Morgunblaðið - 21.10.1943, Page 4
MORGUNBLAÐIÐ
Fimtudagur 21. okt. 1943
:4 •
*
— Frá umræðunum á Alþingi
Framh. af bls. 2.
halda fram, að Ólafur og
Jakob hefðu átt að borga,
en að skuldbinda Sjálfstæð
isflokkinn undir öllum
kringumstæðum til þess að
snúast gegn sínu stóra á-
hugamáli í hvaða formi, er
það væri borið fram. — Þá
sýndi Ólafur Thors fram á,
að öll vitnaleiðsla Eysteins
Jónssonar væri að því levti
honum gagnslaus, að jafn-
vel þótt þau vitni væru
sönn, bæru þau ekki ann-
að en það, að þeir Jakob og
Ólafur hefði ekki ætlast til
að Sjálfstæðisflokkurinn
tæki málið upp á Alþingi
1942, en það væri einnig í
fullu samræmi við það, er
Ólafur Thors hefði lýst yfir
í ræðu sinni. Varðandi vitn
isburð Arna Jónssonar sjer
staklega, sagði Ólafur, að
það hefðu e. t- v. sumir þing
menn veitt því eftirtekt, að
hann hefði ekki lagt hönd
að verki um það, að gera
veg Árna frá Múla minni
eftir að samstarf þeirra rofn
aði. Hann mundi heldur
ekki reyna það að þessu
sinni. Óskaði hann Eysteini
Jónssyni til hamingju með
þetta sterka vitni hans í
málinu, en taldi að hæpið
væri fyrir Eystein að halda
að hann gæti vítt Ólaf eða
gert sjálfan sig mikinn með
því að leita vitnisburðar í
brostin'ni pólitískri vináttu
Árna frá Múla og Ólafs
Thors. Varðandi þau um-
mæli, sem Eysteinn Jóns-
son hafði vitnað til og haft
eftir Ólafi um að Fram-
sóknarmenn hefðu haft rök
studda ástæðu til að ætla,
að kjördæmamálið næði
ekki fram að ganga á árinu
1942, sagði Ólafur, að einn-
ig þau væru í fullu sam-
ræmi við það, sem hann
hefði sagt í sinni frumræðu,
því þar hefði hann að sjálf-
sögðu átt við, að hvorki
Sjálfstæðismenn eða Fram-
sóknarmenn hefðu ástæðu
til að ælta, að þetta mál
næði fram að ganga, þar
sem vitað var, að Sjálfstæð-
isflokkurinn mundi aldrei
ganga inn á stefnu Alþýðu-
flokksins, en Alþýðuflokk-
urinn hafði ekki á undan-
förnum árum hvikað heitt
frá þeirri stefnu að gera
landið eitt kjördæmi og allt
af staðið gegn lausn Sjálf-
stæðismanna á því máli.
Næstur talaði Finnur
Jónsson, og gerði tilraun til
að gera sig stóran á því, að
sannað væri að Sjálfstæð-
isflokkurinn og Framsókn-
arflokkurinn hefði verið að
versla um þessi mál og sjer
staklega þótti honum
hneykslanlegt, að þetta
skyldi hafa verið um kjör-
dæmamálið.
Eysteinn Jónsson mælti
loks nokkur orð og svaraði
Finni Jónssyni því, að það
sæti síst á honum, að vera
að gera sig breiðan og dig-
urbarkalegan með því, að
samið hefði verið um kjör-
dæmamálið, því að það væri
öllum vitanlegt, að 1928 til
1931 og 1934 til 1937 hefði
Alþýðuflokkurinn stutt
Framsóknarstjórnina eða
verið í stjórn með Fram-
sóknarmönnum með því
beina loforði, að hreyfa
ekki kjördæmamálinu. Þá
endurtók hann að nýju
sumar fullyrðingar sínar.
KJÓLAR
teknir upp í dag. Verð frá 94,50 krónum.
Tízlcnn
Laugaveg 17.
SPAÐKJÖT
Með næstu ferðum fáum vjer úrvals spað-
kjöt í heilum og hálfum tunnum. m. a. úr
þessum hjeruðum:
Af Barðaströnd, úr Strandasýslu, Norður-
Þingeyjarsýslu, Borgarfirði eystra og Jök-
uldal, Breiðdalsvík, Djúpavogi og Hornafirði.
