Morgunblaðið - 03.12.1989, Side 6
áQkGÚNéLAÖÍÐ SÚNNUDACÍÚK 8: ÚÉSÉMBER 1989
l d
NUDDARAR, SNYRTIFRÆÐINGAR,
ÍÞRÓTTAFÉLÖG
Eigum fyrirliggjandi ferðanuddbekki
a. Eru úr áli, uppsetning tekur aðeins 15 sek.
b. Með stillanlegu höfðalagi og andlitsgati
c. Mjög stöðugir, bera 250 kg.
d. Möguleikar á greiðslukjörum.
Allar nánari upplýsingar í símum 46460 eða 46986.
SUÐUR-AMERIKA - ASIA?
Hvernig væri aö fara þangað í eitt ár, gerast skiptij
nemi, búa hjá fjölskyldu og kynnast annarri menningu?
Þetta er tækifæri sem þú færð ef til vill aldrei aftur.
Ef þú ert fædd/ur 1972 eða 1973 geturðu sótt um.
Brottför í febrúar og maí.
Upplýsingar í síma 25450.
4FS ÁISL4NDI
Alþjóðleg fræðsla og samskipti
Skúlagötu 61,4. hæð.
LOKSINS GETUR ÞÚ LEIKIÐ
AÐALHLUTVERKIÐ. HÉR ER KOMIN HIN
FULLKOMNA SPENNA ÞAR SEM PERSÓNUM
ER FYLGT EFTIR í VILLTRI LEIT AÐ RÉTTU
MIÐUNUM. HVER NÆR FJÁRSJÓÐINUM
-EINBÝLISHÚSINU, BlLUNUM,
UTANLANDSFERÐUNUM OG ÖLLU HINU
GÓSSINU?
HÖRKUSPENNANDIOG SKEMMTILEG
AFÞREYING FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA.
MIÐAVERÐ AÐEINS 100 KR.
\í
Morgunveróarfundur í A-sal Hótels Sögu
miðvikudaginn 6. desember 1989, kl. 8-9.30.
Fyrirmynd að
dreif isamningum
A fundinum verður lögð fram og kynnt fyrirmynd
að dreifísamninum fyrir inn- og útflytjendur. Þar
er miðað við algengar aðstæður íslenskra fyrirtækja,
en jafnframt höfð hliðsjón af reglum innan EB.
Höfundurinn, Þórður S. Gunnarsson, hæstaréttar-
lögmaður, kynnir samningsformið og svarar fyrir-
spurnum.
Þátttökugjald kr. 1.000 (morgunverður innifalinn),
Þátttöku þarf að tilkynna Verslunarráðinu í síma
83088 eða FÍS í síma 678910 fyrir fundardag.
VERSLUNARRÁÐ FÉLAG ÍSLENSKRA
ÍSLANDS STÓRKAUPMANNA
Afinæliskveðja:
Sveinn Einars-
son frá Hrjót
Sveinn Einarsson frá Hrjót er
áttræður í dag, 3. desember. Hon-
um kynntist ég sumarið 1965. Ég
bjó þá hjá foreldrum mínum á
Egilsstöðum og Sveinn var fenginn
til að vinna við stóran garð sem
var við hús foreldra minna. Eitt-
hvað smávegis aðstoðaði ég hann
við að ná í gijót til hleðslu í garðin-
um en ekki man ég til þess að við
ræddum mikið saman meðan á því
stóð. Ég held að Sveinn hafi verið
alltof önnum kafinn við að velja
steinana og hafi auk þess tekið
vinnuna of alvarlega til þess að
eyða tíma í spjall meðan á henni
stóð. En það var á kvöldin eftir
vinnu sem ég kynntist Sveini fyrir
alvöru. Hann bjó hjá okkur vinnu-
dagana en fór heim að Miðhúsa-
seli um helgar. Við spjölluðum
mikið saman þessar vikur sem
Sveinn var hjá okkur. Oft var kom-
ið fram á nótt þegar við gengum
til náða. Mér þótti maðurinn strax
afburða skemmtilegur viðræðu.
