Morgunblaðið - 05.07.1980, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 05.07.1980, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. JÚLÍ1980 + SIGRÍÐUR BENEDIKTSDÓTTIR, Bergþórugötu 45, er látin. Fyrir hönd aöstandenda. Ingibjörg Jakobsdóttir. + Ástkær eiginkona mín og móöir, GUORÚN JÓNSDÓTTIR, Rónargötu 1, andaöist aö Landakotsspítala fimmtudaginn 3. júlí. Jarðarförin verður auglýst síöar. Sveinn R. Jónsson, Kjartan Gunnarsson. + Móöir mín, JÓFRÍÐUR GUDMUNDSDÓTTIR, fró Helgavatni, Hjallavegi 27, lést í Borgarspítalanum 4. júlí. ( Anna Einarsdóttir. + Hjartkær eiginkona mín og móðir okkar, BRYNDÍS ÁSGEIRSDÓTTIR, andaöist í Hátúni 10 B fimmtudaginn 3. júlí. Jaröarförin veröur auglýst síöar. Síguröur Sigurðsson, Sigrún Erla Sigurðardóttir, Svanhildur Siguröardóttir, Guörún Siguröardóttir. + Eiginkona mín, GUÐRUN ALFREÐSDÓTTIR, lést aö heimili okkar 29. júní sl. Jaröarförin hefur farið fram í kyrrþey, aö ósk hinnar látnu. Póll Jónsson, Sundlaugarvegi 8, Reykjavík. + Móðir okkar, tengdamóöir og amma, SIGRÍÐUR HJARTARDÓTTIR Hraunbæ 80, andaöist fimmtudaginn 3. júlí. Lilja Hjartardóttir, Anna Hjartardóttir, Hans Júlíusson, Valgeröur Hjartardóttir, Kristjón Sveinsson, Margrét Hjartardóttir, barnabörn og barnabarnabarn. + Útför eiginmanns míns og föður okkar, HALLS HALLSSONAR, tannlæknis, hefur fariö fram í kyrrþey. Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö og vinarhug í okkar garð. Anne Marie Hallsson og börn. + Eiginmaöur minn, GUÐJÓN H. GUÐNASON, fyrrverandi tollvörður, Stórholti 14, andaöist í Landspítalanum 3. júli. Klara Eggertsdóttir. + Eiginmaöur minn, faöir, tengdafaöir, afi og langafi, ÞORLÁKURÁSMUNDSSON, Langholtsvegi 148, lést í Landspítalanum 3. júlí. Eva Ásmundsson, Ásmundur Þorlóksson, Svana Guðbrandsdóttir, Eliane Þorlóksdóttir, Yngvi Jóhannsson, barnabörn og barnabarnabarn. Ragna Sigurðardóttir Kjarri — Minning Ragna Sigurðardóttir var seinni kona afa míns. Sex ára gamall kom ég í fyrsta skipti í sveitina til þeirra. Síðan á hverju sumri næstu sjö árin, eða þar til þau brugðu búi og fluttu að Kjarri. Oft vorum við mörg krakkarnir á Þórustöðum og var það ekki lítið verk að þjónusta okkur öll og gæta þess að við færum okkur ekki að voða. Sveitin er full af spennandi æfintýrum og hættum fyrir okkur sem komum af mölinni. Ragna hefur því oft þurft að taka á honum stóra sínum. Varla sást hún þó skipta skapi. Vissulega var hún ákveðin við okkur, en þó á þann hátt sem henni einni var lagið. Hún kunni að láta okkur hlýða. Ragna var einstaklega at- orkusöm og ósérhlífin. Henni féll sjaldan verk úr hendi, hvort sem var inni eða úti við. Þessi mikli kraftur sem fylgdi henni Rögnu í öllum hennar athöfnum, var eins konar náttúrulögmál sem við urðum að lúta. Þegar hún setti okkur til verka, gekk hún alltaf á undan af ósérplægni. Hún skipaði ekki en gerði kröfur, þó mestar til sjálfrar sín. Ragna var geysi áhugasöm um allt er laut að gróðri og trjárækt. Þótt ekki þætti okkur gaman að reyta arfa, og mikill arfi óx í Þórustaðalandi, vakti hún áhuga okkar á garðrækt og trjágróðri. Enda báru gróð- rarstöðin, skjólbeltin og skrúð- garðurinn á Þórustöðum grænum höndum hennar og skipulagsgáfu tvímælalaust vitni. Allt sem hún snerti á, hvort sem það voru kálplöntur, blóm eða tré, dafnaði í höndum hennar. Ragna var mikil húsmóðir enda þurfti á að halda, því fjölmennt var í heimili. Mynd- arskapur og rausn voru henni í blóð borin. Það kom berlega í ljós þegar Þórustaðaheimilið varð eins konar sýnisgluggi íslenskra sveitaheimila á fyrstu árum land- kynningar. Þegar tréin laufgast, blómin blómstra og grösin gróa minnumst við Rögnu, barnabörn Péturs Guðmundssonar, með ævarandi þakklæti og söknuði nú er við kveðjum hana hinsta sinni. Pétur Björnsson + Eiginmaöur minn og faöir okkar, HAUKURJÓNSSON, hæstaréttarlögmaöur, sem andaöist 29. júní, veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju þriöjudaginn 8. júlí