Morgunblaðið - 03.12.1989, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. DESEMBER 1989
DÆGURTÓM.IST
■SÍÐAN skein sól sendi
frá sér sína aðra breiðskífu
fyrir stuttu. Platan sú.heitir
Eg stend á skýi og Skífan
gefur út. Útgáfan var kynnt
með jólaglóð í porti Hafnar-
hússins á meðan hljómsveit-
in var hífð á viðeigandi
skreyttum palli niður í port-
ið. Að því loknu léku sveitar-
meðlimir fyrir viðstadda
nokkurlög.
Hvað er betra en nokkuð annaðf
ÞÓ STARFANDI séu ótal poppsveitir á íslandi eru
þær fáar sem ná að móta sér sinn eigin stfl; stíl sem
ekki dregur dám af því sem er helst á seyði í út-
iandinu. Ein þeirra islensku sveita sem náð heiúr
sérstöðu er Todmobile, sveit sem skipuð er klassískt
menntuðum tónlistarmönnum, sem eiga sér afar ólík-
an uppruna í popptónlist.
Todmobile skipa Eyþór
Arnalds, sem var í eina
tíð f Tappa tíkarrassi og
fleiri pönkpoppsveitum,
Þorvaldur B. Þorvaldsson,
sem var í
Pax Vobis
og fleiri
sveitum,
og Andreá
Gylfadótt-
ir, sem
lagði
stund á
klassískt
söngnám og söng með
Grafík. Meðspilarar 'eru
Jakob Magnússon bassa-
eftir Árna
Matthiosson
leikari, Kjartan Valdimars-
son hljómborðsleikari og
Ólafur Hólm trommuleík-
ari. Todmobile sendi nýve-
rið frá sér sína fyrstu plötu,
Betra en nokkuð annað.
Ég hitti þau Þorvald, Eyþór
og Andreu þar sem þau
voru að undirbúa væntan-
lega útgáfutónleika í ís-
lensku óperunni 7. desem-
ber nk.
Hvað er betra en nokkuð
annað?
„Plötuheitið er komið úr
texta eftir Andreu við
fyrsta lagið. Sá texti fjallar
um dauðann; það augnablik
þegar maður er á mörkum
lífs og dauða, það gamla
er að baki og við tekur nýr
heimur. Lagið er samfellt
ris og þegar hápunktinum
er náð kempr þessi fallega
setning sem hreif okkur.
Það má segja að þetta lag
sé dæmigert fyrir hljóm-
sveitina, enda lögðum við
einna mest í það, en það
og annað lagið eru í raun
eitt lag; ein saga.
Meðgöngutíminn var
langur, en hann var nauð-
synlegur til að móta plöt-
una. Annað sem réð miklu
um heildarsvip plötunnar
er hve við erum samrýnd.
Það teygðist úr stúdíóvinn-
unni meðal annars' vegna
þess hve gaman okkur
finnst að vinna saman. Við
áttum í vandræðum með
halda okkur innan settra
tímamarka; vinnugleðin
var það mikil. Við erum
þegar farin að vinna að
nýjum demó-upptökum,
enda eigum við yfrið nóg
af lögum. Undirbúningur
plötunnar og vinnan við
hana hefur verið eins og
að ganga í klaustur og það
er mjög gaman að vera að
fara að spila fyrir fólk eftir
innilokunina. Það er bara
vonandi að okkur takist að
miðla spilagleðinni til
áheyrenda á Operutónleik-
unum.“
Hvernig líst ykkur á jóla-
slaginn?
„Við erum ekkert bang-
inn við hann, enda vorum
við búin að ákveða að gefa
okkur í þessa hljómsveit í
ár og hvernig sem fer, fáum
við það mikið út úr sam-
starfinu að það er okkur
nóg.“
■ LIKUR eru taldar á að
félagarnir í Smiths taki upp
samstarf á nýju, en Johnny
Marr gítarleikari og laga-
smiður sveitarinnar sálugu
og Morrissey söngvarinn og
textahöfundurinn ræðast nú
við á nýjan leik eftirtveggja
ára hlé. Þá hefur Morrissey
aflýst tónleikaferð sinni til
Fraklands og þykir það renna
frekari stoðum undir sögu-
sagnimar.
PLATA
VIKUNNAR
PLATAVIKUNNARer
WC Monster með hljóm-
sveitinni Bootlegs.
WC Monster er fyrsta
íslenska speed-metal
platan, en speed-metal er
hratt, hrátt þungarokk sem
minnir stundum á pönktón-
list. Bootlegs hefur verið
að leika speed-metal í á
fjórða ár, en WC Monster
er fyrsta plata sveitarinnar.
Lögin á plötunni heita
klassískum þungarokkheit-
um, Stairway to Hell, WC’
Monster, Sod, Trash Attack
og Shall I Die, en sveitar-
meðlimir segjast vera að
leika tónlist sem henti eink-
ar vel til að slaka á.
Amörkum
hfsogdauða
Jón Örn Sigurðsson,
gítarleikari og söngvari
Bootlegs, á tónleikum í
Duus 23. nóvember.
að Jón Öm
þungarokk-
sveitarinn-
ar Bootlegs.
Hann hefur
prýðilega söng-
rödd sem hentar vel
í þeirri gerð tónlistar
sem Bootlegs leikur og
er fyrirtaks gítarleikari.
Þetta kvöld var hann nökk-
urn tíma að ná sér á strik,
en þegar komið var fram
yfir miðja tónleikadagskrá
var hann kominn í ham og
tók magnaða einleikskafla á
gítarinn. Þungarokkið sem
Bootlegs leikur minnir á
köflum á pönk; slíkur er
krafturinn og hraðinn og
Jón lætur sitt ekki eftir
Ljósmynd/Björg Sveinsdóttir liggja í kraftmiklum hröðum
JÓN söng og gítarleik.
