Morgunblaðið - 06.07.1982, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 06.07.1982, Blaðsíða 26
26 • Guðmundur !>orbjörnsson á fullri ferð með boltann í baráttu við KR-vörn- ina. Rússarnir koma á Reykjavíkurleikina Keykjavíkurleikirnir í frjálsíþrótt- um nálgast óðfluga, verða helgina 17. og 18. júlí, og Ijóst að margir útlendingar verða þar meðal kepp- enda. Fjórir rússneskir frjálsíþrótta- menn verða þeirra á meðal, og kom það í Ijós um helgina, eftir mikla eftirgangssemi, hverjir þeir verða. Hingað senda Rússar tvær kon- ur og tvö karla. Konurnar eru Ludmila Belova, sem keppir í 200 og 400 metra hlaupum, og Irina Podialovskay, sem keppir í 400 og 800 metrum. Karlarnir eru sprett- hiauparinn Nikolai Sidorov, sem keppir í 100 og 200 metrum, og kúluvarparinn Sergei Gavriskin. Þótt ekki hafi borizt upplýs- ingar um afreksgetu þessara frjálsíþróttamanna er ekki við öðru að búast en þeir séu af betra taginu, því Rússar hafa oftast sent ýmsa af sínum frambærilegustu frjálsíþróttamönnum á Reykja- víkurleikina. Lilja sigrar í Vesterás Lilja Guðmundsdóttir, frjáls- íþróttakona úr ÍR, sigraði keppnis- laust i 1500 metra hlaupi á alþjóð- legu móti í Vesterás í Svíþjóð í sið- ustu viku. Hljóp Lilja á 4:28 mínút- um, sem er hennar næstbezti árang- ur hennar í ár, hefur bezt náð 4:26,6 mín. Skýfall var þegar mótið fór fram og vindar, þannig að óhagstætt var að hlaupa. Seinni dag mótsins sigraði Lilja jafn auðveldlega i 800 metrum á 2:10,555, sem er hennar bezta í ár. Einar P. Guðmundsson, frjáls- íþróttamaður úr FH, keppti á seinni degi mótsins og hljóp 400 metra á 50,70 sekúndum. Voru aöstæður hin- ar erfiðustu og því má búast við að Kinar sé í formi til að hlaupa undir 50 sekúndum. Hilmar hljóp 800 á 1:56 Hilmar Hilmarsson heitir tvítugur íslenzkur frjálsíþróttamaður, sem um langt árabil hefur verið búsettur í Sviþjóð, og náð þar góðum árangri í millivegalengdahlaupum, en af honum hafa ekki borizt fréttir þar til nú, að Mbl. hafði upp á honum í Svíþjóð eftir krókaleiðum. Helga góö í grindahlaupi HELGA Halldórsdóttir KK náði ágætum tíma í 100 metra grinda- hlaupi á frjálsíþróttamóti í Laugar- dal á föstudagskvöid, hljóp á 14,1 sekúndu. Þórdís Gisladóttir hástökkvari úr ÍK varð í öðru sæti á 14,4 sekúndum og þriðja Sigurborg Guðmundsdóttir Á á 15,1 sek. Hilmar hefur í ár hlaupið 800 metra á 1:56 mínútum, sem er hans langbezti árangur, átti rúma 1:58 í fyrra. Þá hljóp hann 1500 metra á 3:56,74 mínútum í fyrra, sem einnig er hans bezta, en í samtali við Mbl. sagði Hilmar sér ekki hafa gengið vel í 1500 það sem af væri sumari. Hilmar Hilmarsson keppir ytra með félaginu Hasselby SK í Stokkhólmi, en allar líkur eru á að hann keppi fyrir íslands hönd í unglingalandskeppninni í Osló í næstu viku, sagðist hann hafa áhuga á að fá að spreyta sig þar fyrir hönd fósturjarðarinnar. Friáisar Ibrðttlr ^ ... ........... ^ Marktækifærið í leiknum kom eftir 41 mínútu! ÞAÐ VAR mikið kallað og hlaupið, en minna spilað, er Valur og KR gerðu markalaust jafntefli í ein- hverjum þeim tíðindaminnsta 1. deildar-leik sem undirritaður hefur orðið vitni að, á Laugardalsvelli á sunnudagskvöldið. Var þetta fyrsti leikurinn í deildinni á aðalvellinum i sumar en upp á þaö var ekki haldið með neinni glæsiknattspyrnu. í fyrri hálfleik gerðist bókstaf- lega ekki neitt lengst af. Knöttur- inn gekk mest mótherja á milli og er hann gekk á milli samherja var það aldrei milli margra manna. Blm. var orðinn vondaufur um að þurfa að brúka penna sinn í fyrri hálfleiknum, er Valsmenn fengu allt í einu dauðafæri. Var þá liðin 41 mín. af hálfleiknum. Fyrsta færi í 1. deildar-leik kom eftir 41 