Morgunblaðið - 28.05.1974, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. MAÍ 1974
5
„Fylgjum sigrinum eftir í
komandi alþingiskosningum“
segja forystumenn Sjálfstæðisflokksins 1 kjördæmum landsins
MORGUNBLAÐIÐ sneri sér í gær til forystumanna
Sjálfstæðisflokksins í hinum einstöku kjördæmum
landsins og spurði þá um viðhorfin, sem skapazt hafa
eftir stórsigur Sjálfstæðisflokksins í sveitarstjórnakosn-
ingunum. Kom fram hjá þeim öllum, að mikil bjartsýni
er ríkjandi í röðum sjálfstæðismanna og þeir ákveðnir
að fylgja þessum stóra sigri eftir í komandi alþingis-
kosningum. Fara svörin hér á eftir:
%
I* II fi. ' it II M II lliíllli II
I »« í 1» *»
» I...
11 II II H ■!
« 1» ii. II II 1
ir ir n II ir ir
ii i ii 11 I! 1!
ir it 1! V lí ir
ll 11 it «r>"
Lækjarskólinn — kjörstaður Hafnfirðinga
Fylgið skilar sér
í þingkosningunum
segir Jón Árnason
„ÉG held að allt bendi til þess að
straumurinn liggi það sterkt til
okkar, að það megi gera sér fylli-
lega vonir um að það fylgi sem
við höfum fengið núna I bæjar-
stjórnarkosningunum muni skila
sér I Alþingiskosningunum. Ég
held það sé alveg ástæðulaust að
ælla annað, enda er mjög skammt
á niilli kosninganna og mikið hef-
ur verið unnið.”
Þetta voru ummæli Jóns Arna-
sonar efsta manns á lista Sjálf-
stæðisflokksins í Vesturlands-
kjördæmi, við Mbl. í gær um úr-
slit kosninganna.
— Það er orðið svo sterkt sam-
band á milli þess fólks sem fylgt
hefur Sjálfstæðisflokknum hér i
kjördæminu, að engin ástæða er
til að láta sér koma til hugar
að það rofni á svona skömmum
tíma. Flestir sem ég hef talað við
hér í kjördæminu eru sammála
um það álit, að þróunin verði
mjög i sama anda fyrir Alþingis-
kosningarnar og nú.
— Hvaða mál telur þú að hafi
haft mest áhrif?
— Ég tel að óstjórnin hjá
vinstri stjórninni hafi haft mikil
áhrif og að menn treysti nú ekki
heldur slíkri samsteypu i sveitar-
stjórnarmálum, frekar en á Al-
þingi. Öllum er nú ljóst í hvert
óefni stjórnleysið i efnahagsmál-
unum er komið.
— Varð mikil aukning hjá sjálf-
stæðismönnum á Vesturlandi?
— Já, á Akranesi varð 9.4%
fylgisaukning og í Stykkishólmi
og Grundarfirði, sem við ekki
höfðum áður. Þannig að við höf-
um fulla ástæðu til að vera bjart-
sýnir og getum vænzt aukins fylg-
is.
Dómur yfir
vinstri stjórn
segir Matthías
Bjarnason
iVIatthfas Bjarnason efsti maður
á lista Sjálfstæðisflokksins í Vest-
fjarðakjördæmi sagði:
,,Ég tel, að í minu kjördæmi séu
horfur góðar. Við höfum víðast
hvar unnið verulega á t.d. á ísa-
firði. Þar jókst hlutfallið um tæp
5%. Þá var um verulega fylgis-
aukningu að ræða i Súgandafirði
og á Þingeyri. Þar voru tveir list-
ar, sem sjálfstæðismenn stóðu að,
og ef við litum á úrslitin þar, fá
þeir meirihluta atkvæða. Á
Patreksfirði unnum við einn
mann og á Bolungarvík hélt Sjálf-
stæðisflokkurinn fullkomlega
velli, hefur þar eins og alltaf áður
öruggan meirihluta.
I heild tel ég, að sveitarstjórna-
kosningarnar i landinu gefi ótvi-
rætt i skyn, að kjósendur hafa
kveðið upp dóm yfir vinstri
stjórninni. Efnahagsafglöp henn-
ar og óvissan í framvindu varnar-
mála hafa að mínum dómi
ótvírætt haft mikil áhrif á úrslit
kosninganna, og i heild er ég
bjartsýnn á, að Sjálfstæðisflokk-
urinn muni verulega auka fylgi
siit í næstu alþingiskosningum."
