Morgunblaðið - 03.12.1989, Blaðsíða 28
MORGUNBLAÍHÐ SUNNITOXGUK '3'. DESEMBEKHBM
úrsmiður,
Laugavegi 62, sími 14100
úrsmiður,
Laugavegi 55, sími 23710
úra- og skartgripaverslun,
Laugavegi 70, sími 24910
ORIENT armbandsúrin eru falleg
og stílhrein ^
Við bjóðum
ORIENT
armbanclsúrin
í miklu úrvalil
Gunnar Bender
Guðmundur Guðjónsson
Arbók um stang--
veiðina á íslandi
FRJÁLST framtak hf. hefur gefið
út bókina Stangveiðin 1989 eftir
Guðmund Guðjónsson og Gunnar
Bender.
Stangveiðin 1989 skiptist í þijá
meginkafla. Fyrsti kaflinn heit-
ir „Veiðisumarið 1989“. Þar er ijail-
að um lax- og silungsveiðina í ein-
stökum ám sl. sumar og gerður
samanburður við fyrri ár. Annar
kaflinn heitir „Fréttaannáll". í þess-
um kafla er fjallað um það mark-
verðasta sem gerðist á árinu og er
m.a. fjallað um verð á veiðileyfum,
um félagsstarfsemi stangveiði-
manna og þarna er einnig að finna
veiðisögur frá sl. sumri, margar
skondnar. Þriðji kaflinn heitir „Sil-
ungsveiðin". Þar er ijallað um sil-
ungsveiðina í einstökum vötnum og
veiðiám sl. sumar.
I bókinni eru fjölmargar ljós-
myndir frá stangveiðisumrinu 1989
og gefa þær bókinni aukið gildi.
Stangyeiðin 1989 er 122 blaðsíð-
ur. Bókin er prentunnin í Prent-
smiðjunni Odda en auglýsingadeild
Frjáls framtaks hf. hannaði kápuna.
Skáldsaga eftir Yig-
dísi Grímsdóttur
S turtuklefar
H y S turtuklefar - þæglleg lausn á smærrl baðherbergl |;
1 Sturtuveggir - fyrlr öll helmlll
1 it Allt til L pípulagna - fyrlr baö- herberglð þltt
Hreinlætis- ■ tæki -1 miklu úrvall
lmIÍ ■:í:" í ■ %„ ^wjg \ ' 1 % ■■■■■ Baðkör 1 - fyrlr alla fjölskylduna
k mMm S érfrœði- L aðstoð - fagmanna I verslun okkar
VISAcgEURO
greiðslukjör
Bjóðum m.a.
upp á þennan
gullfallega
sturtuklefa
sem fer vel
á smærrl
baðherbergjum.
Elnnlg sem
vlðbót vlð
baðkarlð og
nuddpottlnnl
Vlð sérhæfum okkur í öllu sem
við kemur baðherbergls- og
hreinlætistækjum. Vertu velkominnl
® VATNSVIRKINN HF.
~ ÁRMÚLA 21 SÍMAR 686455 — 685966
LYNGHÁLSI 3 SÍMAR 673415 - 673416
KOMIN er út hjá Iðunni ný skáld-
saga eftir Vigdísi Grímsdóttur.
Ég heiti ísbjörg — Ég er ljón
nefhist hún.
>
Ifréttatilkynningu Iðunnar segir:
„í þessari nýju bók Vigdísar er
sögð óvenjuleg saga þar sem áhri-
faríkur frásagnarstíll höfundar nýt-
ur sín til fulls. Ung stúlka sem rat-
að hefur í ógæfu bíður dóms. Á
tólf stundum rekur hún sögu sína
fyrir lögfræðingi og um leið fær
lesandinn að kynnast því stig af
stigi hvaða áhrifavaidar í lífi hennar
ráða ferðinni, hver viðbrögð hennar
við heiminum eru, hvað veldur því
að hún verður viðskila við samfélag
manna, hver glæpur hennar er.
Hér er því á ferðinni magnað
skáldverk sem er í senn spennandi
frásögn og ljóðræn túlkun þar sem
höfundur spinnur á listrænan hátt
ótrúlega örlagasögu úr þeim
margslungnu þráðum er leynast í
mannlegu eðli, í heimi sem vandlif-
að er í. Ástin og hatrið, sektin og
Vigdís Grímsdóttir
sakleysið hljóta á ný djúpa og
óvænta merkingu í hugum lesand-
ans.“
Bók eftir Hrafiihildi
V algarðsdóttur
ÚT ER komin bókin, Unglingar
í frumskógi, eftir Hrafnhildi Val-
garðsdóttur. Sagan er sjálfstætt
framhald verðlauna- og metsölu-
sögnnnar, Leðurjakkar og spari-
skór, en fyrir hana hlaut höfund-
ur 1. verðlaun í samkeppni IOGT
íyrir unglinga.
að er síðsumar. Söguhetjurnar
hafa lokið störfum í unglinga-
vinnunni. Örn hefur ráðgert að fara
í útilegu með Gerði en hún ræður
sig sem ráðskonu í sveit. Tóti ætlar
að taka til höndum í sumarbústað
afa síns og ömmu. Örn kvíðir þvi
að þurfa að hanga einsamall í borg-
inni og sparka knetti í mannlaust
mark. Þá fara hjólin að snúast.
Bókin er 181 blaðsíða. Prent-
smiðja Oddi hf. prentaði. Almenna
auglýsingastofan hf. annaðist útlit
kápu. Útgefandi er Æskan.