Morgunblaðið - 06.07.1982, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 06.07.1982, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚLÍ 1982 ískyggilegar horfur í sovéskri kornrækt Sameining fjölskyldu Viktor Korchnoi: Gleðifiindur eftir sex ára aðskilnað Glarus, Svísn, 5. júlí, Al* VIKTOH Korchnoi hitti konu sína, son og stjúpmóð- ur í Olarus í Sviss síðdegis í gær, en þau komu frá Sov- étrikjunum til Vínar á laug- ardag. I»að voru gleðitár sem runnu niður vanga þeirra er fjölskyldan hittist nú í fyrsta sinn í sex ár, en Korchnoi flúði frá Sovét- ríkjunum 1976 er hann var að tefla á skákmóti í Hol- landi. Þau föKnuðu sameiningunni með hófi fram undir morgun og haft er eftir Bellu konu skákmeistarans: „Ég varð mállaus af hamingju er ég leit bónda minn nú augum að nýju.“ Sonurinn Igor, sem er nýlega laus úr vinnubúðum í Síberíu eftir að hafa verið þar í tvö og hálft ár í hegningar- vinnu sagði: „Ég er ánægður núna, en ég var svo örmagna þegar við komum hingað að ég hafði ekki þrek til að láta til- finningar mínar í ljós.“ Viktor Korchnoi gat ekki tekið á móti þeim í Glarus er þangað kom vegna skákmóts sem hann tók þátt í Colmar í Frakklandi, en hann hitti þau nokkrum stundum eftir kom- una, þar sem þau voru á setri lögfræðings hans. Við komuna til Vínar sagði Bella Korchnoi að trúlega hefði almenningsálit vestrænna þjóða vegið þungt þegar farið var að meta að nýju umsókn fjölskyldunnar um að fá að flytja úr landi, en haft er eftir Viktor Korchnoi að hann sé orðinn gjörsamlega örmagna eftir hið langa þref sem að baki liggur sameiningu fjölskyld- unnar, en hann bætti við: „Kúgað fólk hefur alltaf unnið baráttuna við Sovétríkin að lokum." Séra Sun Myung Moon og kona hans standa hér frammi fyrir 2.200 hjóna- leysum nokkru áður en hann gaf þau saman í Madison Square Garden í New York-borg. Kjólar brúðanna voru allir úr bláu satíni og fot brúðgumanna blá en bindið rautt. Um þriöjungur brúðhjónanna var af ólíkum kynþætti, þ.e. blönduð hjónabönd, en það er aðferð moonista við að uppræta kynþáttafor- dóma. AH Flugræninginn tekinn fastur Kóm, 5. júlí. Al*. MATV/ELA- og landbúnaóarstofnun Sameinuðu þjóðanna tilkynnti í dag, að hún hefði endurmetið fyrri spár sínar um kornframleiðslu í heimin- um á þessu ári og lækkað þær vegna Sprengingar Tegurigalpa, llonduras, 5. júlí. Al*. HKYÐJIJVERKAMENN sprengdu í gærkvöldi í loft upp tvö orkuver og þvi er höfðuborgin algjörlega raf- magnslaus, er haft eftir lögreglunni í dag. Talsmaður lögreglunnar segir að u.þ.b. 10 menn klæddir í samfest- Luxemborg: l.uxrmhorg, 5. júlí. Al*. RÍKISSTJÓRNIN í Luxemborg rið- aði til falls í fyrri viku, en hélt þó velli, þegar til umræðu kom í þing- inu mikió hneykslismál innan lögr- cglunnar, mál, sem landsmcnn kalla sín á milli „hneyksli aldarinnar". Stuðningsmenn stjórnarinnar höfðu ekki verið á eitt sáttir i þessu máli Aþenu, 5. júlí. Al*. FORSÆTISRÁÐH ERRA Grikk lands, Andreas Papandreou, stokk- aði upp hina níu mánða gömlu stjórn sósíalista nú um helgina og var hin nýja stjórn sett i embætti af erki- biskup Grikklands, séra Phim, að viöstöddum ('onstandine ('araman- lis forseta landsins. Hin nýja 22 manna stjórn mun leggja aðaláherslu á að bæta efna- hagsástand í landinu sem hefur farið stöðugt versnandi vegna hinnar 25% árlegu verðbólgu í landinu, en einnig fer atvinnuleysi í vöxt og fjárfestingar fara minnkandi. Papandreou, sem er fyrrum prófessor í hagfræði við Kali- forníuháskóla í Berkely kallaði til liðs við sig þrjá bankastjóra, sem eru menntaðir í Bandaríkjunum mjög ískyggilegra horfa i sovéskum landbúnbaði. „Uppskeruhorfur í Sovétríkjun- um hafa versnað mjög frá útgáfu síðustu skýrslu okkar,“ segir í nýj- ustu skýrslu frá FAO. „Það er ekki í Honduras inga hafi gengið inn í orkuverin, sem eru staðsett rétt fyrir utan höfðuborgina, og skömmu síðar hafi þau bæði sprungið í loft upp. Enginn hefur lýst sig ábyrgan fyrir sprengingunum, en tjónið er metið á um 20 milljón Bandaríkjadollara. en þegar gcngið var til atkvæða um traustsyfirlýsingu á stjórnina guldu þeir henni allir jáyrði sitt. Hneykslismálið snýst um vændi, mútuburð á embættis- menn, vopnasmygl og fleira og er höfuðpaurinn lögreglustjórinn í Luxemborg, þ.e. höfuðborginni og stofnaði nýtt fjármálaráðu- neyti til að auðvelda ákvarðana- tökur í fjármálum. Breytingar Papandreou á stjórn- inni nú eru þær, að hann tilnefndi 16 nýja ráðherra og aðstoðarráð- herra, flutti 11 ráðherra úr stað og sagði átta ráðherrum upp stöðum sínum. aðeins að vetrarkornið hafi orðið illa úti í þurrkum í maí og önd- verðum júní heldur virðist vorsán- ingin vera minni en á undanförn- um árum.