Morgunblaðið - 03.12.1989, Blaðsíða 27
MÖHGÍJNBLÁÐID FJÖLMIÐLAR.MIMÍM1 DESEMBBR )1989
o m
Dagskrá Rásar 1 í endurskoðun:
Tímabært að g’eía Rás 1 nútímalegra yfirbragð
segir Elfa Björk Gunnarsdóttir framkvæmdasljóri
„ÞAÐ HEFUR alltaf verið mikilvægt að Rás 1 sinni menningarhlut-
verki sínu, og Iíklega aldrei eins og nú vegna mikils framboðs á léttu
efni,“ sagði Elfa Björk Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri Ríkisútvarps-
ins/hljóðvarps, en hún vinnur nú, ásanit samstarfshópi að endurskoðun
á dagskrá Rásar 1. Hún sagði að árangur þeirrar endurskoðunar
myndi koma í ljós snemma á næsta ári.
HRAFN
Þegar nýju útvarpslögin tóku
gildi ákváðum við að gera litlar
breytingar á innihaldi og yfirbragði
dagskrárefnis á Rás 1, enda töldum
við nauðsynlegt að einhver fastur
punktur væri í ljósvakatilveru lands-
manna, þegar miklar breytingar urðu
og einkastöðvar tóku til starfa,"
sagði Elfa Björk. „Ég tel nú að þetta
hafi verið rétt ákvörðun. Við höfum
FOLK
i fjölmiðlum
■ í blöðuni og tímaritum á
Norðurlöndum hefur talsvert
verið íjallað um hinn samnorr-
æna sjónvarpsmyndaflokk um
víkingana, sem
fyrirhugað er að
heija upptökur á
næsta vor undir
leikstjórn
Hrafiis Gunn-
laugssonar.
Hrafn hefúr
jafhframt skrif-
að handritið í
samvinnu við
Englendinginn
Jonathan Rumbold og í grein í
sænska blaðinu Aftonbladed
segir nýverið að eðlilegt sé að
Hráfiii skuli hafa
verið falið þetta
verkefni, svo vel
sem honum
tókst til með
kvikmyndirnar
„Hrafiiinn flýg-
ur“og „í skugga
hrafiisins". I
norska blaðinu
Verdens Gang
er birt samtal
við Hrafh og Magne Bleness,
yfírmann leiklistardeildar
norska sjónvarpsins, og kemur
þar m.a. fram að þættimir verða
teknir upp í Noregi og á íslandi
og í Noregi hafa meðal annars
verið skoðaðir staðir við Geir-
angursfjörð og Hellesylt, með
upptökur í huga.
■ Guðjón Arngrímsson, frétta-
maður á Stöð 2, hefur sagt
starfi sínu á fréttastofunni lausu
og mun hætta um næstu ára-
mót. Hann hyggst þá hefja störf
við fjölmiðla- og kynningarfyr-
irtækið Athygli; sem hann rekur
í samvinnu við Omar Valdimars-
son blaðamann og rithöfund og
fleiri. Guðjón
hefur starfað hjá
Stöð 2 nánast frá
upphafi og sagði
hannaðsátími
hefði verið mjög
ánægjulegur og
lærdómsríkur:
„Það er alltaf
gaman að taka
þátt í slíku upp-
byggingarstarfi
eins og þar hefur verið unnið
frá því stöðin hóf starfsemi. Mér
fannst hins vegar tími til kom-
inn að breyta til og það era
mikil verkefiii framundan hjá
Athygli, sem ég hlakka til að
takast á við,“ sagði Guðjón.
BLENESS
GUÐJÓN
bætt Rás 1 og breytt nokkuð innan
frá en ekki tekið nein stökk. Nú telj-
um við tímabært að gefa henni nokk-
uð nútímalegra yfirbragð, en samt
með það að markmiði að hún verði
áfram menningarlegt gæðaútvarp
með bókmenntum, sígildri tónlist,
vönduðu barnaefni, leiklist og unnum
heimildaþáttum, sem við myndum
helst vilja auka eftir því sem fjárveit-
ing leyfir."
