Morgunblaðið - 18.07.1984, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. JÚLÍ 1984
57
fólk í
fréttum
Enginn dans
á rósum hjá
Stephanie
+ Stephanie, prinsessa af Mónakó, er
orðin 19 ára gömul en þó finnst ýmsum
vanta dálítið upp á virðuleikann, sem
ætti aö prýða unga og fallega konu af
háum stigum. Ástæðan er sú, aö hún
nagar stöðugt á sér neglurnar nema
þegar hún er að sjúga þumalfingurinn.
Stephanie er sögö bæöi taugaveikluð
og mislynd og oftar en ekki vaknar hún
upp á nóttunni viö martraöarkennda
drauma. Þaö, sem veldur öllum þessum
hremmingum, er þaö, aö nú er víst úti um
ástarævintýrið hennar og Paul Bel-
mondo, sonar leikarans fræga. Kunningj-
ar Stephanie segja, að Paul hafi verið
henni allt, bæöi elskhugi og móöir, og
nú, þegar hann sé farinn, hafi hún engan,
sem hún geti hallaö sér aö.
Sannleikurinn
er sagna bestur
+ Andrew Ridgeley, annar helmingurinn í
poppdúóinu Wham, fór heldur óskynsam-
lega að ráði sínu nú um daginn. Þegar hann
birtist allt í einu plástraður í framan þá
sagöi hann þá sögu, að hann heföi verið í
veislu og verið svo óheppinn að fá fötu
framan í sig. Þess vegna hefði orðiö aö
gera að nefinu hans. Sannleikurinn er þó
sá, að hann lét fegrunarsérfræðing breyta
á sér nefinu af því að honum þótti það ekki
nógu fallegt. Nú þykir sumum aðdáenda
hans hann hafa brugöist þeim, bæöi með
því að vera svona hégómagjarn aö láta
breyta nefinu, sem enginn haföi séð neitt
athugavert viö, og svo meö því að Ijúga til
um allt saman.
COSPER
— Ég heyrði greinilega kossahljóð héðan úr eldhúsinu.
Feguróar-
drottning
ísraels
gengurí
herinn
+ ísraelar eru harðskeyttir her-
menn eins og kunnugt er og hér
kemur mynd af einni valkyrj-
unni, sem heitir Dorit Kaddosh
og er 19 ára gömul. Dorit var
feguröardrottning í ísrael i fyrra
en nú er hún sem sagt í hernum
og kann áreiðanlega tökin á
þeim, sem vilja eitthvað upp á
dekk.
VINNAN
SÍÐUMÚLA 29 - SÍMI34411
W terkur og
kJ hagkvæmur
auglýsingamiðill!
JNforatitöliifrto