BITLAVINAFELGIÐ
áfutónleika, „við emm svo
lúnir eftir árið, að við rétt
nennum að talast við í síma“.
Þeir ætla því að safna kröft-
um fram að tónleikunum 21.
og gera þá veglegri fyrír vik-
ið.
■ÞAÐ er ekki á hveijum degi
sem íslensk hljómsveit fær lof-
samlega umfjöllun í banda-
ríska popptímaritinu Rolling
Stone, en í desemberhefti
blaðsins skrifar David Fricke
um tólftommuna sem Risaeðl-
an sendi frá sér í sumar og
gefur henni hin bestu með-
mæli. Fricke, sem kom hingað
til lands fyrir tveimur árurn
til að skrifa um Sykurmolana,
segir að plata Eðlunnar sé
blanda af pönki og jass; æs-
andi og stórskemmtileg dans-
tóniist. Af Eðlunni er annars
það að frétta að sveitarmenn
eru nú í hljóðveri með Ken
Thomas að taka upp lög á
væntanlega plötu sém gefin
verður út ytra á næsta ári.
OG AUGUN OPNAST
HILMAR Oddsson hefúr fengist við tónlist í fjölda ára
(man einhver eftir Melchior?), en er þó þekktari sem
kvikmyndagerðarmaður. Hann sendir þó frá sér plötur
með löngu millibili, 1984 kom út Eins og skepnan deyr,
sem á voru lög úr samnefndri kvikmynd hans, og fyrir
stuttu kom út platan Og augun opnast.
Hilmar sagði í spjalli að
Og augun opnast væri
í raun hans fyrsta sólóskífa,
„þegar Skepnan kom út
hugsaði ég ekki út í það að
hafa nafnið framan á um-
slaginu". Hilmar sagði að
eins væri farið með sig og
aðra sem væru að fikta við
tónlist; hann væri alltaf að
semja lag og lag og þar
kæmi að lögin kölluðu á að
verða gefin út. „Þegar frest-
að var mynd sem ég ætlaði
að gera í sumar varð þessi
plata til; „ég þurfti að fá
útrás fyrir einhveija sköpun
og platan kemur því í stað
myndarinnar“.
Hilmar fékk til liðs við
sig á plötunni ýmsa söngv-
ara, þeirra á meðal Bubba
Morthens, sem syngur lagið
Hrikaleg, sem allmikið er
leikið í útvarpi þessa daga.
„Þegar Skepnan kom út
söng Bubbi lagið Allir lurk-
um laminn, eins og flestir
muna, en það lag var í raun
samið fyrir hann og hann
féllst góðfúslega á að syngja
það. Þegar ég svo setti sam-
an Hrikaleg vissi ég strax
og fyrstu hljómamir urðu
HILMAR
til að þetta væri lag fyrir
Bubba og hann var aftur til
í slaginn.“ Aðrir sem koma
við sögu em tveir fyrrum
félagar Hilmars úr Melchior,
Karl Roth og Hróðmar, en
„Hróðmar er orðinn há-
alvarlegt tónskáld og vill
ekkert af þessu poppi vita.
Með herkjum tókst að fá
hann til að útsetja strengja-
kafla í einu lagi.“
Hilmar sagði að þar sem
tónlistin væri aukabúgrein
væri hann ekki í tygjum við
hljómsveit og ætti því óhægt
með að koma fram. Það
stæði þó til að reyna að
troða eitthvað lítilsháttar
upp fyrir jól.
HLJÓMSVEITIN
TODMOBILE OG
AÐSTOÐARMENN
BÍTLAVINAFÉLAGIÐ átti söluhæstu plötu síðasta árs
sem á voru gömul íslensk „bítlalög". Þetta ár sendir
sveitin enn frá sér plötu, Konan sem stelur Mogganum
mínum, en nú með frumsömdum lögum.
Bítlavinafélagið skipa þeir
Jón Ólafsson, Rafn Jóns-
son, Eyjólfur Kristjánsson,
Stefán Hjörleifsson og Har-
aldur Þorsteinsson. í. stuttu
spjalli um plötuna sagði Jón
Ólafsson að Bítlavinir hefðu
ákveðið að leyfa öllum sveit-
armeðlimum að njóta sín á
plötunni. Hann sagði þá fé-
laga hafa einsett sér að láta
markaðinn ekki segja sér
fyrir verkum, en reyna að
leggja sig alla fram við það
sem hvem og einn langaði.
Textamir væm þeim þó
meira- hjartans mál og því
meira í þá lagt flesta. Sumir
segðust heyra á plötunni
„bítlablæ", en það væri ekki
meðvitað og eina skýringin
væri sú að þeir væru búnir
að vera að leika tónlist
„bítlaanda" svo lengi.
Jón sagði ekki
vera pressu á
sveitina að fylgja
eftir plötu síðasta árs,
var söluhæsta plata ársins;
þar væri nánast sem menn
byggjust ekki við neinu, sem
væri þvert á reynslu síðasta
árs. „Mér finnst þægilegra
að geta komið mönnum á
óvart; það er meira gaman
að sækja á brattann," sagði
Jón. „Núna hlýnar mér um
hjartaræturnar við að heyra
lögin í útvarpinu, en í fyrra
var þetta gefin veiði.“
Bítlavinir halda tónleika á
Hótel Borg 21. desember nk.
Jón sagði sveitina ekki ætla
að halda neina sérstaka útg-