Morgunblaðið - 24.12.1981, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. DESEMBER 1981
55
félk í
fréttum
©
Jól í Hvíta húsinu
+ Nancy Reagan bregður sér úr skónum og upp á stól og hjálpar við
að skreyta jólatréð í Hvíta húsinu.
Nastassja
+ „I þessu hlutverki lék ég unga
stúlku sem er í senn saklaus og
gáfuð og hefur gert það upp við sig
að lifa lífinu. Það er einmitt þetta
sem laðar mig að þessu hlutverki.
Kannski ég þekki sjálfa mig í því.“
Svo segir leikkonan Nastassja
Kinski, sem kunnust er af leik sín-
um í frægri mynd Polanskis, Tess.
Roman Polanski gerði þá mynd
eftir sögu Hardys og tileinkaði
hana konu sinni, Sharon Tate, sem
Manson-lýðurinn myrti á sínum
tíma. Nastassja er nú tvítug að
árum en hefur þegar leikið í sjö
kvikmyndum og átt mörg ástar-
ævintýrin, og í tilvitnuninni að
ofan talar stúlkah um nýtt hlut-
verk í mynd sem heitir Exposed.
Þar leikur Nastassja unga sveita-
stúlku sem ætlar sér að verða
tískusýningarstúlka. Nastassja
hefur átt í hugarangri í seinni tíð
(að eigin sögn). „Mér fannst hreint
og beint eins og kvikmyndaiðnað-
urinn væri að leggja líf mitt í
rúst,“ segir hún. „En núna er ég
orðin hagvön í leiknum og ég skil
orðið að til þess að verða góð
leikkona, þá verður maður að
kynnast lífinu fyrst,“ segir hin
tvítuga Nastassja Kinski.
Lítil viðhöfn
+ Loksins er portrettið af Richard
M. Nixon komið í portrettsafn
Hvíta hússins af forsetum Banda-
ríkjanna. Sjö ár eru nú liðin frá
því að Nixon sagði af sér og það
var engin lúðrablástur þegar
verkið var afhjúpað í Hvíta húsinu
fyrir skömmu. Athöfnin var svo
viðhafnarlaus sem mest mátti og
þó það væri gefin út tilkynning
um afhjúpunina, þá var hún send
fréttastofum, svo seint að fréttin
náði ekki í kvöldfréttir daginn
sem myndin var afhjúpuð og held-
ur ekki í fréttir morgunblaðanna.
Menn veittu þessu eftirtekt. Þá
var líka komið fyrir i Hvíta hús-
inu portretti af Pat, konu Nixons.
Sú mynd var reyndar komin í
geymslu þar fyrir all löngu, en Pat
gerði þá kröfu að hún yrði ekki
hengd upp, fyrr en málverkið af
Portrettið af Nixon
eiginmanni hennar hefði verið
hengt upp. Og nú eru þau semsé
bæði komin uppá vegg í Hvíta
húsinu ...
Jackson
kveður
+ Lúxusferð í viku til Jamaica,
tveggja vikna dvöl á Hawaii og
splunkunýr Cadillac-dreki.
Með þessum gjöfum og fleirum
var Maynard Jackson leystur
úr embætti borgarstjóra Atl-
anta fyrir skömmu, en sem
kunnugt er hefur Andrew
Young, fyrrum sendiherra
Bandaríkjanna hjá Sameinuðu
þjóðunum, verið kjörinn í það
embætti. Jackson hefur þegar
gegnt embættinu tvö kjörtíma-
bil og Iengur má enginn vera
borgarstjóri í þessu ríki I senn
og Jackson varð að gera sér að
góðu að hætta. Átján hundruð
dyggir stuðningsmenn héldu
honum mikið kveðjuhóf og
leystu hann semsé út með gjöf-
um og Jackson gat ekki tára
bundist og þurfti að bregða
upp vasaklút til að þerra
hvarma sína. En hinn nýkjörni
borgarstjóri, Andrew Young,
hafði þetta að segja um forvera
sinn: „Ég býst ekki við að
nokkur eigi eftir að feta í þín
fótspor, og það á ábyggilega
enginn eftir að fara í fötin
þín.“ (En Jackson þykir geysi-
stór og þar eftir feitur...)
Boomerang
+ Barnaby Ruhe, einn af lands-
liðsmönnum bandaríska búmmer-
angliðsins, lokar þarna augunum
en tekst samt að halda brosinu,
þegar hann sýndi ásamt félögum
sínum hvernig það á að kljúfa epli
með „boomerang“-spaðanum. Þeir
kappar voru við æfingar vegna
fyrirhugaðar landskeppni við
Ástralíumenn í „boomerang" í
Sydney-borg fyrir skömmu.
„Boomerang" er óþekkt íþrótt
hérlendis og er víst mjög sér-
kennileg íþrótt og skal ekki frekar
fjalla um það hér ...
Jólatrésskemmtun
Læknafélags Reykjavíkur og Lyjfa-
fræðingafélags íslands verður haldin
í Domus Medica þriðjudaginn 29.
desember kl. 15.00 til 18.00.
Miðasala við innganginn.
Jólasveinarnir.
Við ósJcurrr%fc
viðskiptavinumj
okkar
'jledilegrajóla
ogfarsæls
komandi árs
með þökk
fyrir ánægjuleg
viðskipti
á liðnum árum.
V ■ ■ húsgögn,
Langholtsvegi 111
ttudKk
Við óskum
landsmönnum öllum
gleðilegra jóla
ogfarsæls
komandi árs
með þakklæti fyrir
viðskiptin
á árinu
sem er að líða.
Veitingasalurinn verður opinn um hátíðarnar
sem hér segir:
aðfangadagur
opið til kl. 14.30
jóladagur
lokaö
annar jóladagur
opnað kl. 18.00
gamlársdagur
opið til kl. 14.30
nýársdagur
opnað kl. 18.00