Morgunblaðið - 03.12.1989, Síða 36
36 C
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. DESEMBER 1989
—ítt—fl—m——i—n---r~—r- r , ; ,-;—j-
Tvö fyrirtæki vilja kaupa verksmiöju-
hús Sigló:
Búist við niðurstöðu
í viðræðum ráðuneyt-
is o g Sunnu um helgi
Siglunes segist hafa full umráð yfir
framleiðslulínu verksmiðjunnar
FORSVARSMENN Sunnu h/f á Siglufirði, undirbúningsfélags um
kaup og rekstur rækjuverksmiðju Sigló, eru nú í Reykjavík til við-
ræðna við fulltrúa Qármálaráðuneytisins. Ríkissjóði var slegið hús
Sigló á nauðungaruppboði fyrir skömmu.
Siglunes h/f, félagið sem um sjö
mánaða skeið hafði rekstur
þrotabús Sigló á leigu, hefur einnig
lýst áhuga við fjármálaráðuneytið
á verksmiðjuhúsinu en að sögn Jóns
Guðlaugs Magnússonar, stjórnar-
manns í Siglunesi, hefur félagið
ákveðið að standa fyrir rækju-
vinnslu á Siglufirði, hvort sem það
verður í húsi Sigló eða annars stað-
ar. Siglunesi hefur, að sögn Jóns
Guðlaugs, verið breytt í almenn-
ingshlutafélag og hafa þegar 40-50
aðilar á Sifglufirði, þar með taldir
allir starfsmenn Sigluness og áður
Sigló, skráð sig fyrir hlutafé.
Að sögn Sigurðar Fanndal, for-
manns Sunnu, sem er félag í eigu
ýmissa aðila á Siglufirði, hefur fé-
lagið mikinn áhuga á að kaupa
verksmiðju Sigló og eru formlegar
Suðurland:
Farskólan-
um þokka-
lega tekið
Selfoflsi.
„ÁHUGI hefur verið þokka-
legur í sumum greinuin,"
sagði Orlygur Karlsson að-
stoðarskólameistari Fjöl-
brautaskóla Suðurlands en
hann hefúr umsjón með Far-
skóla Suðurlands.
Nokkur námskeið hafa þegar
verið haldin á vegum
skólans, bókleg suðunámskeið
og tölvunámskeið og þátttakan
verið þokkaleg. 9. desember
verður haldið ársreikninganám-
skeið í Hveragerði en á því nám-
skeiði munu þátttakendur læra
að lesa rétt úr ársreikningum
fyrirtækja.
— Sig. Jóns.
Starfsmannafélag
Reykj avíkurborgar:
Yfirtöku rík-
isins á Borg-
arspítalan-
um mótmælt
STJÓRN Starfsmannafélags
Reykjavíkurborgar tekur undir
mótmæli starfsmanna Borg-
arspítalans vegna væntanlegrar
yfirtöku ríkisins á spítalanum og
annarri heilsugæslu í borginni.
Iályktuninni segir að mjög toi’velt
sé að tryggja að áunnir hags-
munir starfsmanna verði varanlega
ti'yggðir þegar ríkið tekur yfir þess-
ar stofnanir. Þess utan telur stjórn
Starfsmannafélagsins það vera
skref afturábak að taka úr höndum
borgarinnar það fnimkvæði, sem
hún hefur haft í uppbyggingu
heilsugæslu í Reykjavík.
viðræður hafnar. Sigurður kvaðst
eiga von á að málið yrði til lykta
leitt um helgina og að niðurstaðan
yrði sú að af kaupunum yrði. Hann
vildi ekki ræða um hvaða söluverð
væri verið að ræða fyrir húsið.
Jón Guðlaugur Magnússon sagði
að Siglunes hefði lýst yfir áhuga
við fjármálaráðuneytið á að kaupa
húsið en hefði engin viðbrögð feng-
ið. Hann sagði að Siglunes væri
ákveðið í að reka rækjuverksmiðju
á Siglufirði og að það skipti ekki
sköpum um hvort verksmiðjuhús
Sigló fengist keypt. Siglunes hafi
óyggjandi umráð yfir framleiðslu-
tækjum verksmiðjunnar sem fengin
hefðu verið með kaupleigusamningi
við sænskt fyrirtæki þar sem forr-
áðamenn Sigluness væru í persónu-
legum ábyrgðum og hefðu haldið
samningnum í skilum. Hann sagði
að Siglunessmenn biðu þess að nið-
urstaða fengist úr viðræðum
Sunnumanna og ráðuneytisins. Jón
Guðlaugur sagði að nú stæði yfir
hlutafjárútboð þar sem ætlunin
væri að safna 25 milljonum króna.
