Morgunblaðið - 05.07.1980, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 05.07.1980, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. JÚLÍ1980 13 fjárveitingum í skolplagnir. I samþykkt borgarráðs var þó sett það skilyrði, að ekkert yrði þarna nema keiluspil og sú starfsemi sem því tengdist. í umhverfis- málaráði hafði forstöðumaður borgarskipulags kynnt tiliögu um veitingarekstur og meiri umsvif í kringum þetta, sem er óþarfi, þar sem Loftleiðir hafa opna kaffi- teríu allan sólarhringinn í næsta nágrenni. Aftur á móti hefði verið gott að fá slíkt við Nauthólsvíkina. Suðurhluti Öskjuhlíðar er orðinn yndislegur gróðursæll útivistar- staður, sem margir nýta sér og óþarfi að leiða þangað starfsemi, sem krefst bílaumferðar og um- svifa. Hvað snertir nauðsynlegar lagnir út í Nauthólsvíkursvæðið, hlýtur að verða að taka afstöðu til þess nú hvort ganga eigi í það verk, eða hætta öllum bollalegg- ingum um nýtingu á svæðinu og umferð fólks. Raunar er ég alveg undrandi á því að heilbrigðisyfir- igardal thólsvík völd skuli líða það sem þegar er þar, miðað við kröfur um salerni og handlaugar annars staðar, og horfir fram hjá því að fólk verður að setjast bak við stein eða gengur örna sinna niður í fjöru. Þegar rignir skolast allt í heitan lækinn og sjóinn. Það skyldi þó ekki vera að bakteríur af erlendum upp- runa, sem greinast nú í sjónum þarna, eigi þar uppruna. Með aðstöðunni kemur notkunin íslendingar hafa á undanförn- um árum verið að gera sér grein fyrir kostum þessa lands og tæki- færum, sem það hefur upp á að bjóða umfram önnur lönd. Hér höfum við dýrmætt landrými, hreint loft og óspillta náttúru til að nýta og njóta. Sem er hreinn lúxus í augum þéttbýlli landa. Þegar frumþörfum hefur verið fullnægt í húsnæði og fæði, gefst svigrúm til að huga að því sem til ánægju og vellíðunar snýr. Þetta gildir ekki síður í þéttbýli en dreifbýli. Og með auknum frítíma verður þörf og löngun meiri til samskipta fólks og sameiginlegra leikja og útivistar. En slíkt kemur ekki af sjálfu sér. Heldur ekki í Reykjavík. Þarna hefur orðið viss þróun. Eftir átakið mikla við útrýmingu lélegs húsnæðis, við að koma hitaveitu í hvert hús og síðan varanlegri gatnagerð til aksturs og rykbindingar, var farið að huga að umhverfinu. tekin frá útivistarsvæði í borg og utan og byrjað að gera þau aðgengileg til notkunar. Sést vel hvernig íþróttasvæðin í öllum hverfum og utan borgar hafa laðað að, svo og önnur aðstaða. Er skíðaaðstaðan í Bláfjöllum þar ljóst dæmi. Svo og gerð göngugötunnar í Austur- stræti og frágangur hennar með hitalögnum undir sem fékk harða gagnrýni fyrir kosningarnar 1974. Þótti ýmsum mesta bruðl. En á þessum stöðum sést vel hve fólk kann að meta aðstöðu, sem veitt er og hvernig notkunin fylgir á eftir, þótt það taki nokkurn tíma að þróast. Sama er um öll hin 'svæðin, sem unnið hefur verið við að þurrka upp og jarðvegsbinda, gróðursétja í og lagfæra fyrir íbúana að njóta og nýta. Og í framhaldi af því er tillagan fyrrnefnd um líf í borg frá 1979, þar sem grunnhugmynd- in er að laða til notkunar frátekin auð svæði í hverfunum fyrir fólkið þar og félög þess. Að því er nú unnið. Breytingar á lífsháttum Að sjálfsögðu getur enginn séð fyrir hvað borgarar Reykjavíkur kunna að vilja í framtíðinni. Hvaða viðbótaróskir þeir kunna að hafa umfram það, sem við þekkjum í dag. Þar verður bara að reyna að spá fram í tímann út frá því sem við þekkjum í dag og