Morgunblaðið - 06.10.1995, Page 12

Morgunblaðið - 06.10.1995, Page 12
12 FÖSTUDAGUR 6. OKTÓBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI Áætlun um rekstur og fjármál bæjarsjóðs Stórhuga áform eiga langt í land FRUMVARP að þriggja ára áætlun bæjarsjóðs Akureyrar um rekstur, fjármál og framkvæmdir árin 1996- 1998 verður tekið til síðari umræðu á fundi bæjarstjórnar á þriðjudag. Í bókun Sigurðar J. Sigurðssonar, Sjálfstæðisflokki segir að sýnilegt sé að síhækkandi hlutfall rekstrargjalda af tekjum dragi úr möguleikum bæj- arins til að sinna nauðsynlegum framkvæmdum og viðhaldi. Taka þurfi mun ákveðnari afstöðu til ákveðinna þjónustuþátta en áætlunin geri ráð fyrir þar sem aðeins sé tek- ið mið af þeim breytingum sem þeg- ar eru þekktar. „Fjárhagsáætlun fyr- ir árið 1996 verður að taka mið af þessum vanda þar sem skilgreind verði sú þjónusta sem bæjarfélagið treystir sér til að veita,“ segir í bók- un Sigurðar. „Hin stórhuga áform núverandi meirihluta bæjarstjómar sem lagt var upp með á síðasta ári sýnast í ljósi þessarar áætlunar harla léttvæg og eiga langt í land,“ segir Heimir Ingi- marsson, Alþýðubandalagi í bókun um þriggja ára áætlun bæjarsjóðs. Flokkur sinn geri sér Ijósa þá erfið- leika sem steðja að í fjármálum bæjar- ins, en áskilji sér rétt til að vera ósam- mála skiptingu þeirra fjármuna sem til ráðstöfunar eru við afgreiðslu áætlunarinnar í bæjarstjórn. Kartöflugarðar of blautir til upptöku EyjaQarðarsveit. EFTIR tveggja mánaða þurrka- kafla þar sem varla datt dropi úr lofti og lækir voru að þorna upp hafa nú heldur betur skip- ast veður í lofti. Heliirignt hef- ur nú nær látlaust í fjóra sólar- hringa og þar sem jarðvegur var mjög þurr fyrir drekkur hann bleytuna vei í sig. Kartöflugarðar eru þó að verða fullblautir til upptöku og sagði Aðalsteinn Hallgrímsson hjá Öngli hf. að þeir hefðu orð- ið að hætta upptöku af þeim sökum. Rigning er öðrum bændum kærkomin því vatnslít- ið var orðið á nokkrum býlum og því hefði getað skapast slæmt ástand ef fryst hefði strax eftir þurrkakaflann. Morgunblaðið/Hilmar T. Harðarson Fiskafóður sent til Noregs STARFSMENN Laxár hafa verið að skipa út fiskafóðri sem siglt er með til Noregs, en Skretting A/S kaupir framleiðsluna. Alls voru send út um 700 tonn af fóðri, en hluta þess hafði verið skipað upp i Reykjavík. Þetta magn er um 20% af allri sölu fiskafóðurs innanlands, en á innnanlandsmarkaði eru seld um 4000 tonn af fiskafóðri árlega. Héraðslæknirinn á Norðurlandi eystra Bj örgnnarþyrla gæslunnar verði staðsett á Akureyri ÓLAFUR H. Oddsson héraðslæknir á Norðurlandi eystra er þeirrar skoð- unar að björgunarþyrla Landhelgis- gæslunnar eigi að vera staðsett á Akureyri. Þá lýsti Ólafur þeirri skoð- un sinni á fundi um málefni héraðs- sjúkrahúsa á Húsavík nýverið að flytja beri starfsemi Landhelgisgæsi- unnar til Akureyrar. „Mér fínnst engin skynsemi í því fyrir þjóð sem á eina fullkomna björgunarþyrlu að setja hana niður á stað þar sem fyrir eru björgunar- þyrlur, en þar á ég við þyrlur varnar- liðsins," sagði Olafur. „Mér þy.kir skynsamlegra að staðsetja þyrluna sem lengst frá öðrum þyrlum. Á þann hátt gerir hún mest gagn." Fljótari í förum Ólafur sagði að þyrla á Akureyri yrði mun fljótari til bjargar sjómönn- um á miðunum úti fyrir Norður- og Austurlandi. Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri réði við langflest þeirra tilfella sem upp koma þannig að í undantekningartilvikum þyrfti að fljúga með slasaða eða veika sjó- menn til Reykjavíkur. Oft háttaði þannig til að ófært væri yfir miðhá- lendi Islands og þyrftu þyrlur því að fljúga með ströndinni, en við það tapaðist dýrmætur tími. Þá nefndi Ólafur að aukin sókn í Smuguna skipti einnig máli í þessu sambandi. „Ég hef stungið upp á því að fólk á svæði norðan við línu sem dregin yrði frá ísafirði til Hornafjarðar myndi njóta þjónustu þyrlu sem stað- sett yrði á Akureyri og að samið yrði um slíka þjónustu við varnarlið- ið fyrir svæðið sunnan hennar.