Minnsti hlutur væri 25 þúsund
krónur. Þegar hefðu 40-50 aðilar á
Siglufirði skráð sig fyrir hlutafé,
þar á meðal allir fyrrverandi starfs-
menn Sigluness og Sigló.
Auður Eydal, forstöðumaður Kvikmyndaeftilitsins, og Ásgeir Þormóðsson, formaður Samtaka
íslenzkra myndbandaleiga, með nýja veggspjaldið á milli sín. Til vinstri standa Adolf Petersen og
Guðrún Birgisdóttir, skoðunarmenn Kvikmyndaeftirlitsins.
Kvikmyndaeftirlitið gefur út veggspjald:
Minnt á aldursmörk
á myndbandsspólum
Barnaverndarsjóður Knuds Knudsen styrkir útgáfuna
Kvikmyndaeftirlit ríkisins
hefur nýverið gengizt fyrir útg-
áfu veggspjalds, sem ætlazt er
til að verði hengt upp á sem
flestum myndbandaleigum á
landinu. Á spjaldinu er vakin
athygli á merkimiðum eftirlits-
ins um leyfilegan aldur til að
horfa á kvikmyndir, en þeir
eiga lögum samkvæmt að vera
á öllum myndbandsspólum með
leiknum kvikmyndum, sem
dreift er til leigu eða sölu.
A
Ifréttatilkynningu frá Kvik-
myndaeftirlitinu segir að það
sé von þeirra, sem standa að útg-
áfu veggspjaldsins, að það stuðli
að nauðsynlegri viðhorfsbreyt-
ingu meðal almennings. „Það er
full ástæða til þess að Vekja forr-
áðamenn bama og afgreiðslufólk
á myndbandaleigunum til um-
hugsunar um merkingu miðanna.
Það aldursmark, sem tilgreint er
á spólunni, á að sjálfsögðu líka
alltaf að gilda um afhendingu
hennar," segir í tilkynningunni.
„Á síðustu tíu árum hefur orðið
mikil breyting á lífsháttum íslend-
inga. Myndbandstæki eru nú al-
menningseign og framboð á sjón-
varpsefni hefur aukizt til mikilla
muna. Margir forráðamenn barna
virðast hafa misst sjónar á því í
þessari holskeflu myndefnis, að
það er nauðsynlegt að hafa með
skynsamlegum hætti eftirlit með
því, hvað börnin horfa á.“
Leitað var til Bamavemdar-
sjóðs Knuds Knudsen og veitti
hann styrk til útgáfunnar og Sam-
taka íslenzkra myndbandaleiga,
sem taka að sér dreifingu á vegg-
spjaldinu til allra félagsmanna
sinna.
Sigvard Vallenberg, forseti Norrænnar barnahjálpar:
Leita til Islendinga um hjálp
handa fílippseyskum bömum
Barnaheimili stofhunarinnar liggja undir sprengjuárásum
SIGVARD Wallenberg, stofiiandi og forseti Norrænnar barnahjálpar
(Skandinaviska bammissionen), er staddur hér á landi til að afla sam-
tökum sínum stuðnings. Norræna bamahjálpin starfar á Filippseyjum
og hjálpar heimilislausum börnum. Wallenberg segir að stofhunin sé
Qár þurfi, og nýjustu fregnir frá Filippseyjum bendi til þess að þar
aukist neyð fólksins enn. Hann hefur meðal annars hitt forseta Islands
að máli og átt fund með framkvæmdastjóra Hjálparstofiiunar kirkjunn-
Wallenberg er fyrrverandi
skemmtikraftur og segist hafa
skemmt í um 50 löndum á 25 ára
ferli. Árið 1977 snerist hann að eig-
in sögn til kristinnar tníar og ákvað
þá að helga líf sitt hjálp við bág-
stadda. „Eg fór til Manila, höfuð-
borgar Filippseyja og sá helvíti á
jörðu í fátækrahverfunum þar,“
sagði Wallenberg í samtali við Morg-
unblaðið. „Á Filippseyjum eru 1,2
miHjónir heimilis- og munaðarlausra
bama á götunni, sem mörg stunda
vændi til þess að hafa í sig og á.
25.000 börn undir sjö ára aldri selja
sig, og yngsta stúlkan, sem ég veit
um, var þriggja og hálfs árs þegar
móðir hennar byijaði að selja hana.
Dánartíðnin meðal þessara barna er
52%. Til þess að gera langa sögu
stutta, þá byijaði ég á því að taka
að mér 67 þessara bama. Að einu
ári liðnu stofnaði ég Nonæna barna-
hjálp, sem nýlega hefur opnað skrif-
stofu á íslandi. Á sex árum höfum
orðið stærsta hjálparstofnun á
Filippseyjum. Á degi hveijum önn-
umst við 6.7C0 böm. Við höfum sett
á stofn barnaheimili, dagheimili,
sjúkrahús fyrir vannæi-ð börn og
veik og fimmtán stöðvar, þar sem
við deilum út mat. Við eigum sömu-
leiðis „sjúkrastofur á hjólum“ og
höfum sett á stofn þijár bækistöðv-
ar, tvær í Manila og eina á eynni
Mindanao."