gæta þess að brenna ekki allar brýr að baki, eins og með því að þekja hvern blett með járnbentri steinsteypu. Svo þétt að hvergi verði svigrúm á landi fyrir þá sem á eftir koma og óskir þeirra. En við erum þó, eins og aðrir, farin að eygja veigamiklar breyt- ingar á lífsháttum frá því sem nú er. Fram að þessu hefur-mannkyn- ið gengið í gegn um tvær algerar byltingar í lífsháttum, sem hver um sig þurrkaði út fyrri menningu og færði í staðinn aðra lifnaðar- hætti, sem fyrratíma fólk gat ekki órað fyrir. Landbúnaðarbyltingin varð á þúsundum ára, en iðnaðar- byltingin tók um 300 ár og er að fjara út þessa áratugina. Og nú er þriðja umbyltingin í uppsiglingu, eins og þeir gátu a.m.k. fengið hugboð um, sem fylgdust með örtöivu-þáttunum í sjónvarpinu í vetur. Með hraða nútímans mun byltingin sú gerast á miklu skemmri tíma en hinar fyrri. Með henni eru að koma yfir heiminn nýir lífshættir, sem byggjast á nýjum orkugjöfum, framleiðslu- háttum sem eru að gera stóru færibandaverksmiðjurnar óþarfar og munu dreifa störfunum frá þéttu miðborgunum og í litla vinnustaði úti í íbúðarhverfunum eða jafnvel inni á heimilunum. Samskipti öll, þjónusta og upplýs- ingaöflun mun fara fram um tölvur, sem allt eins hagkvæmt er að hafa heima hjá sér, eins og í dýrum skrifstofurekstri — rétt eins og símann. Margir spá því að þetta eigi eftir að gerbreyta fjöl- skyldulífinu, verðmætamati og Elin Pálmadóttir lífsstíl — öllum rytma hins dag- lega lífs. í stað þess að allir æði af stað að heiman í bílalestum á sama tima á stóra vinnustaði og heim aftur örþreyttir, þá verður hægt að velja sér vinnutíma, starfa í smáeiningum eða heima, svo jafnvel gefist aftur í nokkrum mæli færi á sameiginlegri fram- leiðslueiningu í fjölskyldunni, eins og var á landbúnaðarstiginu og margir sakna, eftir að fjölskyid- urnar fóru að tætast í sundur. Menn fá verkefni heim um tölvur og senda þau frá sér um tölvur og vinna þau þegar þeim hentar. Og tneð bæði styttum vinnutíma og starfi heima í hverfunum á mismunandi tíma, þarf líka meiri og sveigjanlegri nýtingu á tóm- stundum, íþróttum, likamsþjálfun o.s.frv. í heimahverfinu eða í nánd við það. Talið er að þá muni fólk vilja og þurfa að hafa allt slíkt í nánd við sig. En við það sparast aftur dýrar og umfangsmiklar samgönguæðar og sí dýrara elds- neyti á farartækin. Þótt vart sé hægt að sjá hvernig þær lífskröfur verða, er augljóst að við, sem erum svo lánsöm að hafa ekki þegar þrengt of mikið að okkur og eigum enn möguleika á að taka við óvæntum þörfum, erum þrælheppin. Væri því dálítið önugt og skammsýnt að fara æinmitt nú að ganga á auðu svæðin í byggð og þrengja kosti þeirra sem á eftir koma og það til að leysa stundarblankheit, sem þó eru miklu minni en þau voru áður fyrr þegar menn höfðu reisn til að byKKja Landsbókasafn, Alþingis- hús og Þjóðleikhús o.fl. Það væri skammsýnt — E. Pá. í Laugardalnum eru þegar mikil íþróttamannvirki og í framtíðinni þörf fyrir mörg önn- ur, en norðan til er grasgarður og gróðursvæði. Unnar hafa verið tillögur um lagningu trimm-, skíða- og göngubrauta um dalinn ug mælt með að það verði gert sem fyrst. Slitnu linurnar sýna brautirnar og þá hægt að velja sér styttri eða lengri leiðir. \ Dómkirkjan: Sunnudagstón- leikar í sumar S.l. sumar var tekin upp sú nýbreytni í kirkjulífi Reykjavík ' ur, að haldnir voru orgeltónleik- ar í Dómkirkjunni á sunnudags- eftirmiðdögum í júli ug ágúst. Hófust þeir kl. 6 síðdegis