Morgunblaðið - 05.07.1980, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 05.07.1980, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. JÚLÍ1980 15 franski hugsuður, að næsti ára- tugur væri „tími tækifæranna fyrir Sovétríkin." Og utanríkis- málaritstjóri Newsweek Arnaud de Borchgrave minnti í erindi sínu á, að 1973 hafi Leonid Brezhnev á leynifundi með leiðtogum Varsjár- bandalagslandanna sagt, að 1985 yrðu kommúnistar búnir að ná yfirhöndinni í heiminum. Og rit- stjórinn sakaði vestræna ráða- menn um að leyna umbjóðendur sína, kjósendurna, hve illa Vestur- lönd stæðu í raun að vígi til að komast hjá erfiðum ákvörðunum. En framtíðarfræðingurinn heims- frægi Herman Kahn minnti áheyrendur sína á þá óhugnanlegu staðreynd, að allar áætlanir Sov- étmanna benda til þess, að þeir telji unnt að heyja kjarnorku- styrjöld án gjöreyðingar. En slík stefna gerir fyrirbyggjandi gildi kjarnorkuvopnanna að engu og ruglar öllum þeim fræðilegu for- sendum, sem friðurinn er talinn byggjast á. Theo Sommer ritstjóri þýska vikublaðsins Die Zeit var ekki eins áhyggjufullur yfir hern- aðarmætti Sovétríkjanna og fyrrgreindir ræðumenn og í máli hans endurspeglaðist sá munur, sem vart verður í afstöðu ráða- manna í Bonn og París annars vegar og Washington hins vegar til Kremlverja. Ólík viðhorf til slökunar í tilefni af fundi æðstu manna helstu iðnríkja heims í Feneyjum fyrir skömmu rifjuðu menn upp þennan ágreining. Fyrir fundinn sendi Jimmy Carter Bandaríkja- forseti Helmut Schmidt kanslara Vestur-Þýskalands bréf, þar sem hann vék að ágreiningsatriðum þeirra. Var því meðal annars komið af stað í fjölmiðlum, að leiðtogana greindi á um, hvort nauðsynlegt væri að koma fyrir eldflaugavarnakerfi í Evrópu gegn sovésku SS-20 eldflauginni. En ákvörðun um kerfið var tekin á ráðherrafundi Atlantshafsbanda- lagsins í desember s.l. Helmut Schmidt hefur borið til baka, að nokkur ágreiningur sé um þetta mál enda hafi hann á árinu 1977 verið upphafsmaður að umræðum um það, sem síðar leiddu til fyrrgreindar ákvörðunar. Og á Fenyjafundinum sameinuðust þjóðaleiðtogarnir um fordæmingu á herför Sovétmanna í Afganistan og töldu haldlítil fyrirheit Kremlverja um brottkvaðningu herafla þaðan. Ágreiningurinn kemur hins veg- ar fram í því, að bæði Helmut Schmidt og Giscard d’Estaing Frakklandsforseti hafi farið til viðræðna við Leonid Brezhnev síðustu vikur og daga þrátt fyrir andmæli Bandaríkjamanna. Evr- ópsku leiðtogarnir telja slíkar viðræður nauðsynlegar til að við- halda slökunarstefnunni (dét- ente). Bandaríkjamenn hafa hins vegar velt því fyrir sér, hvers virði slík stefna sé, ef hún leyfi Sovét- mönnum að gleypa hvert landið eftir annað. Og það eru ekki einungis Bandaríkjamenn, sem draga í efa, að rétt sé nú um stundir að ganga til viðræðna við Kremlverja. í nýlegu blaðaviðtali sagði Þjóðverjinn Christoph Bertram, forstjóri Alþjóðaher- málastofnunarinnar í London, að hann teldi viðræður Frakklands- forseta við Brezhnev „taktísk" mistök og hann velti því fyrir sér, hvort för Helmut Schmidts til Moskvu í þessari viku þjónaði nokkrum öðrum tilgangi en þeim, að fullvissa Sovétmenn um að þeir ættu að fylgja óbreyttri stefnu. Hins vegar lagði hann á það áherslu, að „taktísk" mistök væru allt annað en friðmæli. Og alls ekki mætti álykta sem svo, að ráðamenn í Evrópu vildu friðmæl- ast við Moskvuvaldið. Og Bertram minnti á, að gárurnar milli evr- ópskra ráðamanna og