Morgunblaðið - 17.06.1986, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 17.06.1986, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIDJUDAGUR17. JÚNÍ1986 Fylkiskosningarnar í Neðra Saxlandi: Kristilegir demó- kratar töpuðu fylgi Bonn, Vestur-Þýskalandi, AP. SÓSÍAL demókratar fögnuðu í gær úrslitum í fylkiskosningunum í Neðra-Saxlandi og sögðust vera ánægðir með ávinning flokksins í kosningunum, þrátt fyrir að ekki hefði tekist að fella meirihluta Kristilegra demókrata þar, en þeir ásamt Frjálsum demókrötum hafa eins þingsætis meirihluta á fylkis- þinginu. Ernst Albrecht, fylkis- stjóri i Neðra-Saxlandi, mun þvi áfram gegna þvi embætti, en nú með tilstyrk Frjálsra demókrata. Flokkur Kristilegra demókrata tapaði rúmum 6% atkvæða frá síð- Erlendur Patursson látinn ERLENDUR Patursson, lög- þingsmaður i Færeyjum, lézt á heimili sinu í Kirkjubæ i gær. Hann var á 73. aldursári. Erlendur lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík og talaði íslenzku reiprennandi. Hann var lögþingsmaður fyrir Þjóðveldisflokkinn á árunum 1954—66 og frá 1970. Hann var fulltrúi á þingi Norðurlandaráðs 1970—74 og frá 1980 og átti sæti í menningarmálanefnd ráðs- ins. ustu kosningum árið 1982, er hann hlaut 50,7% atkvæða og hreinan meirihluta. Nú fékk flokkurinn 44,3% atkvæða og sósíal demókratar 42,1%. Frjálsir demókratar fengu 6% at- kvæða og flokkur Græningja 7,1%. Kjörsókn var 77,4%, en á kjörskrá voru 5,6 milljónir manna. Fylkiskosningamar eru taldar gefa mikilvæga vísbendingu um gengi flokka, en kosningar til Sambands- þingsins verða í janúar á næsta ári. Johannes Rau, kanslaraefni sósíal demókrata, sagði að niðurstaða kosn- inganna gæfi sósíal demókrötum byr undir báða vængi í kosningabarátt- unni. Helmut Kohl, kanslari, sagði hins vegar að flokkurinn hefði náð því markmiði sínu að halda áfram um valdataumana í Neðra-Saxlandi og að úrslitin sýndu að sósíal demó- kratar væru ófærir um að ná völdun- um frá kristilegum demókrötum. Hann sagði úrslitin sigur fyrir sam- steypustjóm kristilegra- og ftjálsra demókrata og stefnu hennar og sagð- ist vera bjartsýnn á niðurstöðu kosn- inganna til sambandsþingsins í jan- úar. Kjamorkuslysið í Chemobyl hefur haft talsverð áhrif á stjómmál í Vestur-Þýskalandi og andstæðingum kjamorku þar í landi hefur vaxið fiskur um hrygg. Ríkisstjómin hefur legið undir harðri gagnrýni vegna stefnu sinnar í kjamorkumálum, en Kohl sagði í gær að hann teldi að stjómin væri komin yfir það versta hvað það snerti nú. Kohl hefur átt undir högg að sækja undanfama mánuði og vinsældir hans meðal kjósenda eru miklu minni en leiðtoga sósíal demókrata, Johannes Rau. I skoðanakönnunum að undan- fömu hefur Rau iðulega verið vinsæl- astur stjómmálamanna, en Kohl í sjötta og sjöunda sæti. ERLENT Samstöðumenn sak- aðir um landráð Varsjá, AP. Innanríkisráðherra Póllands hefur sagt, að Samstöðu-leið- togar , sem fara huldu höfði hafi þegið fé af bandarísku leyni- þjónustunni fyrir ýmsar leynileg- ar upplýsingar, þám. um hermál. Hu Yaobang heim- sækir V-Þýska- land og Frakkland MÚnchen, París, AP. Hu Yaobang, aðalritari kin- verska kommúnistaflokksins, kom í gær til Frakklands frá V-Þýzkalandi, þar sem hann ræddi m. a. við Helmut Kohl, kanslara, og Willy Brandt, leið- toga sósíal-demókrata. Hu ræddi við Francois Mitterand, forseta, í Elysée-höll. Samskipti Frakklands og Kína hafa yfirleitt verið góð. Frakkland var fyrsta vestræna ríkið til þess að skipa þar sendiherra, en það var árið 1964. Einnig hafa ríkin haft sömu stefnu í mörgum alþjóðamálum og ber málefni Afganistan þar hæst. í dag mun Hu hitta Chirac en á fimmtudag mun hann svo hitta Georges Marchais, formann franska kommúnistaflokksins, en síðdegis þann dag heldur hann til Rómaborgar. Ráðherrann, Czeslav Kiszczak, sagði pólska leyniþjónustumenn hafa komið sér vel fyrir í neðanjarð- arhreyfíngu Samstöðu, sem væri nú í andarslitrunum. Yfirlýsingar ráðherrans komu fram í viðtali, sem birtist f flestum stórblöðum lands- ins. Yfirvöld hafa mjög hert áróður- inn gegn Samstöðu eftir að Zbigni- ew Bujak, einn af leiðtogum verka- lýðssamtakanna, var handtekinn 31. maí síðastliðinn. Valinn hefur verið eftirmaður Bujaks og heitir sá Viktor Kulerski, fimmtugur fyrr- verandi kennari frá Varsjá. í bréfi, sem Bujak sendi konu