Morgunblaðið - 24.12.1981, Blaðsíða 18
50
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. DESEMBER 1981
Þrautir - leikir - skrýtlur
Skemmtilegur leikur
Klippið pappakassa þannig til, að hann myndi fjögur
hvöss horn, eins og greinilega kemur fram á myndinni.
Klippið síðan pappahringi, sem þið notið til þess að
kasta. Að þessu loknu skrifið þið stigatölur á hvert
horn kassans og að því loknu getur leikurinn hafist.
Góða skemmtun.
Að blása fjöður
Lítilli fjöður eða dún er blásið upp í loftið og þar taka
þátttakendur við henni (helst eins margir og mögulegt
er ... eftir vali) og eiga að reyna að halda henni á lofti eins
lengi og mögulegt er.
Katta-
hljómlist
Hvarflar það nokkurn
tíma að þér, þegar þú
horfir á Tomma og Jenna,
að mýs geti sungið? Senni-
lega eru það fáir, sem vita
að mýs gefa frá sér hljóð,
sem minna á söng kanarí-
fugla. Tónarnir eru þó svo
háir, að venjulega er
ógerningur fyrir fólk að
heyra þá.
Agœtur
sjónauki
Er unnt að búa til sjón-
auka, sem hefur hvorki lins-
ur né stækkunargler?
Vissulega. Finndu þér
þunnan pappa og vefðu hon-
um saman eins og sést á
myndinni. Kíktu síðan í
gegnum hann með öðru
auga og þú verður sennilega
öldungis hissa, þegar þú sérð
hlutina skýrar en ella þrátt
fyrir allt.
Hver
skoraði
mark?
Reykjavíkurmóti
í knattspyrnu er
lokið — íslands-
mótið er hafið og
ekki er að efa, að
mörg mörk verða
skoruð í sumar. Á
myndinni sjáið þið
fjóra leikmenn,
sem fagna marki.
En hver þeirra
skoraði? Þú getur
fundið það með því
að fylgja strikun-
um frá leikmönn-
unum.
-
Búið til jólakort sjálf
Þegar líður nær jólum þykir sjálfsagt að hugsa til þess að
gleðja aðra. Þá sendum við m.a. vinum okkar jólakort og
gefum vandamönnum og vinum gjafir.
Ekki svo að skilja, að þetta eigi að vera eina tækifærið, sem
gefur okkur tilefni til þess, síður en svo. En alla vega er þetta
kærkomið tækifæri.
Gerum ekki jólin óþarflega dýr og óróleg. Við getum dund-
að sjálf við að búa til jólakort og e.t.v. einhverjar jólagjafir
líka. Hér sýnum við eitt dæmi um einföld jólakort, þar sem
„skuggamyndir" eru klipptar út úr svörtum pappír og límdar
á hvítan pappír. Einnig er hægt að klippa út myndir og líma
þær á sama hátt eða hreint og beint teikna þær sjálf.