Morgunblaðið - 19.12.1992, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 19.12.1992, Blaðsíða 30
MO.KGUNBkAÐIÐ. lAUGAHt)AGUK 19.. UBSKMBEH }9a2- 30 Morgunblaðið/Kristinn Mark Aronson, forvörður Yale-safnsins, og Bera Nordal, for- stöðumaður Listasafns íslands, með mynd Finns Jónssonar. Hún er 65 sentimetrar á hæð og 52 á breidd, máluð með olíu- og gullmálningu. Listasafn Islands fær mynd eftir Finn Jónsson að láni „Kona við spilaborð“ komin til landsins MYND Finns Jónssonar, „Kona við spilaborð“, kom til landsins í fyrradag og var tekin úr umbúðunum í Listasafni Íslands í gær. Myndin er fengin að láni til langs tíma hjá listasafni Yaie-háskóla í Bandaríkjunum. Mynd Finns er máluð árið 1925 og var hún lengi vel talin týnd ásamt fleiri myndum lista- mannsins, sem sýndar voru lyá Der Sturm í Berlín 1925. í fréttatilkynningu frá Listasafninu segir að myndin sé í senn lykilverk á framúrstefnutímabili listamannsins og tímamóta- verk í íslenzkn Átta myndir, sem Finnur sýndi hjá Der Sturm 1925, voru taldar hafa glatazt. Löngu síðar kom í ljós að frægur bandarískur lista- verkasafnari, Katherine S. Drei- er, hafði keypt „Konu við spila- borð“ og „Marglitan heim“ af Herwarth Walden, forstjóra Der Sturm, árið 1926. Frú Dreier naut aðstoðar þekktra lista- manna á borð við Marcel Duc- hamp og Man Ray í listaverka- söfnun sinni og er safn hennar venjulega talið fyrsta nútíma- listasafnið í myndlistarsögunni. Dreier gaf Yale-safninu safn sitt árið 1941, þar á meðal verk Finns. „Marglitur heimur“ hvarf úr fórum Yale-safnsins á 7. ára- tugnum en „Kona við spilaborð" hefur verið þar reglulega til sýn- is. í tilefni af 100 ára afmæli Finns Jónssonar fór Listasafn íslands þess á leit að fá myndina til langtímaláns (permanent loan) og var orðið við þeirri beiðni. Forráðamenn Listasafnsins, ásamt forverði Yale-safnsins, Mark Aronsson, tóku myndina upp í gær. Þetta er í fyrsta sinn sem hún kemur til íslands, 62 árum eftir að hún var máluð. Fjölvi gefur út Laxaveisluna miklu KOMIN ER út hjá Fjölva bókin Laxaveislan mikla eftir Halldór Halldórsson blaðamann. Undir- titill hennar er Og þjóðin borgar brúsann. En ber enginn ábyrgð? í bókinni heldur höfundur því fram að óðagot, skortur á rann- sóknum og þekkingarleysi fisk- eldismanna ásamt misnotkun valds og aðstöðu af hálfu stjórn- mála- og embættismanna eigi verulega sök á því að þjóðin hafi glatað 10-11 milljörðum króna á fískeldisævintýrinu. I bókinni kemur fram að gera megi ráð fyrir að 40-50 fiskeldisfyrirtæki hafí orðið gjaldþrota og tveir til þrír tugir fyrirtækja hætt rekstri. Tjónið vegna þessa þurfi þjóðin nú að borga. Bókarhöfundur segir í inngangs- orðum: „Saman fór göslaraháttur og ótrúlegt þekkingarleysi á físk- eldinu. Milljörðum króna var mokað út í framkvæmdir og fyrirtæki, sem voru vonlaus frá byijun. Ekkert var hirt um alvarlegar aðvaranir fram- sýnna manna, og ekkert skeytt um um það, að byggja ákvarðanimar á reynslu og vísindalegri þekkingu. Milljarðaframkvæmdir eins og Is- landslax var della frá gmnni. Að lokum var reynt að fela hneykslin, þegja yfir svörtum skýrslum og hefta upplýsingar. Halldór Halldórsson. Þar við bætist svo pólitísk spilling út frá stjórnmálamönnum, sem sátu í stjómum sjóða, hygluðu sínum mönnum og héldu jafnvel áfram að moka hundraða milljónum í vini og fylgismenn, þó fyrirtækin væru þegar orðin gjaldþrota." Laxaveisian mikla er um 350 bls. með fjölda mynda, skrá yfír fyrirtæki í fiskeldi og nafnaskrá. Fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar 1993 Öraunsæ áætlun en sýnir versnandi stöðu borgarsjóðs - að sögn borgarfulltrúa minnihlutans FULLTRÚAR minnihlutaflokkanna í borgarstjórn Reykjavíkur lögðu á það áherslu við fyrrí umræðu um fjárhagsáætlun borgarinn- ar 1993, sem fram fór á fimmtudag, að hún sýndi að staða borgar- sjóðs færi