Morgunblaðið - 03.12.1989, Page 48
48 C
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. DESEMBER 1989
BAKÞANKAR
Geðvonska
Það er einhver sérstök eftir-
vænting sem grípur mig þegar
ég opna sunnudagsblað Morgun-
blaðsins. Verða fastir liðir @ins og
venjulega? Hvaða sjálfskipaður
verndari íslenskr-
ar tungu stingur á
kýli geðvonsku
sinnar í þetta sirin
og fær þannig útr-
ás fyrir and-
remmu sálarinnar
á síðum sunnu-
dagsblaðsins?
Sem betur fer þarf
Björgvinsdóttur ég ekki að leita
'í“* lengi. Nú heitir hann Sverrir sem
froðufellir yfir þvi að ótíndur skríll
skuli voga sér að nota nýjar að-
ferðir við íslenskukennslu. Síðast
fékk einhver Aðalsteinn vonsku-
krampa yfir sama hlut. Guð veri
með þér Sverrir og Aðalsteini líka.
Ég reyni að missa ekki stjórn á
skapi mínu heldur baða ykkur ljósi!
Nú er svo komið að undirrituð
fær alveg sérstakt tækifæri til að
opna vonskukompuna í eigin sál á
siðum blaðs allra landsmanna.
Alltaf hefur mig dreymt um að
skrifa fasta pistla í eitthvert vin-
sælt sorprit og ég hafði ákveðið að
byija þá svona: „Kunningi minn
sagði við mig um daginn . . .“ Þá
gæti ég sagt svo margt sem ég vildi
helst ekki svara fyrir sjálf. Helga
vinkona benti mér á að rétt væri
að ég sem kona byrjaði frekar
svona: „Kunningjakona mín
sagði . ■. .“ En Helga er nú frægt
kvenrembusvin eins og allir vita
svo ég held mínu karlrembustriki
og nú hefst pistillinn:
Kunningi minn var að fletta
Morgunblaðinu um daginn og
sagði: „Hvað þykir eiginlega frétt-
næmt í dag?“ Ég svaraði að bragði
og sagði æst: „Það þykir alla vega
ekki fréttnæmt þegar hátt á annað
þúsund manns safnast saman í
Breiðholtinu til þess að biðja fyrir
jörðinni. Og það þurfti ekki einu
“ *» sinni að narra fólkið á staðinn með
því að auglýsa skemmtikrafta og
vinveitingar!" Mig grunar að eitt-
hvað hefði heyrst um þetta á ein-
hveijum fréttamiðlinum ef fegurð-
ardrottning Skutulsfjarðar hefði
birst á samkomunni í sérsaumaða
sjiffon-náttkjólnum sem hún ætlar
með til Kúalalúmpúr í fegurðars-
amkeppnina þar. Svipaða frétt las
maður einmitt fyrir stuttu á besta
stað í þessu blaði sem lesendur
halda á núna. Á baksíðunni, hvorki
meira né minna! Litmynd og allt!
(Eg kann að hafa farið eitthvað
rangt með staðaheiti og titla. Það
gerir . . . æ hvað heitir það aftur,
jú, minnisleysið sem ágerist með
aldrinum.)
Kunningi minn segir að allir
fréttastjórar allra fjölmiðla lands-
•w ins séu miðaldra, karlkyns, harðlíf-
isseggir. Hann ætti að vita það þessi
kunningi minn, hann tilheyrir ein-
mitt þeirri stétt.
Það rifjast upp fyrir mér í fram-
haldi af þessu að fyrir nokkru rakst
ég á pínulitla frétt á vondum stað
í „okkar biaði" eins og við heima
köllum Morgunblaðið, þar sem
mátti lesa um árangur af hraða-
hindrandi aðgerðum sem frændur
okkar Danir höfðu staðið fyrir í
íbúahverfum víðs vegar um Dana-
veldi. Niðurstöðurnar voru þær að
dauðaslysum hafði fækkað um
helming á þeim stöðum þar sem
hraðahindranir höfðu verið settar.
Svipuð könnun var gerð í
Reykjavík á nokkrum götum þar
sem svokallaðar „öldur“ höfðu verið
__ settar. Niðurstöður voru þær sömu
og í Danmörku, þ.e: alvarlegum
slysum fækkaði um helming. Ég
er enn að bíða eftir að lesa um
þessa könnun hér í Reykjavík á
besta stað í „okkar blaði“ þvi þetta
kalla ég stórfrétt!
Ég hef aftur á móti lesið margar
greinar og lesendabréf þar sem
menn eru arfavitlausir yfir þvi að
þessar „öldur“ eyðileggi finu bílana
þeirra. Sem segir okkur það eitt að
þessir sömu menn aka of hratt!
Allir vita jú að aki menn á löglegum
hraða er mjög ólíklegt að sæmilegt
ökutæki rekist ofan í „öldu" og
skemmist.
Mér sýnist þessi pistill vera orð-
inn lengri og geðvonskulegri en ég
ætlaði mér í upphafi. Ég sem æti-
aði að reyna að vera svo skemmti-
leg! Ég mæli með því, að iokum,
að við notum öll ljósgeislana hvert
á annað og okkur sjálf, þá verður
minna af svona skapvonskupistl-
um í „okkar blaði".
eftir Eddu
Höfundur cr í áhugahópi um bætta
umferðarmenningu.
Macintosh Plus
Bang&Olufsen
datökU
mflutrnn
flutniQ
Kviktri
Bang&Olufsen
vid®£
hnattasjóny§í£
mflutQtn
Já, veldu eitt tæki, eba
fíeirí oq njjóttu strax.
Komdu til okkar oa
kynntu þér málib 7
SKIPHOLTI 19
SÍMI29800
NORDMENDE
NORDMENDE
Láttw