Morgunblaðið - 05.07.1980, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 05.07.1980, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. JÚLÍ1980 23 framkvæmd, því bókstaflega allt var selt undir eftirliti af öryggis- ástæðum og af því leiddi að sækja þurfti um leyfi fyrir öllum útflutn- ingi til nefnda. Afleiðingin af slíku voru sífelld fundarhöld, umsóknir um leyfi á alls konar eyðublöðum í mörgum eintökum og svo sífellt þjark, sem upp tók mikið af vinnu- tímanum hvern einasta dag. Störfin í þessum nýstofnuðu sendiráðum voru því oft ákaflega þreytandi en oftlega líka ánægjuleg þegar vel gekk og það tókst að knýja fram góðan árangur fyrir íslenska hags- muni og slíkt tókst líka oftast sem betur fer. Það leiðir af því sem hér hefur verið talið að framan, að störfin jukust jafnframt í hinu litla utan- ríkisráðuneyti hér heima. Starfs- fólkinu fjölgaði eftir því sem störfin jukust og urðu fjölbreyttari. Sam- skiptin við hin erlendu setulið, Breta og Bandaríkjamanna, tóku mikið af starfstíma starfsfólksins, því þegar frá upphafi var ákveðið að þau skyldu af íslands hálfu fara fram á vegum utanríkisráðuneytis- ins. Það var án efa skynsamlegt að hafa þá skipan á afgreiðslu þessara höfðu setulið. Af hálfu íslensku ríkisstjórnarinnar var talið rétt að taka þessum tilmælum vel og komst þannig diplómatískt samband á milli landanna árið 1944. Þess má geta, að flest þeirra ríkja, sem nefnd hafa verið hér að framan, höfðu ræðisskrifstofur hér á landi, og hafði svo verið áratugum saman af hálfu sumra þeirra. Um leið og stofnað var stjórnmálasam- band við þessi ríki breyttu þau ræðisskrifstofum sínum í sendiráð. Þau ríki, sem ekki höfðu haft hér ræðisskrifstofur, stofnuðu að sjálf- sögðu sendiráð. Sendiráð í París Fljótt eftir lok heimsstyrjaldar- innar hófst öflug uppbygging Evr- ópuríkjanna og varð París bráðlega aðalaðsetur ýmissa alþjóðastofnana fyrir Vestur-Evrópu. Það kom fljótt í ljós, vegna efnahagsmála og margs fleira (t.d. marshallaðstoðin og Efnahagsstofnun Evrópu (OEEC síðar OECD), að það mundi hafa þýðingu fyrir Island að hafa þar sendiráð auk þess sem verið var að nríkis- tan I r ara mála, enda hefur svo verið alla tfð síðan og annast nú varnarmáladeild utanríkisráðuneytisins þessi sam- skipti. Það hafa nýlega verið uppi raddir um það að breyta þessu fyrirkomu- lagi og flytja hin ýmsu mál undir þau ráðuneyti, þar sem þau „norm- alt“ ættu að hljóta afgreiðslu, en það er vafasamt að það verði til bóta. Núverandi utanríkisráðherra hefur líka látið í ljós þá skoðun að þetta þurfti nánari athugunar við. Á stríðsárunum bárust tilmæli frá Sovétríkjunum um að tekið yrði upp diplómatískt samband milli þeirra og íslands. Engin verslunar- viðskipti voru þá á milli ríkjanna, né gátu orðið á meðan stríðið stóð yfir, svo að hér var um pólitískar ástæður að ræða um upptöku nánari samskipta, enda voru Sovétríkin þá komin í hernaðarbandalag við Bretland og Bandaríkin, sem hér byggja upp markað fyrir íslenskar afurðir í Frakklandi. Þar var því stofnað sendiráð og fastanefnd árið 1946. Þá voru stofnuð sendiráð í Noregi og Vestur-Þýskalandi og réðu þar um bæði vináttutengsl og skyldleiki