verulega versnandi. Ólína Þorvarðardóttir, Nýjum vett- vangi, sagði að áætlunin væri óraunhæf, enda væri þar til dæmis ekki gert ráð fyrir auknum útgjöldum borgarinnar vegna slæms atvinnuástands. Sigrún Magnúsdóttir, Framsóknarflokki, sagði að áætlunin væri þó raunsærri en áætlanir síðustu þriggja ára. Áætlun- in fyrir árið sem nú væri að líða væri orðin brunarúst ein. Á borgarstjómarfundinum á fimmtudag gerði Markús Örn Ant- onsson borgarstjóri grein fyrir frumvarpi að fjárhagsáætlun borgarinnar 1993. Að ræðu hans lokinni fjölluðu borgarfulltrúar minnihlutaflokkanna nokkuð um áætlunina en gerðu jafnframt grein fyrir því að frekari umræður um málið biðu seinni umræðu, sem fram fer eftir áramót. Ólína Þorvarðardóttir, Nýjum vettvangi, sagði að fátt í frum- varpinu gæfí tilefni til bjartsýni; tekjur færu minnkandi, skulda- staðan versnaði og minna fé væri til ráðstöfunar. Fjármagn til eignabreytinga lækkaði verulega og þýddi það stórkostlegan sam- drátt í framkvæmdum borgarinn- ar. Fjármálastjórn sjálfstæðis- manna hefði verið með þeim hætti, að þeir hefðu eytt í góðæri síðustu kjörtímabila en nú þegar þrengdi að, væri sáralítið til ráðstöfunar og ráðaleysið átakanlegt. í frum- varpinu gæfi ekki að líta neinar raunhæfar áætlanir um óumflýj- anleg útgjöld borgarinnar vegna atvinnuleysis. Sigrún Magnúsdóttir, Fram- sóknarflokki, sagði að frumvarpið sýndi ískyggilega þróun varðandi peningastöðu borgarinnar. Raunar mætti segja, að kollsteypa hefði átt sér stað á fjárhagsstöðu borgarsjóðs á þessu kjörtímabili en frumvarpið nú væri þó eflaust Júgóslavía NATO eini aðilinn sem getur stillt til friðar - segir Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra Brussel. Frá Kristófer M. Kristinssyni, fréttaritara Morgnnblaðsins. JÓN Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra sagði að loknum fundi utanríkisráðherra aðildarrílqa Atlantshafsbandalagsins (NATO) í Brussel í gær að fundurinn hefði verið mun merkilegri en ráð var fyrir gert. Á fundinum hefði náðst samstaða um að NATO væri reiðubúið til að grípa til aðgerða til að framfylgja yfirflugsbanni í Júgóslavíu ef Sameinuðu þjóðimar færu fram á það. Jón Baldvin sagði að yfírlýsing ráðherrafundarins hlyti að fela í sér hemaðaraðgerðir á vegum NATO í Júgóslavíu ef eftir þeim væri óskað. Hann sagði að íslend- ingar hefðu stutt málstað Banda- ríkjanna á fundinum sem vildu að ráðherrarnir tækju af allan vafa um vilja NATO til aðgerða væri fram á þær farið. Jón Baldvin kvaðst telja að trúverðugleiki NATO væri í húfi. Þær vonir sem vaktar hefðu verið meðal nýfrjálsu ríkjanna í Mið- og Austur-Evrópu um lýðræði, fijálst markaðskerfi, mannréttindi og betra líf virtust orðin tóm ef ekkert væri aðhafst. Fólk stæði frammi fyrir linnulaus- um blóðsúthellingum, ófriðar- svæðin á landsvæði fyrrum Sovét- ríkjanna væru a.m.k. 25 og til- raunir Evrópubandalagsins til að stilla til friðar væru í skötulíki, þær hefðu engum árangri skilað. Jón Baldvin kvað nauðsynlegt að koma í veg fyrir að styijöldin í Júgóslavíu breiddist út ekki bara um Balkanskagann heldur víðar um Evrópu, til þess væru íslend- ingar reiðubúnir að leggja sitt af mörkum. NATO væri eini aðilinn sem gæti í alvöru stillt til friðar, Sameinuðu þjóðimar væru þess ekki umkomnar, enn síður Ráð- stefnan um samstarf og öryggi í Evrópu (RÖSE) svo ekki væri minnst á Vestur-Evrópusamband- ið og Evrópubandalagið. Nýfijálsu ríkin í Mið- og Austur-Evrópu við- urkenndu þessa staðreynd og hefðu lýst fyrir stuðningi við þetta hlutverk NATO. Ráðherrafundur- inn hefði staðfest að NATO yrði í framtíðinni tækið sem beita mætti á meðan SÞ og RÖSE öxl- uðu þá pólitísku ábyrgð að taka ákvarðanirnar. Jón Baldvin lagði áherslu á að þegar glímt við byssubófa eins og í Júgóslavíu yrði að framfylgja teknum ákvörð- unum, byssubófamir yrðu að taka afleiðingum