Morgunblaðið - 21.10.1943, Qupperneq 8
8
MORGUNBLAÐIÐ
Fimtudagur 21. okt. 1943
Leikarar gera ályktanir
í þfóðleikhúsmálinu
ÞAÐ VAR mikil gleðifregn,
er ríkisstjórnin tilkynti endur-
heimt þjóðleikluissins, og þá
ekki síst fyrir þá, er áhuga
hafa á leiklístarmálum vorum.
Fjelag íslenskra leikara boð
aði til fundar þann 9. okt. s.l.
og var þjóðleikhúsmáliS' til um
rœðu á fundmum.
Formaður Fjelags íslenskra
leikara, Þorsteinn 0. Stephen-
sen, boðaði blaðamenn á fund
sinn í gær. “Skýrði hann frá
því, að á fundinum hefði verið
samþykt að senda ályktanir
til Al})ingis Um þjóðleikhúsmál
ið. 1 þeirri ályktun segir m. a.:
Fundur haldinn í Fjelagi ís-
lenskra leikara þann 9. okt.
1943 fagnar ginhuga tiikynn-
ingu ríkisstjórnarinnar um
endurheimt þjóðleikhúsbygg-
ingarinnar, sem treysta má að
verði fullgerð á næstunni, í
samræmi við yfirlýstan vilja
Alþingis og aðgerðir i'íkis-
Stjórnarinnar í málinu.
Á undanförnum árum hafa
leikarar hjer í bæ hugsað mik-
ið um og rætt framtíðarfyrir-
komulag þjóðleikhússins, og
hversu þeir mundu hugsa sjer
það haganlegast og líklegast
til árangurs. Þar sem nú má
þess vænta, að Alþingi láti
bráðlega þessi mál til sín taka,
telur Fjelag íslenskra leikara,
sem hefir innan sinna vjebanda
svo til alla starfandi leikkrafta
bæjarins, rjett og eðlilegt, að
alþingismenn kynnist viðhorfi
þeirra manna, er að leiklist
hafa starfað og kunnastir eru
þéssum málum af eigin raun.
Kemur þá fyrst til greina
stjórnarfyrirkomulag leikhúss-
ins. Um það hefir Fjelag ís-
lenskra leikara eftirfarandi
tillögur fram að bera:
Að aðskilin verði listræn
starfsemi stofnunarinnar frá
öðrum rekstri hennar, þannig:
1) Alþingi eða ríkisstjórn
ráði framkvæmdastjóra,
er hafi með höndum fjár-
reiður leikhússins og fram
kvæmdir, er þar að lúta.
2) Að kosið verði fimm
manna leikhúsráð, er
stjórni listrænu starfi j
leikhússins. I ráð þetta
skulu starfandi leikarar
við leikhúsið velja þrjá
menn úr sínum hópi. Rík-
isstjórn einn mann, er
hafi áhuga og þekkingu á
leiklist og leitbókment-
um. Auk þess eigi fram-
kvæmdastjóri sæti í ráð-
inu.
Leikhúsráð kjósi síðan
formann, er hafi á hendi
allar framkvæmdir list-
ræns eðlis.
Svo sem hjer er mi málum
háttað teljum vjer, að fyrir-
komulag sem þetta mætti vel
fara, enda hefir það víða ver-
ið reynt og gefist vel. Ætt'i
með þessu að mega tryggja
það, að fjármálastjórn leik-
hússins og listræn stjórn þess
verði í höndum hæfustu
manna, sem völ er á, en sam-
starf þessara aðila þó mjög
náið eins og sjálfsagt er.
Annað meginátriði varðandi
rekstur leikhússins er ráðning
fa(stra leikara. Teljum vjer
nauðsynlegt, að fyrst í stað
verði ráðnir fimtán leikarar:
Níu karlmenn og sex konur.
