Morgunblaðið - 06.07.1982, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 06.07.1982, Blaðsíða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. JULI 1982 + Faöir okkar, tengdafaöir og afi, SIGURÐUR BERGSSON, bakarameistari, Veghúsastíg 9, andaöist föstudaginn 2. júlí sl. Jaröarförin ákveöin síöar Elna Sigrún Sigurðardóttir, Guðjón Már Gíslason, Ulla B. Siguröardóttir, Siguröur Mór Guðjónsson. t Sunnudaginn 4. júlí andaöist í Borgarspítalanum, MARGRÉT VfGLUNDSDÓTTIR, Ljósheimum 6, Reykjavík. Kristinn Halldórsson, börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. + Móöir okkar. SIGRÚN EDWALD, Hótúni 10 A, lést laugardaginn 3. júlí. Börnin. + Systir okkar, BERGÞÓRA JÓNSDÓTTIR, Stekkholti, Biskupstungum, andaöist í Landakotsspítala 4. júlí. Halldór Jónsson, Málfríður Jónsdóttir Bríem. + Móöir mín, ALDÍS JÓNSDÓTTIR, tónmenntakennari, Kleppsvegi 48, lést í Landspítalanum aö kvöldi laugardagsins 3. júlí. Gisli Jón Þóröarson. + Faöir okkar, tengdafaöir og afi, GARDAR HAUKDAL ÁGÚSTSSON, skipstjóri, veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju miövikudaginn 7. júlí kl. 3.00. Bírna Haukdal Garöarsdóttir, Magnús Jóhann Óskarsson, Þórdís Garöarsdóttir, Lúövík Guðberg Björnsson og barnabörn. + Ástkær dóttir okkar og systir, ÁSLAUG ÞÓRA JÓHANNESDÓTTIR, veröur jarösungin frá Dómkirkjunni, miövikudaginn 7. júlí kl. 13.30. Hulda Magnúsdóttir, Jóhannes Bjarnason, Stefanía I. J. Donegan, Guömunda H. Jóhannesdóttir, Bjarni M. Jóhannesson. Hallbjörn Þórarins- son — Minningarorð Fæddur 25. nóvember 1890 Dáinn 20. júní 1982 Mánudaginn 5. þessa mánaðar var til moldar borinn hollvinur okkar hjóna um langt tímabil, Hallbjörn Þórarinsson, er lést að Öldrunarheimili Landspítalans 20. júní sl. 91 árs að aldri. Mér er ljúft að minnast Hall- björns, svo yndislegur maður sem hann var. Glaðlegur, skemmti- legur og umfram allt bjartsýnn á tilveruna, hjálpsamur og ráðagóð- ur. Hann hafði trú á að yngri kynslóðin myndi spjara sig, enda sá hann hve breytingar í tækni og iðnaði fóru ört vaxandi í þjóðfé- laginu og fylgdist með þróuninni fram eftir aldri, eftir því sem heilsa og kraftar leyfðu. Sú lífstrú er gulli betri, það er gott að kynn- ast slíkum mönnum meðan maður er enn ungur að árum. Hallbjörn Þórarinsson var fæddur að Hnitbjörgum 25. nóv- ember 1890. Hnitbjörg eru utar- lega í Jökulsárhlíð. Foreldrar Hallbjörns voru Þórarinn Björns- son og Þóra Gunnlaugsdóttir Eiríkssonar er bjó á Parti úr Skriðu-KIaustri, kona hans var Guðrún Jónsdóttir bónda Finn- bogasonar. Eiríkur og Jón dóu báðir á miðj- um aldri. Björn Hannesson, afi Hall- björns, byggði Hnitbjörg. Hannes bjó góðu búi að Hrollaugsstöðum í Hjaltastaðaþinghá. Móðir Hall- björns var eins og áður er sagt Þóra Gunnlaugsdóttir. Gunn- laugur dó ungur, var hann mynd- armaður og sárt saknað um alla sveitina. Er Hallbjörn Þórarinsson var ungur hafði hann mikinn hug á að menntast, læra eitthvað er að gagni gæti komið