Morgunblaðið - 28.05.1974, Blaðsíða 35
35
fagnaðarefni.. .Góður
g bæjarmálum... Andúð
ija ekki vinstri stjórn...
GRINDAVÍK
,,Hér var ötullega
unniö“
Dagbjartur Einarsson efsti
maðurinn á lista Sjálfstæðis-
flokksins í Grindavík hafði
þetta að segja: ,,Hér hefur
verið mjög ötullega unnið að
þvi að gera veg flokksins sent
mestan i þessum kosningum og
vil ég þar sérstaklega nefna
þau Ólínu Ragnarsdóttur og
Sigurpál Einarsson, en sjálf-
stæðismenn hér allir sýndu
mikinn áhuga og dugnað.
Landsmálin hafa einhver áhrif
haft og svo einnig það, að við
höfum aldrei haft áhrif á
bæjarmálin hér fyrr en sl. 4 ár
og nú þegar fólk sér, að þetta
gengur þótt Alþýðuflokkurinn
sé ekki einráður, þá skilar sér
það fylgi, sem við vitum, að við
eigum hér og höfum fengið i
alþingiskosningum. En við
erum óneitanlega mjög stoltir
yfir þessum glæsilega sigri,
sem hér vannst. Það er lika
enginn vafi á þvi, að Alþýðu-
bandalag og framsóknarmenn
stóreyðilögðu fyrir sér með þvi
að bjóða fram saman."
KÓPAVOGUR
,,Þökkum frábært
og óeigingjarnt
starf“
Sigurður Helgason efsti
rnaður á lista Sjálfstæðisflokks-
ins i Kópavogi sagði: „Við erum
ánægðir yfir að hafa aukið fylgi
okkar hér um 5,2%, en ég get
ekki neitað þvi, að ég vonaðist
til að Samtök frjálslyndra og
vinstri ntanna rnyndu koma
betur út úr kosningunum en
raun ber vitni, þar sem ég tel,
að framfarir i Kópavogi séu
fyrst og fremst þessum tveimur
aðilum að þakka. Það er alveg
greinilegt að minu mati, að ein-
hverjar hreyfingar, ekki flokks-
legar, innan þeirra raða hafa
brugðizt. Að öðru leyti vil ég
þakka sjálfstæðisfólki, einkum
þeirn, sem unnu frábært og
óeigingjarnt starf á skrifstofum
okkar og sem ég þakka sigurinn
fyrst og fremst. Ég þakka einn-
ig óflokksbundnum Kópavogs-
búum fyrir stuðning þeirra við
stjórnvöld i Kópavogi, en fylgið
sýnir, að þeir hafa kunnaó að
meta hið mikla uppbyggingar-
starf i Kópavogi undanfarin
ár.“
HUSAVÍK
„Höfðum góðan
mann í
baráttusætinu“
Jóhann Kr. Jónsson efsti
maður á lista Sjálfstæðisflokks-
ins á Húsavik sagði: „Égþakka
útkomuna því, að við höfðum
mjög góðan mann í baráttusæt-
inu og mikill áhugi var á þess-
um kosningum. Ástæðan er
einkum sú, að allir listar börð-
ust raunverulega gegn okkur
og því unnum við mikið og
árangurinn er eftir því góður."
STYKKISHÓLMUR
„Innanhéraðsmál
réðu mestu“
Agúst Bjartmars, efsti maður
á lista sjálfstæðismanna og
óháðra i Stykkishólmi, sagði:
„Þetta snerist nú mest um
rnenn og ntálefni hérna innan-
héraðs hjá okkur. En þó má
vera að þær miklu flokkasvipt-
ingar sem átt hafa sér stað á
vinstra kanti stjórnmálanna
hafi ráðið þar einhverju ->
Við buðum nú fram með ,rjáio
lyndum, og það þýddi nokkra
fylgisaukningu, en hinir voru
svo á móti. Það kann þvi að
hafa hvarflað að kjósendum að
það sama kynni að eiga sér stað
hérna ef vinc mennirnir
þyrftu að fa>-- ■ ,uma sérsam-
an. En við <_ ,i mjög ánægðir
með þessi úrsiit, og þau komu
okkur að nokkru leyti á óvart,
þvi það munaði aðeins 15 at-
kvæðum að við kæmum fimmta
manninum ir t.“
GARÐAHREPPUR
„Fólklét
skynsemina ráða“
Ólafur G. Einarsson, efsti
maður á lista Sjálfstæðisflokks-
ins i Garðahreppi sagði m.a.:
„Við erum að sjálfsögðu afar
ánægðir með þennan sigur okk-
ar. Við teljum, að áróður and-
stæðinganna hafi algjörlega
misst marks, sérstaklega þegar
þeir voru að deila á skipulagið
hér. Þá fóru þeir með rangt
mál, og það fann fólk. Éólkið
hér heíur þvi látið skynsemina
ráða í þessum kosningum og
viljum við þakka öllum fyrir
góðan stuðning."