Með fimtán fastráðnum leik-
urnm ætti að mega halda uppi
hindrunarlausu starfi við æf-
ingar og annan undirbúning
leiksýninga. — Leiksýningar,
kenslu leikaraefna o. fl., í
stuttu máli starfa markvíst og
einhuga að því að gera þjóð-
leikhúsið að þeirri menningar-
miðstöð, sem allir góðir menn
óska að það verði.
Að svo komnu máli sjáum
vjer ekki ástæðu til að g'era ít-
arlegar tillögur um einstök at-
riði varðandi rekstur leikhúss-
ins, svo sem ráðning fastra
leikara, enda yrði það, meðal
annars, hlutverk væntanlegs
leikhúsráðs.
I samwæmi við ályktun gerða
á framhaldsáðalfundi Leikfje-
lags Reykjavíkur þann 3. okt.
1943, beinum vjer þeirri áslfPr-
un til Alþingis, að það nfi þeg-
ar skipi fimm manna milli-
þinganefnd, er leggi fyrir
næsta Alþingi ákveðnar tillög-
ur um stjórnarfyrirkomulag og
rekstur þjóðleikhússins, og
eigi Fjelag íslenskra leikara
tvo fulltrúa í þeirri nefnd, en
Leikfjelag Reykjavíkur einn.
Leikhúsráð verði síðan mjrnd-
að, eigi síðar en á hausti kom-
anda.
Fallist Alþingi á ofangreind
ar tillögur vorar, leggjum vjer
það til, að fulltrúar leikara í
væntanlegu leikhúsráði verði
að þessu sinni kosnir af Fjelagi
íslenskra leikara.
Framhald á bls. 12
Hlutavella Lands-
málafjelagslns
Varðar
STJÓRN landsmálafjelags-
ins „Varðar“ hefir ákveðið að
halda hlutaveltu í Listamanna
skálanum sunnudaginn 24. þ.
m. til ágóða fyrir fjelagsstarf-
semina. Stjórnin óskar að
gera þessa hlutaveltu svo
glæsilega, að hún vérði fjelag-
inu til sóma livað frágang
snertir og fjelaginu fjárhags-
leg lyftistöng, er skapi því
möguleika til eflingar fjelags-
starfseminnar, er svo megi
verða til þess að vinna aö
framgangi Sjálfstæðisflokksins
í bænum.
Stjórn „Varðar“ heitir því
á álla fjelagsmenn og aðra
góða Sjálfstæðismenn að ljá
þessu málefni lið og gefa mnni
á hlutaveltuna og koma þeim
á skrifstofu „Varðar“ í húsi
Sjálfstæðisflokksins, Thorvald
sensstræti 2, helst í kvöld, eða
í síðasta lagi á nvorgun. Þeir,
sem eiga óhægt með að senda
munina, gjöri svo vel að
hringja á skrifstofu Varðar-
fjelagsins, sími 2339, og verð-
ur þá munanna vitjað.
Okkur vantar mikið af sjálf
boðaliðum öll næstu kvöld til
að vinna á flokksskrifstofunni
til undirbúnings. Á laugardag
inn við að koma mununum
fyrir og á sunnudaginn við
margþætt störf við hlutavelt-
una.
Gjörið svo vel að ljá okkur
aðstoð og síma á skrifstofu
„Varðar“, sími 2339, og til-
kynna þátttöku yðar við störf-
in, hvað þjer viljið vinna og
hvenær.
Munið, að margar hendur
vinna ljett verk, og komum nú
öll til starfa.
F. h. stjórnar Landsmálafjel.
„Varðar“,
Eyjólfur Jóhannsson.
MATVÆLI FRÁ N. V.
AFRÍKU
London í gærkveldi.
Tilkynnnt hefir nú verið,
jað bandamenn sjeu famir
að fá allmikið af matvæl-
nm frá Norðvestur-Afríku.
löndumt- Frakka, og er á-
litið að framhald muni
vetðía á flutningum þessum.
Reuter.
