Morgunblaðið - 19.12.1992, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 19.12.1992, Blaðsíða 32
MÓRGUNMAÐÍÐ LAUGARDAGÚR 19. DESEMBER 1992 & Gísli Örn Lárusson kaupir Svíana út úr tryggingafyrirtækinu Skandia ísland Skandia Svíþjóð veit- ir fjárhagsstuðning í tengslum við kaupin GÍSLI Örn Lárusson forstjóri Skandia ísland keypti í gær hlut Skan- dia Svíþjóð í tryggingafyrirtækinu. Hann átti fyrir rúman þriðjung fyrirtækisins og á nú öll hlutabréfin. f tengslum við kaupsamninginn lýsir Skandia Svíþjóð því yfir að það veiti Gísla Erni fjárhagslegan stuðning til að haida starfsemi tryggingafélagsins áfram. Skipt verður um nafn á þvi og segist Gísli Örn ætla að halda áfram þeirri markaðs- sókn á íslenska tryggingamarkaðnum sem Skandia ísland var í. Gísli segir að fjárhagsstaða félagsins sé traust og neitar því að hún sé ástæða eigendaskiptanna. Morgunblaðið/Kristinn Elísabet Hermannsdóttir, fulltrúi Kvenfélagsins Hringsins, Óskar og Lilja Söebeck, og Víkingur Arnórsson, yfirlæknir. Hjón gefa 5 milljónir króna til byggingar barnaspítala Ekki hægt að verja peningunum betur — segir Lilja Söebeck HJÓNIN Óskar og Lilja Söebeck færðu Byggingarsjóði nýs barna- spítala 5 miiljónir króna að gjöf á föstudag. Víkingur Arnórsson, yfirlæknir á Barnaspítala Hringsins, tók við gjöfinni. Hann sagði að peningarnir myndu án efa koma sér afar vel þegar hafist yrði handa við byggingu spítalans og vonandi hefði framlag Óskars og Lilju hvetjandi áhrif á aila þá sem vildu leggja máiefninu lið. Bygg- ingarsjóðurinn var stofnaður af Kvenfélaginu Hringnum, Ríkisspí- tölunum og starfsfólki Barnaspítala Hringsins árið 1988. Safnast hafa um 15 milljónir en gert er ráð fyrir að 400-500 mil^ónir þurfi til að reisa sérhæfðan barnaspítala. Enginn slíkur spítali er til í landinu. Alltaf þótt vænt um börn „Ég ætlaði mér alltaf að hafa það svona. Við eigum engin böm en mér hefur alltaf þótt vænt um böm og var ákveðinn í að gera eitthvað fyrir þau,“ sagði Óskar þegar grennslast var fyrir um ástæðuna fyrir því að hjónin ákváðu að gefa fé til byggingar spítalans. Lilja tekur undir orð Óskars. „Ég man að þegar við fórum að fá íbúð- ina á Snorrabrautinni borgaða spurði ég Óskar hvað við ættum að gera við peningana. Hann sagði þá að hann væri búinn að hugsa sér að gefa þá til barnaspítalans og ég var alveg sammála. Ég sagði að það gleddi mig innilega. Pening- amir gætu ekki farið á betri stað,“ sagði Lilja, sem er orðin 91 árs, og minntist þess að sjálf hefði hún kynnst högum veikra bama þegar hún hefði þurft að dveljast á sjúkra- húsi vegna heilsubrests. 60 ár saman Óskar er 89 ára gamall, frá Kúvíkum á Ströndum. Hann flutt- ist ungur með móður sinni, sem misst hafði mann sinn, til Akur- eyrar og lærði þar prentiðn. Seinna lá Ieiðin til Kanada þar sem hann starfaði um tíma við Lögberg. Þeg- ar svo heim kom vorið 1930 var Óskar nokkra mánuði á Akureyri áður en hann hélt til Reykjavíkur. Hann vann í Herbertsprenti 1931- 1939, ísafoldarprentsmiðju, hjá Morgunblaðinu í 17 ár og síðar aftur hjá ísafold. í Reykjavík kynntist Óskar Lilju, sem segist vera „ekta" Bílddælingur og eiga þau sextíu ára brúðkaupsafmæli 27. maí í vor. Lilja og Óskar eru sátt við lífið og tilveruna þó þeim hafi ekki orð- ið bama auðið. Þau búa í þjónustu- íbúð við Dalbraut og segja að þeim Ifði vel og allir séu góðir við þau. Á daginn hafí þau svo ýmislegt fyrir stafni, lesi t.d. alls kyns bæk- ur og spili svolítið. Að horfa til framtíðar Víkingur Arnórsson, yfirlæknir á Barnaspítala Hringsins, tók á móti gjöf Óskars og Lilju og sagði að fjárframlag þeirra myndi án efa koma í góðar þarfir þegar hafíst yrði handa við byggingu barnaspít- ala. Hann sagðist líka vona að framlag þeirra yrði til þess að hvetja fleiri til að leggja málefninu lið. Ætlunin væri að safna nægu fé til að gera grófa útlitsteikningu af húsinu og þegar því væri lokið að safna fyrir byggingunni á lands- vísu. Hið