Morgunblaðið - 28.05.1974, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. MAl 1974
7
THE OBSERVER THE OBSERVER
___,—•. ___-—i •.
Glistrup
til hjálpar
í augum ókunnugra virtist al-
gjör upplausn ríkja ■ Danmörku
um miðjan þennan mánuð. Tvö
hundruð þúsund verkamenn lögðu
niður vinnu í fyrstu pólitisku verk-
föllunum, sem efnt hefur verið til
þar frá þvi endi var bundinn á
hersetu nasista i siðari heimsstyrj-
öldinni. Voru verkamennirnir að
mótmæla nýjum skattaálögum,
sem þingið hafði samþykkt til að
leysa efnahagsvandann. Kröfðust
þeir þess að rikisstjórn frjálslynda
flokksins færi frá, og við tæki ný
stjórn, sem hefði meiri skilning á
málstað verkamanna.
Væru aðgerðir verkamannanna
teknar alvarlega. leit helzt út fyrir,
að múgveldi væri á næsta leiti, og
að völd þingsins væru i hættu. En
flestir stjórnmálamennirnir neit-
uðu að taka aðgerðirnar alvarlega.
Þegar svo skapgerð Dana er höfð i
huga. er vafasamt að verkfalls-
menn sjálfir hafi tekið yfirlýsingar
sinar bókstaflega. Danir eru
gæddir mikilli hæðni og hafa gam-
an af skripalátum.
Paul Hartling forsætisráðherra
sagði í viðtali við fréttamenn að
hann ætti erfitt með að skilja allt
þetta umstang út af nokkurrra
aura hækkun á ölflösku og krónu
hækkun á vindlingapakka, en það
voru þessar hækkanir, sem leiddu
til verkfallanna. Auknar álögur á
munaðarvöru eiga að renna nýjum
stoðum undir efnahaginn, og
Hartling kvaðst ekki geta séð að
sú leið væri jafn óþjóðfélagsleg og
verkfallsmenn vildu halda fram.
Poul Hartling er for-
sætisráðherra minnihlutastjórn-
ar, sem aðeins nýtur stuðn-
ings 22 af 179 þingmönnum
danska þingsins. Mótmælin hóf-
ust strax og hann lagði fram frum-
varp sitt um lausn efnahagsmál-
anna. Ef aðeins er iitið á frumvarp-
ið sjálft hefði mátt ætla að flestir
þingmennirnir nema róttækustu
vinstrimenn gætu fallist á það, þvi
í þvi fólst skynsamleg leið til
lausnar. Danmörk á við mikla
verðbólgu að stríða, sem nemur
um 1 5% á ári, svo ekki sé minnzt
á viðskiptajöfnuðinn við útlönd,
sem er óhagstæður um sem nem-
ur 1 milljón sterlingspunda á dag.
Bersýnilega dugðu engin vettl-
ingatök.
Þá kom babb i bátinn. Jafnaðar-
menn, sem eru i stjórnarandstöðu,
voru tilneyddir að snúast gegn
frumvarpinu. Þótt þeir séu stærsti
þingflokkurinn með 46 sæti, hafa
þeir sætt mikilli gagnrýni vinstri-
manna. Undanfarin fimm til sex ár
hafa þeir stöðugt verið að missa
fylgi yfir til. kommúnista og hálf-
kommúnista i sósialska alþýðu-
flokknum. Og það var siðarnefndi
flokkurinn, sem hefur mikil itök i
verkalýðsfélögunum, sem boðaði
til verkfallanna. Opinbera verka-
lýðsforystan, sem er i nánum
tengslum við jafnaðarmenn, lýsti
hneykslun sinni á vinnustöðvun-
unum. Ekki var forustan síður
hneyksluð yfir fjöldafundum, sem
haldnir voru fyrir framan
Kristjánsborgarhöll, þar sem þing-
ið hefur aðsetur í Kaupmanna-
höfn, I því skyni að hvetja þing-
menn til að fella frumvarpið.
Jafnaðarmenn gátu ekki látið
fjöHakröfurnar afskiptalausar. Ef
þeir ætluðu sér að endurheimta
fylgi þessara manna. urðu þeir að
greiða atkvæði gegn Hartling. Þvi
miður hefði það leitt til nýrra þing-
kosninga innan mánaðar. Þar sem
ekki eru nema rúmir fimm mánuð-
ir frá síðustu kosningum i desem-
ber 1973 og hvorki þjóðin né
stjórnmálamennirnir hafa neinn
sérstakan áhuga á að endurtaka
þá raun strax. varð einhvern veg-
inn að bjarga stjórninni.
Maðurinn, sem gerði það, var
Mogens Glistrup, þessi frumlegi
nýliði i dönskum stjórnmálum.
Hann vann glæsiletgan sigur í sið-
ustu kosningum með nýstofnuð-
um Framfaraflokki sínum, hlaut
28 þingsæti, og er flokkurinn því
næst stærsti þingflokkurinn.
Stefnumál hans var að draga úr
sköttum og skriffinnsku.
