Morgunblaðið - 28.05.1974, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. MAÍ 1974
25
— Kosningaúrslit
Framhald af bls. 13
Hvammstangi
Kosningin þar var óhlutbundin
og hlutu þessir kosningu:
Brynjólfur Sveinbjörnsson,
Danfel Pétursson, Ingi Bjarnason,
Karl Sigurgeirsson og Stefán Þor-
kelsson.
Blönduós
Þar fékk D-listi sjálfstæðis-
manna og fleiri 178 atkvæði og 3
kjörna, en hiaut slðast 160
atkvæði og einnig 3 menn. H-listi
vinstri manna og óháðra fékk nú
172 atkvæði og 2 kjörna. I kosn-
ingunum 1970 fékk listi Fram-
sóknar og óháðra 157 atkvæði óg 2
menn, en listi frjálslyndra 46
menn og engan mann.
I hreppsnefnd eru nú kjörnir
— af D-lista Jón Isberg, Gunnar
Sigurðsson og Guðmundur
Einarsson, en af H-lista Árni
Jóhannesson og Hilmar Kristjáns-
son.
Skagaströnd
Atkvæði féllu þannig: A-listi
hlaut 51 atkv. (57) og 1 mann
kjörinn, B-listi 66 atkv. (50) og 1
mann kjörinn, D-listi 74 atkv.
(104) og tvo menn, G-listi 62 atkv.
(35) og 1 mann og H-listi ungra
framfarasinna 36 atkv. og engan
mann.
Fulltrúatala listanna i hrepps-
nefnd er óbreytt, þótt nokkur
breyting hafi orðið á fylgi, en í
hreppsnefnd eiga þá sæti:
Bernódus Ölafsson A, Jón Jóns-
son B, Adolf J. Berndsen og Gylfi
Sigurðsson D og Kristinn
Jóhannsson af G-lista.
Hrísey
Enginn listi kom fram I Hrísey
og kosningin þvi óhlutbundin.
Kosningu hlutu: 1. Björgvin
Jónsson 96 atkvæði, 2. Björgvin
Pálsson 81 atkvæði, 3. Ingveldur
Gunnarsdóttir 70, 4. Jóhann
Sigurbjörnsson 52 og 5. Hörður
Snorrason 44. Kjörsókn var
67.48%. Kosningin var einnig
óhlutbundin 1970.
Raufarhöfn
Atkvæði féllu þannig, að G-list
inn hlaut 87 atkvæði (88) og 2
menn, D-listinn fékk 59 atkvæði
og 1 mann, B-listinn 38 atkvæði og
1 mann og H-listi óháðra 112
atkvæði og 3 fulltrúa. Meirihluti
óháðra frá síðustu kosningum
hefur því tvístrazt, en nú eiga
sæti í hreppsnefnd: Heimir Ingi-
marsson og Angantýr Einarsson
af G-lista, Helgi Ölafsson af D-
lista, Björn Hólmsteinsson af B-
lista og Karl Ágústsson af H-lista.
Egilsstaðahr
Framsókn tapaði meirihlutan-
um á Egilsstöðum, þar sem Al-
þýðubandalagið vann mann.
B-listi Framsóknarflokksins
hlaut 163 atkvæði og 2 kjörna
(161 og 3), D-listi Sjálfstæðis-
flokksins fékk 66 atkvæði og 1
kjörinn (49 og 1), G-listi Alþýðu-
bandalagsins fékk 105 atkvæði og
1 kjörinn (43 og 0) og H-listi
óháðra 68 atkvæði og 1 (53 og 1).
I hreppsnefnd voru kosnir: Af
B-lista Guðmundur Magnússon og
Magnús Einarsson, af D-lista
Jóhann D. Jónsson, af G-lista
Sveinn Árnason og af H-lista
Erling Garðar Jónsson. — Kjör-
sókn var90.8%
Reyðarfjörður
H-listinn fékk mann á hlutkesti
með jafnmörg atkvæði og L-listi,
sem fékk engan.
Tveir listar sjálfstæðismanna
komu nú fram á Reyðarfirði, og
var annar úrskurðaður utan
flokka. Hvor listinn fékk mann,
en 1970 hafði listi Sjálfstæðis-
flokksins 2. Alþýðubandalagið
vann nú mann af lista fram-
sóknarmanna, sem var talinn
utan flokka nú eins og 1970.
Orslitin urðu þau, að D-listi
Sjálfstæðisfélags Reyðarfjarðar
hlaut 69 atkvæði og 1 kjörinn, og
H-listi sjálfstæðismanna, úr-
skurðaður utan flokka, fékk 38 og
1 kjörinn sem komst inn á hlut-
kesti, (1970 fékk D-listi Sjálf-
stæðisfélags Reyðarfjarðar 76
atkvæði og 2). G-iisti Alþýðu-
bandalagsins fékk nú 82 atkvæði
og 2 (57 ogl).K-listi óháðrafékk
nú 50 atkvæði og 1 (47 og 1).