Sjálfstæðisflokk-
urinn á gott í
vændum í þing-
kosningunum
segir Pálmi Jónsson
Pálmi Jónsson, efsti maður á
lista Sjálfstæðisflokksins i Norð-
urlandskjördæmi vestra, sagði
eftirfarandi við Mbl. I samtali í
gær um kosningaúrslitin:
— Ég tel það alveg ljóst, að
hinn mikli sigur Sjálfstæðis-
flokksins í sveitarstjórnarkosn-
ingunum gefi ótvíræða vísbend-
ingu um það að flokkurinn muni
eiga gott i vændum í komandi
Alþingiskosningum. Eg held að
það sé alveg tvímælalaust, að í
þessum sveitarstjórnarkosning-
um hafi m.a. komið fram sterk
óánægja með vinstri stjórnina og
hennar feril, sem nú er að ljúka,
og að sú mótmælaalda. sem gegn
stjörninni og gerðum hennar hef-
ur risið hafi f.vrst og fremst komið
Sjálfstæöasflokknum til góða.
Ég tel að það séu að minnsta
kosti sterkar vonir til þess, að
Sjálfstæðisflokkurinn muni í Al-
þingiskosningunum hljóta svipað
gengi og nú.
Sjálfstæðisflokkurinn hélt
meirihluta sínum á Blönduósi og
var það þýðingarmikill sigur.
Flokkurinn bætti við sig manni á
Siglufirði, sem hann vann frá Al-
þýðubandalaginu, sem missti
verulegt fylgi. Þá bætti Sjálf-
stæðisflokkurinn mjög verulega
við sig á Sauðárkróki og hélt þar
þremur mönnum, enda þótt úrslit
síðustu sveitarstjórnarkosninga
gæfu bendingar um það, að hinn
sameinaði listi Framsóknar-
flokksins og Alþýðubandalagsins
ætti örugglega að vinna mann.
1 heild vil ég segja, að þessi
úrslit benda til þess að Sjálf-
stæðisflokkurinn muni eiga gott
gengi í Alþingiskosningunum.
Hvatning til dáða
segir Jón G. Sólnes
Jón G. Sólnes bankastjóri, efsti
maður á lista Sjálfstæðisflokksins
í Norðurlandskjördæmi eystra,
sagði:
..Ég tel, að úrslitin eigi að vera
okkur sjálfstæðismönnum ákaf-
lega mikil hvatning til dáða. Þau
eru mikil uppörvun, og nú er bara
að fylgja eftir þessum mikla sigri.
Sigurinn í kosningunum var stór-
kostlegri en björtustu vonir
manna og nú er bara að gera
sigurinn í alþingiskosningunum
slíkan, að við fáum betri útkomu
en nokkru sinni áður.
Ég er nú ekki búinn að skoða
nema lauslega útkomuna í kjör-
dæminu, en mig langar að minn-
ast á Húsavík, þar sem við bætt-
umviðmanni, Ölafsfjörð, þar sem
við bættum við okkur fylgi, þó svo
að við misstum þar mann, og svo
Akureyri, þar sem útkoman varð
betri en nokkur vonaði. Við náð-
um þar á þriðja þúsund atkvæða,
og ef við höldum sama striki i
kjördæminu í komandi alþingis-
kosningum, þá verður sannarlega
gaman að lifa!“
Landsmálin og
mannval Sjálf-
stæðisflokksins
höfðu úrslitaáhrif
segir Sverrir
Hermannsson
Sverrir Hermannsson, efsti
maður á lista Sjálfstæðisflokksins
í Austurlandskjördæmi, sagði eft-
irfarandi um úrslitin:
— Ég held að úrslitin hafi
jákvæð áhrif i minu kjördæmi
þegar á heildina er litið. Til dæm-
is vil ég alveg sérstaklega benda á
hinn glæsilega sigur sjálfstæðis-
manna í Höfn í Hornafirði, þar
sem þeir bættu við sig tveimur
mönnum og meira en tvöfölduðu
fylgi sitt. Þá var ágætur árangur á
Fáskrúðsfirði. Á Reyðarfirði, þar
sem sjálfstæðismenn gengu að
visu -ekki saman til kosninga á
einum lista heldur tveimur, varð
árangurinn ágætur og báðir listar
komu mönnum að. Sjálfstæðis-
flokkurinn er nú einnig orðinn
langstærstur á Eskifirði. A Egils-
stöðum og á Seyðisfirði urðu úr-
slitin að líkum og vonum, en á
Neskaupstað þar sem Alþýðu-
bandalagsmenn hafa stundað
harkalega kosningabaráttu frá
siðustu kosningum, héldu sjálf-
stæðismenn sínum tveim fulltrú-
um i bæjarstjórn.
