Morgunblaðið - 03.12.1989, Qupperneq 34
34 C
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
SUNNUDAGUR 3. DESEMBER 1989
Jólakaffi
Hringsins
verður á Hótel Islandi í dag, sunnudag 3. desember,
hefst kl. 14.00. Hlaðborð og happdrætti. Glæsilegir
vinningar, utanlandsferðir, matarkörfur og margt fleira.
Komið og styrkið gott málefni.
Kvenfélagið Hringurinn.
Þórleif Sigurðar-
dóttir - Minning
UTFARARÞJONUSTA
OG LÍKKISTUSMÍÐI Í
9(L
LÍKKISTUVINNUSTOFA
EYVINDAR *
ARNASONAR r ^
LAUFASVEGI 52, RVK.*?Í£&
SIMAR: 13485, 39723 (Á KVÖLÖIN)
Þessar örfáu línur eru hinsta
kveðja til látinnar heiðurskonu, föð-
ursystur manns míns, Þórleifar Sig-
urðardóttir, hennar Leifu frænku
eins og fjölskyldan kallaði hana
jafnan. Leifa hafði ung veikst af
þeim váiega sjúkdómi berklum og
gengist undir aðgerðir og mátt þola
margra ára spítalavist af hans völd-
um. Hún var svo lánsöm að eiga
einstaklega ástríkan eiginmann,
Agúst Arnason, sem þreyttist aldrei
á að gera henni lífið léttara og sam-
an hafa þau glaðst á þeim degi sem
hún útskrifaðist af spítalanum og
þau gátu byggt sér heimili.
Þessi kafli lífs hennar er liðinn
þegar ég tengist fjölskyldunni um
1960. Hugur minn þýtur á marg-
földum hraða ljóssins aftur til þess-
ara ára fyrstu kynna og ég kýs að
framkalla mynd af henni eins og
hún var hvað hressust. En sjúk-
dómurinn hafði þó skilið eftir ör sem
takmarkaði hennar vinnuþrek. Hún
lét sér einkar annt um öll systkina-
börn sín og þau hjón héldu miklu
og góðu sambandi við allan frænd-
Samlokubrauðrist
Verð kr. 4.425,-
Rafmagnshnífur
Verð kr. 1.985.-
Blandarar
Verð frá kr. 3.630.-
Djúpsteikingarpottur
Verð kr. 6.678.-
Safapressa
Verð kr. 8.760.-
Brauðristar
Verð frá kr. 2.250.-
Snúrulaus raftæki
Verð kr. 16.680.-
Straujám
Verð frá kr. 3.640.-
Hraðsuðukönnur og katlar
Verð kr. 4.380.-
... það heppnast
með Kenwood
Viðgerða- og varahlutaþjónusta
HEIMIUS- OG RAFTÆKJADEIID
Rafmagnspanna
Verð kr. 7.660.-
fplHEKLAHF
Laugavegi 170-174 Slmi 695500
garðinn og báru velferð þeirra mjög
fyrir brjósti. Leifa var gersemi, þess
vegna minnumst við ijölskyldan
hennar með þakklæti.
Ég hef nú á skömmum tíma séð
á eftir nánum fjölskyldumeðlimum
sem skilið hafa eftir fallegar minn-
ingar eins og Leifa gerir. A rökkur-
kvöldi eftir eina af þessum andláts-
fregnum varð mér litið til himins í
bæn og spurn og augu mín námu
farþegaflugvél sem skildi eftir sig
logagyllta rák, var þetta þá tákn
þeirrar trúar sem ég hafði um dauð-
ann, ferðalag og áfangi. Um borð
voru einhveijir sem hlökkuðu til
samfundar við ástvini, aðrir urðu
ef til vill eftir heima sem kvöddu
með söknuði, en ákveðin að koma
semna.
Við söknum Leifu, en sárast þó
maðurinn hennar, Ágúst, en vð er-
um ákveðin að koma seinna. Bless-
uð sé minning hennar.
Helga Kristjánsdóttir
Kveðjuorð:
Carl BiIIich
tónlistarmaður
Fæddur 23. júlí 1911
Dáinn 23. október 1989
Minn kæri vinur Carl Billich er
látinn, 78 ára gamall. Ég kynntist
honum fyrst þegar ég var í Þjóðleik-
húskórnum, en þá var hann fastráð-
inn sem kórstjóri. Þetta var árið
1964, og hafði enginn fastráðinn
kórstjóri verið eftir fráfall Dr. Urb-
ancic, og fagnaði kórinn honum
innilega.
Við fundum fljótt þvílíkan snilld-
ar tónlistarmann við höfðum fengið,
og okkur hlaut að þykja vænt um
hann.
Hann var ákveðinn, ef með
þurfti, en þó var ljúfmennskan hans
aðalsmerki. Sjentilmaður var hann
fram í fingurgóma, sem fáum er
gefið, og fylgdi það honum alla tíð,
allt til síðustu stundar.
Þegar ég gerðist einsöngvari og
fékk óperuhlutverk í Þjóðleikhús-
inu, var það hlutverk Carls að æfa
hlutverkið með mér.
Hann lét sér ekki nægja að spila
undir hjá mér, heldur raulaði hann
öll hin einsöngshlutverkin líka, eins
og ekkert væri, og hjálpaði það mér
mikið.
Hann var undirleikari hjá mér á
mörgum skemmtunum og stundum
þegar mig vantaði nótur úr
amerískum söngleikjum eða óper-
ettulög, þá spilaði hann af fingrum
fram, og þvílíkar útsetningar sem
streymdu frá honum vildi ég eiga
á blaði núna.
Einnig stundaði ég píanónám hjá
honum einn vetur.
Ég mun ekki rekja æviferil Carls,
það hafa aðrir gert því góð skil,
heldur minnast þeirra stunda sem
ég starfaði með honum.
Seinasta árið sem hann lifði
dvaldi hann á Grund og heimsótti
ég hann stundum og raulaði lög
með formerkinu pp, þá kom glampi
í augu hans og tók hann þá Iagið
með mér, hann hafði engu gleymt.
Guð blessi minningu um góðan
mann, og megi hið eilífa ljós lýsa
honum og gefa honum frið.
Þuríði og Sigurborgu votta ég
mína innilegustu samúð.
Svala Nielsen
/
D
::
SOLARSAGA
NÝ UNGLINGABÓK EFTIR ANDRÉS
INDRIÐASON. Sólarsaga er sjálfstætt framhald
bókarinnar ALVEG MILLJÓN sem kom út í fyrra og hlaut
frábærar viðtökur. Steini á að passa litlu systkini sín á
sólarströndinni, en það er margt annað sem togar í hann
og ruglar hann í ríminu, ekki síst þessi Ijóshærða.
Skemmtileg og spennandi saga frá upphafi til enda.
og menning
í ÞJÓÐBRAUT HEIMSBÓKMENNTA
Síðumúla 7-9. Sími 688577. Laugavegi 18. Sími 15199-24240.