L-listi framsóknarmanna, úr-
skurðaður utan flokka, fékk 38
atkvæði og engan (64 og 1). M-
listi framfarasinnaðra kjósenda
fékk 77 atkvæði og 2 (79 og 2).
I hreppsnefnd voru kosnir: Af
D-lista Páll Elísson, af G-lista
Helgi Seljan og Guðmundur Beck,
af H-lista Arnþór Þórólfsson, af
K-lista Vigfús Ólafsson og af M-
lista Marinó Sigurbjörnsson og
Hjalti Gunnarsson
Fáskrúðsfjörður
Atkvæði féllu þannig, að Glist-
inn fékk 137 atkv. og 3 menn
kjörna, B-listinn 126 atkv. (101)
og 2 menn kjörna og D-listinn
hlaut 87 atkv. (77) ög 2 menn
kjörna.
I siðustu kosningum, 1970, bauð
Alþýðubandalagið ekki fram sér-
stakan lista, en þá fékk listi
Verkalýðs- og sjómannafélagsins
104 atkvæði og 2 kjörna, og loks
hafði þá listi óháðra kjósenda 35
atkvæði og 1.
I hreppsnefnd voru kosnir: Af
G-lista Baldur Björnsson, Þor-
steinn Bjarnason og Þóra
Kristjánsdóttir. Af B-lista
Þórólfur Friðbjörnsson og Arn-
fríður Guðjónsdóttir, og af D-lista
Albert Kemp og Ulfar Sigurðs-
son. Auðir seðlar voru 8 og 1
ógildur. Kjörsókn var 88,33%.
Stöðvarfjörður
I-listi fráfarandi hreppsnefndar
hlaut 112 atkv. og 4 menn kjörna
og J-listinn hlaut 39 atkv. og 1
mann.
I hreppsnefnd voru kosnir: Af
I-lista: Björn Kristjánsson, Frið-
rik Sólmundsson, Hafþór Guð-
mundsson og Sólmundur Jónsson
og af J-lista: Bjarni Gislason.
Kjörsókn var 92%.
Hornafjörður
Sjálfstæðismenn bættu við sig
Iveimur fulltrúum á Hornafirði
og Framsókn einum, en þar var
fjiilgað um tvo í hreppsnefnd.
Samtök óháðra kjósenda, sem
siðast fengu einn, buðu ekki frani
sérlista nú. Eitt atkvæði skildi
sjálfstæðismenn og framsóknar-
menn.
B-listi framsóknarmanna og
stuðningsmanna þeirra fékk 209
atkvæði og 3 (131 og 2). D-listi
sjálfstæðismanna fékk 208 at-
kvæði og 3 (103 og 1). G-listi
Alþýðubandalagsins fékk 95 at-
kvæði og 1 (91 og 1). — Samtök
óháðra kjósenda fengu 1970 71
atkvæði og 1.
I hreppsnefnd voru kosnir: Af
B-Iista Öskar Helgason, Þórhallur
Dan Kristjánsson og Birnir
Bjarnason. Af D-lista Vignir Þor-
björnsson, Árni Stefánsson og
Unnsteinn Guðmundsson, og af
G-lista Benedikt Þorsteinsson. —
Kjörsókn var 84,18%.
Stokkseyri
D-listi S jálfstæðisflokksins
hlaut nú 132 atkvæði og 3 (105 og
3). I-listi Alþýðu- og framsóknar-
inanna og óháðra 83 og 2 og H-listi
vinstri mann 68 og 2. 1970 fékk
listi frjálslvndra kjósenda 98 at-
kvæði, Franisókn 36 og Alþýðu-
flokkur 26.
I hrpppsnefnd voru kosnir: Af
D-lista Helgi Jónsson bóndi,
Steingrímur Jónsson sveitarstjóri
og Asgrimur Pálsson fram-
kvæmdastjóri. Af I-lista Vern-
harður Sigurgrímsson og Eyjólfur
Óskar Eyjölfsson. Af H-lista Frí-
mann Sigurðsson og Hörður Páls-
son. Auðir voru 6 og ógildur 1.
Kjörsókn var93,2%.
Eyrarbakki
Atkvæði féllu þannig: D-listinn
fékk 139 atkv. og 3 menn (148
og 4), A-listinn, listi Alþýðufl.,
Framsóknarfl. og óháðra fékk
86 atkv og 2 menn kjörna (126 og
3) og H-listi óháðra fékk 86 atkv
og 2 menn kjörna.
I hreppsnefnd voru kosnir: Af
A-lista Vigfús Jónsson fyrrv. odd-
viti og Jón Bjarni Stefánsson, út-
gerðarmaður. Af D-lista Kjartan
Guðjónsson, form. verkalýðs-
félagsins Bárunnar, Oskar
Magnússon skólastjóri og oddviti,
og Jón Gunnar Gíslason vélvirki.