bandarískra innan Atlatnshafsbandalagsins mætti einnig rekja til þess, að hinir fyrrnefndu teldu Banda- ríkjastjórn skorta stefnufestu. Mikilvægar spurningar Þessar umræður vekja margar spurningar: Hvers vegna finnst Bandaríkjamönnum, að evrópsku leiðtogarnir gangi of langt? Hvað veldur því, að viðhorfið til Sovét- ríkjanna verður annað eftir að nær þeim dregur? Hvaða afleið- ingar hefur það, að meirihluti íbúa Vestur-Þýskalands telur Sov- étríkin mesta herveldi heims? Hvers vegna má nú lesa spár um það, að fall Evrópu verði rakið til pólitísks þrekleysis? Hvaðan fá Vesturlönd þá sterku einhuga for- ystu, sem öllum virðist ljóst, að ekki er fyrir hendi? Hver verður næsti forseti Bandaríkjanna, eða kanslari Vestur-Þýskalands eða forseti Frakklands? — svo að aðeins þeir séu taldir, sem standa í kosningabaráttu eða eru að hefja hana. Þessum spurningum verður ekki svarað hér, en þær hljóta að leita á huga allra, sem velta fyrir sér Grigori Romanov — ýmsir spá því, að hann muni koma fram sem leiðtogi Sovétríkjanna úr valdabar- áttunni að Brezhnev gengnum. þróun alþjóðamála. Svörin við þeim eru ekki heldur einhlít, því að jafnframt er nauðsynlegt að hyggja að því, hvert stefnir í æðstu valdastofnunum Sovétríkj- anna. Nú er því spáð, að strax eftir valdaferil Leonid Brezhnevs muni taka við samvirk forysta, sem fari með stjórn landsins á meðan menn skipi sér í fylkingar til að ákveða nýja framtíðarforystu. Hverjir muni skipa hana ræðst ekki síst af því, hvað keppinaut- arnir eru greiðviknir við herinn, öflugasta valdahópinn í sovéska kerfinu. Miðað við slíka þróun spá margir vestrænir Sovétfræðingar því, að Grigori Romanov verði hlutskarpastur að lokum. Hann er nú yngsti félaginn í hinni allsráð- andi stjórnmálanefnd kommún- istaflokksins, 57 ára að aldri, og leiðtogi flokksdeildarinnar í Len- ingrad. Fimm punktar um Island Þegar metin er staða Islands á alþjóðavettvangi er ekki of lang- sótt að velta fyrir sér heildar- þróun alþjóðamála. Enginn hefur lengur heimild til að skipta heim- inum í ferninga, þríhyrninga eða aðra fleti og segja, að það, sem gerist á þessu svæðinu eða hinu, hafi engin áhrif utan þess. Og ekki má gleymast, að það eru höfin, samgöngur á þeim og sú flotas- tefna Sovétmanna, að fáni þeirra skuli blakta um allan heim, sem gera veröldina að einni heild í hernaðarlegu tilliti. Lönd, sem eru á lykilhafsvæðum breytast í skurðpunkta milli austurs og vest- ur hvort sem mönnum líkar betur eða verr. Norður-Atlantshafið er að þessu leyti mjög viðkvæmt og þar liggur ísland um þjóðbraut þvera. í fljótu bragði má nefna fimm ástæður, sem skýra hvernig ísland kemur inn í myndina: 1. Vegna þess hve kafbátar búnir kjarnorkueldflaugum eru mikilvægur liður i miðkerfinu milli risaveldanna og 70% af slikum kafbátum Sovétríkjanna hafi bækistöð fyrir norðan Island er landið vegna legu sinnar hluti af þessu kerfi. Hvorugt risaveld- anna mundi þola óvissu eða tóma- rúm á íslandi. 2. Sameiginlegt varnarkefi Atl- antshafsbandalagsins byggist á því, að sérhver bandalagsþjóð leggi sitt af mörkum til sameigin- legra varna. Framlag hvers og eins fer eftir efnum og ástæðum. íslendingar leggja fram land und- ir varnarstöð, sem er lífsnauðsyn- legur hlekkur í sameiginlega varn- arkerfinu, um leið og hún er sérstök öryggistrygging fyrir ís- land. Aðild Islands að Átlants- hafsbandalaginu án sérstaks varnarviðbúnaðar í landinu sjálfu er þverstæða, sem ekki er unnt að rökstyðja með skynsamlegum hætti eða á fræðilegum forsend- um. 3. Ekki er unnt að greina á milli Norður-Evrópu eða Norður- Atlantshafs og Mið-Evrópu. Hættuástand eða átök í norðri mundu leiða til mikillar spennu og síðar átaka í Mið-Evrópu. Með stefnu sinni í utanríkis- og örygg- ismálum leggur ísland lóð á vog- arskál friðar í Evrópu. 