mín.! Já, sóknarleikur lið- anna var ekki með besta móti. Hvað um það, Ingi Björn Alberts- son fékk umrætt færi. Eftir fyrir- gjöf Hilmars Sighvatssonar frá vinstri fékk hann boltann við fjærstöngina og skallaði á markið en Stefán varði vel en hélt ekki boltanum. Ingi náði honum aftur en skaut í hliðarnetið utanvert af stuttu færi. Er þar með lýst eina marktæki- færi hálfleiksins, og reyndar leiks- Valur n n —KR U—II 'ins alls eins og síðar kom í ljós. Penninn góði var aðeins einu sinni notaður aftur fyrir hlé. Var það er Sigurður Pétursson hvarf meiddur af leikvelli fyrir Sigurð Indriðason á 44. mín. Allir viðstaddir hafa væntan- lega óskað þess að síðari hálfleik- ur yrði skemmtilegri en sá fyrri og rættust þær óskir að sumu leyti. Skárra spil sást á köflum og þá sérstaklega hjá KR-ingum en ekki voru leikmenn iðnir við að skapa marktækifæri. Á 80. mín. átti Magni Pétursson þrumuskot á KR-markið, Ingi Björn breytti stefnu knattarins með því að skalla hann en Stefán varði meistaralega. En það kom upp úr dúrnum að Ingi Björn hafði 1 Knattspyrna verið rangstæður og komust mörkin aldrei í verulega hættu allan hálfieikinn utan þetta „rangstöðufæri" Inga. Liðin: KR-ingar voru ákveðnari úti á vellinum í leiknum en ekki fengu þeir marktækifæri og eins og gef- ur að skilja vinnast leikir ekki nema skoruð séu mörk. í liðinu eru mjög efnilegir leikmenn eins og Sæbjörn Guðmundsson, sem tók nokkra góða spretti í leiknum, Ágúst Már Jónsson og Stefán Jó- hannsson markvörður, en í heild virkar liðið ekki sterkt. Valsliðið virðist vera mjög mis- jafnt. Þeir spiluðu prýðilega á köflum í síðasta leik gegn Breiða- bliki en nú sást lítið sem ekkert slíkt. Framlínan var óhemju dauf, og miðjumennirnir voru heldur ekki sannfærandi. Aðeins einn leikmaður stóð sig vel, Dýri Guð- mundsson, sem var mjög sterkur í vörninni, og helst að hresstist upp á sóknina ef hann kom fram. í stuttu máli: Laugardalsvöllur 1. deild. Val- ur—KR 0—0. Gult spjald: Magni Pétursson Val. Dómari var Arnþór óskarsson. Áhorfendur voru 979. — sh. Margar hendur voru á lofti og áhugi sýnilega mikill þegar verið var að greiða atkvæði um ný lög, fyrstu stjórn o.fl. Nýjasta íþróttafélagið hlaut nafnið Gáski FIMMTUDADGINN 10. júní sl. var stofnað iþróttafélag við vistheimilið að Skálatúni, Mosfellssveit, og hlaut það nafnið Gáski. Bæði vistmenn, starfsfólk og aðilar úr Foreldra- og vinafélagi Skálatúns sátu stofnfund- inn auk gesta, eða alls um 60—70 manns. Samkvæmt 2. gr. laga hins nýja félags, er tilgangur og markmið þess að efla íþróttaiðkanir fyrir þroska- hefta með æfingum, námskeiðum og keppni. Aðalhvatamaður að stofnun fé- lagsins var Sigrún Kristjánsdóttir, þroskaþjálfi að Skálatúni. Fundar- stjóri stofnfundarins var Sigurður Magnússon, form. íþróttasambands fatlaðra og fundarritari Páll Aðal- steinsson, fyrrv. formaður Ung- mennasambands Kjalarnesþings, en hið nýstofnaða félag mun verða aðili að UMSK. Að loknum stofnfundinum var við- stöddum sýnd kvikmynd frá vetrar- Ólympíuleikum fatlaðra, sem háðir voru í Geilo, Noregi, árið 1980. Þessar fjórar stúlkur voru meðal þeirra sem kjörnar voru í stjórn, talið f.v.: Sigrún Þórarinsdóttir sem kjörin var fyrsti formaður og heldur hún á oddfánum UMSK og íþróttasambands fatlaðra, sem félaginu voru færðir að gjöf, Guðný Guðmundsdóttir, Guðlaug Sigurðardóttir og Sigríður Kristinsdóttir. F.v.: Sigrún Kristjánsdóttir, þroskaþjálfi, sem var aðalhvatamaður að stofnun fé- lagsins, Páll Aðalsteinsson, fundarritari, Sigurður Magnússon, form. íþr.samb. fatlaðra og Ólafur Ólafs- son og Ólafur Þ. Jónsson úr stjórn sambandsins.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.