svo og viðskiptasjónar- mið. Á árunum eftir lok stríðsins jókst alþjóðleg samvinna einnig mjög mikið, eins og þegar hefur verið vikið að. Auk þeirra alþjóðastofn- ana, sem þegar hafa verið nefndar gerðist ísland aðili að Sameinuðu þjóðunum og undirstofnunum þeirra, 16 að tölu, að Atlantshafs- bandalaginu og að Evrópuráðinu. Síðar kom svo þátttaka í Fríversl- unarsamtökum Evrópu og samvinnu við Efnahagsbandalag Evrópu og um það bil 20 alþjóðastofnanir aðrar, sem hér verða ekki taldar upp. Auk sendiráðanna hafa því verið stofnaðar fastanefndir svo sem hjá Sameinuðu þjóðunum í New York, hjá Atlantshafsbandalaginu í Bruxelles og í Genéve, þar sem margar alþjóðastofnanir hafa aðal- aðsetur. Nú á síðari árum hefur verið stefnt að því að stofna stjórnmála- samband við mörg fleiri ríki, ekki síst í Asíulöndum bæði vegna óska um nánari samskipti á grundvelli vináttu og samheldni þjóða á milli en vitanlega einnig með aukin viðskipti og nýja markaði fyrir augum. Of snemmt er að segja nokkuð um árangur af þessari viðleitni. Þess má einnig geta, að stofnaðar hafa verið töluvert á annað hundrað ólaunaðar ræðis- skrifstofur víðs vegar um heim og koma þær oft að góðu gagni. Miðstöð utanríkisþjónustunnar er utanríkisráðuneytið, sem hefur yfir- umsjón með allri utanríkisstarfsem- inni. Málefni þau, sem undir utan- ríkisráðuneytið falla eru öll utan- ríkismál í víðustu merkingu þess hugtaks og má þar til dæmis nefna utanríkispólitík landsins, verslun- arviðskipti við önnur lönd, fyrirsvar íslands hjá öðrum ríkjum og hjá alþjóðastofnunum, gæslu hagsmuna íslenskra ríkisborgara og upplýs- ingastarfsemi. Til þess að vinna sem best og hagkvæmast að utanríkis- málum íslands hefur utanríkisráðu- neytinu verið skipt í deildir, sem hver hefur sín ákveðnu verkefni. Þessar deildir eru nú fimm að tölu. ísland tók sjálft við meðferð utanríkismála sinna að öllu leyti á hinum erfiðustu tímum fyrir fjöru- tíu árum, þegar hin lamandi áhrif heimsstyrjaldarinnar voru að byrja á að segja til sín. Sannast að segja var þjóðin heldur illa undir það búin að takast á við hin miklu og erfiðu verkefni, sem ákvörðuninni fylgdu. En sjálfs er höndin hollust, segir gamalt máltæki, og það fer ekki á milli mála, að meðferð hinna ís- lensku utanríkismála var best kom- ið í höndum landsmanna sjálfra. Það var sannkölluð eldskírn er hin nýstofnaða utanríkisþjónusta hlaut í upphafi, en þegar litið er til baka til þessara ára verður varla annað sagt en að allt starfið hafi gengið blessunarlega vel. Öll vandamál þarf að leysa og öll voru þau leyst þótt misjafnlega tækist og þótt árangurinn yrði ekki alltaf sá sem helst hefði verið vonast eftir. Árin eftir að heimsstyrjöldinni lauk voru sannarlega erfið enda þurfti utanríkisþjónustan ekki síður þá að fást við hin þýðingarmestu mál fyrir land og þjóð. Það á ekki við að fara að telja þau upp í þessari grein, en það nægir að minna á handritamálið, þar sem utanríkis- þjónustan kom töluvert við sögu, og þó sérstaklega landhelgismálið, þar sem allar framkvæmdir á þeirri stefnu, sem Alþingi og ríkisstjórn hafa markað, hafa verið í höndum utanríkisþjónustunnar. Aðgerðir í því máli hófust að