Tetið við pöntunum í síma 1080.
Afgreitt með -stuttum fyrirvara.
Samband ísl. samvinnufjelaga
Skýringor á leiðbeiningum
frá RafmagnsveiSu Reykjavíkur
Stækkun stöðvairinnar við
Ljósafoss hefir seinkað
nokkuð frá því sem gert
var ráð fyrir, af óviðráðian-
legum ástæðum.
Aftur á móti hefir álag-
ið aukist á stöðvunum frá
því í fyrraí vegna nýbygg-
inga iðnaðarfyrirtækja, sem
sett hafa verið upp,
Þetta orsakar að erfið-
leikar eru nú miklir á að
skaffa notendum á orku-
svæði Rafmagsveitu Reykja
víku^ næga raforku, þar
til stækkun stöðvarinnar
við Ljósafoss er búin. Tek.
ið hefir því verið upp aft-
ur skoðun í húsum, hvort
rafmagsnofnar eru not-
aðir frá kl. 10,45 til 12 og
leiðir sú skoðun í ljós, að
nokkuð er gert að því enn-
þá sjerstaklega í verslun.
um og skrifstofum, einnig
í smá iðnaði. ,
Það er mjög mikilsverð-
andi, að bann Bæjjarstjórn-
ar Reykjavíkur, um ofna-
notkun á þessum tíma, sje
hlýtt til hins ítrasta.
Þá hefir Bæjarráð Reykja
víkur samþykt að senda
öllum rpfmagnsnotendum í
Reykjavík og nágrenni
hennar reglur, um hvernig
notendum sje best að haga
j-afmagsnotkun sinni, með_
an ástand það varir, sem
nú er, svo þeim verði sem
best not af raftækjunum,
og er nú þegar búið að
senda þær til flestra raf-
magnsnotendt og verða
þær sendar til allra notenda
í Reykjavík.
Reglur þessar miða allar
að því að fá hafmagnsnot-
kunina minkaða á tímabil
inu frá kl. 10 — 12. Að
sp.ennan hefir lækkað að
kvöldinu stiafar að mestu
leyti af vatnsskorti í Ell.
iðaánum, sem hefir nú lag
ast í bili.
Vjer viljum nú í stuttu
máli skýra áður nefndar
reglur fyrir notendum:
Fyrstia atriði í reglunum
er að taka alla rafmags-
hitur((arofna új- Sambandi
frá kl. 10 til 12. Við það
að taka ofnana úr sam_
bandi ljettir álagið á lín-
unum svo meiri orka verður
á suðuvjelum, hreyfivjeL
um og ljósum. Eins og áður
er sagt, þá er bannað að
notia ofna frá kl. 10,45 til
12.
Annað atriðið er dreyf-
ing matsuðunmar á tíman
frá kl. 9,30 til 12, og að
nota sem minstan straum á
suðuhellurnar eftir að suð-
an er komin upo. Verður
því ávalt, þegar suðan byrj
ar að stilla rofa hellunnar
á minsta straum, ef það er
ekki hægt til að lialda við
suðunni, þá stilla á næsta
stig og mun það nægja. Að
láta sjóða á fullum straum
er óþarfia straumeyðsla og
óþörf útgjöld fyrir notend-
ur, eins og nú ástendur, er
beinlínis nauðsynlegt að
gæta þessa atriðis vandlega,
þar sem með því að láta
sjóða á óþarflegum miklum
straum er lækkuð spennjan
að ójTörfu.
Uppsettar eru nú í Reykja
vík um 5000 eldavjefar og
munar því miklu á álaginu,
hvort þess er yfirleitt gætt
að láta sjóða í pottunum á
sem minstum straum að
hægt er.
Þá er þriðju atriðið jað
nota ekki bökunarofna til
baksturs frá kl. 9,30 til 12.
Bæði er jað baksturinn á
þessum tíma eykur straum-
notkunina og þar með
spennufallið, og einnig er
hætt við, að það sem baka
skal skemmist, ef ekki er
full spenna og er því hyggi-
legra að geyma baksturinn
til þess tíma cHagsins, sem
spennan er í lagi.
Fjórða atriðið er um raf-
knúin heimilisáhöld að nota
þau ekki, þegar spennan er
lág.
