Morgunblaðið - 17.06.1986, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 17.06.1986, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR17. JÚNÍ1986 Að Borges látnum: „Heimurinn hefur misst snilling- — við erum snauðari eftir ... „HEIMURINN hefur misst snillmg og við erum snauðari að honum látnum" sagði i fyrirsögn forystugreinar argentinska blaðsins Diario Popular i Buenos Aires vegna fráfalls argentínska skáldsins Jose Luis Borges, sem lést í Genf sl. laugardag. Borges hefur verið minnzt víða um heim og skáld og stjómmálamenn lofað lífsstarf hans og þann mikla skerf sem hann lagði til bókmennta fyrr og siðar. Alfonsin forseti Argentinu sagði að á þessum sorgardegi væri ástæða til að minnast meðvirðingu þeirra ómentanlegu verð- mæta sem Borges hefði látið eftir sig. „Hann var hafinn yfir allar stefnur, hann var einfari og hélt sig víðs fjarri öllu pólitisku þrasi“ sagði Jean D’Ormesson, rithöfundur og meðlimur frönsku akademi- unnar. Hann afhenti Borges verðiaun akademíunnar fyrir sjö árum. „Kannski var þetta — að hann fylgdi ekki neinum tizkustefnum — ein af ástæðum fyrir því að hann hlaut aldrei Nóbelsverðlaunin. Hann var torskilinn og ójarðbundinn, orti ljóð sem einkenndust af djörfu og frumlegu myndmáli. Hann var yfir aðra hafinn. Og þvi sem Nóbelsnefndin velur til verð- féll hann ekki inn i þann flokk launa“ sgði D’Ormesson. Jose Luis Borges fæddist í Buen- os Aires þann 24. ágúst 1899. Faðir hans var stjómarerindreki og flutt- ist til Genf með fjölskyldu sína árið- 1914. Þar bjó Borges í nokkur ár, en hélt síðan til Spánar og tók höndum saman við framúrstefnu skáld Spánar á þeim árum. Hann flutti á ný til Buenos Aires þegar hann var tuttugu og tveggja ára og bjó þar lengst langrar ævi. Hann sendi frá sér ljóðabækur, ritgerða- söfn og smásögur. Hann sagði alla tíð að hann hefði andúð á því að fá á sig einhvem pólitískan stimpil og kailaði sig stundum, íhaldsmann, stjómleysingja og guðleysingja. Hann var opinber andstæðingur Perons á þeim árum sem hann ríkti í Argentínu þegar Peron komst til valda í fyrra skiptið árið 1946 var eitt af fyrstu verkum hans að færa Borges úr starfi yfírborgarbóka- varðar Buenos Aires; og skipaði hann eftirlitsmann með kjúklinga og kanínumarkaði borgarinnar. Borges afþakkaði starfíð. Borges hafði verið blindur frá árinu 1956. Hann var tvíkvæntur og gekk að eiga síðari konu sína maríu Kodama, sem er 41 árs fyrir nokkmm mánuðum. Hann veiktist af krabbameini í lifur fyrir um það bil hálfu ári. Hannákvað að flytjast til Genfar en þaðan kvaðst hann eiga góðar minningar frá unglings- ámnum. Hann sagðist ekki óttast dauðann og bætti við: „Ég mæti dauðanum með þá einu von að þá sé allt um garð gengið. Að líkami mitt og sál fylgist að. Ég vil ekki lifa við þá ógnun að sálin sé ódauð- leg.“ Ahrif Jose Luis Borges á spænskuskrifandi höfunda em óumdeilanleg. Hann skrifaði knapp- an, hnitmiðaðan stíl og bækur hans vom þýddar á mörg tungumál. Menntafrömuðir líktu honum einatt við Franz Kafka og Edgar Allan Poe. Hann vann til margra viður- kenninga á lífsleiðinni, en sjálfur sagði hann á efri ámm, að hann væri óánægður með flest það sem hann hefði látið frá sér fara og tjáði þá skoðun sína að spænskuskrifandi höfundar ættu ekki sjö dagana sæla þar sem enska væri langtum ljóðrænna tungumál. Meðal þeirra verka Borges sem hvað þekktust urðu í ensku mælandi heimi má nefna „Labyrinths," „Ot- her inquisitons" og „The Book of Sands“. Fyrsta bók hans kom út þegar hann var rösklega hálffertugur, „Historia universal de la Infamia". AIls sendi Borges frá sér 35 verk. Framan af ævi skrifaði hann eink- um ljóð, en sneri sér síðan í auknum mæli að ritgerðasmíð og smásög- um, þegar hann varð 85 ára sagði hann í viðtali við blaðamann að hann nyti lífsins æ meira með aldr- inum. „Þegar ég var ungur var ég sýknt og heilagt að stríða við að vera óhamingjusamur. Að leika Hamlet. Eða Byron. Enauðvitað var eintóm vitleysa." Jose Luis Borges verður jarðsett- ur á miðvikudag í Genf. „Ég lærði sparsemi með orð af íslenskum fombókmenntum". Jose Luis Borges var gestur á íslandi í apríl 1971. Hann var vel að sér í Islendingasögum og dró enga dul á að lestur þeirra hefði haft djúpstæð áhrif á sinn eigin skáldskap. í samtali