marki strax eftir lok stríðsins og þeim er ekki lokið enn eins og kunnugt er. Enda þótt mér hafi verið málið skylt held ég, að mér sé óhætt að fullyrða eftir áratuga starf í utan- ríkisþjónustunni, bæði heima og erlendis, að hún hafi unnið mikið og gott starf fyrir ísland og íslenska hagsmuni. Það hefur sjálfsagt líka verið lán utanríkisþjónustunnar, að hún hefur jafnan haft mörgum góðum og gegnum starfsmönnum á að skipa. Hér hefur í stuttu máli verið drepið lauslega á uppbyggingu ís- lensku utanríkisþjónustunnar og það hlutverk, sem henni er ætlað að gegna í kerfi hins íslenska ríkis- valds, enda engin tök á að rekja slíkt nánar í blaðagrein. Ef litið er á þróunina, eins og hún hefur orðið þessi fjörutíu ár, verður varla annað sagt en að hún hafi orðið þannig, að sæmilega vel sé séð fyrir þörfum landsins eins og þær eru nú. Því hefur stundum verið haldið fram, að staðsetning sendiráða hafi verið nokkuð handahófskennd, en eins og sjá má af því sem að framan er sagt er það ekki rétt. Það má ekki einblína á það, að flest sendiráðin séu í nágrannalöndum okkar og því á tiltölulega litlu svæði hnattarins. Sendiráðin hafa verið stofnuð eftir því sem þörf landsins hefur sagt til um og þar sem aðalviðskiptin hafa verið við nágrannalöndin er eðlilegt að flest sendiráðin séu einmitt þar. Það má alltaf stofna fleiri sendiráð ef þörf krefur og ef fé fæst til slíks á fjárlögum, en kostnaður af utanrík- isþjónustu íslands er nú hlutfalls- lega mjög svipaður kostnaði hinna Norðurlandanna af rekstri utanrík- isþjónustu þeirra. Eins og nú er háttað þörfum íslands virðist ekki ástæða til neinnar serstakrar út- færslu eða stórstækkunar á utanrík- isþjónustunni að óbreyttu ástandi. Þó kann að vera, að æskilegt sé að styrkja sum sendiráðin, þar sem álag er mest, en að sjálfsögðu verður alltaf að fara eftir því sem hagsmunir þjóðarinnar krefjast, hvort sem það er stjórnmálástandið í heiminum, viðskiptahagsmunir eða önnur sjónarmið sem til greina koma. Aðalatriðið er það, að þjóðin sníði sér jafnan stakk eftir vexti á sviði utanríkismálanna eins og á öðrum sviðum þjóðlífsins. i tima til húsa i Stjórnarráðinu við Lækjartorg Ný bók: Frelsisbaráttan í Ráðstjórnarríkjunum íslenzka andóísnefndin var stofnuð í janúar sl., er leiðtogi andófsmanna í Ráðstjórnarríkjunum, vísinda- maðurinn og nóbelsverðlaunahafinn Andrei Sakharof, var handtekinn og sendur í útlegð til hinnar lokuðu borgar Gorkí. Tilgangur nefndarinnar er að styðja andófsmenn í hinum austrænu alræðisríkjum í baráttu þeirra fyrir frelsi og lýðræði, safna upplýsingum um þá og miðla þeim. Andófsnefndin hefur nú í samvinnu við Almenna bókafé- lagið gefið út bók um baráttu andófsmannanna, sem nefnist „Frelsisbaráttan í Ráðstjórn- arríkjunum“. I henni eru grein- arnar Hvers vegna varð ég andófsmaður? eftir Andrei Sakharof, Viðvörun til Vesturlandamanna eftir Alex- ander Solsénitsyn, Mannrétt- indahreyfingin í Ráðstjórnar- ríkjunum eftir Vladimír Búk- ofskí, andófsmannatal með aevi- ágripum flestra kunnustu and- ófsmannanna og eftirmáli eftir Hannes H. Gissurarson, sagn- fræðing, þar sem hann ræðir um forsendur frelsisbaráttunnar í verkalýðsfélögum, en