Morgunblaðið - 03.03.1984, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 03.03.1984, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. MARS 1984 45 Um útvarpsþáttinn „Nýjustu fréttir af Njálu“: Hvers vegna er ritsafns Einars Pálssonar að engu getið þar? Kæri Velvakandi. Óskiljanlegt er, hversvegna þátturinn ber þetta heiti, því að þar hefur ekki örlað á neinu því, sem nýtt getur talizt varðandi Njálu, öðru nær. Þátturinn kemur hvergi nærri því efni, sem nafn hans boðar og gefur fyrirheit um, og stendur hann þarafleiðandi ekki undir nafni. Ef umsjónarmanni þáttarins er annt um að fræða hlustendur um nýjustu fréttir af Njálu, ætti hann að kynna sér ritsafn Einars Páls- sonar, Rætur íslenzkrar menning- ar, og skýra frá því efni, sem þar er að finna. Af nógu er að taka. Þar eru í raun nýjustu fréttir af Njálu, sem um er vitað. Þetta ætti Einar Karl Haraldsson að athuga, ef vera kynni að hann hafi ekki heyrt þessa ritsafns Einars Páls- sonar getið. Jón A. Stefánsson Einar Pálsson. Bréfritari telur skjóta skökku við að ekki sé fjallað um ritverk Einars „Rætur íslenzkrar menningar" í þættinum „Nýjustu fréttir af Njálu“. Duran Duran á Listahátíö - og tónleikunum verði sjónvarpað Kæri Velvakandi! „Við viljum gjarnan koma þeirri ósk okkar á framfæri að Þátturinn Listapopp verdi lengdur Tvær „bálreiðar“ skrifa: „Okkur finnst ansi hart að út- varpsþátturinn „Listalíf", sem er á laugardögum, skuli fá 70 mínút- ur en „Listapopp" bara 50 mínút- ur. Það ætti að sjálfsögðu að breyta þessu því stundum verður Gunnar í „Listapoppi" að sleppa sumum lögum sökum tímaskorts, og sum lög eru bara spiluð að hálfu eða ekki það. Okkur finnst að það ætti að gera meira fyrir unglinga í útvarpsdagskránni. Og þó að þátturinn verði ekki lengdur um meira en 10 mínútur, svo 60 mínútur væru fyrir hvorn þáttinn, væri það strax til bóta. Erum við vissar um að flestir unglingar eru sammála þessu.“ hljómsveitin Duran Duran verði fengin á Listahátíð ’84. Duran Duran er tvímælalaust betri en Dire Straits og Culture Club og erum við eiginlega alveg vissar um að aðsókn á hljómleika myndi verða miklu meiri hjá Duran Duran en hinum tveim síðarnefndu. Við vonum að hljómsveitin verði fengin hingað. Og hvernig væri að sjónvarpa frá hljómleikunum fyrir þá unglinga sem búa úti á landi og hafa ekki efni á því að fara suð- ur? 5 stelpur úti á landi.“ „Nýjustu fréttir af Njálu" — Svo nefnist þáttur, sem Ríkisút- varpið hefur flutt hlustendum sín- um á laugardögum í vetur, um- sjónarmaður Einar Karl Haralds- son. Svör við spurningum Hjartar Til Velvakanda. Kæri Hjörtur. Þegar ég las bréf þitt í Velvakanda þ. 10 febrúar sl. datt mér strax í hug að þarna færi einn af mörgum, sem hefði lært kristin fræði í barnaskóla, verið fermd en síðan ekki söguna meir. Nú, svo hefðu árin liðið og einhver áhugi vaknað fyrir trú, Biblían gripin og lesin að einhverju marki í þeirri trú að sjálfsnámið eitt dygði. Nú, mér kann að skjátlast, ég veit ekki á hvaða aldri þú ert né af hvaða hvötum þú fórst að lesa Biblíuna. En þetta er fræðilegur möguleiki og ætla ég því að byggja svar mitt á honum. Hefðir þú ætlað að læra á hljóðfæri eða kynna þér sálar- fræði, hefðir þú leitað til kennara og farið í tíma. Þannig er því einn- ig varið með trúna, hún krefst leiðbeiningar og ástundunar. Kristur fól postulum sínum hlut- verk kennaranna en þeir