Þó þessi áhöld taki ekki
mikinn straum hvert, þá
eru þau mörg og safnast,
þegar saman kemur, einnig
er hætta á, að mótorjar
þeirra hitni um of og eyði-
leggist.
Það sem hjer hefir ver-
ið sagt á aðallega við heim-
ili og veitingastofur, en
reglurnar frá 5 til 8 eiga
aðallega við verslunar- og
iðnaðarfyrirtæki.
Fimta atriðið þarf ekki
>,að skýra, frekar, en gert
var í sambandi við fyrsta
lið, það er að nota ekki
hitunlarofna frá kl. 10 til
12.
Sjötþa atriðið er aftur á
móti rjett að skýra sjer-
staklega þó það að nokkru
leyti falli undir skýringar
á öðrum lið.
Þjað atriði er um að taka
öll pafmagnssuðu og hita-
tæki úr sambandi, sem með
nokkru móti er hægt að
vera án 1 iðnaðinum frá kl.
10—12. Sjálfsagt er að
minka sthaum á þeim tækj-
um, sem ekki er hægt að
taka úr sambandi á þess.
um tíma og gildir það sama
að nokkru leyti um ýms af
þessum tækjum, eins og
sagt var viðvíkjandi öðr-
um lið.
Þá er sjöunda latriðið að
nota ekki rafknúðar log
suðuvjellar frá kl. 10—12.
Þessar rafknúðu logsuðu-
vjelar nota mikinn straum,
en stutþan tíma í einu og
ætti enginn að nota þær á
þessum tíma, því bæði
valda þær spennufalli íleiðs
unum og svo er hætt við,
að vinnan, sem unnin er
með þeim,-þegar spennan
er lág verði ekki góð.
Þá er áttunda og síðasta
atriðið í þessum reglum.
um að stöðva alla rafmagns
m,ótora, sem frekast er
hægt að vera án frá kl.
10 til 12 og ljetta sem mest
álag á þeim, sem verða að
vera í lagi.
Það er mjög mikilsverð-
andi, lað iðnrekendur og
aðrir, sem nota rafmagns-
mótora gæti þessa atriða,
bæði til að minka spennu-
fallið í leiðslunum og einn-
ig til að vernda mótoilana
fyrir ofraun.
Ef mótorar eru látnir
ganga með fullu áljagi við
of lága spennu, er mikil
hætta á, að þeir ofreynist
og í versta tilfelli kvikni í
þeim og vindingar þeirra
eyðileggist.
Eins og nú er ástatt, eru
notendur daforkunnar, sem
með því að fylgja reglum
þessum geta afstýrt vand-
itæðum. Engin má hugsa
sem svo að ekkert muni
um þó hann taki strauminn
af ofninum sínum eða láta
sjóða á sem minstum
straum á suðuhellunni.
Allir verða að gera sitt
til að spara raforkuna.
- Tíu Norðmenn
Framh. af bls. 1.
æfðir í meðferð þeirra af
erindrekum Bretla. Þá kendu
þeir síðar sjálfir ungum
Norðmönnum vopn'iiburð.
Ennfremur voru eftirtald-
ir 4 Norðmenn dæmdir til
dauða: Emil Gustav Hval,
frá Presteröld við Tönsberg,
dæmdur fyrir njósnir, morð
og fyrir að hafa vopn 1 fór-
um sínum á ólöglegan hátt.
Erling Marthinssen frá Berg
en og Christian Frederik
F'asting All frá Álasundi,
voru báðir dæmdir fyrir að
hafa farið frá Noregi á ó-
löglegan hátt og ennfremur
fyrir framkvæmdir fyrir ó-
vinaþjóð og fyrir að hafa
ólöglegar vopnabirgðir í fór-
um sínum. Lars EUas Telle
frá Tellevaag var dæmdur
fyrir framkvæmdir fyrir ó-
vinaþjóð.
Öllum þessum dauðadóm-
um var fullnægt þannig að
hinir dæmdu voru skotnir
eftir að Terboven hafði
neitnð um náðun.
,,Þar að auki voru Norð-
mennirnir Theodor Myr-
vaag og Cornelius Ragnar
Solheim dæmdir í 7 og 5
árla fangelsi fyrir að hjálpa
áðurgreindum löndum ,
(Frá norska blaðafull-i
tmanum í Reykjavík).