“ Gæslan norður Ólafur sagði Landhelgisgæsluna dæmi um ríkisstofnun sem gæti me'ð sama árangri verið staðsett á Akur- eyri og Reykjavík. Hlutverk hennar væri að gæta miðanna umhverfis landið og slíkt væri eins hægt að gera frá norðanverðu landinu. Lokatónleikar keppninnar fara fram í Háskólabíói laugardaginn 7. okt. kl. 14:00 og felast í „einvígi“ tveggja keppenda sem leika eða syngja með Sinfóníuþljómsveit Islands undir stjórn Osmo Vanska Forseti Islands afhendir sigurlaunin Osmo Vanska Miðasala í anddyri Hótel Sögu OG VIÐ INNGANGINN Miðapantanir í síma 552 9924 NordSoll995 Tónlistarkeppni Norðurlanda Christina Guðrún María Henri Katrine Markus Bjprkpe Finnbogadóttir Sigfridsson Buvarp Leoson Danmörku Islandi Finnlandi Noregi Svíþjóð Irsk lista- hátíð í næstu viku ÍRSK listahátíð verður haldin á Akureyri og mun Björn Bjarnason menntamálaráðherra setja hátíðina laugardaginn 13. október næstkom- andi í Listasafninu á Akureyri. Þá verður einnig opnuð myndlistarsýn- ing írsku málaranna Jackie Stanley, Guggi og James Hanley auk þess sem The Curfew Press sýnir „nú- tíma handritið" The Bible of Dre- ams. Að kveldi opnunardagsins frum- sýnir læikfélag Akureyrar nýja leik- gerð írans Michael Scott á hinu klassíska meistarverki gotnesku hryllingssögunnar Dracula, en höf- undur bókarinnar var borinn og barnfæddur Dyflinarbúi. Helgin 20. til 22. október verður helguð írskum bókmenntum með upplestrum, fyrirlestrum og um- ræðum. Sigurður A. Magnússon mun m.a. ræða James Joyce og þýðingu sína á Ódisseyfi. Þó svo hátíðin verði formlega sett í næstu viku má segja að heim- sókn írskra ferðamálaaðila „Dublin Tourism" til Akureyrar næsta laug- ardag, 7. október marki upphaf hennar, en þeir taka nokkurs konar forskot á sæluna og kynna starf- semi sína á veitingahúsinu Við Poll- inn og hafa með sér írsku þjóðlaga- sveitina The Merry Plough Boys. írska listahátíðin er haldin í ljósi þeirrar staðreyndar að landnáms- maðurinn Hegli Magri kom frá Dyflini í byijun 10. aldar til að setj- ast að á Islandi, en hann settist sem kunnugt er að á Kristnesi í Eyja- firði. Samkvæmt landnámu var móðir hans irsk konungsdóttir og hann sjálfur fæddur á Irlandi. Á meðan á hátíðinni stendur munu veitingahús og krár skapa írskt andrúmsloft með því að bjóða upp á írska tónlist, drykki, mat og annað til að skemmta fólki. Þá verða sérstök gistitilboð fyrir gesti Akureyrarbæjar. Morgunblaðið/Kristján Borað fyrir sprengju- hleðslu FRAMKVÆMDIR við nýja höfn í Krossanesi eru komnar í fullan gang. Það er fyrirtækið Valfell hf. í Reykjavík sem vinnur verk- ið. Byggður verður nýr viðlegu- kantur í norðaustur frá gömlu löndunarbryggjunni sem fyrir er. Rekið verður niður 80 metra langt stálþil og innan við það verður fyllt upp með malarefni. Áður en hægt verður að reka niður stálþilið, þarf að sprengja burt klappir neðansjávar og er notaður öflugur bor til þess að bora fyrir sprengjuhleðslunni. ------------------ „Gólf á vegg“ í Karólínu KRISTJÁN Pétur Sigurðsson opnar sýninguna „Gólf á vegg“ í Café Karólínu á morgun, laugardag. Á veggjum kaffihússins eru lág- myndir, að mestu unnar úr gólffjöl- um, sem Kristján Pétur gekk áður á. Verkin íjögur á sýningunni eru unnin á síðustu mánuðum og fjalla um tónlist, vináttu og kyrrð. Sýningin verður opin á opnunar- tíma Karólínu fram í nóvember.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.