Morgunblaðið - 03.12.1989, Side 46
46 C,
MORGUNBLAÐIÐ SAMSAFNIÐ , SUNNltf)4(^J^ 3- DESEMBER 1989
ÆSKUMYNDIN...
ERAFDR. HANNESIHÓLMSTEINIGISSURARSYNI, LEKTOR.
Þessi mynd birtist á baksiðu Morgunblaðsins þriðjudaginn 25. nóvem-
ber 1947, þar sem greint var frá komu leikarans í „stórfrétt".
ÚR MYNDASAFNINU
ÖLAFUR K. MAGNÚSSON
Seinn til máls,
en tók síöan
vel við sér
Efni í arkítekt?
Hannes ætlaði sem barn að verða arkítekt, en
áhuginn beindist seinna annað. Hver veit nema
þjóðin hafi glatað svari nútímans við Guðjóni
Samúelssyni?
Móðir Hannesar segir Hannes
hafa verið afskaplega rólegan
krakka og þægan, en bætir við að
hann hafi snemma reynst vera
ákveðinn og fastur fyrir þegar hann
hafði myn'dað sér skoðun á ein-
hveiju. „Hannes var alltaf mjög
heimakær og eftir að hann varð læs
sökkti hann sér í bækur. Hann
undi sér við lestur öllum stundum.“
Ásta segir að Hannes hafi verið
seinn til máls. „Ég hafði reyndar
engar áhyggjur af því, þetta er al-
gengt hjá mínu fólki. Frekar að
maðurinn minn hafi eitthvað velt
þessu fyrir sér. En það brást nú
ekki að Hannes fengi málið og þá
tók hann líka við sér,“ segir Ásta
og hlær dátt.
„Eitt var það sem Hannes hafði
afskaplega gaman af, en það var
að hlýða á gamalt fólk segja frá
og hann varð mjög trúaður, að
miklu leyti vegna þess held ég.
Síðar kastaði hann hins vegar-
trúnni eftir að hafa lesið um Seinni
heimsstyijöldina. Eftir að hafa lesið
um þær hörmungar, sem yfir mann-
kyn dundu, gat hann ekki trúað á
algóðan Guð.“
Salvör Kristjana Gissurardóttir,
eldri systir Hannesar, ítrekar bók-
lestur hans. „Frá fyrstu tíð man ég
varla eftir honum öðru vísi en les-
andi,“ segir Salvör. „Hann lék sér
varla eins og aðrir krakkar, því
hann var alltaf með nefið ofan í
bókum. Ég býst við því að ofviti
sé það orð, sem lýsi honum nokkuð
vel á þessum árum.“
Salvör segir að lesturinn hafi
skilað sér því Hannes hafi verið
einskonar gangandi alfræðiorða-
bók, sérstaklega hvað varðaði
landafræði og sögu og hafi hann
unnið alla spurningakeppni, sem
hann tók þátt í.
„Hann varð snemma nokkuð
stjórnsamur á heimilinu, þrátt fyrir
að hann léti sjálfur lítt að stjórn.
Ætli það megi ekki kalla hann
menntaðan einvald heimilisins!"
Þrátt fyrir að Hannes hafi
snemma fangið áhuga á sögu og
landafræði segist Salvör ekki hafa
orðið vör við neinn sérstakan stjórn-
málaáhuga. „Hann ætlaði í mörg
ár að verða arkítekt og undi sér
við það að teikna hús.“ Salvör seg-
ir stjómmálaáhugann að vísu kunna
að hafa blundað í honum, þar sem
hann hafi mjög snemma byijað að
lesa blöðin af kappi.
Sljama afhimni
kvikmyndanna
DR. HANNES Hólmsteinn Gissurarson er
fæddur í Reykjavík, hinn 19. febrúar, 1953.
Hann er sonur hjónanna Ástu Hannesdóttur,
kennara, og Gissurar Jörundar Kristinssonar,
trésmiðs. Hannes er sagnfræðingur frá Há-
skóla Islands, en hann lauk doktorsprófí í
stjórnmálafræði frá Pembroke-háskóla í Ox-
ford á Englandi.
Heimsfrægir kvikmyndaleikarar
eru fremur sjaldséðir gestir á
íslandi. En þegar þeir láta sjá sig
munar líka um það og
svo var þegar banda-
ríski kvikmyndaleikar-
inn Tyrone Power kom
óvænt hingað til lands
sunnudaginn 23. nóv-
ember 1947. Koma leik-
arans vakti mikla at-
hygli, einkum meðál
kvenþjóðarinnar, og þótt leynt færi
um dvöl hans hér þyrptist fólk að
honum, bæði við komu hans á flug-
vellinum og þó einkum á Hótel
Borg, þar sem hann og félagar
hans gistu eina nótt. í kaffitímanum
á sunnudag fylltust salirnir af for-
vitnu fólki, sem vildi sjá leikarann,
og um kvöldið ætlaði allt um koll
að keyra, bæði inni í
sölunum og úti fyrir
Borginni og varð lög-
reglan að skerast í leik-
inn og loka Pósthús-
stræti um tíma á sunnu-
dagskvöldið. Kvik-
myndaleikarinn gat
þess sérstaklega í við-
tali við Morgunblaðið að sér litist
vel á fólkið á íslandi og aðspurður
um hvort honum hafi ekki þótt nóg
Urn lætin kvaðst hann vera vanur
slíku og það yrðu menn í hans
starfi að sætta sig við.
