Morgunblaðið - 17.06.1986, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 17.06.1986, Blaðsíða 40
r fu !5l>rrw'r, »rr>- i-.'H/rrtm,* ,^n„ 40 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR17. JÚNÍ1986 Dúxarnir ©g framtíðaráform þeirra Margur nemandinn he£ur e£laust glaðst innilega í hjarta sínu núí vorá þvíaugnabliki erhvíta stúdents- hú£an varsett upp e£tir £jögurra ára námsharáttu í £ramhaldsskólum landsins. Stúdentshú£an eða öllu heldur stúden tsprófið er lykill að frekari og æðri menntun, t.d. íháskóla, ja£n£ramtþvísemprófið opnarstúdentum ýmsa möguleika. BlaðamaðurMorg- unblaðsins ræddi viðnokkra þeirra stúdenta erhlutu hæstar einkunnirá stúdentsprófi — öðru na£ni dúxa — ogspurðiþá m.a. um £ramtíðará£orm. Dúxar Fjölbrautaskólans í Ármúla. F.v. Guðrún Ragnarsdóttir, Sigrún Karlsdóttir og Björg Hauksdóttir. „Ekkert skárri en krakkarnir“ — segir Guðrún Ragnarsdóttir, Fjölbrautaskólanum í Ármúla „Það var mjög gaman að vera með unga fólkinu i skóla,“ sagði Guðrún Ragnarsdóttir, 38 ára gömul húsmóðir í Kópavogi, sem var ein þeirra þriggja stúlkna sem dúxuðu nýverið í Fjölbrauta- skólanum í Armúla. En Guðrún lét ekki staðar numið við það heldur fékk hún einnig viður- kenningu fyrir besta námsárang- ur í íslensku, dönsku og frönsku. „Ástæðan fyrir því að ég fór í dagskólanám en ekki í öldunga- deildina var sú, að eftir að ég var búin að kynna mér þessi mál til hlítar komst ég að þeirri niðurstöðu, að álagið á fjölskylduna yrði minna með þessum hætti. Krakkamir hafa verið mjög umburðarlyndir í minn garð, við höfum umgengist mjög mikið og ég hef síður en svo orðið var við að þau hafi litið mig hom- auga.“ Aðspurð sagðist hún alveg ör- ugglega ætla í háskólanám nú að stúdentsprófi loknu. „Annars hefði ég aldrei verið að þessu," sagði Guðrún. „Aftur á móti veit ég ekki ennþá hvað ég ætla að læra. Ég er ekkert skárri en krakkamir að því leyti. Hef áhuga á öllu og langar til þess að læra allt.“ Þess má að lokum geta að dóttir Guðrúnar verður einnig stúdent í vor frá Menntaskólanum á Akur- eyri. „Ætli ég taki mér ekki árs frí núna“ — segir Björg Hauksdóttir, Fjölbrautaskólanum í Ármúla „Ætli maður taki sér ekki árs frí núna,“ sagði Björg Hauks- dóttir, sem auk þess að fá verð- laun fyrir góðan heildamámsár- angur hlaut verðlaun fyrir góða frammistöðu í þýsku og við- skiptagreinum. „Manni veitir ekki af smá tima til þess að slappa af og safna kröftum áður en maður fer í háskólann. Auk þess er ég heldur ekki endanlega búin að gera upp hug minn um hva<* ég ætla að læra þar. Þó b..-ld ég að tölvufræðin sé líkleg- ust tíl þess að verða fyrir valinu eins og staðan er í dag. Ég hef þó nokkura áhuga á tölvum," sagði Björg. Björg vinnur í sumar í vinnslu- deild Búnaðarbankans, Austur- stræti, við skráningu. „Það getur vel verið að ég verði þar áfram í vetur, þetta er hlutur sem ég er ekkert farin að hugleiða alvarlega ennþá," sagði þessi tvítugi dúx úr Ármúlanum að lokum. „Kom mér þægilega á óvart“ — segir Sigrún Karlsdóttir, Fjölbraut, Ármúla „Þetta kom mér þægilega á óvart," sagði Sigrún Karlsdóttir, ein þeirra þriggja stúlkna sem hlaut verðlaun fyrir góðan náms- árangur í Fjölbrautaskólanum í Ármúla. Sigrún, sem er 18 ára Reykvíkingur, lauk námi sinu á náttúrufræðibraut skólans á ein- ungis 3 árum, sem eitt sér telst góður árangur. Sigrún, sem í sumar vinnur í útibúi Samvinnubankans á Suður- landsbraut, stefnir á verkfræðinám í háskólanum nú í haust. „Ég hef alltaf haft mestan áhuga á raun- greinum," sagði Sigrún, „efnafræð- ina er ég þó búin að útiloka og verkfræðin er líklegri valkostur en stærðfræðin. Þetta er ekkert sem maður hefur stefnt að allan náms- tímann heldur ákvörðun sem ég er tiltölulega nýbúin að taka.