðirnar þurfa að hefja sig æ hærra upp yfir kalda stöðu stjórnunarstofnunar og verða að siðferðislegri miðstöð þar sem öllum þjóðum heims getur liðið eins og heima hjá sér og geta alið með sér þá sameiginlega tilfinnirígu að þær tilheyri „fjölskyldu þjóðanna“, ef svo má að orði komast,“ sagði páfi. „Við getum byggt upp, á næstu öld og næsta árþúsundið, menningu sem er sæmandi mannkyninu, sanna frelsismenningu. Við getum og verðum að gera það. Og þegar við gerum það skiljum við að tár aldarinnar hafa lagt grunninn að nýju vori mannsandans." „Við verðum að sigrast á ótta okkar við framtíðina," hélt páfi áfram. „Við getum samt ekki sigr- ast á honum að fullu nema við gerum það saman. Við megum ekki óttast framtíðina. Við megum ekki óttast manninn." Stjórnarerindrekar fjölmenntu í fundarsalinn og hlýddu með at- hygli á ræðuna. Þeir stóðu upp þegar páfi lauk máli sínu og klöpp- uðu honum lof í lófa. Þetta er í þriðja sinn sem æðsti maður katólsku kirkjunnar ávarp- ar allsheijarþing Sameinuðu þjóð- anna. Páll VI heimsótti höfuð- stöðvar samtakanna 4. október árið 1965 og flutti þá tilfinninga- þrungið friðarákall. Jóhannes Páll fyrsti ávarpaði þingið 2. október 1979. Rætt um frið í Bosníu Páfi er í fjórðu heimsókn sinni til Bandaríkjanna og hún stendur í fimm daga. Hún hófst í Newark í New Jersey í fyrrakvöld ög Bill Clinton forseti tók á móti honum á flugvellinum ásamt konu sinni, Hillary. Clinton átti síðan 30 mín- útna fund með páfa og þeir ræddu einkum tilraunir til að koma á friði í Bosníu. Um 3.000 manns tóku á móti páfa á fiugvellinum í Newark. Páfi ávarpaði manníjöldann og lét svo um mælt að það „væri sorglegt“ ef Bandaríkjamenn sneru baki við þörfum fátæklinga. Ummælin þóttu líkleg til að gleðja Clinton, sem hefur háð baráttu á þinginu gegn hugmyndum repúblikana um að minnka útgjöldin til velferðar- mála. Óvenjumiklar örj'ggisráðstafanir voru í Newark vegna heimsóknar- . innar. Allur vegurinn milli flugvall- arins og borgarinnar var lokaður og jafnvel kardinálar sluppu ekki við málmleit áður en þeir gengu inn í dómkirkjuna í Newark, þar sem páfi flutti ræðu. - (flGAÆ'AUÖÍÍOW MORGUNBUAÐIÐ ERLEIMT Makedoníumenn sjá fyrir endann á viðskiptabanni Grikkja V ongóðir um lang- þrádan efnahagsbata Skopje. Reuter. BANATILRÆÐIÐ sem forseta Makedoníu, Kiro Gligorov, var sýnt á þriðjudag skapar mikla pólitíska óvissu í landinu nú þegar Makedoníu- menn sjá nú loksins fyrir endann á efnahagslegri einangrun sinni. Landsmenn vona að sú ákvörðun Grikkja að aflétta 18 mánaða við- skiptabanni á Makedoníu færi þeim langþráðan efnahagsbata. Ovíst er hvort Gligorov, sem er 78 ára, nái sér eftir banatilræðið. Deyi Gligorov eða dragi sig í hlé verður að efna til forsetakosninga innan tveggja mánaða. Tilræðismennimir komust undan og ekki er vitað hveijir voru að verki. Gríska stjórnin telur að þjóð- ernissinnar hafi reynt að myrða for- setann til að koma í veg fyrir tilslak- anir í viðræðunum við Grikki. Deilt um nafn og fána Deila ríkjanna blossaði upp 1991 þegar Makedonía öðlaðist sjálfstæði eftir upplausn gömlu Júgóslavíu. Grikkir settu viðskiptabann á Make- doníu til að mótmæla nafni, fána og stjórnarskrá nýja ríkisins sem þeir segja fela í sér tilkall til Makedoníu-héraðs í Norður-Grikk- landi. Þing Makedoníu samþykkti í gær að skipta um fána samkvæmt sam- komulagi við