ÞINGEYRI
„Búist við
þessum úrslitum“
Jónas Ólafsson efsti ntaður á
lista Sjálfstæðisflokksins á
Þingeyri sagði: „Það hafði
verið búist við þessum úrslit-
um, og kom tap Sjálfstæðis-
flokksins mér ekki á óvart. Það
er ekki hægt að segja að við
höfum beint tapað hér. þvi nú
var einnig í framboði Iisti
óháðra kjósénda, sem fékk
mann frá okkur. Efsti maður á
þeim lista var í öðru sæti hjá
Sjálfstæðisflokknum við sið-
ustu sveitarstjórnarkosningar.
Þá buðu vinstri flokkarnir
fram sameiginlega nú, og at-
kvæðahlutfallið varð þeim hag-
stætt.“
FLATEYRI
„Stjórna til
skiptis“
Einar O. Kristjánsson efsti
maður á lista Sjálfstæðisflokks-
ins á Flateyri sagði: „Við áttum
von á þessum úrslitum, og þvi
miður tapaði Sjálfstæðis-
flokkurinn hér fylgi og er það
leiðinlegt, því flokkurinn bætti
við sig, nær alls staðar annars
staðar á landinu. En hér á Flat-
eyri hefur það gengið þannig
siðastliðin 16 ár, að Sjálfstæðis-
flokkurinn hefur haft meiri-
hluta annað kjörtímabilið, en
vinstri flokkarnir hitt. Fólk
hefur á þennan hátt skipt mjög
oft um hreppsnefnd, og við von-
um að einnig verði skipt eftir
fjögur ár.“
BORGARNES
„Óhagstætt
hlutfall
gagnvart
kommúnistum
réð úrslitum.“
Björn Arason, efsti maður á
lista sjálfstæðismanna í Borgar-
nesi, sagði: „Ég lít svo á, að við
sjálfstæðismenn þurfum ekki
að vera óánægðir þegar á heild-
ina er litið hvað varðar at-
1 ■r-ðair ign. Við bættum við
ok. • svo til jafn ntiklu og
fram. ikn, eða 25 atkvæðum á
móti 2h. Hins vegar töpuðum
við manni vegna óhagstæðs
hlutfalls gagnvart kontmún-
istum, og rná það að mestu
rekja til mikils innflutnings til
Borgarness, sem verið hefur
þeim i hag. En kannski hafa
ekki sizt persónulegar orsakir
ráðið hér vmsu."
AKUREYRI
„Andúð á
ríkisstjórninni“
Jón Sólnes 4. ntaður á lista
Sjálfstæðisflokksins á Akur-
eyri sagði i örstuttu samtali:
„Við lýsum gleði okkar og
ánægju yfir þessum glæsilegu
úrslitum. Við þökkum sigurinn
m.a. þvi, að við vorum eini
flokkurinn hér í algerri and-
stöðu við ríkisstjórnina og
teljum, að úrslitin séu yfirlýs-
ing um ótviræðan vilja kjós-
enda. Við vitum, að við nutum
stuónings fólks úr öllum flokk-
um. Varið land naut mikils
stuðnings hér í vetur og það er
fyrst og fremst andstaðan við
rikisstjörnina, sem speglast i
úrslitunum."
KEFLAVÍK
„Bæjarbúar
jákvæðir“
Tómas Tómasson lögfræð-
ingur efsti maður á lista Sjálf-
stæðisflokksins i Keflavik sagði
í samtali við Mbl.: „Sú von
okkar rættist, að flokkurinn
varð stærsti flokkurinn í bæn-
um, eins og hann hafði áður
verið um árabil. Þessi úrslit
komu okkur ekkert á óvart, við
stefndum að fjórum mönnum
og það tókst með ötulli vinnu og
áhuga stuðningsmanna okkar
og svo er greinilegt. að lands-
málapólitikin hafði sin áhrif.
Framsókn tapaði og Alþýðu-
bandalagið bætti ekkert við sig,
en það gerðum við og Alþýðu-
flokkurinn. Við erum auðvitað
mjög ánægðir með úrslitin.“
VEST-
MANNAEYJAR
„Héldum okkar
hlut og
góðlega það“
Einar H. Eiriksson skatt-
stjóri, sem skipaði efsta sæti
D-listans i Vestmannaeyjum
sagði um úrslitin: „Við erum út
af fyrir sig ánægðir með útkom-
una, héldum okkar hlut og góð-
lega það, þrátt fyrir þetta at-
kvæðamagn samtakanna. Hvað
nú tekur við er enn óráðin
gáta."
SAUÐARKRÓKUR
„Vilja greinilega
ekki vinstri
stjórn yfir sig“
„Það dugði ekki vinstri
mönnum, að þeir Ólafur Jó-
han' . .,on og Ragnar Arnalds
mættu hér tveimur dögunt fyrir
kosningar til að hjálpa sínum
mönnum," sagði Halldór Þ.
Jónsson lögfræðingur, sem var
efsti maður á lista Sjálfstæðis-
flokksins á Sauðárkróki. „Þetta
var raunar óvæntur sigur fyrir
okkur, þvi að við jukum fylgið
unt 26% og tókum alla atkvæða-
fjölgunina og einnig fylgi af
öðrpm flokkum. Þetta teljum
við vitnisburð um þá forystu,
sem Sjálfstæðisflokkurinn hef-
ur haft i bæjarntálum hér sl, 4
Framhald á bls. 24.