síðar á lífsleið- inni. Hann fór því í Búnaðarskól- ann á Eiðum og útskrifaðist þaðan vorið 1912 með góðum árangri, til fróðleiks má geta þess að þeir sem útskrifuðust með Hallbirni um vorið 1912 að Eiðum voru: Gunnar Sigurðsson, Jón Sigurðsson og Sigmar B. Guttormsson. Eftir að Hallbjörn var orðinn búfræðingur frá Eiðum ráða þeir bræður Jónas bóndi að Hrafna- björgum að fara til Kaupmanna- hafnar til trésmíðanáms. Hallbjörn var ekki lengi að ákveða sig, maður með svo mikla bjartsýni og trú á lífið og framtíð- ina er ekki lengi að taka ákvörðun þó hún sé bæði stór og óvenjuleg og strax um vorið 1912 halda þeir bræður til Kaupmannahafnar. Það er hægt að hugsa sér hvað fólk hefur haldið austur á héraði um svona „hugdettur" fyrir 70 ár- um. En þeir bræður létu það ekki aftra sér. Enda var hugmyndin bæði djörf og snjöli. Hallbjörn var svo lánsamur að komast að hjá einum mest metna meistara á þeim tíma, hr. L.P. Hansen í St. Hansensgade og Jón- as bróðir hans þar stutt frá og gátu þeir stundum haft samband sín á milli, þótt vinnutími væri oft mjög langur og kaupið lágt. Að loknu námi komu þeir bræður heim um haustið 1914. Líklega hefur Hallbjörn stund- að smíðar í héraði eftir að hann kom heim. Á Seyðisfirði dvaldist Hallbjörn við smíðar 1915, en heimilisfastur sennilega frá 1916. Á Seyðisfirði kvæntist Hall- björn heitkonu sinni, Halldóru Sigurjónsdóttur Hrólfssonar og konu hans Ingibjörgu Sigurjóns- dóttur ættuð frá Loðmundarfirði. Sigurjón Hrólfsson var Þingeying- ur enda skáldmæltur vel. Hallbjörn og Halldóra hófu búskap sinn á Seyðisfirði. Hall- björn stundaði smíðar og þótti vel lærður í iðn sinni og hafði mjög mikið að gera enda fátt um menn í iðninni. Halldóra og Hallbjörn eignuð- ust 8 börn. Elstir voru tvíbura- bræðurnir Þórarinn og Sigurjón, Sigurður, Ingi, Ólafur, Guðlaug og Lárus. Eitt barn dó á unga aldri. Um haustið 1928 fluttust þau Halldóra og Hallbjörn hingað til Reykjavíkur með barnahópinn + Eiginmaður minn og faöir okkar, RAGNAR RAGNARSSON, dýralaaknir, veröur jarösunginn frá Hafnarfjaröarkirkju, miðvikudaginn 7. júlí kl. 1.30 e.h. Þeim, sem vilja minnast hans, er vinsamlegast bent á líknarstofn- anir. Halla Bergsdóttir og börn. + Eiginmaöur minn, faöir okkar, tengdafaöir og afi, BJARNI LÚDVÍKSSON, málarl, Álfheimum 70, veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju, miðvikudaginn 7. júlí kl. 10.30. Þeim, sem vildu minnast hans, er vinsamlega bent á aö láta líknarstofnanir njóta þess. Laufey Arnórsdóttir, Haukur Bjarnason, Jóhanna Bergþórsdóttir, Ingibjörg Bjarnadóttir, Einar Magnússon, Lúövík Bjarnason, Sigrún Böðvarsdóttir og barnabörn. + Útför GUÐBJARGAR BRYNJÓLFSDÓTTUR, sem lóst í Landspitalanum 3. júlí, fer fram frá Háteigskirkju fimmtudaginn 8. júlí kl. 1.30. Selma Hannesdóttir, Ríkharöur Pálsson og synir. Vegna jarðarfarar BJARNA LÚÐVÍKSSONAR, veröur verslunin Casa, Borgartúni 29, lokuö miöviku- daginn 7. júlí fyrir hádegi. sinn, þar