og stoðu í 30—40 mínútur. Var þetta gert að frurakvæði dómorganist- ans, Marteins H. Friðrikssonar, sem lék á öllum tónleikunum. Þetta gafst svo vel í fyrra, og var vel sótt, þannig að ákveðið hefur verið að halda þessu áfram, en auka fjölbreytnina. Á sumum tónleikunum munu því koma fram kórar og einsöngvarar og einnig aðrir organistar. Fyrstu tóleikarnir verða á sunnudaginn kemur, þ. 6. júlí og hefjast sem fyrr segir kl. 6 síðdegis, en kirkjan verður opnuð stundarfjórðungi fyrr og er öllum heimill ókeypis aðgangur. Þá mun Marteinn H. Friðriksson leika verk eftir Bach og Reger og enda á Choral í E-dúr eftir César Frank. Þetta verður svo vikulegur við- burður í Dómkirkjunni í júlí og ágúst, og forráðamenn hennar vænta þess, að þær vinsældir, sem þessir tónleikar nutu á liðnu sumri, eigi enn eftir að aukast. Verið velkomin í Dómkirkjuna. Þórir Stephensen. Guðmundur Sigurjónsson: Lofsvert framtak Skáklíf á íslandi stendur í miklum blóma um þessar mund- ir, og ýmis teikn eru á lofti, sem lofa góðu um næstu framtíð. Margt mætti nefna, en í þessum pistli langar mig að ræða um aðeins eitt þeirra, enda ber það hæst. Ilér hef ég í huga helg- armót Jóhanns Þóris Jónsson- ar, ritstjóra timaritsins Skák- ar. Hann hélt fyrsta mótið í Fjölbrautaskólanum í Keflavík undir verndarvæng Jóns Böðv- arssonar skólameistara, en ann- að mótið fór fram í Hótel Borgarnesi, þar sem Jóhannes Sigurðsson hótelstjóri ræður ríkjum. Þessi skákmót voru öll- um til mikils sóma, er þar komu nærri. Allir bestu skákmenn landsins mættu til leiks, en því miður er það fremur fátítt að slíkt gerist nú orðið. Ánægju- legast fannst mér þó að sjá nokkra af okkar fremstu ungl- ingum þarna, og höfðu sumir þeirra komið um langan veg. Ekki virtist mér að þessa ungu menn skorti áhuga eða hæfileika til að þjóna listinni, en tækifæri til að spreyta sig við þá bestu hafa verið fá til þessa. Nú hefur orðið ánægjuleg breyting þar á. Jóhann Þórir hefur í hyggju að halda fleiri skákmót út um land á næstunni með svipuðu sniði, enda hefur þetta framtak hans hlotið mjög góðar undir- tektir hvarvetna. Sveitarfélög og fyrirtæki hafa lagt honum lið auk skákfélaga viðkomandi staða. Þessi mót standa yfir í aðeins þrjá daga og þvi sjá margir sér fært að taka þátt í þeim. Þátttökugjaldi og öðrum kostnaði er mjög í hóf stillt og er því engum ofviða. Skákmönnum vítt og breitt um landið mun því á næstunni gefast mörg tæki- færi til að máta þá bestu. Tveir unglingar úr Bolungar- vík hafa vakið mikla athygli fyrir snjalla taflmennsku í helg- armótunum tveimur, sem fram hafa farið. Þeir heita Halldór Einarsson og Júlíus Sigurjóns- son. í Keflavík vann Halldór gömlu kempuna Benóný Bene- diktsson og Júlíus yfirspilaði íslandsmeistarann Jóhann Hjartarson gjörsamlega, en í tímahraki missti Júlíus af vinn: ingi. Þetta var forleikurinn. í fyrstu umferð mótsins í Borg- arnesi drógust þeir félagar gegn Jóhann Þórir Jónsson Friðrik Ólafssyni og Margeiri Péturssyni. Stórmeistarinn komst lítið áleiðis gegn öruggri taflmennsku Halldórs og skákin endaði að lokum með jafntefli. Margeir lenti í hrikalegum erfið- leikum gegn Júlíusi og rambaði lengi á barmi glötunar, en um síðir heppnaðist honum að ná jafntefli. — Sögur í þessum dúr verða vafalaust fjölmargar áður en árið er liðið. Svo er Jóhanni Þóri fyrir að þakka. Heyrst hefur, að næsta helgarmót verði í Bolungarvík.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.