Morgunblaðið - 03.12.1989, Blaðsíða 7
MOfiGUNIpLAÐIfi SUNNLIDAGUR 3. DljlSKMBEB L9fl9
c> \
Haftiarborg
Myndlist
Bragi Ásgeirsson
Það er óneitanlega dálítið
fyrirtæki fyrir bíllausan mann
að sækja heim Hafnarborg í
Hafnarfirði og Gerðuberg í
Breiðholti, en hvorutveggja eru
þó menningarhús, sem verð-
skulda alla athygli.
í Hafnarbórg sýnir um þessar
mundir Ómar Svavarsson átján
myndverk. Ég hef lítið séð af
myndverkum hins unga manns,
en hann mun hafa numið við
MHÍ og notið svo tilsagnar hjá
Bjama Jónssyni málara í Hafn-
arfirði.
Þetta er skondin námsblanda,
að ekki sé meira sagt, og heldur
hallast ég að því eftir skoðun
sýningarinnar, að Ómar hafi
tekið meira mark á Bjama en
lærimeisturunum í listaskólan-
um.
Þessi tegund listar höfðar
engan veginn til mín, þótt ég
eigi að teljast alæta á sjónlistir,
og að auki hef ég séð flesta
þessa takta, er fram koma í
málverkum annarra hérlendra
málara.
Ómar er auðsjáanlega í deigl-
unni og eiginlega ætti ég að
setja punktinn á umsögnina
hér, ef ekki kæmi til mynd nr.
I., eða réttara sagt annar hluti
hennar, sem er eins konar
skúlptúr í neon-ljósum og er
endurtekning á aðalforminu í
málverkinu.
Þessi skúlptúr lyftir upp sýn-
ingunni og vottar, að það hljóti
að vera meira spunnið í gerand-
ann en fram kemur í flestum
myndverkanna. Einfaldlega
kemur hér fram raunsönn til-
finning fyrir efni og formi, sem
ég sakna í flestum tvívíðu mynd-
anna.
Hafnarborg er skemmtilegur
staður heim að sækja og hefur
alla burði til að laða að sér fólk,
ef rétt er að málum staðið. En
mér líkar ekki alls kostar við
þessar litlu og hólfuðu sýningar,
því að það er allt annar hand-
leggur að skoða stóru sýning-
arnar í öllum salnum og þá njóta
myndverkin sín mun betur.
Ég hef frétt það af skotspón-
um, að ýmsir ágætir myndlistar-
menn líti hýru auga til þessa
sýningarrýmis og einkum eftir
að þeir hinir sömu hafa snúið
baki við Kjarvalsstöðum.
Það er tvennt, að þeim líkar
ekki, að hæstiréttur ákvarði
staðlaða lýsingu á myndverk
þeirra á þessum stað um aldur
og ævi, sem er kannski löglegt
siðleysi, og svo fellur þeim ekki
stefna ráðamanna innanhúss
um þessar mundir. Aðsókn hef-
ur og fallið á flestar sýningar
og var sýning Erró algjör und-
antekning, en hann mun eiga
vísa metaðsókn, hvar sem hann
sýnir hér í borg.
Og þar sem ég minnist á
Erró, þá hef ég séð nokkrar
mynda hans frá sýningunni ný-
afstöðnu á Kjarvalsstöðum í
annarri birtu, og nutu þær sín
áberandi betur.
Hafnarborg með hinn mikla
og stóra sýningarsal og ríku
möguleika, sína ágætu kaffi-
stofu og fagra umhverfi hefur
því alla burði til að spjara sig á
næstunni.
En hér gildir rétta útspilið ...
Sögxir Þórðar á Dagverðará
ÚT EK komin bókin Setið á
Svalþúfu — Handbók fyrir veiði-
þjófa, þar sem Haraldur Ingi
ræðir við Þórð Halldórsson frá
Dagverðará.
I kynningu segir m.a.: „Þórður
Halldórsson er þjóðsagnapersóna
í lifanda lífí og lætur í þessari bók
gamminn geisa um veiðiskap,
kynni sín a dýrum láðs og lagar,
forspár, áhrinskveðskap, matar-
æði og fleira.
Frásögnin er hispurslaus og
engin hjartveiki með í för. Ýmsum
áleitnum spumingum er svarað,
s.s. Hvað fást margar gæsir á eina
brennivínsflösku? Hver er sá
lífselexír sem gerir konur gljáandi
fallegar eins og skagfirskar stóð-
merar á vordegi og gerir þeim
kleift að hella uppá kaffi á frum-
legri hátt en tíðkast hjá öðrum.
Hvemig á að gangsetja bíl með
galdri þegar allt annað hefur
brugðist? Hvernig á að veiða lax
á sel og mink á tvær gamalhænur
og einn sprækan hana.“
Álfrún gefur bókina út en ísa-
fold sér um dreifingu hennar.
wv
IAUF
Tilkynning
til llogaveikra, aðstandenda
og áhogafólks
Nú hefur skrifstofan í Ármúla 5, 4. hæð opnað
á ný. Sími 82833.
Sigrún Birgisdóttir guðfræðinemi er starfsmað-
ur okkar og er við á miðvikudögum og föstudög-
um frá kl. 13-17. Hafið samband.
Landsamband áhugafólks um flogaveiki.
í \
Húsbréfaeigendur
athugið
Kaupþing hf. hefur milligöngu um sölu á húsbréfum
og veitir alla ráðgjöf varðandi þau auk almennrar
ráðgjafar um fjármál.
Ávöxtunarkrafa húsbréfa er 6,6% og seljast því bréf-
in á genginu 0.921. (M.v. 1.12.1989.)
Eigir þú húsbréf samtals að nafnvirði kr. 2.000.000
færð þú því tæplega 1.833.000 við sölu þess þegar
tekið hefur verið tillit til 0,5% söluþóknunar.
Við tryggjum þér sölu húsbréfanna þinna samdægurs.
Allar nánari upplýsingar veita Agnar og Elvar hjá
Verðbréfadeild Kaupþings hf., Kringlunni 5, jarð-
hæð, eða í síma 689080.
Við höfum opið alla virka daga milli kl. 9 og 17.
KAUPÞING HF
Kringlunni 5,103 Reykjavík
Sími 91-689080
j
Rjómalöguð súpa dagsins
Fjórar teg. af síid
Þijár teg. af grænmetis-
paté • Sjávarpaté
Sjávarréttir í hvítvíns-
hlaupi • Reykt hámeri
Grafln hámerí
Reyktur lax
Grafinn lax
Ferskt jöklasaiat með
pöstu í jógúrtsósu
Ferskt ávaxtasalat með
pöstu í tandoorísósu
Lambarúllupyls
Sviðasulta
Lambapate
Gióðarsteikt lambalæri
Lambarif barbeqúe
Fylltur lambsbógur
Hangikjöt
Rauðvínshjúpað grísa-
lærí jólaskinka
Jólagrfsarífjasteik
Svart pönnubrauð
Munkabrauð
Þríggja korna brauð-
hleifur • jólabrauð
Rúgbrauð • Hrökkbrauð
Kaldar sósur
Sex teg. af meðlæti
Ostar • Ávextir
Allar teg. af Baulu-jógúrt
3orði nú hver sem betur getur
Hverfisgötu 8-10-pantanasími 18833