eru jafn- framt fyrstu prestar kristninnar. Hann sagði ennfremur: „Og sjá, ég mun vera með yður allt til enda veraldar." Þetta þýddi ekki að þeir ættu ekki eftir að gera mistök, heldur ætlaði Kristur að leiðbeina þeim og leiðrétta ef þeim yrði á í messunni (sbr. slæmir páfar og biskupar miðalda og aftur á móti heilagur Franz frá Assisi o.fl. sem Kristur fól að endurbæta kirkju sína). Þú byrjar á Gamla testament- inu og reynir að sýna framá mis- kunnarleysi Guðs. Það skal játað að G.T. er erfitt aflestrar sökum málsins á því. En þú verður að athuga að Gamla testament’^ verður að lesast í samhengi við Nýja testamentið, sem er uppfyll- ing á því gamla. Við skulum vona að Guð hafi vitað hvað hann var að gera þegar hann leiðrétti skref fyrir skref grimmt og siðspilt framferði og skoðanir lýðs síns. Þegar öllu er á botninn hvolft er þetta hans eigið sköpunarverk. Hann þekkir það sjálfsagt betur en nokkur annar. Hann hafði einnig takmark í huga fyrir mannkynið og frelsun þess, þ.e. Jesús Krist. Hann gaf okkur Jes- úm, sinn einkason (en Hann og Faðirinn eru eitt í einingu Heilags anda). Þú hlýtur að koma auga á gæsku hans þar. Jú, Hann var drepinn eins og ótíndur glæpamaður, og það var vitað fyrirfram, en samt gerði nú Guð þetta fyrir okkur til að vísa okkur veginn. Hann er sem sagt ekki að gera tilraun með lagerinn sinn, hver plumi sig og hver ekki. Hann gaf okkur nefnilega frjálsan vilja. Það er okkar að kynna okkur málin. Við verðum að hlusta á Guð, ekki bara Hann á okkur. Og við fáum svör ef við biðjum, — allir, ekki bara fáeinir útvaldir, sem eru í náðinni hjá Guði. Með Kristi kom líka fyrirgefningin. Hana fá allir sem iðrast. Þú minntist á Helvíti. Nú, ég get frætt þíg á því að þangað fer eng- inn nema hann vilji ekki fá inni í Himnaríki hjá Guði. Sá dæmir sig sjálfur til hins neðra. Constantín- us, sem lögleiddi kristna trú í Róm, var heiðingi, sem snerist til kristinnar trúar. Hvað viðvíkur þýðingum á Biblíunni á fyrstu öld- um kristninnar og þá var vandað mjög til þess verks. Á tímum fyrstu kirkjuþingana var Biblí- unni dreift um allan hinn sið- menntaða heim. Ef upp komst um mistök í þýðingu voru þau strax leiðrétt. Engu hefur verið breytt, en sífellt hefur verið leitast við að færa þýðingarnar sem næst frum- textanum. Að lokum vil ég skora á þig að kynna þér málin betur. Ég er viss um að sóknarpresturinn þinn tæki þér tveim höndum. Hann er kannski með Biblíuleshóp sem þú gætir tekið þátt í. Ef þú villt kynna þér kaþólska trú, bendi ég hér með á tvo sér- fræðinga í Biblíunni; biskupinn okkar Dr. Hinrik Frehen og föður Terstroet í Garðabæ. Aðrar upp- lýsingar færðu á prestssetrinu að Hávallagötu, þar sem m.a. eru tveir íslenskir prestar. Mig langar að lokum til að ljúka þessu spjalli á nokkrum línum úr spádómsbók Jesaja; 55 kafla; 8,9 versi, sem hljóðar svo: „Já, mínar hugsanir eru ekki yðar hugsanir, og yðar vegir ekki mínir vegir — segir Drottinn. Heldur svo miklu sem himininn er hærri jörðu, svo miklu hærri eru mínir vegir yðar vegum og mínar hugsanir yðar hugsunum." Kaþólikki. NOTAÐU FRÍDAGINN TIL AÐ SKOÐA ÚRVALIÐ OKKAR HAGSYNN VELUR ÞAÐ BESTA Byrjum bolluhelgina í dag laugardag, höldum áfram sunnudag og mánudag. Urval af Ijúffengum heimabökuðum rjómabollum. Mœtið með börnin og betri helminginn. bSTAURANT viÁaÚsOp

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.