“ FAO gerir nú ráð fyrir, að kornframleiðsla í heiminum verði um 1470—1590 milljónir tonna en hún var 1528 milljónir tonna á síð- asta ári. Búist hafði verið við, að framleiðslan í ár gæti orðið 1605 milljónir tonna. I skýrslunni segir, að ástandið í Afríku fari enn versnandi og er búist við að korn- rækt dragist þar víða mjög saman. Valda því miklir þurrkar. sjálfri, Georges Rauchs að nafni. Málið komst í hámæli árið 1979 og þótt Rauchs hafi verið rekinn úr embætti og jafnvel setið í fangelsi stuttan tíma hefur það aldrei ver- ið rannsakað til hlítar. Er ástæð- an sögð sú, að ákærurnar voru reistar á símahlerunum, sem eru bannaðar í Luxemborg. Klofningur varð meðal stjórnar- flokkanna fyrir hálfum mánuði þegar innanríkisráðherrann, Emile Krieps, skipaði Rauchs aft- ur í embætti gegn háværum mót- mælum forsætisráðherrans, Pierre Werner, og ekki bætti úr skák þegar einn þingmaður kommúnista, Rene Urbany, skýrði frá innihaldi símahlerananna. Af þeim mátti ráða, að nokkrir þing- menn íhaldsflokksins, stærsta stjórnarflokksins, væru viðriðnir málið. Núverandi ríkisstjórn í Lux- emborg, sem er samstjórn mið- og hægriflokka, hefur setið í þrjú ár og enn eru tvö ár í kosningar. ('olombo, Sri Lanka, 5. júlí. Al*. Flugræninginn frá Sri Lanka var handtekinn á laugardag eftir að hafa lifað hátt í heimalandi sínu fyrir hluta hins 300.000 dollara lausnargjalds sem hann hlaut fyrir 263 gísla og áhöfn ítalskrar flugvélar í Thai- landi í síöustu viku. Yfirmaður rannsóknarlög- reglunnar á staönum þar sem flugræninginn Ekamaya var handtekinn sagði aö hann yrði kærður fyrir fjárkúgun og stjórnvöld væru nú að íhuga beiðni ítalskra yfir- valda um framsal hans. Þannig hlaut skjótan endi hinn undarlegi ferill flugræningjans sem var tekið sem þjóðhetju í heimalandi sínu, en mikla hrifn- ingu vakti þar hvernig honum tókst að „leika“ á stjornvöld og yfirvöld flugmála utan heima- lands síns. Flugræninginn yfirgaf Colombo á laugardagsmorgun eftir að hafa staðið þar í stappi, þar sem hann ætlaði að neita að greiða fyrir veitta þjónustu þar. I fylgd með honum voru þá hinir ýmsu ætt- ingjar og vinir og var förinni heitið til heimabæjar þeirra. Þangað komst hann hins vegar ekki þar sem hann var handtekinn á miðri leið, en syninum fjögurra ára og eiginkonunni itölsku var leift að fara ferða sinna. Greinilegt er að sú alþjóðlega umræða sem málið hefur vakið hefur hrært upp í stjórnvöldum á Sri Lanka varðandi aðgerðir í málinu, en jafnt stjórnvöld Ítalíu sem Thailands hafa beitt miklum þrýstingi. Pólverjar ræða efna- hagsmálin V arsjá, 5. júlí. AP. POLSKA þingið stofnaói í dag til tveggja daga ráðsiefnu um efnahags- ástand í landinu sem hefur farið hríðversnandi síðan herlögin tóku gildi. Framleiðsla í landinu hefur minnkað um 14% á sex fyrstu mánuðum þessa árs, ef miðað er við sama tímabil á árinu 1979, en því er spáð á ráðstefnunni að brátt muni yfirvöldum takast að stöðva þessa neikvæðu þróun, samkvæmt heimildum frá hinni pólsku frétta- stofu PAP. Pólsk hjón flýja til Austurríkis Vín, 5. júlí. AP. POLSK hjón, ásamt þriggja ára dóttur þeirra, flýðu í þyrlu frá Pól- landi yfir Tékkóslóvakíu og lentu nálægt Vín á sunnudag, þar sem þau hafa síðan beðið um pólitískt hæli. Hjónin flugu eins lágt og þau þorðu til að komast hjá því að sjást á tékkneskum radar, er haft eftir lögreglunni í Vín, en þau lögðu upp frá bænum Nysa sem er á landamærum Póllands og Tékkóslóvakíu á þyrlunni, sem notuð hefur verið til land- búnaðarstarfa. Samkvæmt heimildum lög- reglunnar mun eiginmaðurinn vera löggiltur leiðbeinandi á þyrlur sem framleiddar eru í Póllandi og hafði hann því tæki- færi til að fljúga án þess að eftir því væri frekar tekið. Stjórnin stóð af sér „hneyksli aldarinnar“ Gríska stjórnin endurskipulögð

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.