Morgunblaðið - 03.12.1989, Blaðsíða 40
40 O
MORQTOBÍAÐIÐ SUNNtJOA6£fIÍ 3: OBSEMBER; ,1089
Barnabók
eftir Jónas
Jónasson
Út er komin barnabókin Brúð-
an hans Borgþórs eftir Jónas
Jónasson.
*
Ikynningu útgefandans, sem er
Æskan, segir m.a.: „Hlýleg
kímni og djúpur lífsskilningur höf-
undar einkennir söguna. í henni er
sagt frá íbúum í Ljúfalandi, einkum
Borgþóri smið, Olínu konu hans,
borgarstjórahjónunum Jörundi og
Kolfinnu og Heiðu litlu — að
ógleymdri brúðunni hans Borgþórs,
Hafþóri skipstjóra."
Sigrún Eldjárn teiknaði myndir.
Bókin er prentuð í Prentsmiðjunni
Odda hf. Hún er 166 blaðsíður.
Jónas Jónasson
19 8 9
.. ..
/
I gegnum árin hefur jólaskeiðin frá
GUÐLAUGI glatt hugi og hjörtu safnara
jafnt sem fagurkera. Silfurjólaskeiðin
1989 er «nú komin í verslun okkar. Að
þessu sinni, fagurlega skreytt með mynd
af Hólum í Hjaltadal, því fræga setri ís-
lenskrar kirkjusögu.
FAGUR SAFAGRIPUR
GUÐLAUGUB A. MAGNÚSSON
SKARTGRIPAVERSLUN
LAUGAVEGI 22a SÍMI: 15272
Bók eftir Gunnhildi
Hrólfsdóttur
ÞIÐ hefðuð átt að trúa mér! er
ný bók sem ísafold hefúr gefíð
út eftir Gunnhildi Hrólfsdóttur
með myndskreytingum Elínar
Jóhannsdóttur.
A
Ikynningu útgefanda, segir um
söguefnið: Hver trúir tveimur tíu
ára strákum þegar þeir halda því
fram að þeir séu komnir á slóð skart-
griparæningja? Ekki pabbi og
mamma og ekki heldur kennar-
inn ...
Tommi og Árni kynnast þegar
Árni bjargar Tomma úr klóm hrekkj-
usvínanna sem aldrei láta hann í
friði. Tomma fínnst aftur á móti fjöl-
skyldumál Árna ekki vera í sem
bestu lagi og saman beita þeir sínum
ráðum til að koma reglu á þau.
Þeir félagarnir verða af tilviljun
varir grunsamlegra mannaferða upp
við Rauðavatn og leikurinn æsist
þegar sömu grunsamlegu náungarn-
ir flytja í blokkina hans Tomma...
Bókin er 151 blaðsíða og unnin í
ísafoldarprentsmiðju hf.
Gunnhildur Hrólfsdóttir
Unglingabók eftir
Þorgrím Þráinsson
FRJÁLST lramtak hf. hefur sent
frá sér bókina Með fiðring í tán-
um eftir Þorgrím Þráinsson.
Þetta er hans fyrsta bók.
Ikynningu segir m.a.: „Með fiðr-
ing í tánum er unglingasaga.
Aðalsöguhetja bókarinnar, Kiddi,
er 13 ára Reykjavíkurpiltur sem á
sér þann draum heitastan að verða
fræg knattspyrnuhetja. En mörg
ljón eru á veginum. Kiddi fer í sveit
og þar kynnist hann jafnöldru sinni,
Reykjavíkurstúlkunni Sóleyju.
^Hann verður hrifinn af henni og
neytir allra bragða til að kynnast
henni sem best. Kiddi keppir á
íþróttamóti í sveitinni og þar hittir
hann fyrir Bjössa og klíku hans sem
öllu vilja ráða. Á ballinu að kvöldi
mótsdagsins gerist röð vandræða-
legra atvika og Kiddi óttast að hann
sé búinn að klúðra öllu sambandi
við Sóleyju.
Dvölin í sveitinni og æfingarnar
gera Kidda mjög gott og þegar
hann kemur aftur tii Reykjavíkur
síðsumars gerast óvæntir atburðir."
Þorgrímur Þráinsson
Með fiðring í tánum er 140 blað-
síður. Bókin er prentunnin í Prent-
stofu G. Benediktssonar en kápu
hannaði auglýsingadeild Frjáls
framtáks hf.
■ BÓKA ÚTGÁFAN Setberg
hefur gefið út skáldsöguna Blind-
gata í Kaíró eftir egypska Nóbels-
skáldið Nagíb Mahfúz í þýðingu
Sigurðar A. Magnússonar. Sagan
var fyrst gefin út árið 1947 en hún
gerist í blindgötu í einu af elstu
hverfum Kaíróborgar meðan á
seinni heimsstyrjöldinni stendur.
Við sögu kemur fjölmennur og
sundurleitur hópur fólks. í kynn-
ingu Setbergs er sagan sögð „afar
litskrúðug og fjörleg, full af skörp-
um andstæðum, leikandi kímni,
kaldhæðinni ádeilu, viðkvæmni og
hörku, sorg og gleði.“
Setberg hefur líka gefið út skáld-
sögu eftir annan Nóbelshafa þar
1 sem er Iðrandi syndari eftir Isaac
Bashevis Singer. Aðalsöguhetjan,
Jósef Shapiro, er pólskur gyðingur
sem lifað hefur af þær hörmungar
sem gyðingar í Evrópu máttu þola
á dögum Hitlers og Stalins. Sögu-
maður er látinn hitta söguhöfund í
ísrael árið 1969 og segja honum
sögu sína á tveimur dögum.
Bókaútgáfan Setberg hefur sent
frá sér nýja ástarsögu eftir Dani-
elle Steel, Töfraheimar. Töfra-
heimar er 10. bók Danielle Steel,
sem kemur út á íslensku. Hinar eru
„Gleym mér ei“, „Loforðið",
„Hringurinn“, „í hamingjuleit“, „Þú
sem ég elska“, „Vegur ástarinnar“,
„Allt fyrir þig“, „Leyndarmálið",
„Örlagaþræðir ástarinnar".
UTSOLUSTAÐIR:
Skæði,Kringlunni • Skæði, Laugavegi 74 • Efraim, Laugavegi 89 • Skóstofan, Eiðistorgi • Rírna, Ausfurstræti 6
Mílanó, Laugavegi 20 • Kaupstaður, í Mjódd* Skóverslun Kópavogs, Hamraborg 3 • Skóhöllin, Hafnarfirði
Skóbúð Sauðárkróks • Skótískan, Akureyri • Skóbúðin Selfoss • Skóbúðin Keflavík