Hann var mjög sjálfstæður og
frumlegur í hugsun og svo heim-
spekilega þenkjandi að unun var á
að hlýða. Þegar ég segi að Sveinn
sé mikill heimspekingur ætti ég
ef til vill fremur að kalla hann
lífsspeking, til aðgreiningar frá
hinni steingeldu þrætubókarlist og
þeim rökfræðilega útúrsnúningi
sem einkennir svo mikið af heim-
spekilegii umræðu nú til dags.
Heimspeki og sálfræði eru nú orðn-
ar staðlaðar raungreinar þar sem
aldrei er minnst á. speki eða sál
og hef ég lítinn áhuga á slíkum
fræðum. Það er heldur ekki þannig
heimspeki sem Sveinn Einarsson
er fulltrúi fyrir heldur einkennist
hans lífsspeki af óseðjandi forvitni
um lífið og tilveruna í öllum sínum
margbreytilegu myndum. Hann er
óþreytandi að ræða hin óh'kustu
málefni og nálgast þau gjarnan á
ferskan og frumlegan hátt og er
einkar lagið að varpa nýju ljósi á
hefðbundin viðhorf og aðferðir.
Mér dettur oft í hug barnið í sög-
unni um Nýju fötin keisarans eftir
H.C. Andersen þegar ég hlusta á
Svein reifa ýmis mál. Hann segir
hlutina umbúðalaust og er lítið
gefinn fyrir sýndarmennsku og
látalæti. Sveinn er alltaf að endur-
skoða viðhorf sín til manna og
málefna. Hann er einn af fáum
mönnum sem ég hef kynnst sem
getur í raun og veru skipt um skoð-
un. En fyrst og fremst er Sveinn
einhver mesti samræðusnillingur
sem ég hef kynnst, hann er alltaf
jafn lifandi og einlægur í leit sinni
að lausn lífsgátunnar. Margra
ógleymanlegra stunda minnist ég
á heimili Sveins og Bjargar á Hall-
ormsstað. Hann situr við borð sitt
og tálgar og smíðar muni úr birki
og orðin falla eitt af öðru með
spónunum sem hrannast upp við
fætur okkar. Öðru hvora lítur hann
upp, strýkur smíðisgripinn og horf-
ir spyijandi, dreymnum augum út
í bláinn um stund og tekur síðan
upp þráðinn á ný.
Sveinn vitnar oft í spakmæli og
tilsvör í íslendingasögunum enda
drakk hann í sig hinn kjarnmikla
og safaríka mjöð þessarar frásagn-
arlistar nánast með móðurmjólk-
inni. Hann gjörþekkir svo heim og
sögusvið íslendingasagnanna og
hefir lifað sig svo inn í atburðarás
þeirra að ætla mætti að hann hafi
bókstaflega verið í hópi þeirra
manna sem þá riðu um héruð.
Ég hef oft verið sem bergnum-
HÖNNUDIR - HÚSBYGGJENDUR
HÚSEIGENDUR
Verslun
verður opnuð
mánudaginn 4. des. ’89
í Ármúla 16, Reykjavík.
Þar fer fram sala, kynning og ráðgjöf með
hinar þekktu lcopal-vörur frá
Jens Villadsens Fabriker í Danmörku.
Icopal-vörumerkið er einkum þekkt
hér á landi fyrir hinn hágæða asfaltpappa
á flöt þök sem og hallandi.
Einnig bjóðum við Decra stálskífuþök í 5 litum.
Vaflex-veggpappa og Thor 6 pappa
undir málmklæðningarþök.
Énnfremur kaldfljótandi asfalt, þ.e. grunnur,
þak- og sökkulasfalt og ál-litað asfalt.
Gerum föst verðbindandi tilboð
i hverskonar þakgerðir.
Verktakaþjónusta okkar hefur
yfir 20 ára reynslu hér á fandi.