En á heildina litið er um veru-
lega fylgisaukningu að ræða fyrir
Sjálfstæðisflokkinn, sem mun
hafa mjög áhrif. Þetta er reyndar
fremur smátt i sniðum miðað við
atkvæðafjölda hér á höfuðborgar-
svæðinu, en þetta gefur ákveðnar
vísbendingar, sem hljóta mjög að
efla menn í þeirri trú að við höf-
um mjög mikla möguleika á upp-
bótarsæti á Austurlandi. Þeir
möguleikar virðast blasa við.
— Höfðu landsmálin úrslita-
áhrif?
— Bæði voru það landsmálin,
sem höfðu veruleg áhrif, en ekki
síður hitt að við höfðum úrvals-
fólk í framboðum á öllum þessum
stöðum og mikið og duglegt
starfslið. Meiri áhugi og ný vinnu-
brögð hafa vafalaust einnig haft
sitt að segja og þessum úrslitum
verður nú fylgt eftir.
Ævintýrapólitík
hafnað
segir Ingólfur Jónsson
Ingólfur Jónsson efsti maður á
lista Sjálfstæðisflokksins í Suður-
landskjördæmi sagði:
„Ég lít svo á, að þessir stórsigur
Sjálfstæðisflokksins í sveitar-
stjórnakosningunum gefi vonir
um að úrslit alþingiskosninganna
verði Sjálfstæðisflokknum ekki
síður hagstæð. Það bendir margt
til þess, að kjósendur séu raun-
hæfir og hugsandi um þjóðarhag.
og úrslit kosninganna benda einm
ig til þess, að kjósendur hafi gert
sér grein fyrír þeirri hættu, sem
leiðir af upplausn og glundroða
vinstri flokkanna og flokksbrot-
anna. Kjósendur virðast hafa lært
af mistökum vinstri stjórnarinn-
ar, og þess vegna stefna þeir at-
kvæði sinu gegn þeirri óstjórn,
sem nú er í landinu. íslenzkir
kjösendur virðast staðráðnir í að
standa vörð um lýðræði og stjórn-
skipulagt frelsi. Þess vegna bein-
ast atkvæðin gegn þeirri stjórn.
sem haft hefur tilburði til þess að
taka Sér einræðisvald.
Ég er ánægður með úrslitin í
Suðurlandskjördæmi, þar er auk-
ið atkvæðamagn á öllum stöðum,
og hlutfallstala Sjálfstæðisflokks-
ins talsvert betri en áður. Yfir-
leitt er útkoman góð i þeim kaup-
túnum f kjördæminu, þar sem
kosið hefur verið.
Urslit þessara kosninga munu
áreiðanlega auka trú manna á
gildi lýðræðisins, og þau sýna. að
kjósendur fylgjast betur með en
margir hafa haldið. Ótti manna
við ævintýrapólitík r.úverandi
stjórnarflokka hefur ekki verið
ástæðulaus, bæði í efnahagsmál-
um og varnar- og öryggismálum.
Kjósendur munu fá tækifæri eftir
rúmlega mánuð til þess að hafna
endanlega þessari ævintýra
pólitik."
Sigrinum
fylgt eftir
segir Matthias A.
Mathiesen
Matthías A. Mathiesen efsti
maður á lista Sjálfstæðisflokksins
i Re.vkjaneskjördæmi hafði eftir-
farandi um úrslit sveitarstjórnar-
kosninganna að segja:
— Um leið og við sjálfstæðis-
menn i Reykjaneskjördæmi fögn-
um úrslitum sveitarsjórnarkosn-
inganna sem ótvírætt eru mikill
sigur fyrir Sjálfstæðisflokkinn,
erum við sannfærðir um það, að
sigri okkar í öllum sveitarfélög-
um Reykjaneskjördæmis í þess-
um kosningum verður fylgt eftir
með glæsilegum árangri i Al-
þingiskosningunum 30. júní næst-
komandi.
Við þökkum það traust sem
sjálfstæðismenn hafa hvarvetna
hlotið og þá miklu vinnu sem
fjöldi manna lagði að mörkum.