gjörða sinna. MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi fréttatilkynning frá Heimsklúbbi Ingólfs: „ Visa ísland hefur falið Heims- klúbbi Ingólfs að annast undirbún- ing og framkvæmd að glæsilegri óperuferð til New York fyrir guil- korthafa sína. Ferðin stendur í 3-5 daga og hefst 16. mars en hægt er að bæta við hana einni til tveim- ur sólskinsvikum í Karíbahafi á hagstæðu verði. „Heimsklúbburinn keypti 50 miða að sýningu Grand Metropolit- an óperunnar hinn 17. mars nk. en það verður í fyrsta sinn í sögunni sem heimssöngvaramir Kristján Jóhannsson og Placido Domingo þreyta kappi á fjölum þessa fræg- asta óperuhúss heimsins sama kvöldið, Kristján í Cavelleria Rustic- ana eftir Mascagni, en Placido í I Pagliacci eftir Leoncavallo, sem oft- ast eru sýndar saman og eru í tölu vinslustu óperuverka með aríum og kórum sem allir þekkja og hrífast af. raunsærra en áætlanir síðustu þriggja ára. Nefndi Sigrún sem dæmi áætlun ársins 1992 og sagði að hún væri nú branarúst ein. Taka hefði þurft lán upp á kr. 1.260 milljónir til að halda uppi framkvæmdum og árið 1993 þyrfti að taka sömu fjárhæð að láni. Siguijón Pétursson, Alþýðu- bandalagi, sagði að marga drætti vantaði inn í myndina og því væri ekki margt að segja um ijárhags- áætlunina á þessu stigi máls. Hins vegar mætti nefna, að í áætlun- inni væri gert ráð fyrir óbreyttu atvinnustigi og væri það í miklu ósamræmi við aðrar áætlanir og spár um atvinnuleysi á næsta ári. Siguijón sagðist taka undir orð borgarstjóra fyrr á fundinum um að bregðast þyrfti kröftuglega við atvinnuleysinu og sagði að borgar- stjóri ætti sinn stuðning vísan í þeirri baráttu. Hins vegar yrði að hafa í huga, að ekki væri enda- laust hægt að taka lán til að halda uppi framkvæmdum. Guðrún Ögmundsdóttir, Kvennalista, sagði að fjárhagsá- ætlunin bæri vott um þá erfið- leika, sem við væri að glíma í efna- hags- og atvinnulífinu. Mikilvægt væri að Reykjavíkurborg færi fyr- ir í þróun í atvinnumálum og mót- aði þar langtímastefnu, sem gæti gefíð fólki einhveija von. Markús Örn Antonsson borgar- stjóri sagðist vísa algerlega á bug fullyrðingum Ólínu Þorvarðardótt- ur um minni framkvæmdir á veg- um borgarinnar. Það væri mark- mið borgarstjórnarmeirihlutans að halda sama framkvæmdamagni og á árinu sem er að líða og benti hann á að aðstæður í þjóðfélaginu gætu leitt til hagstæðari samninga við verktaka en á undanförnum árum. Hann gagnrýndi einnig málflutning Sigrúnar Magnúsdótt- ur harðlega og sagði að það væri staðreynd, að tekjur borgarinnar færu minnkandi og ef Sigrún hefði einhver ráð við því væri hann reiðubúinn að hlýða á þau. Sagði borgarstjóri við lok umræðunnar, að áætlunin sýndi vilja borgaryfír- valda til að takast af raunsæi og festu á við þann mikla vanda, sem við væri að glíma í atvinnumálum. Vandað er til ferðarinnar í alla staði og gist á nafntogaðasta hót- eli New York, Waldorf Astoria, sem er nýuppgert og í tölu frægustu hótela heimsins, í rauninni heimur út af fyrir sig á miðri Manhattan við Park Avenue og nær gatna á milil með fjölda veitingastaða og verslana. Fararstjóri verður tónlist- armaðurinn Ingólfur Guðbrandsson sem jafnframt er forstjóri Heims- klúbbsins. Hér er um einstakan listviðburð að ræða, heimsviðburð á óperasvið- inu og tækifæri til að bera Kristján saman við einn frægasta tenór- söngvara heimsins í dag. Að- göngumiðar að sýningunni eru nú ófáanlegir en Heimsklúbbur Ingólfs keypti 50 miða fyrir rúmum tveim- ur mánuðum og áður en nokkur óperuferð hafði verið auglýst frá íslandi. Visa styrkir ferðina fyrir gullkorthafa sína og er um þessar mundir að kynna þeim hana bréf- lega. Búist er við að miðarnir selj- ist upp samdægurs." Heimsklúbbur Ingólfs og Visa ísland Kristján Jóhannsson og Placido Dom- ingo á óperukvöldi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.