Morgunblaðið - 05.07.1980, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 05.07.1980, Blaðsíða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. JÚLÍ 1980 Skýli SVFÍ í Hornvík. Hér birtist 3. og síöasta greinin um ferö Morgunblaösins um Hornstrandir. Feröin var farin meö varöskipsmönnum á v/s Óöni og Jósep Vernharössyni eftirlitsmanni meö skýlum Slysavarnafélags Islands á Hornströndum og tilgangur fararinnar aö líta eftir skýlunum og lagfæra þaö sem kynni aö hafa aflagast. Neyöartalstöövar eru í öllum skýlum SVFÍ á Hornströndum. Jósep kallaöi upp Ísafjaröarradíó til aö athuga hvort allt '»ri í lagi, og reyndist svo vera í öllum skýlunum, eftir aö loftnetum haföi veriö komiö í lag. .3. grein Texti og myndir Fríöa Proppé Þessi sérkennilega bergnös ber heitið Skófnaberg. IHornvík er nokkur spölur frá flæóarmáli aö skýlinu og hressandi aö ganga þennan spöl, enda blankalogn og sólar naut enn, þó lág væri á lofti. Dick Philips haföi einnig veriö á ferö þarna nýlega og tekiö fram í gestabók, aö einn úr hópnum heföi veikzt, en jafnað sig eftir 35 klst. svefn í skýlinu. Dick og félagar höföu þó gengiö vel frá öllu, en skýli þetta er gamalt íbúöarhús, sem slysavarnafélagsmenn hafa betrumbætt. Þarna var loftnet niöri og loftnetsmastriö brotiö í tvennt. Var þaö reyrt saman til bráöabirgöa og sagöi Jósep, aö þaö yröi endurnýjaö í sumar. Þá var einnig komiö viö í gamla íbúöarhúsinu aö Horni. Þaö eiga nú afkomendur Jónu Jóhannsdótt- ur og Stígs Haraldssonar, en þau hjónin fluttu þaóan upp úr 1940. Hús þetta var einnig mikiö til umfjöllunar í blööum sl. haust, vegna ágangs ferðamanna. Er komiö var inn í húsiö gat aó líta stór skilti þar sem feröalangar voru beönir aö ganga vel um. Erindi okkar þangaö var aö sækja gestabók hússins aö beiöni eig- enda þess. Koma varla nema í neyö Úr Hornvík var siglt fyrir Horn og Hornbjarg. Nokkuó mistur var í lofti og útsýni ekki nægilega gott. Þó duldist ekki sjónum hrikaleiki bjarganna og sjá mátti brimlööriö leika um klettana í flæöarmálinu. Fjalirnar þrjár eru sérstætt nátt- úrufyrirbrigöi og vinsæll dvalar- staöur íbúa bjarganna, enda eng- um færar með góöu móti nema þeim sem tvo vængi hefur. Úti fyrir Barðsvík var gúmmíbát- urinn settur á flot og einum háseta af Óöni bætt viö áhöfn hans vegna erfiöra lendingaraöstæðna í Barösvík, en þar er klettótt strönd og brim mikiö. Lending tókst þó vel og sögöust varöskipsmenn hafa séö hann svartari. Ganga þurfti sérstaklega vel frá bátnum, áöur en bátsverjar kröngluöust af staö eftir klettóttri fjörunni í átt til skýlisins. i flæöarmálinu var aö finna reka af ýmsu tagi. Hirtu varöskipsmenn þar fiskkassa, þrí- krók, lóöabelgi o.fl. Allt var í lagi í Morgunblaðið á eftirlits- ferð með slysa- varnafélags- og varðskips- mönnum skýlinu, en vegna staösetningar þess var gaskútur skilinn eftir, þar sem þarna koma varla aörir en þeir sem í neyö eru. Skipreika Ákveöiö haföi veriö aö fara með gúmmíbátnum frá Barösvík í Furu- fjörö. Reyndist þaö um þriggja stundarfjóröunga sigling og gaf sjó nokkuð yfir bátinn. Þegar skammt var eftir til lands í botni Furufjaröar geröi utanborösvélin uppsteyt og neitaöi aó ganga lengur. Var þá gripiö til áranna, en hægt gekk aö komast í rétta átt til lands. Þaö tókst þó aö lokum og voru þaö sjóblautir og kaldir eftirlitsmenn, sem komust til skýlisins eftir nokkra göngu. Var það góöur endir á ágætri ferö, aö fá smátil- finningu fyrir því, hvernig þaö er að geta komist í talstöö og hitaö sér heitan drykk í öruggu húsaskjóli eftir aö hafa blotnaö og kólnaö á sjó, þó í þessu tilfelli væri ekki um neyöartilfelli að ræöa. I skýlinu í Furufiröi reyndist allt vera í lagi. Birgir stýrimaöur kallaöi á varðskipiö í talstöö skýlisinS og sendur var annar gúmmíbátur eftir okkur. „Björgunarliöiö" undir stjórn Baldurs Halldórssonar 2. stýrimanns kom vonum fyrr, en biötímanum var variö í aö sötra kaffi, lesa gestabók og ræöa landsins gagn og nauösynjar. Baldur og áhöfn hans höfðu meö- feröis það sem kom vélinni í gagniö á ný og siglt var samhliöa út í Óöinn aftur, en þar beiö enn eitt veizluborðiö hópsins. Aöbúnaöur allur um borö í Óöni er mjög góöur og varöskipsmenn Vel heppnaöur dagur aö kveldi, siglt samhliöa út Furufjörö. Ekki var laust viö aö kapp hlypi í menn og hvatningarhróp voru send milli báta. í bátnum eru; taliö fra vinstri: Jósep, þá Birgir stýrimaöur óg Sófus bátsmaöur lengst til hægri.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.