opinbera myndi svo vænt- anlega leggja fé til verksins. Víkingur lagði áherslu á að menn mættu ekki láta deigan síga þó. kreppa væri í þjóðfélaginu. Efna- hagur væri breytilegur frá ári til árs og horfa yrði til framtíðar varð- andi uppbyggingu bamaspítala. Hann benti á að enginn sérhæfður barnaspítali væri til hér á landi og þó Barnaspítali Hringsins væri inn- réttaður með þarfír bama í huga, væri t.d. herbergjaskipan sú sama og á venjulegum spítala. Vantaði tilfinnanlega leiksvæði fyrir bömin, aðstöðu fyrir foreldra og betri göngudeildarþjónustu. Fjárframlag frá Paul Newmann Aðspurður um hvernig gengi að safna fyrir spítalanum sagði Vík- ingur að þegar hefðu safnast um 15 milljónir upp í þær 400-500 milljónir sem þyrftu til að reisa spítalann. Sagði hann að fjárfram- lög hefðu komið frá ýmsum stofn- unum og einstaklingum og nefndi í því sambandi til gamans að bandaríski kvikmyndaleikarinn Paul Newmann hefði gefið 60 þús- und dali til byggingar spítalans. Stefnt er að því að fyrsta skóflu- stunga sérhæfðs barnaspítala með 100-120 rúmum verði tekin á árinu 1994. Opinn ávísanareikningur Bygg- ingarsjóðsins er nr. 59220 í Lands- bankanum. Erlendur Lárusson forstöðumaður Tryggingaeftirlits ríkisins Engar breytingar á afkomu tilkynntar eins o g skylt er ERLENDUR Lárusson, forstöðumaður Tryggingaeftirlits ríkisins, segir að forráðamenn Skandia hafi ekki haft samband við eftirlitið og tilkynnt breytingar á afkomu þess eins og lög geri ráð fyrir komi slíkar aðstæður upp. Hann kveðst því enga vitneskju hafa um að efnahagur Skandia sé nú orðinn með þeim hætti sem greint var frá í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins í gærkvöldi en þar sagði að eftir 10 mánaða rekstur í ár, sýndi milliuppgjör fyrirtækisins, sem hafði iðgjaldatekjur upp á 150 millj. kr. í fyrra og eigið fé upp á 80 millj. kr. í lok 1991, 100 mil\jónir króna tap. Gísli Öm segir að aðdraganda eig- endaskiptanna megi rekja til þess þegar uppstokkun varð í Fjárfest- ingafélaginu Skandia í október. Þá gengu Gísli Öm og Ragnar Aðal- steinsson hæstaréttarlögmaður og stjómarformaður Skandia ísland úr stjórn Fjárfestingafélagsins í kjölfar erfiðleika þess til þess að leggja áherslu á að rekstur félaganna tveggja væri aðskilinn. Skandia Sví- þjóð á öll hlutabréfín í Fjárfestinga- félaginu en Gísli Öm átti 35,7% hlutabréfa í tryggingafyrirtækinu á móti þeim. Gísli sagði að því væri ekki að neita að erfíðleikar Fjárfest- ingafélagsins hefðu háð trygginga- fyrirtækinu vegna þess að fólk tengdi Axel Gíslason Ekki fram- kvæði að frekari viðræðum AXEL Gíslason, forstjóri Vá- tryggingafélags Islands, stað- festi í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi að forráðamenn Vá- tryggingafélagsins hefðu rætt við forráðamenn Skandia í gær en segir að VÍS muni ekki hafa frumkvæði að frekari viðræðum. „Það hefur ekkert komið fram að því er við sjáum sem bendir til þess að það sé eftirsóknarvert fyrir Vátryggingafélag íslands að taka þátt í starfsemi Skandia. Ef það eru einhveijar upplýsingar til sem benda til að svo sé þá hafa þær ekki verið kynntar fyrir okkur,“ sajgði Axel og sagði aðspurður að VIS mundi ekki hafa frumkvæði að frekari viðræðum við forsvars- menn Skandia. Aðspurður vildi hann ekki greina frá efni viðræðnanna að öðru leyti eða greina frá upplýsingum sem hann kynni að hafa um uppgjör og fjárhag Skandia. ----» ♦ ♦- Ólafur B. Thors Tilboði Skandia hafnað ÓLAFUR B. Thors, forstjóri Sjóvár-Almennra Trygginga, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að félagið hefði hafnað til- boði sem forsvarsmenn Skandia hefðu gert þeim í gær um þátt- töku í endurfjármögnun félags- ins. Ólafur sagði að Skandia-menn hefðu haft samband við fyrirtæki sitt til að kanna hvort þar væri áhugi á samstarfí um endurfjár- mögnun, annað hvort með því að kaupa félagið allt eða hluta þess. Af hálfu Sjóvár hefðu þær upplýs- ingar sem lagðar hefðu verið fram verið