— Fyriræltanir Þjóðverja
Framh. af bls. 7.
að auka á misklíð milli and-
stæðinga sinna. Það, sem
þeim myndi þykja mest í
varið, væri sjerfriður við
Rússa, og þótt litlar líkur
sjeu kannske fyrir því að
slíkt takist, þá munu Þjóð-
verjar aldrei sleppa augum
af möguleika þessum. Þjóð-
verjar munu heldur ekki
láta sjer það fyrir brjósti
brenna, þótt sundrung kunni
að koma upp meðaí fylgi-
þjóða þeirra, ef þeir ná
þessu takmarki sínu, og
einnig munu þeir í ysþu æs-
ar notfæra sjer misklíð milli
hinna smærri fylgjenda
bandamanna, svo sem Jugo-
slafa ög Grikkja. Þjóðverjar
hafa haft ágætan árangur á
þessu ári í áróðri sínum, og
hjálpuðu blöð bandamanna
þeim þar óafvitandi, t. d.
með því að hró§a vopnum
eins og 88 mm. fallbyssunni.
Allan ’ stríðstímann hafa
Þjóðverjar verið að tala um
leynivopn áður en þau voru
tekin til notkunar, og mun
þetta fyrst og fremst hafa
verið til þess ætlað að skapa
óhug meðal bandamanna.
Þessu og fleiru verður vafa-
laust haldið áfram. Alt sem
getur gert menn í herbúð-
um andstæðinganna þreytta
og leiða á stríðinu, verður
notað. Þá munu Þjóðverjar
leggja fast að bandamönn-
um sínum að veita sjer all-
an mögulegan styrk, og má
verða að hin hörðu tök, sem
þeir hafa sýnt í Ítalíu, sjeu
viðvörun til annara sam-
herja þeirra. Þjóðverjar
hafa að vísu gert skyssur í
áróðri sínum, en upp á síð-
kastið mun þeim hafa sýnst
að hjer þyrfti samræmingar
við, og henni hafa þeir náð
mjög vel-
Ef vjer látum ekkert
trufla oss í ásetningi vor-
um um sigur, og látum eng-
an bilbug á oss finna, þótt
örlögin sýnist hallkvæm ó-
vinunum, eins og t. d. virt-
ist, er verkföllin brutust út
hjer í Bretlandi nýlega, þá
mun hinn þýski áróður held
ur engan árangur bera. Um
úrslit í stríðinu getur eng-
inn vafi verið lengur, nema
bandamenn afsali sjer fvrir
sundrung og kaufaskap því
frumkvæði, sem þeir hafa
náð. Jeg hefi hjer lýst stefnu
Þjóðverja greinilega, af á-
settu ráði, en mjer dettur
ekki eitt augnablik í hug að
þeim takist áform sín. Og
færi þó svo, þá væri það
ekki að þakka Þjóðverj ’m,
heldur glópsku vorri um að
kenna.
NáttúrufræðifjelagiS heldur
samkomu á mánudaginn kem-
ur í 1. kenslustofu Háskólans.
Þar flytur Finnur Guðmunds-
son erindi ineð skuggamýndúm
um hnegg hrossagauksins.
Framtíðar-
atvlnsia
Ungur maður sem hefir verslunarskóla
eða aðra hliðstæða mentun og sem vill læra
vátryggingarviðskifti, getur komist að hjá
vátryggingarfjelagi nú þegar. Aðeins dug-
legur og reglusamur maður kemur til greina.
Umsóknir ásamt afrit af meðmælum og
nánari upplýsingum sendist afgreiðslu Morg-
unblaðsins fyrir 28. október n. k., merkt
,.FRAMTÍГ.
I
¥
I
I
I
f
f
|
?
v
*
*
I
Bill raknar úr rotinu og man eftir því að hann hafði leita að útgöngudyrum. • fyrir ofan. Leikstjórinn kal ar á leikkonurnar og
komið til að taka Litla corporal fastan. Hann fer að Á me'ðan eru leikararnir að æfa sig á leiksviðinu segir þeim að byrja að æfa s>