Grikki fyrir tilstilli Bandaríkjanna og Sameinuðu þjóð- anna, SÞ, í síðasta mánuði. Sam- þykkt þingsins greiðir fyrir því að Grikkir aflétti viðskiptabanninu, sem talið er að hafi kostað Makedoníu jafnvirði tæpra 70 millj- arða króna á 18 mánuðum og vald- ið 15% minni iðnframleiðslu. Vonir um fjárfestingar Um 70% útflutningsvamings Makedoníumanna fóm áður um Serbíu en sú leið lokaðist vegna við- skiptabanns SÞ á nágrannaríkið í norðri. Eftir viðskiptabann Grikkja snarhækkaði flutningskostnaðurinn þar sem 90% útflutningsvamingsins þurftu að fara um Búlgaríu og af- gangurinn um Albaníu. 25 stórfyrirtæki í Makedoníu ramba á barmi gjaldþrots vegna viðskiptabanns Grikkja og efna- hagsþrenginga í kjölfar erfiðra að- gerða sem miða að því að koma á markaðshagkerfi. Talið er að hægt verði að bjarga 60% þessara fyrir- tækja komist aftur á viðskipta- tengsl við Grikkland, sem tryggja hráefni og markaði fyrir stærstu stálver landsins, húsgagna- og bíla- partaverksmiðjur og fleiri fyrirtæki. Embættismenn í Makedoníu segja að enn sé óvíst hvenær við- skiptabanninu verður aflétt að fullu þar sem Grikkir neita enn að viður- kenna nafn ríkisins. Makedonía hef- ur fengið aðild að SÞ og búist er við að landið gangi í Evrópuþingið síðar í mánuðinum undir nafninu Fyrrverandi júgóslavneska lýðveldið Makedonía, sem þjóðernissinnar úr röðum stjórnarandstæðinga hafa mikla óbeit á. Reuter Opal veldur eyðileggingu Denard gefur sig Frökkum á vald JOHN Lott og nágranni hans, Rose Klein, virða fyrir sér skemmdirnar í hverfi sínu í Atlanta í Bandaríkjunum eftir að leifarnar af fellibylnum Opal fóru yfir Georgíu, Alab- ama og Tennessee í gær. Mest- ur var vindhraðinn 240 km á klukkustund en mjög hefur nú dregið úr honum. Að minnsta kosti tveir hafa látist af völd- um hans. Opal hafði áður farið yfir Flórída og olli þar mun meiri skaða. Leituðu um 23.000 manns skjóls í neyðarskýlum Rauða krossins í fimm ríkjum í fyrrinótt. Kandami á Comoro-eyjum. Reuter. FRANSKI ævintýramaðurinn Bob Denard, sem rændi völdum á Co- moro-eyjum í síðustu viku, gaf sig á vald frönskum hersveitum í gær. Denard var greinilega afar ósáttur við hlutskipti sitt er hann yfirgaf Kandami-herbúðirnar í fylgd tveggja lautinanta og gaf sig fram við Frakka. Hann viðurkenndi hins veg- ar ekki að hann væri að gefast upp og heilsaði ekki að hermannasið. „Engin skilyrði hafa verið sett, þetta er ekki uppgjöf. Við yfirgefum þennan stað til að gefa okkur franska hernum í Moroni á vald,“ sagði Denard í sjónvarpsviðtali. „Ég var fullvissaður um það að við myndum njóta verndar þessara her- flokka eins og aðrir Evrópumenn sem eru í liði mínu og þeir Comoro- menn sem eru undir stjórn Combos kafteins." Þegar Denard var spurður hvort að ferili hans væri á enda, svaraði hann að bragði: „Lít ég út fyrir að vera maður sem er að setjast í helg- an stein?“ Frönsk yfirvöld hafa sagt að Denard verði fluttur til Frakklands þar sem réttað verði yfir honum. ÖRYGGI TÖLVUNOTENDA í fyrirrúmi á laugardagskynningu í Tæknivali Opið frá 10 00 til 16 00 Við kynnum þér allt um afritunartöku, þjófavarnir, varaaflgjafa og margt fleira sem snýr að öryggi tölvubúnaðar og tölvugagna ýmiskonar á laugardags- kynningu í Tæknivali. Misstu örugglega ekki af því! Skeifunnr17-Sími 568-1665- Fax 568-0664 Tæknival
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.