Wallenberg segir að hernaðar-
ástandið, sem nú ríkir á Filippseyj-
um, geri þörfina fyrir hjálp ennþá
brýnni. „Mér var brugðið þegar
síminn hringdi í nótt [fyrrinótt] og
Thorbjörn sonur minn, sem stjórnar
hjálparstarfinu á Filippseyjum, var í
símanum. Hann sagði mér að bama-
heimili okkar lægju undir sprengju-
árásum, þar sem þau eru aðeins um
300 metra frá herstöðinni Camp
Cramer, sem ráðizt var á í nótt.
Thorbjörn reyndi í nótt að flytja eins
mörg böm og hann gat á brott til
öruggra staða uppi í fjöllunum, þang-
að til hann fékk flug á brott frá
bækistöðvum okkar. Hann hringdi
aftur fyrir skömmu og sagði mér að
hann hefði komið bömunum á ömgg-
an stað.“
Wallenberg segir að samtökin hafi
nú komið upp skrifstofum á öllum
Norðurlöndunum. „Við érum alkrist-
in, samnoi-ræn hjálpar- og líknar-
stofnun. Ég kem til íslands til þess
að fá íslenzku þjóðina til þess að
hjálpa þessum heimsins hijáðustu
börnum. Ég hef verið boðinn til for-
seta íslands til þess að ræða mögu-
leikana til þess að íslendingar geti
tekið þátt í starfi okkar. Hún var
einstaldega jákvæð. Ég hef einnig
Morgunblaðið/Þorkell
Sigvard Wallenberg.
hitt framkvæmdastjóra Hjálpar-
stofnunar kirkjunnar til þess að ræða
hugsanlegt samstarf.“
Þijár leiðir eru opnar almenningj
til hjálpar, að sögn Wallenbergs. í
fyrsta lagi sé hægt að senda styrki
inn á gíróreikning Nonænnar bama-
hjálpar, sem er nr. 90777-4. í öðru
lagi geti menn skráð sig sem „guð-
foreldra" hjá stofnuninni, og greitt
1.25Ö krónur á mánuði, sem dugi
fyrir mat, klæðum, heilsuhjálp og
skólagöngu fyrir eitt til þijú börn. I
þriðja lagi gefist einstaklingum og
samtökum kostur á að styrkja verk-
efnið „Scandinavian Village".
„„Scandinavian Village" er verk-
efni, sem við höfum tekizt á hendur
á eyjunum Leyte og Samar, þar sem
fellibyljir hafa svipt um 100.000
manns heimilum sínum og lífsviður-
væri. Filippseyska stjórnin fór þess
á leit við okkur að við byggðum lítið
þorp með húsum, sem geta staðizt
fellibylji. Hvert hús kostar um 60.000
krónur, og þróunarhjálparstofnanir á
Norðurlöndum hafa þegar skráð sig
fyrir um hundrað húsum. Þetta er
mikilvægasta verkefni okkar sem
stendUr, og er stutt af ríkisstjórnum
Norðurlanda. Fólk getur gefið fé til
byggingar svona húsa, og vilji menn
sjá í hvað fé þeirra er notað, þá
munum við setja nöfn gefendanna á
húsin og íslenzki fáninn mun blakta
yfir þeim húsum, sem íslendingar
géfa,“ sagði Wallenberg. Hann segir
að í þorpinu verði karlmönnunum
kennd landbúnaðarstörf, en sauma-
skóli settur á stofn fyrir konumar,
þannig að þær geti fengið störf í
saumaverksmiðjum.
Hann segir að ástandið á Filipps-
eyjum sé svo slæmt, að hjálpin verði
að berast fljótt. „Við þörfnumst
hverrar krónu, sem þægt er að fá,“
sagði Wallenberg og gat þess að fjár-
ins væri sérstaklega þörf fyrir jólin.
„Á jólunum höldum við mikla jóla-
veizlu, þar sem bömin fá pakka með
mat og fötum, sem sendiherrar Norð-
urlandanna útdeila meðal annarra. í
fyrra buðum við 7.000 börnum, en
14.000 komu,“ sagði hann.
Wallenberg heldur af landi brott
í dag, en kemur aftur 8. desember
til þess að tala á samkomu í Bústaða-
kirkju, þar sem starfsemi Norrænnar
barnahjálpar og hjálparstarf ABC
verður kynnt.