“ Það er engan kvíða að fínna hjá þessum unga dúxi frammi fyrir háskólanum, þrátt fyrir hrakspár kennara í ýmsum deildum hans um ónógan undirbúning nemenda er þar innritast. „Mér finnst gaman í námi. Þetta er líka hlutur sem maður verður bara að líta á sem hverja aðra vinnu og leggja hart að sér í. Þá gengur dæmið upp,“ sagði Sigrún. „Ætla að þjálfa mi g í þýskunni“ — segir Bjarni Jónsson dúx Fjölbrautaskólans á Akranesi Akranesi. „Ég er á förum til Þýskalands og ætla að fá þjálfun í þýskunni. Ég verð til að byija með til ágúst- loka, en hugmyndin er að hefja þar síðan nám í túlkunum og þýðingum en ég hef ekki fengið endanlegt svar við því hvort ég kemst í það í haust,“ sagði Bjarni Jónsson, 20 ára gamall Akuraes- ingur, sem varð dúx við mála- deild Fjölbrautaskólans á Akra- nesi nú á vorönn. Bjami sagðist vera í sjöunda himni yfir árangrinum. „Þetta kom mér ekki svo inikið á óvart, nema ef vera kynni vegna þess að það hefur ekki alltaf verið tilkynnt hver væri dúx í skólanum. Mér finnst það liggja beinast við að halda áfram námi, ég hef hug á því. Fari svo að ég komist ekki að í Þýska- landi, en í skólanum sem ég hef í huga er afar takmarkaður aðgang- ur, kem ég heim í haust og þá fæ ég mér vinnu fyrst um sinn. Eg hef hug á að prófa sjómennsku, sjá til hvort mér fellur hún. Bjami var spurður um áhugamál hans. „Þau em mörg og margvísleg. Ég er mikið fyrir tónlist og bókmenntir. Ég hef starfað í hljómsveit um nokkurt skeið. Ég mun taka mér frí frá henni meðan ég fer utan en alls ekki hætta. Þá hef ég gaman af að skrifa þó ekkert hafí verið birt eftir mig enn, vonandi tekst mér þó að koma einhveiju frá mér meðtímanum." Við spurðum Bjama að lokum hvort möguleikar ungs fólks á Akranesi væru góðir? Fyrir fólk á mínum aldri sem stefnir að frekara námi er ekki björt framtíð á Akra- Bjarai Jónsson. Þessi tvítugi Akuraesingur varð dúx Fjöl- brautaskóla Akraness. nesi. Það verður maður að sækja annars staðar. En fyrir þá sem fara á vinnumarkaðinn og stofna heimili er Akranes ákjósanlegur staður. Bærinn er í mikilli þróun og atvinna næg. Ég held að aldurinn frá 20-25 ára séu daufustu árin fyrir þá Akumesinga sem vilja fara í fram- haldsnám, því þeir verða að fara frá heimabænum til þess.“ Þannig að þú kemur til með að festa rætur á Akranesi að loknu námi? „Já örugglega. Ég held það sé mjög erfitt að slíta sig frá Akra- nesi,“ sagði Bjami Jónsson að lok- um. JG. Brynja Guðmundsdóttir, dúx úr Fjölbrautaskólanum í Garðabæ. „Ætla að verða löggiltur endurskoðandi“ — segir Brynja Guðmundsdóttir, Fjölbrautaskólanum í Garðabæ „Þetta hafa verið mjög skemmtileg ár og maður á eflaust eftir að sakna þeirra síð- ar meir þó maður sé feginn að vera búinn þessa stundina," sagði Brynja Guðmundsdóttir sem fékk verðlaun fyrir besta náms- árangur og besta árangur í bók- færslu í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ. Brynja, sem er 19 ára, brautskráðist af viðskiptabraut, en þvi námi lauk hún á aðeins þremur árum. í haust er svo stefnt á viðskipta- fræðinám I háskólanum. „Ég stefni að því að verða löggiltur endurskoð- andi,“ sagði Brynja. „En áður en alvaran byijar í háskólanum fer ég ásamt nokkrum krökkum úr Fjöl- brautaskólanum til Þýskalands í eina viku. Við ætlum að fara þangað til þess að læra þýsku." Eins og stendur vinnur Brynja hjá Gunnari Ásgeirssyni við út- keyrslu. „Það er alltaf gaman að prófa eitthvað nýtt,“ sagði Brynja. Annars eru helstu áhugamál henn- ar, fyrir utan bókhaldið, íþróttir. „Aðallega fótbolti, en hann æfí ég með Haukum," sagði hún að lokum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.