sem Matthías Johannesen ritstjóri átti við Borges í íslandsverunni sagði Borges að sig hefði alla tíð dreymt um að koma til íslands og hann lýsti fyrstu kynnum sínum af íslenzkum fom- bókmenntum: „Faðir minn átti ág- ætt bókasafn. Ég fékk leyfí til að skoða það. Þar komst ég yfír þýð- ingar William Morris og Eiríks Magnússonar á Völsungasögu. Ég varð mjög hrifinn af að lesa hana.. . þegar ég löngu síðar stundaði nám í genf ... kynntist ég endursögn á Noregskonunga- sögum." Síðar segir Þorgeir: „Þessi kjmni leiddu hugann að fomum ís- lenskum skáldskap. Ég tók þegar ástfóstri við Heimskringlu, Eddum- ar og Grettissögu. að vísu hef ég alltaf átt fremur erfitt með að skilja Eddukvæðin, en þeim mun auðveld- ara er að komast að lq'ama Snorra Eddu. Hún er rituð á yndislegu máli og einföldu. Ég hef haft gaman af fyndni Snorra, t.a.m. þegar hann lýsir því hvemig kjafturinn á Fem- isúlfí nær heimsskauta á milli," Síðar í samtali er Borges spurður hvað hann hafí einkum lært af ís- lenskum fombókmenntum og hann svarar: „Sparsemi. Allir sem skrifa á spænsku hafa tilhneigingu til að teygja úr stílnum. Cervantes er sagður hafa verið raunsæishöfund- ur. En sögupersónur hans tala aldr- ei saman. Þær halda alltaf ræðu. Snorri Sturluson er stórkostlegt leikritaskáld sem uppi hefur verið. Leikritaskáld leikhúss. Shakespeare er alltof langorður. .. .Snorri hefði lagt Hamlet betri lokasetningar í munn en Shakespeare. Sögumar kenndu mér að nota eins fá orð og unnt er. Cervantes hefði aldrei í lýsingu á Einari þambarskelfi eins og: að skjóta Noreg úr hendi þér. Þegar ég las þetta fyrst, grét ég.“ (Samantekt: J.K) Allt í eitt hús — eða næstum því... í einu föstu tilboði! Eldhúsinnréttingar Klæðningar______________ Loftplötur — Milliveggir Handrið — Stigar________ Fataskápar — Sérsmíði Líbýa: Afhending líkams- leifa háð skilyrðum? Trípóli. London, AP. STJÓRNVÖLD i Líbýu virðast tilbúin tíl að afhenda lík annars bandaríska flugmannsins er fórst í árás Bandaríkjamanna á landið 15. apríl sl. ef þau fá í staðinn peninga eða Bandaríkja- stjórn geri einhveijar tilslakanir gagnvart Libýu. Vestrænir sendiráðsstarfsmenn sem ekki vilja láta nafna sinna getið, sögðu sl. sunnudag að undan- fama 10 daga hefðu samningavið- ræður farið fram milli líbýskra stjómvalda og belgískra sendiráðs- manna sem gæta hagsmuna Banda- rílqamanna í landinu. Talsmaður belgíska sendiráðsins vildi ekkert um málið segja. í síðasta mánuði sagði bandaríska vamarmálaráðu- neytið að enn væri beðið viðbragða Líbýustjómar við tilmælum um að líkamsleifum flugmannsins yrði skilað. Áður hafði komið fram að tveir flugmenn fórust í árásinni er Reagan forseti fyrirskipaði vegna meints stuðnings Gadhafí Líbýu- leiðtoga við hryðjuverkamenn víða um heim. Hin opinbera fréttastofa, Jana, skýrði frá því sl. sunnudag að flaki bandarískrar sprengjuvélar, af gerðinni F-lll, hefði skolað á land í Líbýu. Gadhafí er sagður veikur og vangaveltur em uppi um að verið sé að reyna að velta honum úr sessi. Breska blaðið, The Sunday Times, segir að hann hafi ekki mætt til að halda ræðu á fundi í Típólí sl. miðvikudag og í upptöku er sýnd var í sjónvarpinu hafí hann litið illa út og virst viðutan. Því hefur verið haldið fram að Gadhafi þjáist af þunglyndi. Blaðið hefur einnig eftir vestrænum sendiráðs- mönnum, að stuðningsmannahópur leiðtogans sé að reyna að fá hann til að láta af þeim miklu völdum sem hann hefur haft síðan hann hrakti Idris konung frá, árið 1969. Líklegt sé að hann verði þó áfrajn leiðtogi að nafninu til. Innihurðir — Gtihurðir Baðherbergi INNRÉTTINGA BtÍÐIN ÁRMÚLA17A - ® 84585 & 84461 Voru fíkniefni banaorsökin? OLIVfA Channon, 22 ára gömul dóttir Pauls Channon, viðskipta- og iðnaðarmálaráðherra Bret- Iands, fannst látin á miðvikudag í herbergi sinu við háskólann í Oxford. Gerðist þetta eftir sam- kvæmi, sem hún og vinir hennar höfðu haldið eftir að prófum var lokið í lok námsannar. Grunur leikur á, að Olivía Chann- ön hafí látizt af völdum fíkniefna- neyzlu. Tveir vinir hennar, Sebast- ian Guinness, erfíngi að auðæfum Guinness-ættarinnar, og Rose Johnston, herbergisfélagi Olivíu, eru grunuð um að hafa látið henniN í té fíkniefni. Olivía Channon
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.