leiðtogi þeirra, Hlébanof, hefur lengi verið vistaður á vitfirringahæli. Þetta mál hlýtur verkalýðs- hreyfingin íslenzka að láta sig varða. Það er skylda íslenzkra verkamanna að styðja starfs- bræður sína í Ráðstjórnarríkj- unum, sem réttlausir eru. Andófsnefndin skorar einnig á íslenzka listamenn og vísinda- menn að sýna valdsmönnum í Ráðstjórnarríkjunum, að þeir styðji andófsmennina í frelsis- baráttu þeirra." Andófsnefndin hyggst efna í haust til andófsvöku með ungu fólki, halda einnig áfram að safna og miðla upplýsingum um Frá blaðamannafundi íslensku andófsnefndarinnar, f.v. Hannes H. Gissur- arson, umsjónarmaður bókarinnar; Inga Jóna Þóröardóttir, formaður nefndarinnar og Friörik Friðriksson, nefndarmaður. austri, samskipti Vesturlanda- búa og Kremlverja og þá von, sem enn er til, um að þegnar Kremlverja hljóti að lokum þau mannréttindi, sem eru talin sjálfsögð á Vesturlöndum. Inga Jóna Þórðardóttir, viðskipta- fræðingur, skrifar formála bók- arinnar, en hún er formaður andófsnefndarinnar. Að sögn Ingu Jónu á blaða- mannafundi í gær, skrifaði ís- lenzka andófsnefndin ólympíu- nefndinni bréf, þegar eftir stofnun sína, og hvatti til þess, að íslendingar færu að dæmi flestra annarra lýðræðisþjóða og sendu ekki íþróttamenn á Ólympíuleikana 1980 í Moskvu að nýlokinni innrás Rauða hers- ins í Afganistan, til þess að kommúnistar gætu ekki gert þá að áróðursleikjum, eins og þjóð- ernissósíalistar gerðu í Berlín 1936. Islenzka ólympíunefndin hafði þessa hvatningu að engu, og harmar andófsnefndin það, að sögn Ingu Jónu — ekki sízt þegar vitað er, að flestir eða allir kunnustu andófsmennirnir, sem eftir voru í Ráðstjórnar- ríkjunum, hafa nú verið hand- teknir fyrir leikana. Inga Jóna sagði: „Andófs- nefndin skorar á íslenzka ólympíufara að taka undir fyrir- huguð mótmæli franskra íþróttamanna á leikunum í Moskvu. Andófsnefndin skorar á hinar voldugu fjöldahreyfingar okkar, íþróttahreyfinguna og verka- lýðshreyfinguna, að styðja and- ófsmenn í Ráðstjórnarríkjunum í framtíðinni. Hún bendir á það, að í bókinni Frelsisbaráttunni í Ráðstjórnarríkjunum er sagt frá baráttu verkamanna í Ráð- stjórnarríkjunum fyrir frjálsum Frelsisbaráttan í Ráðstjórnarríkjun- um inniheldur þrjár ræður eftir kunna andótsmenn, andófsmanna- tal og eftirmála ritaöan af Hannesi H. Gissurarsyni. Formála skrifar Inga Jóna Þórðardóttir. andófsmenn og reyna að fá einhverja þeirra til landsins. Þeir, sem hafa áhuga á að styðja nefndina í orði og verki, geta skrifað í pósthólf 1334, 121 Reykjavík. í andófsnefndinni eru auk Ingu Jónu Þórðardóttur, formanns, Friðrik Friðriksson, viðskiptafræðinemi, Guðmund- ur Heiðar Frímannsson, menntaskólakennari, Gunnar Þorsteinsson, menntaskólanemi og Óskar Einarsson, læknanemi. I viðtalinu við Morgunblaðið sagði Inga Jóna Þórðardóttir, að nefndin vildi með þessu fram- taki sínu verða við ósk andófs- mannanna um að vekja athygli á þeirra málstað á íslandi. Inga Jóna sagði það skoðun sína, að allir Islendingar ættu að geta sameinast um að styðja við bakið á andófsmönnunum, það væri mál, sem ekki kæmi dæg- urþrasi stjórnmálanna við.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.