sinni úr fangelsinu, kemur fram, að honum líði vel eftir atvikum og hafi ekki verið misþyrmt. Hann gerir ráð fyrir, að fangavistin verði löng og vonast til að geta notað tímann til að mennta sig. í pólsku vikuriti er sagt frá handtöku Bujaks og sagt, að honum hafi verið komið gjörsamlega á óvart. f fbúð hans hafi fundist gögn, sem sýndu, að hann hefði verið orðinn sífellt háðari fé frá erlendum aðilum. Er lögreglumennirnir spurðu Bujak, hvort hann væri „Zbigniew Bujak, leiðtogi neðanjarðarhreyf- ingar Samstöðu", svaraði hann háðslega, að þeir yrðu sjálfir að sanna það. AP/Símamynd Franz Vrantizky, hinn nýi kanslari Austurrikis lengst til vinstri ásamt, Rudolf Kirchschláger, fráfarandi forseta, fráfarandi kanslara Fred Sinowatz og fráfarandi utanríkisráðherra Leopold Gratz, er hinn nýja ríkisstjóm Austurríkis vann trúnaðareiða. Austurríki: Ný ríkisstjórn sver trúnaðareið Vínarborg;, AP. NÝ ríkisstjórn Sósíaldemó- krataflokksins vann trúnaðar- eið í gær í kjölfar ósigurs fram- bjóðanda flokksins í forseta- kosningunum fyrr í mánuðin- um. Kurt Waldheim, fyrrum aðalritari Sameinuðu þjóðanna, naut stuðn- ings Þjóðarflokksins, sem er í stjómarandstöðu og sigraði í for- setakosningunum, hlaut tæp 54% atkvæða, en Kurt Steyrer, fram- bjóðandi stjómarflokksins laut í lægra haldi. Fred Sinowatz, kanslari Austur- ríkis, sagði af sér eftir að úrslit lágu fyrir og tilnefndi sem eftirmann sinn Franz Vranitzky, fjármálaráð- herra. Talsverð uppstokkun varð í ríkisstjóminni. Þannig tók við embætti utanríkisráðherra Peter Jankoitsch, fymirn sendiherra Austurríkis hjá Sameinuðu þjóðun- um. Erich Schmidth tók við emb- ætti landbúnaðarráðherra af Gunt- her Haiden og Ferdinand Lacina tók við embætti fjármálaráðherra. Hann fór áður með málefni þjóð- nýttra fyrirtækja. í ríkisstjóm Austurríkis em 15 ráðherrar og héldu aðrir ráðherrar embættum sínum. Þeir sóru þá allir fráfarandi forseta, Rudolf Krichsc- hláger, trúnaðareiða. Margir stuðn- ingsmanna Waldheims hafa gagn- rýnt þessa uppstokkun á ríkisstjóm- inni nú og segja að hún jafngildi lítilsvirðingu við Waldheim, sem tekur við embætti forseta 8. júlí næstkomandi. Beita á hernum gegn síkkum — segir Janate-flokkurinn á Indlandi Nýju Delhf, AP. RUMLEGA 12.000 hindúar söfnuðust saman í trássi við bann lög- regiu á mánudag í Nýju Delhí, tíl þess að leggja áherslu á kröfur um að indverska hemum verði beitt gegn hryðjuverkamönnum síkka í Punjab-héraði. Lögreglan sagði að mótmælin hefðu farið friðsamlega fram í steikjandi hita og hefðu um 12.000 manns verið handteknir, fyrir að virða ekki bannið við fundahöldum. Hefði fólkið verið flutt á íþróttaleik- vang, því gefíð að borða og síðan sleppt. Undanfama 11 daga hafa slík mótmæli farið fram og hafa þau verið í anda sjálfstæðishetju Indveija, Mahatma Gandhi, er hvatti samlanda sína til þess að beijast fyrir málefnum án þess að beita ofbeldi eða sýna mótþróa þegar handtaka ætti þá. Hinn hægri sinnaði, Bharatiya Janata-flokkur, sem er í stjómarandstöðu hefur staðið fyrrir mótmælunum. Krefst hann þess að Rajiv Gandhi, forsæt- isráðherra sendi, indverska herinn til Punjab þar sem hryðjuverka- menn síkka hafa drepið rúmlega 400 manns, aðallega hindúa, frá áramótum. síkkar krefjast þess að fá að stofna sjálfstætt ríki. Nýtt rít frá Jane’s: Sovétmenn tíu árum á undan Bandaríkjamönnum á sviði geimvísinda London, AP. í NÝÚTKOMINNI bók, Jane’s Space Fligfht Directory, segir ritstjórinn, Reginald Turnill, að Sovétríkin hafi náð tíu ára f orskoti á Bandaríkin á sviði geimvísinda. Tumill segir að NASA hafi ekki lagt nægilega rækt við vissa þætti geimflugs, en mestu valdi þó að engin varaáætlun hafí verið til þegar hvert óhappið hafi rekið annað. Nú bíði fjöldi gervihnatta á jörðu niðri og hafa vamarhagsmun- ir Bandaríkjanna og bandamanna þeirra beðið mikið tjón af þeim sökum. Sovétmenn hafa aflað sér mun meiri reynslu í geimnum, en sem dæmi nefndi Tumill það, að sovésk- ir geimfarar hafa verið meira en 4.000 daga í geimnum, en banda- rískir aðeins 1.587. Þó er verra, að bandaríkjamenn hafa litla reynslu af langri dvöl í geimnum. Þrátt fyrir að NASA hafí sýnt stórkost- lega tæknilega yfirburði, t.d. með geimferðum til annarra reiki- stjama, er hin gamla hugmjmd um
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.