Morgunblaðið - 03.03.1984, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 03.03.1984, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. MARS 1984 Dagatal fylgiblaðanna [ ALLTAF Á ÞRIÐJUDÖGUM IÞRCMA ALLTAFA FIMMTUDÖGUM Alltaf á föstudögom ALLTAFA LAUGARDÖGUM LESBOK ALLTAF Á SUNNUDÖGUM OG EFNISMEIRA BLAÐ! Fimm sinnum í viku fylgir auka fróóleikur og skemmtun Mogganum þínum! Tónleikar í Aust- urbæjarbíói Garðar Cortes syngur við undirleik dr. Erik Werba GARÐAR Cortes tenórsöngvari og dr. Erik Werba píanóleikari halda tónleika í dag, laugardag, kl. 14. Tónleikarnir eru á vegum Tónlistarfélagsins og verða haldnir í Austurbæjarbíói. Garðar Cortes hefur látið talsvert að sér kveða að undanförnu í óperusöng, en hann er ekki síður vel heima í ljóðasöng. Hefur hann m.a. sungið „ítölsku ljóðabókina“ eftir Hugo Wolf og Olöfu Kolbrúnu Harðardóttur, við und- irleik dr. Werba. Dr. Werba er kunnur bæði sem píanóleikari og tónskáld, og hafa fjölmargir íslenskir söngv- arar sótt námskeið hjá honum sem haldin hafa verið í Söngskólanum í Reykjavík á nýliðnum árum. Á skrá yfir menn sem dr. Werba hefur leikið undir með má sjá nöfn eins og Nicolai Gedda, Peter Shreier og Christa Ludwig, en mesta frægð hefur hann hlotið sem undirleikari við ljóðasöng. Á efnisskrá tónleikanna í dag eru gamlar ís- lenskar aríur, lög eftir Haydn, Strauss og Brahms, auk þess íslensk lög eftir Karl O. Run- ólfsson og Árna Thorsteinsson og ensk lög eftir ýmsa höfunda. Aukamiðar verða seldir við innganginn. Inge Eriksen Námskeið um loft- ræsti- og hitakerfi Fræóslumiðstöð iðnaðarins heldur námskeið um loftræsti- og hitakerfi, viðhald þess og rekstur, dagana 5., 6., 7., 12., 13. og 14. mars nk. Námskeiðið, sem haldið verð- ur í húsakynnum Rannsókna- stofnunar byggingariðnaðarins að Keldnaholti, stendur frá kl. 17.00—18.00 og er ætlað mönn- um, sem annast viðhald og rekstur kerfanna. Leiðbeinend- ur verða þeir Guðni Jóhannes- son, verkfræðingur, og Kristján Ottósson, blikksmiður. Á námskeiðinu verður m.a. fjallað um tegundir og hluta loftræstikerfa, hljóð og hávaða- vandamál, aðvörunarkerfi og bilanaleit og margt fleira sem viðkemur þessum málum. Þátttökugjald er kr. 2.200 og skal tilkynna þátttöku hjá Fræðslumiðstöð iðnaðarins að Keldnaholti. Inge Eriksen með fyrirlest- ur í Norræna húsinu í dag DANSKA skáldkonan Inge Eriksen hefur verið hér á landi síðustu daga vegna danskrar bókakynningar sem hefur verið í Norræna húsinu. Hún flytur fyrirlestur í Norræna húsinu í dag, laugardag 3. mars, um ritstörf sín. Nýjasta saga Inge Eriksen, Lud- eren fra Gomorra, hefur vakið mikla athygli. Þarna er á ferðinni hrein vísindaskáldsaga, en tiltölu- lega fáir nútímahöfundar danskir hafa fengizt við það viðfangsefni. Sagt hefur verið að þessi nýjasta bók hennar geri öllu meiri kröfur en menn eigi að venjast af dönsk- um listamönnum, en samtímis sé hún staðfesting og hylling á marg- faldleika mannlífsins. INNLENTL Leiðrétting í grein Erlu Kristjánsdóttur í blaðinu í gær misritaðist orðið „eitthvert" tvívegis í 4. lið, er vitn- að var í grein GM. Stóð þar „eitthvað". Næsta þing Norður- landaráðs í Reykjavík Stokkholmi, 2. mars, frá blaðamanni Morgunblaðsins, Magnúsi Sigurðssyni. ÞINGI Norðurlandaráðs í Stokkhólmi, sem hófst á mánudag, lauk í dag. Á þing- inu var fjöldi mála til með- ferðar á ýmsum sviðum svo sem efnahagsmál, menning- ar- og samgöngumál. Fjárlög ráðsins til menningarmála, sem ráðherranefndin hefur þegar samþykkt, nema nú 150 millj. d. kr. og fela í sér 3% hækkun frá fyrri menn- ingarmálafjárlögum ráðsins. Páll Pétursson sleit þing- inu og tilkynnti, að næsta þing Norðurlandaráðs yrði haldið í Reykjavík í mars 1985. Kirkjuvika Lága- fellssóknar ÁRLEG kirkjuvika Lágafellssóknar hefst á sunnudaginn kemur 4. mars með Æskulýðsmessu í Lágafells- kirkju, prestur er sr. Jón Helgi Þór- arinsson. Fermingarbörn aðstoða við flutning efnis og messugjörð. Barnakór Varmárskóla syngur við undirleik Guðmundar ómars Óskarssonar og nokkurra blásara úr Skólahljómsveit Mosfellssveit- ar. Á mánudag 5. mars kl. 20.30 heldur kirkjuvikan áfram, þar verður meðal efnis ræða sr. Bjarna Sigurðssonar lektors, Kirkjukór Lágafellskirkju og Lúðrasveit Mosfellssveitar flytja dagskrá. A þriðjudaginn 6. mars kl. 20.30 verður dagskráin m.a. með þessum hætti. Ræðumaður kvöldsins verð- ur dr. Sigurbjörn Einarsson bisk- up, og Álafosskórinn syngur undir er föstumessa í Lágafellskirkju, prestur er sr. Sigurður Haukur Guðjónsson og Kirkjukór Lága- fellsskirkju syngur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.