4. Án þess að með sýnilegum hætti sé ljóst, að unnt verði að flytja liðsafla og birgðir frá Norður-Ameríku til Vestur- Evrópu á hættutímum er varn- arstefna Atlantshafsbandalagsins einskis virði. Átökin i síðari heimsstyrjöldinni sýndu, að að- staða á íslandi er nauðsynleg til að heyja orrustu á Atlantshafi og hafa betur. 5. Núverandi skipan mála, þar sem Vestur-Evrópa og ríkin í Norður-Ameríku sameinast um að tryggja öryggishagsmuni sína, er óskastaða frá íslenskum sjónar- hóli. Færi svo, að hugmyndin um „fortress America", þ.e. Bandaríkjamenn dragi úr skuld- bindingum sínum gagnvart vörn- um Vestur-Evrópu, kæmi til fram- kvæmda yrðu íslendingar settir í mjög erfiða aðstöðu. Til að komast hjá því að þurfa að velja á milli Evrópu og Norður-Ameríku hljóta þeir að leggja sig fram um að viðhalda núverandi skipan. Staðreyndir en ekki aukaatriði Á nýlegri ferð um Bandaríkin átti ég þess kost að hlusta á ræður lærðra manna eins og áður er getið. Ég ræddi einnig við emb- ættismenn í utanríkisráðuneytinu og varnarmálaráðuneytinu í Washington. Tók þátt í fundi með starfsmönnum rannsóknastofnun- ar bandaríska þingsins, hitti starfsmann eins öldungardeildar- þingmanna og gerði mér ferð í Center for Defense Information, sem hér hefur orðið frægt, sem heimild herstöðvaandstæðinga. Enginn íslendingur getur gengið af fundi allra þessara aðila með aðra skoðun en þá, að þeir telji ísland lífsnauðsynlegan hlekk í því kerfi, sem stofnað hefur verið til í því skyni að tryggja heims- friðinn, og núverandi utanríkis- stefna íslendinga sé eina skyn- samlega forsendan í því tilliti. Því miður mun líklega langur tími líða, þar til tækifæri gefst til að fara þannig á fund margra ólíkra aðila í höfuðborg Sovétríkj- anna og leita álits þeirra á stöðu íslands í vályndri veröld. En ekki þarf langa íhugun til að komast að þeirri niðurstöðu, að Sovétmenn hijóti að líta á ísland sem þann þröskuld, er þeir þurfa að komast yfir til að ná yfirhöndinni á Norður-Atlantshafi. Og Atlants- hafið ræður úrslitum um heimsyf- irráð. Þetta hlýtur þeim íslend- ingum að vera ljóst, sem leggja sig fram um að breyta núverandi utanríkis- og öryggisstefnu ís- lands. Helsta markmið Sovétríkj- anna í samskiptunum við ísland er að fá landsmenn til að rjúfa varnarsamstarfið við Bandaríkin og ganga úr Atlantshafsbandalag- inu. Með þetta sama markmið eru þeir, sem ganga undir kjörorðinu: Island úr NATO, herinn burt. Innan heildarrammans verðum við að meta alla viðleitni okkar til að tryggja frið og eigið öryggi. í samanburði við undirölduna í þróun öryggis- og alþjóðamála eru umræður um vopnabúnað og tækjakost á Keflavikurflugvelli smávægilegt aukaatriði. Slíkum umræðum standa þeir einir fyrir, sem vilja ekki takast á við stað- reyndirnar. Þótt þær séu ógnvekj- andi er nauðsynlegt að taka mið af þeim og engu öðru. Geri menn það ekki, fljóta þeir sofandi að feigð- arósi og þaðan verður ekki aftur snúið. Björn Bjarnason. Leonid Brezhnev og Helmut Schmidt ffyrir framan heiðursvörö í Moskvu á mánudaginn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.