Einkaumboð á Islandi:
Sigvaldi Jóhannsson & Co.
Ármúli 16 - Sími 91 -83030.
Telefax: 612350.
inn þegar Sveinn hefur lýst fyrir
mér sögupersónum og þáttum úr
lífi þeirra, þá stóðu þær mér ljóslif-
andi fyrir hugskotssjónum sem
aldrei fyrr.
Sumarið 1968 vildi þar.nig til
að við Sveinn unnum saman að
ákveðnu verkefni hjá Skógrækt
ríkisins á Hallormsstað. A öðrum
degi hafði Sveinn orð á því að ég
væri vart viðræðuhæfur vegna
þess að ég hefði ekki lesið Njálu
að neinu gagni. Sagði hann enn
fremur að ráða mætti bót á þessu.
Hann ætti í fórum sínum margles-
ið og handijallað eintak af þessari
bók sem læsi sig nánast sjálft og
bauðst hann til að lána mér það.
Ég þáði þetta kostaboð, las Njálu
af kostgæfni og alúð mér til mikill-
ar ánægju. Ræddum við svo sög-
una á daginn eftir því sem mér
sóttist lesturinn. Þetta er besta
bókmenntakennsla sem ég hef not-
ið um dagana og fijóasta og
skemmtilegustu bókmenntalegar
umræður sem ég hef tekið þátt í.
Við Sveinn ræddum töluvert trú-
mál og líf eftir dauðann hér á árum
áður. Vorum við ekki á eitt sáttir
í þeim efnum. Við gerðum þá
reyndar mjög hátíðlegan samning
með okkur sem fólst í því að sá
okkar sem fyrr yrði burt kallaður
úr jarðlífinu léti hinn vita hvernig
umhorfs væri hinum megin. Síðan
höfum við reyndar báðir skipt um
skoðun og trúum því að handan
móðunnar miklu sé heimur sem
okkur dauðlegum mönnum sé ekki
ætlað að vita svo mikið um fyri'
en þangað kemur.
Kímnigáfu hefur Sveinn til að
bera í ríkum mæli og hefur óspart
notað hana sér til upplyftingar og
eins til þess að milda ágjöf þá sem
allir verða óhjákvæmilega fyrir í
lífsins ólgusjó. Aldrei man ég til
þess að ég hafi heyrt Svein æðrast
yfir óhöppum eða sakast um orðinn
hlut en heyrt hef ég hann gera
óspart grín að því sem miður fer
hjá honum sjálfum og öðrum.
Oftar en einu sinni hef ég heyrt
það sagt um Svein að hann ýki
hlutina í frásögn eða hann segi
beinlínis skröksögur. Aldrei hef ég
orðið þess var hjá Sveini að hann
segði ekki satt og rétt frá. Hitt
er annað mál að hann setur oft
hlutina fram á nýstárlegan hátt
og skorar á hólm hefðbundin við-
horf og gamlar kreddur. Sumu
fólki finnst það óþægilegt að þurfa
að skoða hlutina frá mqi-gum hlið-
um og að þurfa að hugsa allt upp
á nýtt og verða svo ef til vill að
horfast í augu við að það hefur
vaðið í villu og svima allt sitt líf.
Þetta fólk snýst oft til varnar þeg-
ar það heyrir eitthvað óvenjulegt
og kallar það rugl, lygi eða þvætt-
ing.
Það er hins vegar bjargföst trú
mín að mannlífið yrði betra og
bjartara ef fleiri færu að dæmi
Sveins Einarssonar og hristu af
sér hlekki fordóma og hefðbund-
innar hugsunar og héldu á vit
sífellt nýrra hugsjóna og drauma.
Eysteinn Björnsson
í Kaupmannahöfn
FÆST
í BLAÐASÖLUNNI
ÁJÁRNBRAUTA-
STÖÐINNI,
KASTRUPFLUGVELLI
OGÁRÁÐHÚSTORGI