Morgunblaðið - 03.03.1984, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 03.03.1984, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. MARS 1984 15 Ugla og „guðirnir“ hjá organistanum — Tinna Gunnlaugsdóttir, Sigurður Sigurjónsson og Barði Guðmundsson. í kaffi hjá organistanum — Tinna Gunnlaugsdóttir (Ugla), Þóra Friðriksdóttir (Kleópatra), Þóra Borg (móðir organistans) og Árni Tryggvason (organistinn). Ugla og „guðinn“ Jens — Tinna Gunnlaugsdóttir og Sigurður Sigurjónsson. Guðný Árland og Língó — Sigrún Edda Björnsdóttir og John Speight. Ugla ákveðin ímynd íslensku þjóðarinnar — segir Tinna Gunnlaugsdóttir „Þetta var erfitt hlutverk, Ugla er stórt hlutverk og hún sést í kvikmyndinni allan tímann,“ sagði Tinna Gunnlaugsdóttir, leikkona í samtali við blm. Morgunblaðsins, en hún leikur annað tveggja aðal- hlutverka í hinni nýju kvikmynd, „Atómstöðinni", sem gerð er eftir sögu Halldórs Laxness. „Hlutverk Uglu var á margan hátt erfitt, því hún er persóna í bók, en kvikmynd er sjálfstætt listaverk. Hins vegar er persóna bókarinnar grunntón þeirrar persónu sem kvikmyndin er skrifuð um. Þá er hlutverk Uglu erfitt að því leyti aö hún er á sviðinu nánast allan tímann. í sögunni er Ugla ákveðin ímynd íslensku þjóðarinnar eða þess í okkur, sem við teljum is- lenskt og við viljum varðveita og öll viðbrögð hennar í myndinni eru hrein og bein," sagði Tinna. „Ugla er úr sveit og þó hún sé fátæk lítur hún á sig sem jafn- inga annarra, — hún lítur á lömbin í sveitinni með sama hætti og hún lítur á þingmenn í Reykjavík," sagði Tinna. „Atómstöðin er einnig drama- tísk saga, Ugla er líka kona af holdi og blóði, en ekki bara hlutgerfingur hugmynda. Hlutverk Uglu er langstærsta hlutverk sem ég hef leikið. Það var á margan hátt ný reynsla að leika í þessari kvikmynd, þetta var samfelld og mikil vinna, lík- ast því að stíga inn í annan heim í sumar, á meðan á gerð myndar- innar stóð, en vinna við myndina stóð allt frá því ég hætti í leik- húsinu og þar til leikhúsið byrj- aði aftur og raunar lengur," sagði Tinna. „Það er að mörgu leyti auð- veldara að leika hlutverk, þar sem maður getur hengt sig í ákveðna týpu, en þannig var það ekki með Uglu. Hún bregst við hverri uppákomu eins og hjartað býður henni. Því varð ég i kvikmyndinni, að bregðast við hverri uppákomu eins heiðarlega og mér var unnt,“ sagði Tinna. „Þetta var mjög skemmtileg vinna, það var mjög góður andi á meðal starfsfólksins allan tím- ann á meðan á töku myndarinn- ar stóð,“ sagði Tinna Gunn- laugsdóttir. Búi eflaust samnefnari fyrir menn víða í heiminum „VENJULEGA þegar fólk les sögu, mótar það í huga sínum per- sónuna og oft mjög sterkt og síðan getur orðið erfitt að fylla út í þann ramma, sem fólk hefur sett per- sónunni, en leikarinn þarf alltaf að finna samnefnara fyrir þær hug- myndir, til þess að persónan verði heilsteypt," sagði Gunnar Eyjólfs- son leikari, í samtali við Morgun- blaðið, en hann leikur Búa Árland í kvikmyndinni „Atómstöðin", sem gerð er eftir sögu Halldórs Laxncss og frumsýnd verður í dag, laugardag. — segir Gunnar Eyjólfsson sem leikur Búa Árland Gunnar gat þess að erfitt væri að tala um myndina á þessu stigi, en viðtalið var tekið áður en leikarar höfðu séð hana. „Myndin er ennþá fjarlæg mér, því hún er í burðarliðnum núna, hvað mér viðkemur," sagði Gunnar. „Það er mjög ánægjulegt, fyrir íslenskan leikara að fá að glíma við sögur okkar, við eigum mikið af góðum sögum eftir góð skáld, og að fá að glíma við sögu eftir Halldór Laxness og jafn frábæra sögu og Atómstöðin er, er út af fyrir sig mikil upplifun fyrir hvaða leikara sem er. Ég held að ég tali nú fyrir munn allra þeirra sem koma nálægt kvik- myndagerð og leikhúsi á íslandi, að við vonum að það verði fram- hald á kvikmyndagerð á íslandi og að sá fjörkippur sem er í kvikmyndagerðinni nú, verði að miklum hræringum í okkar listalífi," sagði Gunnar. Aðspurður um persónuna, sem Gunnar leikur í kvikmyndinni, sagði Gunnar: „Búi Árland er mjög skýr í mínum huga sem persóna, ég er spenntur að vita, hvort mér hefur tekist að koma þeim hugmyndum sem ég hef um hann til skila. Ég á erfitt með að segja skoðun mína á Búa Árland, — hann er vitur maður, hann er stjórnmálamaður og leiðandi afl í íslensku þjóðiífi. Hann er ör- lagavaldur, og gæti verið mesti örlagavaldur sinnar þjóðar, en því á tíminn eftir að skera úr. Búi er eflaust samnefnari fyrir menn víða í heiminum. Ég sé At- ómstöðina þannig, að hún er ís- lensk saga, en í ákaflega víðum ramma, sem spannar langt út fyrir ísland og Búi Árland er til alls staðar, — í öllum löndum. Það er verið að fjalla um mann í þessu verki, sem er þegn lítillar þjóðar, en það er sótt að honum af ýmsum öflum og spurningin er sú, hvort gerðir hans séu réttlætanlegar, en þeirri spurn- ingu verður hver að svara fyrir sig. Spurningin er sú, hvort við getum réttlætt gerðir hans, hverrar þjóðar sem hann er,“ sagði Gunnar Eyjólfsson að lok- um.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.