STARFIÐ
ELÍN ÞÓRHALLSDÓTTIR SKÓSMÍÐANEMI
Gerir við skó
ogsmíðarskó
SKÓSMÍÐI hefur ekki verið
tískufag hérlendis að undanförnu
svo vitað sé, að minnsta kosti
ekki hjá konum. Tvær konur
munu þó vera starfandi skósmiðir
hér á landi og Elín Þórliallsdótt-
ir, 22 ára gamall Húsvíkingur, er
nú að læra iðnina á skóvinnustofú
Gísla Ferdinandssonar við Lækj-
argötu. Elín flutti sig suður og
hóf námið í ágúst 1986, en hún
stelhir á sveinsprófið í maí næst-
komandi. Meistari hennar er Kol-
beinn Gíslason.
*
Eg hafði alltaf ætlað mér í iðnnám
og.það kom að því að ég valdi
skósmíði. Mér finnst fagið mjög
spennandi. Ég bæði læri að gera við
skó og handsmíða skó sem er
ævagömul aðferð. Það er svo sem
ekki á döfinni að fara að gera við
skó Húsvikinga að afloknu sveins-
pt'ófinu þó maður viti svo sem ekki
hvað framtíðin hefur að geyma.
Maður þarf a.m.k. að vinna í tvö ár
hjá meistara til að fá meistararétt-
indi í greininni,“ sagði Elín.
Hún sagði að skósmíðin væri mik-
il handavinna og oft þyrfti töluverða
krafta til. Starfið hentaði konum
ekki síður en körlum, en það hlyti
samt sem áður aðwera einstaklings-
bundið hversu vel það hentaði. „Eg
held að fólk sé farið að hugsa betur
um skóna sína en áður. Það á gjarn-
an sína uppáhaldsskó, sem það vill
halda endalaust við,“ sagði Elín að
lokum.
1>ETTA SÖGDU
ÞAU ÞÁ...
Jón Baldvin
Hannibalsson
6. maður á lista
Alþýðubanda-
lagsins í sveit-
arstjórnar-
kosningum í
Reykjavík
1966.
Forystumenn hans tala tung-
um tveim. (Framsóknar-
flokksins.) En fyrir kosningar
er aðeins talað um vinstra
munnvikið ... Eflið þið flokkinn
vinstra megin við Framsókn ...
Eflið því Alþýðubandalagið —
sem svipu á hægri tilhneigingar
Framsóknar.
Fijáls þjóð 19. mars 1966.
BÓIUN PLATAN
ÁNÁTTBORDINU ÁFÓNINUM
MYNDIN
ÍTÆIiINU
Hekla Sig-
mundsdótt-
ir læknanemi
Berglind
Björk Jón-
asdóttir
söngkona
Guðmundur
Hákonar-
son sjómaður
á Ásbirni RE
Eg er bara að lesa skólabækurn-
ar. Það kemst ekkert annað að.
Það er nóg að lesa á fyrsta ári í
læknisfræðinni. Þó læt ég það eftir
mér að lesa öll dagblöðin daglega.
Síðast hlustaði ég á geisladisk
með country-söngkonunni
Patsy Kline. Aðallega hlusta ég á
gamla tónlist frá tímum Frank Sin-
atra og blústónlist er líka í uppá-
haldi hjá mér. Nýja tónlist hlusta
ég lítið á. Sjálf er ég söngkona og
fæ nóg af henni í starfinu.
*
Eg er sjómaður og það er horft
mikið á myndbönd um borð.
Það er ungur strákur, sem tekur
bíómyndir upp fyrir okkur úr Stöð
2 og menn koma stundum sjálfír
með spólur um borð. Við horfum
mikið á ofbeldismyndir og íþróttir.
Já, og svo fljóta með svona ein til
tvær bláar í hvem túr.
Margrét
Höskulds-
dóttir nemi
Eg er ekki að lesa neitt eins og
er, en hef nýlokið við nýjustu
bókina hans Einars Kárasonar
„Fyrirheitna landið". Mér fannst
hún ekkert sérstök. Ég hef líka les-
ið fyrri bækurnar hans og fannst
mér þær mun betri. Annars les ég
ekki mjög mikið.
Eg hlusta á allskonar tónlist, en
það er langt síðan ég hef spilað
hljómplötu enda kaupi ég lítið af
þeim. Mest hlusta ég á tónlist á
útvarpsstöðvunum og líkar mér tón-
listin á Aðalstöðinni hvað best.
að er orðið agalega langt síðan
ég hef horft á myndband. Ég
horfði síðast á „Cry Freedom" eftir
Richard Attenborough að mig
minnir. Hún var mjög góð. Annars
hef ég lítinn tíma fyrir myndbands-
spólur. Ég horfi frekar á sjónvarpið.