Þegar Glistrup kom fyrst á þing
var hann hreinlega hunzaður af
fulltrúum borgaraflokkanna, sem
voru Iftt hrifnir af þeim kjósenda-
fjölda og þeim þingsætum, sem
Glistrup hafði frá þeim hirt. Hann
var lifandi sönnun þess, að Danir
eru orðnir þreyttir á vaxandi
skattabyrði og skriffinnsku vel-
ferðarrikisins. Þegar frumvarp
Hartlins var í bráðri hættu. kom
Glistrup til hjálpar, og þá var það
sem hann vann þann sigur, sem
hann hafði beðið eftir. Leiðtogar
flokkanna tóku hann tali, og hann
var tækur í „Snapstinget", eða
gildaskála þingsins, þar sem oft er
gert út um málin i óformlegum
viðræðum yfir glasi af iskældu
ákávíti. Hét Glistrup þvi að allir
28 þingmenn flokks hans skyldu
standa með stjórninni.
Fréttamenn, sem minntust
kosningastefnuskrár hans og bar-
áttu gegn hverskyns sköttum,
spurðu hann hvort hann væri ekki
að svikja málstaðinn. Hann svar-
aði þvi akveðið neitandi. Hann
hafði öðlazt virðingu, og það var
það sem hann sóttist eftir. Það var
ekki lengur unnt að ganga framhjá
Framfaraflokknum. Hann var
kominn í hóp viðurkenndu flokk-
anna.
Margt bendir til þess að jafnað-
armenn hafi einnig verið Glistrup
innilega þakklátir. Með stuðningi
sinum við rikisstjórnina gerði
hann jafnaðarmönnum kleift að
vera i andstöðu við nýja skatta-
frumvarpið án þess að það þyrfti
að leiða til nýrra kosninga. Þá
hefur þessi stuðningur Glistrups
veitt Anker Jörgensen leiðtoga
jafnaðarmanna aukinn frest til að
ná itökum meðal verkamanna, og
það er það sem flestir vilja. Þeir
vilja ekki að öfgasinnaðir vinstri-
menn yfirtaki stjórn verkalýðs-
samtakanna.
Allir urðu ánægðir. Hartling gat
sýnt fram á það að hann ætlaði
sér ekki að lúta dómi þings göt-
unnar, og að verkfall gæti ekki
hrakið hann frá völdum. Hann
hafði skorað fyrir þing-lýðræðið.
Og verkamennirnir? Ja, það er
eins og einn ritstjórinn komst að
orði, þá langaði i auka fridag.
Veðrið er dásamlegt i Danmörku
um þessar mundið. Ef til vill fara
aðrir hópar verkamanna i verkföll.
Ekki I neinni vonzku, heldur að-
eins svo einnig þeir fái auka fri-
dag.
Stundum virðist Danmörk afar
mikið menningarland.
Eftir
Roland
Huntford
Mogens Glistrup.
Brotamálmur Kaupum allan brotamálm lang hæsta verði. Staðgreiðsla. Nóatún 27, sími 25891 . Spænska Bréfaskriftir, þýðingar og kennsla. Steinar Árnason, löggildur skjalaþýðandi i spænsku, sími 8461 4.
Hafnarfjörður Roskin hjón óska eftir að taka á leigu 2ja—3ja herb. íbúð sem allra fyrst. Vinsamlegast hringið i sima 52625. Jakobsdalsgarn Anorina Lyx, Mohairgarn, Noppé Bouclé, Tweed gar. VERZL. HOF Þingholtsstræti 1
Gerum við kaldavatnskrana og WC-kassa. Vatnsveita Reykjavikur, SÍMI 27522. Sveit Getum tekið á móti nokkrum börn- um til sumardvalar. Sími 42342.
170 ha. VOLOV-PENTA bátavél til sölu, ásamt mælaborði og miklu af varahlutum. Uppl. i slma 14227. Keflavík Til sölu 4ra herb. ibúð við Hátún. Allt sér. Laus strax. Fasteignasalan Hafnargötu 27, Keflavík. Síml 1420.
Grindavík Til sölu 4ra herb. efri hæð og 2ja herb. risibúð við Túngötu. íbúðirn- ar seljast hvor i sinu lagi, ef óskað er. Fasteignasala Vilhjálms og Guðfinns, simar 1 263 og 2890. Garður Til sölu einbýlishús i góðu standi. 2 herb. og eldhús á neðri hæð, 2 herb. i risi. Bilskúr fylgir. Góð greiðslukjör. Laus strax. Fasteignasala Vilhjálms og Guðfinns, Símar 1 263 — 2890.
Ytri Njarðvík Til sölu vel með farin 3ja herb. íbúð ásamt bílskúr. Laus strax. Fasteignasalan Hafnargötu 27, Keflavik. Sími 1420 Verzlunarhúsnæði Óska eftir að taka á leigu húsnæði fyrir litla sérverzlun við fjölfarna verzlunargötu eða í verzlunarmið- stöð. Tilboð sendist Mbl. merkt: ..1300".
GLÆSILEG
NORSK FRAMLEIÐSLA.
E. TH. MATHIESEN H.F.
STRANDGÖTU 4. HAFNARFIRÐI — SÍMI 51919.
FENNER
kýlrelmar
lleygrelmar
relmsklfur
ásteng
VALD. POULSENI
KLAPPARSTÍG 29 - SÍMAR: 13024 - 15235
SUÐURLANDSBRAUT 10 - : 38520 - 31142