Morgunblaðið - 06.07.1982, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 06.07.1982, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚLÍ1982 Heilsugæzlustöð vígð á Patreksfirði fyrrv. heilbrigðismálaráðherra, Sighvatur Björgvinsson alþm, Páll Sigurðsson ráðuneytisstjóri, fulltrúi landlæknis og margt heimamanna. Athöfnin hófst á því, að formaður sjúkrahússtjórnar Jóhannes Árnason sýslumað- ur, flutti ræðu. Þá flutti heil- brigðismálaráðherra ræðu og lýsti stofnunina formlega tekna til starfa. Olafur Guð- bjartsson, starfsmaður Inn- kaupastofnunar ríkisins og eftirlitsmaður með bygging- unni, flutti ræðu og gerði grein fyrir ýmsum þáttum byggingarstigs. Jón Haralds- son, arkitekt, að byggingunni flutti einnig ræðu. Áð endingu talaði svo Úlfar Thoroddsen, Sl. fóstudag var ný heilsugæslustöð vígð hér á Pat- reksfirði. A heilsugæslustöðin að þjóna öllum íbúum Vestur- Barðastrandarsýslu. Viðstaddir athöfnina voru heilbrigðismála- ráðherra, Svavar Gestsson og frú hans, Matthías Bjarnason Heilsguæslustöðin nýja á Patreksfirði. Jóhannes Árnason, sýslumaður, fiytur ræðu. Svavar Gestsson, ráðherra, flytur ræðu. sveitarstjóri Patrekshrepps, og loks var gestum boðið að skoða bygginguna undir leið- sögn lækna, hjúkrunarfólks og byggingamann. Að endingu þáðu svo allir kaffiveitingar í húsakynnum stofnunarinnar. Allir samkomugestir lofuðu einum rómi þessa glæsilegu byggingu og þann búnað, sem þegar er kominn. Með tilkomu þessarar heilsugæslustöðvar er mikil- vægum áfanga náð í heilbrigð- ismálum á sunnanverðum Vestfjörðum og er það mál manna, að þetta styrki búsetu- skilyrði fjórðungsins og jafni stórum þann mismun sem ver- ið hefur í heilbrigðisþjónust- unni. Heildarkostnaður við bygg- ingu og búnað til þessa er um 6 millj. 961 þús kr. Þar af hefur hluti ríkisins verið kr. 5 millj. 917 þús kr., en heimamenn lagt til kr. 1 millj. 44 þús. — Páll Þjófnaðir af bílasölum: „Ástandið ekki eins dökkt og dregið er upp í Mbl — segir Reynir Þorbjörnsson, bílasali „ÞETTA mál er ákaflega erfitt við- ureignar, en engan veginn eins dökkt og dregiö er upp i Mbl. Það sem af er árinu hefur 62 bifreiðum verið stolið í Keykjavík og þar af 5 við bilasölur. Á bílasölunum eru hundruð bíla hafðir til geymslu hverju sinni, þannig að til þess að gera er fáum bílum stolið af bíla- sölunum," sagði Keynir Þorbjörns- son, bílasali, í samtali við Mbl. vegna fréttar blaðsins um að í vax- andi mæli bæri á, að bílum væri stolið frá bílasölum. — Er hugsanlegt, að bílasölur geti haft samvinnu um nætur- vörzlu? „Ef menn vilja greiða fyrir gæzlu, þáer það sjálfsagt, en svo hefur bara alls ekki verið. Menn koma á bílasölurnar með bíla sína og skilja eftir. Við leggjum til bílastæði og aðstoð við að sýna bíla og gætum þeirra mest- an part sólarhringsins án nokk- urrar greiðslu. Ég kem hingað ávallt tvisvar á kvöldi til þess að líta eftir bílunum og síðast um miðnætti. Tryggingafélög vilja ekki tryggja gegn þjófnaði fyrir bíla- sölur, en gera það hins vegar fyrir einstaklinga og þannig geta bílaeigendur verndað sig,“ sagði Reynir Þorbjörnsson. EF ÞAÐERFRÉTT- NÆMTÞÁERÞAÐÍ MORGUNBLAÐINU AUGLYSINGA- SÍMIN'N ER: 22480

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.