kl. 13.30. Lilja Þórólfsdóttir, Heimir Hauksson, Ragnar Hauksson, Jón Haukur Hauksson. + Útför eiginmanns míns, fööur okkar, tengdafööur og afa, KRISTINS F. ÁSMUNDSSONAR, vólstjóra, fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 7. júlí kl. 15.00. Blóm vinsamlegast afbeðin, en þeim, sem vildu minnast hins látna, er bent á Slysavarnafélag íslands. Helga Kristjónsdóttír, Olga Kristinsdóttir, Steinunn Kristínsdóttir, Árni Jónsson, Helga Árnadóttir og aörir aöstandendur. + Innilegar þakkir færum viö öllum, sem sýndu okkur samúö við fráfall KRISTÍNAR ÞORKELSDÓTTUR, Furugeröi 1. Aðstandendur + Þökkum auösýnda samúö og vináttu við fráfall CRISTIAN MARTIN NIELSEN. Áslaug H. Kjartansson, Kristján G. Kjartansson. + Þökkum innilega öllum þeim, sem sýndu okkur samúö og vinarhug við andlát og útför sonar okkar og bróöur, GRÉTARS ÞÓRS VIDARS, Geirbjarnarstööum, Köldu-Kinn. Foreldrar og systkini + Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö viö andlát og útför fööur okkar, tengdafööur, afa og langafa, JAKOBS NARFASONAR, Merkjateigi 5, Mosfellssveit. Sérstakar þakkir færum viö læknum og starfsfólki Reykjalundi. Arndís G. Jakobsdóttir Sigurður Narfi Jakobsson, Guöbjörg Sígurjónsdóttir, Hjalti Jakobsson, Fríöur Pétursdóttir, Jóhanna Jakobsdóttir, Sigurbjarni Guónason, Hulda Jakobsdóttir, Stefén Valdimarsson, Bernhard Linn, Dagbjört Pólmadóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Reykvíkingar miðaldra og eldri muna „Rögnu í Flóru“, og allir Ölfusingar þekkja hina mikilhæfu merkiskonu Rögnu í Kjarri, for- vígiskonu um að hlú að jarðar- blóma og efla sannar dyggðir. Ragna Sigurðardóttir andaðist á Borgarspítalanum miðdegis þ. 30. júní s.l. 73 ára að aldri. í löngu og erfiðu sjúkdómsstríði sínu sýndi hún sama æðruleysi og innri þrótt sem einkenndi hana allt hennar líf. Hún verður jarðsett í dag að Lágafellskirkju við hlið manns síns, Péturs Guðmundssonar. Pét- ur var einnig mjög kunnur maður, stofnaði og rak verzlunina Málar- inn í Reykjavík þar til þau Ragna settu á stofn bú að Þórustöðum í Ölfusi. Þau Ragna og Pétur voru með sérstæðustu persónuleikum, er ég hefi kynnst. Pétur stórhuga fram- kvæmdamaður og hugsuður, en Ragna staðföst og óvílsöm jarð- ræktarkona og vefnaðarkona, er hvergi hvikaði undan því, sem hún hafði sett sér. Þau giftust og hófu búskap að Þórustöðum í Ölfusi fyrir um þrem áratugum og fluttu að Kjarri í Þórustaðalandi fyrir sextán árum, en þar stunduðu þau trjárækt. Er Kjarr slíkur unaðs- reitur, að þar má líta dæmi þess, sem bezt má gera um að klæða landið, gera skjól og fegra sitt umhverfi. Þar sést, hvað ísland er í raun, þegar hrjóstrum og ber- angri hefur verið breytt í gróður- sæld í skjóli trjánna, þaðan sem sér til íslenzkra fjalla í tign sinni. Starf Rögnu þar, sem of fáir þekkja af eigin sjón, lýsir fram á veginn og hvetur menn til dáða á sviði trjáræktar og matjurta. Ragna átti ekki langt að sækja sinn brennandi áhuga á gróð- urskrúða og þjóðlegri heimilis- mennt. Hún var fædd að Gróðrar- stöðinni á Akureyri og fluttist á barnsaldri að Hólum í Hjaltadal, þar sem faðir hennar, Sigurður Sigurðarson, síðar búnaðarmála- stjóri, gerðist skólastjóri. Móðir hennar, Þóra Sigurðardóttir, var sterk og kærleiksrík sæmdarkona, er hafði rík áhrif á börn sín. Um tvítugt dvaldi Ragna tvö ár í Noregi við nám, m.a. í vefnaði, og síðar í Danmörku við blóma- Birting afmœlis- og minningar- greina. ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minningargreinar verða að berast blaðinu með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðvikudagsblaði, að berast i siðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga. Greinar mega ekki vera i sendibréfs- formi. Þess skal einnig getið af marggefnu tilefni að frum- ort ljóð um hinn látna eru ekki birt á minningarorðasið- um Morgunblaðsins. Handrit þurfa að vera vélrituð og með góðu línuhili.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.