Af H-lista Bjarnfinnur Ragnar
Jónsson vélstjóri og Arsæll
Þórðarson húsasmiður.
Selfoss
D-listi Sjálfstæðisfl.
408 (352) 3(2) 29.85%
B-listi Framsóknarfl.
399 2 29.19%
G-listi Alþýðubandal.
211 1 15.44%
J-listi jafnaðarmanna
218 (115) 1(0) 15.95%
l-listi óháðra
131 (247) 0 (2)
Framsóknar- og Alþýðubanda-
lagsmenn buðu fram saman árið
1970 og fengu þá 494 atkvæði og 3
menn kjörna.
I hreppsnefnd Selfoss sitja þvi
næstu fjögur árin — af B-lista
Hafsteinn Þorvaldsson og Eggert
Jóhannesson, af D-lista Óli Þ.
Guðbjartsson, Páll Jónsson og Jón
Guðbrandsson, af G-lista Sigurjón
Erlingsson og af J-lista Brynleif-
ur H. Steingrímsson.
Á Selfossi var kjörsóknin um
94.2%.
Hveragerði
I Hveragerði héldu sjálfstæðis-
menn meirihluta sínum og fengu
3 fulltrúa af 5 í hreppsnefnd.
Atkvæði féllu þannig:
D-listi Sjálfstæðisflokksins
fékk 247 atkvæði og 3 (164 og 3).
I-listi samvinnumanna hlaut 174
atkvæði og 2 kjörna og H-listi
Óháðra kjósenda fékk 77 atkvæði,
en engan kjörinn. — 1970 fékk
Framsóknarflokkurinn 102 at-
kvæði og 1, Alþýðubandalagið 76
og 1 og Alþýðuflokkurinn 37 og
engan.
í hreppsnefnd voru þessir
kjörnir: Af D-lista Hafsteinn
Kristinsson, Hans Christiansen og
Friðgeir Kristjánsson og af I-lista
Þórður Snæbjörnsson og Asgeir
Björgvinsson.
Varði doktors-
ritgerð í Lundi
Séra Einar Sigurbjörnsson
varði fyrir skömmu doktorsrit-
gerð við háskólann í Lundi. Rit-
gerðin ber heitið „Ministries
within the people of God”.
— Minning
Framhald af bls. 27
játaði trú sína á hann, sem alla
leiðir heim að lokum.
Hún var trú allt til dauða, og ég
er þess fullviss, að fvrirheitið um
kórónu lifsins hefur fallið henni i
skaut.
Blessuð sé hin ljúfa minning
hennar.
Ragnheiður Olafsdöttir
Að morgni 25. april síðastliðins,
lézt á Landspítalanum frænka
okkar góð Guðný Guðjónsdóttir
frá Brekkum í Hvolhreppi.
Guðný var fædd 4. maí 1905 og
var því tæplega 69 ára að aldri, er
hún lézt. Hér skal ekki rakinn
æviferill hennar í einstökum atr-
iðum. Sjálf var hún ekki fjölyrt
um sína hagi, það skipti hana
jafnan meira máli að létta undir
byrðar vina sinna, og þeir voru
margir. Við minnumst hennar
með þakklæti og trega, þaö segir
sína sögu.
Guðný giftist aldrei og átti enga
afkomendur, en við, stór hópur
systkinabarna hennar og aðrir
góðir vinir, áttum rúm í hjarta
hennar, sem værum við hennar
börn.
Hugur okkar reikar til barnsár-
anna, mynd Guðnýjar er björt og
skýr í hugum okkar. Arin liðu, við
uxum úr grasi. giftumst og eign-
uðumst okkar börn, ást hennar og
umhyggja náði lil þeirra lika.
Með þessum línum viljum við
þakka elskulegri frænku okkar
fyrir umhyggju hennar og elsku i
okkar garð, og barna okkar. Vina-
hópurinn var stór, hjarta hennar
var stórt.
Vertu sæl, Drottinn Guð þig
þeiði.
Frænkur.
Allir vita, aö sumir viröast yngri en þeir eru.
Æskan viróist hafa tekiö ástfóstri viö þá,
og þeir njóta þess í viröingu og vinsældum.
En hefurðu tekiö eftir þvi, hvernig þeir
klæóast, þessir lukkunnar pamfilar?
Föt eftir nýjustu tízku, scm fara vel - gefa
persónu þinni ferskan blæ, svo aö þú
virðist ekki ári eldri en þú ert,
jafnvel yngri.
Reyndu sjálfur. Sýndu heiminum þínar -
yngstu hlióar.
Fáöu þér ný Kóróna föt, og sjáöu hvernig
brosunum til þin fjölgar.
Herrahúsið Aðalstræti4, Herrabúóin vió Lækjartorg