sem meiri og fleiri mögu- leikar voru á að mennta börnin og koma þeim í atvinnu, enda voru þau þá komin talsvert á legg. Þau elstu komin að fermingu. Á heimili Halldóru og Hall- björns var mikill og sífelldur gest- agangur. Voru þau hjónin sam- taka og umhugað um að láta gest- um sínum líða vel. Og gott var að vera í návist þessa góða og hjarta- hlýja fólks, er öllum vildi gott gera. Því miður naut Halldóru ekki lengi við, hún andaðist 12. október 1955. En hjartalag hennar og vin- áttu við mig og mitt fólk munum við lengi muna. Halldóru auðnað- ist þó að sjá börn sín komast vel upp og verða nýtir þjóðfélags- þegnar. Þórarin verða eftirsóttan matreiðslumann, Sigurjón síma- mann hér í borg, Sigurð vörslu- mann hjá Reykjavíkurborg, Inga dugandi sjómann, Ólaf prentara, Guðlaugu matráðskonu og Lárus yfirvélstjóra. Fráfall Halldóru Sigurjónsdótt- ur var mikið reiðarslag fyrir fjöl- skylduna alla, þó sérstaklega fyrir eiginmanninn, en þau höfðu búið í astríku hjónabandi nær því 40 ár og börnin og tengdabörnin sem öll eru dugandi og velgefið fólk mátu hana mikils. Vandfyllt var því skarð þessarar stórbrotnu hjarta- hlýju og góðu konu. Guðlaug, sem er lík móður sinni í öllum dugnaði og myndarskap, tók að sér heimilishald hjá föður sínum að Sörlaskjóli 82. Seinna er hún sjálf hafði komið sér upp íbúð að Reynimel 84 tók hún föður sinn og Sigurð bróður sinn með sér og hafa þeir átt þar heima síðan. Un- un var að sjá hve vel hún hugsaði um föður sinn af alúð og ástríki. Ég vil færa henni mínar bestu þakkir fyrir það, það er svo líkt hjartalagi móður hennar sáluðu sem var svo óumræðilega góð kona. Ég veit að Hallbjörn var dóttur sinni afar þakklátur fyrir alla þá umhyggju og velferð er hún veitti honum í ellinni. Við vitum að ýmsar sorgir og erfiðleikar mæta okkur á langri göngu lífsins sem erfitt er að sætta sig við er aldur færist yfir og þrek og kraftar dvina. Ein af þessum sorgum er skilnaður við ástvinina. Hallbjörn var tilfinn- ingamaður mikill þó hann að öðruleyti væri glaður og bjart- sýnn. Jóhann Sigurjónsson, barnabarn Hallbjörns andaðist 17. júní 1965. Ólafur sonur hans and- aðist á Akureyri 31. desember 1%6 en þar bjó hann og starfaði við iðn sína. Hildur Þóra, kona Þórarins, elsta sonar hans andað- ist 17. júní 1975 og Þórarinn and- aðist 3. febrúar 1978. Allt þetta fékk mjög mikið á Hallbjörn er þá var orðinn aldraður og veikburða. Hérvistar dögum Hallbjörns Þór- arinssonar er lokið. Hjartans þakkir fyrir alla þá löngu göngu er við höfum gengið saman í þessu jarðneska lífi. Jesús sagði: Sjá ég geri alla hluti nýja: Aftur er Hallbjörn orð- inn ungur maður meðal ástvina sinna. Aftur fagnar hann ástríkri eiginkonu og sonum og tengda- dóttur og sá fögnuður tekur aldrei enda, hann er eilífur. Guð blessi Hallbjörn og ástvini hans, er fagna heimkomunni. Guð gefi eftiriifandi ástvinum frið og blessun. Þorsteinn Halldórsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.