Elfa Björk kvaðst að gefnu til-
efni, vegna viðtals við formann út-
varpsráðs í Morgunblaðinu 18. nóv-
ember sl., um skiptingu fjár milli
hljóðvarps og sjónvarps, vilja taka
fram að samkvæmt ársskýrslu frá
EBU, Evrópusambandi útvarps-
stöðva, sem Ríkisútvarpið;er aðili að,
þá væri skiptingin einn þriðji hluti
tekna til hljóðvarps og tveir þriðju
hlutar til sjónvarps grundvallarregla
og það sem eðlilegt teldist í flestum
aðildarlandanna. Sums staðar fengi
hljóðvarpið stærri hlut, eins og til
dæmis í Danrnörku, þ.e. 40% á móti
60% sjónvarpsins, og í Finnlandi
væri skiptingin 43% til hljóðvarps en
57% til sjónvarps í sænska hlutanum,
svo dæmi væru nefnd. í Svíþjóð
væri skiptingin sú sama og hér en
hjá BBC fengi hljóðvarpið heldur
minna, eða tæp 27%.
Elfa-Björk sagði að sem miðill
væri hljóðvarp í sókn víða erlendis
um þessar mundir. „Á fundum um
ljósvakamál í Evrópu má víða heyra
það álit að hljóðvarp eigi mikla
framtíð fyrir sér. Ástæðan er meðal
annars sú að sjónvarp verður sífellt
meiri afþreyingarmiðill og fólk leitar
því til hljóðvaips í auknum mæli, sem
fræðandi og um leið skemmtilegs og
gefandi miðils. Hljóðvarpið er lát-
laust og hógvært, en það er alls stað-
Elfa Björk Gunnarsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Ríkisútvarps-
ins/hljóðvarps — hljóðvarpið er
látlaust og hógvært...
ar nálægt og nánast hluti af okkur,“
sagði Elfa Björk.
Komdu og njóttu
litlujólanna
á Holiday Inn
List og lostœti allan desember
Allan desember eru sannkölluð litlu jól á Holiday Inn. Gimilegt kaffihlaðborð
og jólahlaðborð með lostœti fyrir bragðlaukana. Einnig Desembergallerí
íslenskra listamanna, glaðningur jyrir augað. Fallegar jólaskreytingar, stórt
jólatré og starfsfólkið í jólaskapi.
Desembergallerí
Opið allan daginn
Ellefu þekktir listamenn sýna
og selja grafík og teikningar í
anddyri Holiday Inn.
Þetta er engin venjuleg
myndlistarsýning, því ef þér líst
á eitthvert verkanna, þá færðu
það strax í hendur. Engin bið
eftir að sýningu ljúki.
Listamennimir
Aðalheiður Valgeirsdóttir,
Björg Þorsteinsdóttir,
Guðbjörg Ringsted,
Ingibergur Magnússon,
Jóhanna Bogadóttir,
Jón Reykdal,
Lísa Guðjónsdóttir,
Ríkharður Valtingojer,
Sigrún Eldjárn,
Tryggvi Árnason og
Valgerður Hauksdóttir.
Jólahlaðborð
Holiday Inn
Hádegi og kvöld
Lostæti fyrir bragðlaukana.
Gamlar og góðar uppskriftir af
jólaréttum frá ýmsum löndum.
Þar á meðal má nefna danska
rifjasteik, sænska síldarrétti,
gljáð grísalæri, danska
eplaköku, heitt og kalt
hangikjöt, franskar jólakökur,
laufabrauð o.fl. Kr. 1.560
fyrir manninn.
Kaföhlaðborð
Holiday Inn
Eftirmiðdaga og síðkvöld
Rjúkandi heitt kaffi, súkkulaði
meða rjóma og meðlæti sem
ri^ar upp gamlar og góðar
jólaminningar. Sérstaklega ber
að nefna hið gamalkunna
,Jomfru með slör“ og heitar
eplaskífur. Matreiðslumaður
bakar vöfflur í salnum.
Litlu jólin á Holiday Inn
Frá 1. til 23- desember
Verið hjartanlega
velkomin.
■\\OUi&CUJ
Sigtúni 38, sími 689000