kannaðar og niðurstaðan orð- ið sú að ekki væri áhugi á málinu. fyrirtækin saman. Þessu til viðbótar má geta þess sem fram hefur komið í fréttum að Skandia hefur verið að endurskipuleggja rekstur sinn á öll- um Norðurlöndunum í kjölfar erfíð- leika samsteypunnar. Gísli sagði að rétt hefði þótt að gera aðskilnað fyrirtækjanna hreinni. Á stjómar- og hluthafafundi félagsins í gærmorgun kom að hans sögn upp sú staða að menn töldu farsælast að annaðhvort keyptu Svíamir hans hlut í Skandia ísland eða hann keypti þeirra eignarhlut. Sagði Gísli Örn að rætt hefði verið við ýmsa aðila í gær til að kanna stöðuna, meðal annars önnur trygg- ingafélög, en niðurstaðan hefði verið sú að hann keypti fyrirtækið. Samn- ingur um það var undirritaður síð- degis í gær. Efni hans er trúnaðar- mál og sagðist Gísli Örn ekki geta skýrt frá kaupverðinu. Gísli sagði að fjárhagsstaða fé- lagsins tengdist ekki fundinum í gær eða eigendaskiptunum. Þessi fundur hefði verið löngu ákveðinn og fjár- hagsstaða félagsins væri í samræmi við áætlanir. Sagði hann að þegar Skandia ísland vár stofnað hefðu verið gerðar áætlanir um fímm ára markaðssókn á íslenska trygginga- markaðnum og ákveðið að leggja í ákveðinn kostnað við það. Reiknað hefði verið með um 100 milljóna króna tapi á þessu ári og einnig nokkru tapi á næsta ári. Þar væri um að ræða kostnað sem gjaldfærður væri strax, til dæmis við tölvukerfí og markaðsstarf, en sem nýttist til tekjuöflunar á öllu tímabilinu. Sagði Gísli að allar áætlanir hefðu staðist og gott betur, þannig væri markaðs- hlutdeildin orðin talsvert meiri en reiknað var með í upphafí. Nú væri félagið komið með 5.000 bíla í trygg- ingu og 500 bættust við um áramót en í áætlunum hefði verið stefnt að 3.000 bílum í lok þessa árs. Gísli sagði að Skandia ísland hefði notið stuðnings Svíanna við upp- bygginguna, bæði með fjárhagsfyrir- greiðslu og þekkingu. í sameiginlegri yfírlýsingu Gísla Amar og Leifs Victorin, forstjóra Skandia á Norðurlöndunum, kemur fram að í tengslum við kaupsamning- inn hefur Skanda Svíþjóð veitt Gísla Erni fjárhagslegan stuðning en tengslum félaganna sé að fullu lokið. Aðspurður um ástæður þess að Svíarnir styddu fyrirtækið áfram sagði Gísli Örn að Svíarnir hefðu haft ákveðnar skuldbindingar við sig og fyrirtækið og hefði orðið að sam- komulagi að þeir tryggðu áframhald- andi starfsemi fyrirtækisis. Hann sagði að tryggingafyrirtækið stæði því vel fjárhagslega þó Svíamir hefðu selt eignarhlut sinn í því. Aðspurður hvort ekki væri hægt að líta svo á að tilraun þessa erlenda fyrirtækis til að hasla sér völl hér á landi hefði beðið skipbrot sagði Gísli Örn það sína skoðun að Skandia hefði farið sér of hratt. Vísaði hann til þess að Skandia hefði keypt Fjár- festingafélagið skömmu eftir að það stofnaði tryggingafélagið og þróun hjá verðbréfafyrirtækinu hefði verið þeim erfið. „Þrátt fyrir að samstarf- inu við Svíana sé lokið er ég einstak- lega ánægður með samskiptin við þá. Það hefur verið lærdómsríkt að vinna með þeim og mikil eftirsjá af samvinnunni. Þeir hafa verið heilir gagnvart tryggingafyrirtækinu, stutt við bakið á því og gera okkur kleift að halda áfram á þeirri braut sem mörkuð var í upphafi," sagði Gísli Öm. Erlendur sagðist árangurslaust hafa reynt að ná í forsvarsmenn félagsins í gær en kvaðst ekki sjá í hendi sér hvað hefði getað gerst hjá fyrirtækinu frá því að ársreikn- ingur fyrir síðasta ár var gerður sem skýrt gæti breytingar eins og þær sem greint hefði verið frá. Ef rétt sé verði þess krafist að félagið auki sitt eigið fé og upp- fylli skuldbindingar sínar ella komi til greina að stöðva sölu nýrra trygginga eða jafnvel svipting starfsleyfis, að ákvörðun trygg- ingamálaráðherra. Hann kvaðst þó telja slíkar bollaleggingar ótíma- bærar fyrr en eftir könnun Trygg- ingaeftirlitsins á málinu sem hæfist í dag og stæði væntanlega fram yfír helgi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.